Morgunblaðið - 27.02.2000, Page 50
50 SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA ÍDAG
Viöeyjarbiblía
Stöndum vörð
um móðurmálið
Standa verður vörð um íslenzkt talmál
sem íslenzkt ritmál. Stefán Friðbjarnar-
son staldraði við þátt kirkjunnar í vernd
íslenzkrar tungu.
Fjögurhundruð og sextíu ár eru
síðan Nýja-Testamentið kom út í
íslenzkri þýðingu Odds Gott-
skálkssonar, sem þá var ritari
biskupsins í Skálholti. Þýðingin
var þrekvirki á þeirri tíð. Hún var
unnin við mjög frumstæð skilyrði
- í fjósi biskupsstólsins. Skammt
varð stórra högga á milli. Fjöru-
tíu og fjórum árum síðar kemur
biblían í heild sinni út á íslenzku,
biblía Guðbrandar biskups Þor-
lákssonar.
Þessi tvö verk, Nýja-Testa-
menti Odds Gottskálkssonar og
Guðbrandarbiblía, eru talin eiga
hvað drýgstan þátt í því að íslenzk
tunga hefur varðveizt lítt breytt
fram á okkar daga. Fátt var um
lesmál á tungu þjóðarinnar þegar
þessar þýðingar vóru gefnar út. A
17. og 18. öld - og reyndar fram á
þá 19. - var biblían tiltækasta ís-
lenzka lesmálið á tungu þjóðar-
innar, þótt hún væri reyndar ekki
til á hverjum bæ. Líkur standa til
að lunginn úr kynslóðum þessara
alda hafí lært að lesa og draga til
stafs með þessar bækur á borði.
Kirkjurnar vóru og nær einu
samkomustaðir kynslóðanna á
þeim öldum sem hér um ræðir.
Það var þjóðarlán að þar var ætíð
predikað á hreinni íslenzku.
Þangað sóttu kynslóðimar m.a.
fyrirmynd um framburð móður-
málsins, en að sjálfsögðu lærðu
böm á þessum tíma, sem á öðram
tímum, tungutakið í foreldra-
húsum.
A þessum öldum töpuðu grann-
þjóðir okkar tungu sinni að hluta
til, þeirri sem eitt sinn var töluð
um öll Norðurlönd. Hér var hún
varðveitt. Þýðingar kirkjunnar
manna, Odds Gottskálkssonar og
Guðbrandar Þorlákssonar, áttu
dijúgan þátt í þeirri varðveizlu.
Sem og predikun fagnaðarerind-
isins á móðurmálinu í kirkjum
landsins, helztu samkomustöðum
fólks á þeirri tíð. Mikilvægi þessa
sést bezt af því að móðurmálið,
þjóðtungan, og sú menningararf-
leifð sem hún geymir, er horn-
steinninn að og meginröksemdin
fyrir menningar- og stjórnarfars-
legu fullveldi þjóðarinnar.
Ritmáhð vegur þungt í menn-
ingu þjóðarinnar. Það má hins-
vegar aldrei gleyma því að talmál-
ið gegnir engu ómerkara hlut-
verki. Góðir predikarar, sem
kunnu tökin á móðurmálinu, texta
og framburði, gegndu því dýr-
mætu hlutverki í varðveizlu móð-
urmálsins. Kirkjan átti jafnan -
og á enn - frábæra predikara.
Hlutur hennar í þessum efnum
verður sizt ofmetinn. Málvemd,
sem er brýnni í dag en nokkru
sinni, þarf að ná til talmálsins ekk-
ert síður en ritmálsins.
Margt hefur breytzt síðan
byggð var hér reist. Kirkjurnar
eru ekki lengur svo til einu sam-
komustaðir landsmanna. Erlend
máláhrif flæða yfir landið: sjón-
varp, útvarp, tölvur, kvikmyndir
og velkomnir ferðalangar. Og trú-
lega finnst ekkert heimshorn á
plánetunni jörð þar sem ekki er
Islendingur á faraldsfæti. Allt er
þetta gott og blessað og í takt við
tíðarandann. En móðurmálið á í
vök að verjast, vægt orðað. Heim-
ili, skólar, dagblöð, útvarp, sjón-
varp og þeir, sem tölvumálum
stýra, hafa ríkum skyldum að
gegna í málvemd, verndun þjóð-
tungunnar, hornsteins menning-
ar- og stjórnarfarslegs fullveldis
landsmanna.
Ríkisútvárpið skjaldaði móður-
málið flestum betur - í áratugi.
Þar fóm málræktarmenn; menn
sem töluðu fagurt mál. Menn sem
gerðu sér grein fyrir því að tal-
málið, réttur framburður móður-
málsins, skiptir engu minna máli
en ritmálið. Pétur þulur Péturs-
son er pistlahöfundi sérstaklega í
minni í þessu sambandi. Rikisút-
varpið hefur enn á sínum snæram
nokkra vel mælta unnendur móð-
urmálsins. Svo er og um aðra
miðla ljósvakans. Þar er þó víða
pottur brotinn. Útvarps- og sjón-
varpsstöðvar mættu gjarnan
herða töluvert talmálskröfur, sem
gera verður til þeirra sem ná eyr-
um þjóðarinnar dag hvern.
Kirkjan í landinu gegndi ómet-
anlegu menningar- og málræktar-
starfi öldum saman - og gerir enn.
Hún gegnir þó fyrst og fremst
mannræktarstarfi: kristniboðun,
lofgjörð og fyrirbænum. Móður-
málið er farvegur hennar með
kristinn boðskap til íslendinga,
sem vilja játa trú sína á eigin
tungu. Það er því engan veginn út
í hött að flétta þetta tvennt saman
hér og nú - í þessari hugvekju -
málræktina og boðunina. Sálma-
skáldið og presturinn Hallgrímur
Pétursson orðaði þetta svo:
Gefðu að móðurmálið mitt,
minn Jesús, þess ég beiði,
frá allri villu klárt og kvitt
krossins orð þitt út breiði
um landið hér til heiðurs þér,
helzt mun það blessun valda,
meðan þín náð lætur vort láð
lýði og blessun halda.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Englar
alheimsins
ÁSTÆÐA þessara skrifa
er ný mynd sem er eftir
handriti þeirra Friðriks
Þórs Friðrikssonar og Ein-
ars Más Guðmundssonar
og ber heitið „Englar al-
heimsins". Eg fór á hana
eitt kvöldið og hún hafði
mikil áhrif á mig og lét mig
ekki ósnortinn. Hvet ég alla
að fara á þessa mynd en
hún er afar vel gerð og hef-
ur fengið frábæra dóma. Er
þetta mjög sorgleg mynd
að mínu mati en sjálfur lýs-
ir Friðrik Þór henni sem
kómedíu. Þvi er ég ekki
sammála því það var fátt
sem mér fannst þess eðlis
að hægt væri að hlæja að
enda fannst mér alvarleiki
veikinda aðalpersónunnar,
Páls, yfirþyrmandi. Það má
sjá tár á hvörmum bíógesta
í bíóhúsunum er horfa á
þessa mynd.
Eg hef staðið í sömu
sporum og Einar Már Guð-
mundsson og átt eldri bróð-
ur með geðklofa og get ég
tekið heilshugar undir
mörg atriði í þessari mynd.
Ég tek undir orð Rögnvalds
í myndinni sem segir
„Kleppur er víða“. Myndin
er engar ýkjur. Svona er h'f
geðsjúks fólks og jafnvel
enn þá verra og skrautlegra
en myndinni tekst að sýna.
Það þurfa margir að búa við
líkar aðstæður í dag eins og
Páll (Pálmi) og aðstandend-
ur hans þurftu að búa við.
Það fer ekki á milli mála
að þessi mynd er mikil
ádeila á það samfélag sem
er innan veggja spítalanna
hkt og bókin sem myndin er
kvikmynduð eftir. Það má
lesa það á milli „línanna" í
þessari mynd að það er m.a.
verið að gagnrýna starfslið
geðdeildanna og það varn-
arleysi sem aðstandendur
geðsjúkra búa við. Það er
jafnvel ýjað að því að lækn-
arnir séu ekki heilir á geðs-
munum. Margt hefur þó
breyst frá því að innri tími
myndarinnar á sér stað en
þó er margt í ólagi enn
þann dag í dag, t.d. vantar
áfallahjálp eða eitthvað því
um líkt fyrir aðstendndur.
Meðal aðstandenda eru
mörg börn og unglingar líkt
og ég var þegar bróðir minn
veiktist af þeim heiftarlega
sjúkdómi sem Pálmi þarf að
glíma við í myndinni. Aidrei
fékk ég neina áfallahjálp,
hvað þá spurður af lækni
eða hjúkrunarfólki bróður
míns hvernig ég hefði það
og er ég enn að glíma við
sárin og afleiðingarnar sem
munu seint eða aldrei gróa
að fullu.
Það er vonandi að þessi
mynd sýni það sem henni er
ætlað að sýna. Geðsjúku
fólki ætti að hjálpa fremur
en að reyna að eyðileggja
það. Eins þarf að hjálpa
aðstandendum, í sinni fá-
fræði, að bregðast rétt við,
styrkja þá og hjálpa þeim
andlega. Ég og foreldrar
mínir þurftum að þola það
sama og aðstandendur
söguhetjunnar, m.a. lyfja-
mók bróður míns.
Sagan sýnir að flestir
geta fengið geðsjúkdóma.
Reyndar eru geðsjúkdómar
miklu algengari en menn
vilja vera láta, enda er stað-
reyndin sú að þeir eru
þagðir í hel, þetta er tahð
vera feimnismál. Það hefur
líka sýnt sig að eftir átak
Landlæknisembættisins
undanfarið hafa margir
komið út úr skápnum.
Hvert mannsbarn sem fæð-
ist í þennan heim hefur yfir
sér 1% líkur á að fá geð-
klofa, sjúkdóm þann er Páll
er með í myndinni. Það eru
reyndar heilar 20% líkur á
að yngri bróðir geðklofa-
sjúklings, líkt og undirrit-
aður, fái einnig sjúkdóm-
inn. Margir eru þeir
sjúklingar sem ganga úti í
samfélaginu meðalalausir
án þess að viðurkenna sjúk-
dóminn fyrir sjálfum sér
hvað þá öðrum, sjálfum sér
og öðrum til ama.
Ég hef trú á því að þessi
mynd eigi eftir að minnka
fordóma á geðsjúkum og
opna umræðuna um líf og
aðstæður geðsjúkra. Það er
orðið löngu tímabært að
þessi tvö samfélög, samfé-
lag geðspítalans og þjóðfé-
lagið, tengist sterkari vin-
áttuböndum. Ég vona að
þessi mikla mynd fái meiri
umfjöllun á síðum þessa
blaðs en verið hefur hingað
til og ég hvet menn, ekki
síst sjúkhnga, aðstandend-
ur sjúklinga, lækna og
hjúkrunarfólk, að hripa nið-
ur línur í þetta blað er teng-
ist myndinni eða umræð-
unni um hina geðsjúku,
öðruvísi taka þeir sjálfir
þátt í því að fordómarnir
haldi áfram. Pálmi hefur
efalaust verið góður dreng-
ur, ef til vill var hann of
góður til að lifa í þessum
kulda sem kallaður er þjóð-
félag.
B.V.G.
080278-3309.
Heimsendur matur
ÉG vil koma eftirfarandi á
framfæri vegna kvörtunar
frá eldri konu sem bjó í
Lönguhlíð, þar sem hætt
var matreiðslu í eldhúsi
hússins. I sambýlishúsinu
mínu er eldhús með öllum
eldunargræjum, isskáp, ör-
bylgjuofni, borðbúnaði og
fleiru, samt sem áður er
ekki eldaður matur sér-
staklega fyrir okkur heldur
fáum við matinn sendan frá
Seljahlíð. Það er fullkom-
lega eðlilegt að sama regla
gildi fyrir alla sem eru 67
ára og eldri og fá niður-
greiddan mat. Maturinn
sem við fáum frá eldhúsinu
í Seljahlíð er nokkuð sæmi-
legur, misjafn þó, og virðist
það fara eftir þvi hver
kokkurinn er hverju sinni.
Það er mjög eðlilegt að
borgaryfirvöld gæti hags-
muna skattgreiðenda og
framleiði niðurgreiddan
mat á sem lægstu verði en
gæti þess jafnframt að mis-
muna ekki þeim sem njóta
þessara hlunninda.
190923-4799.
Tapad/fundid
Gullarmband týndist
GULLARMBAND týndist
10. febrúar. Líklega í ná-
grenni Oddfellow-hússins.
Armbandið hefur mikið til-
finningalegt gildi fyrir eig-
anda. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 561-0423.
Dýrahald
Fress fæst gefins
GULBRÖNDÓTTUR og
hvítur 10 mánaða kassavan-
ur högni fæst gefins á gott
heimili vegna ofnæmis eig-
anda. Hann er sérlega blíð-
ur og mannelskur, eyrna-
merktur og geltur. Uppl. í
síma 551-9564.
Víkverji skrifar...
STUNDUM er sagt að sagan end-
urtaki sig og víst er að slíkt kom
Víkverja í hug í vikunni er hann las
stutta grein í íþróttablaði Morgun-
blaðsins. Þar vora rifjuð upp einkar
athyglisverð skrif Jóhanns Inga
Gunnarssonar, fyrrverandi þjálfara
íslenska landsliðsins í handknattleik,
fyrir Morgunblaðið fyrir átján árum
eftir slakan árangur landsliðsins; töp
í fjóram leikjum gegn Rússum og
Svíum í febrúar 1982.
Hilmar Bjömsson var þá þjálfari
landshðsins - hafði tekið við af Jó-
hanni Inga og meðal leikmanna liðs-
ins var enginn annar en Þorbjöm
Jensson, núverandi landsUðsþjálfari.
Fyrirrennarinn sparaði síst stóra
orðin í gagnrýni sinni, en var engu að
síður málefnalegur: „Þegar svo langt
er gengið, að menn úti í bas sparka í
sjónvarpstæki sitt vegna vonbrigða
með leik íslenska landsUðsins, þá er
kominn tími til að reyna að varpa
ljósi á hvað sé að gerast og skoða
máUn frá sem flestum hliðum."
SKRIF Jóhanns Inga er athygUs-
vert að skoða með hUðsjón af
sögunni og dapurlegri framgöngu ís-
lenska karlalandsliðsins á Evrópu-
meistaramótinu í Króatíu á dögun-
um. Mikið bar á gagnrýni á leik
liðsins, sem þjóðin gat dæmt með
eigin augum í beinni útsendingu
sjónvarpsins. Eflaust hafa einhverjh-
þá, rétt eins og fyrir átján áram, ver-
ið komnir að því að sparka í sjón-
varpstæki sitt í angist yfir andleysi
„okkar manna“. Jóhann Ingi skrif-
aði: „Það er því ofur eðlilegt að alUr
handboltaaðdáendur séu í sáram
þessa dagana. Há markmiðssetning
krefst þess einnig, ef illa fer, að fund-
inn sé einhver syndaselur. Við hvem
er að sakast? Var það undirbúning-
urinn fyrir landsleikina sem brást?
Eiga leikmenn alla sök á því hvemig
fór? Eða er það þjálfaranum að
kenna? Eða stöndum við ekki undir
þessum markmiðssetningum? Eða er
það eitthvað allt annað sem fór úr-
skeiðis?" spurði Jóhann Ingi og
ræddi síðan um undirbúning liðsins.
Taldi hann afar mikilvægt að Islend-
ingar undirbúi sig eins og andstæð-
ingamir, sem við er keppt hverju
sinni - spari ekkert við undirbúning-
inn.
EFTIR hrakfarimar á EM í
Króatíu var talsvert rætt um
undirbúning liðsins og hann gagn-
rýndur, m.a. á málefnalegan hátt á
íþróttasíðum Morgunblaðsins.
Forsvarsmenn liðsins, þeirra á
meðal þjálfarinn, gáfu hins vegar í
skyn að kenna mætti naumum fjár-
hag Handknattleikssambandsins að
nokkra um. Jóhann Ingi þekkti sjálf-
ur starf landsliðsþjálfarans og hann
hafði svar á reiðum höndum við tah
um peningaskort: „Sennilega svara
forystumenn handknattleiksins þess-
ari athugasemd á þá lund, að þetta
yrði of dýrt, en þá afsökun er ekki
hægt að taka gilda á meðan við krefj-
umst þess (réttilega) að landsliðið
standi sig sem best gegn sterkustu
handknattleiksþjóðum heims
Leikmenn íslenska hðsins hafa sagt í
viðtölum að góður andi ríki í hópnum.
Að sjálfsögðu er það mikilvægt en
það þýðir ekki að hðið leiki sem ein
heild inni á vellinum. Ekki er annað
að sjá en einstaklingsframtakið ráði
ríkjum fremur en liðsheildin. Hér
kemur auðvitað aftur til kasta lands-
liðsþjálfara hverju sinni. Hvert er
hlutverk landsliðsþjálfara? Margt
mætti rita um það atriði en hér verð-
ur aðeins drepið á örfá þeirra. Hlut-
verk landsliðsþjálfara er meðal ann-
ars að byggja upp sterka liðshehd,
sem nær saman utan vallar sem inn-
an. Hans er að rífa liðið upp þegar á
móti blæs. Hans er að bæta liðið frá
einum leik til annars. Hans er að
leggja upp þá taktík, sem hentar lið-
inu, eða velja leikmenn sem henta
hans leikstíl. Landsliðsþjálfari á að
vera manna mest inni í alþjóðlegum
handbolta. Hann á, ásamt sínum að-
stoðarmönnum, að koma sér upp
greinargóðum upplýsingum um hð og
leikmenn þeirra þjóða, sem við kepp-
um við,“ skrifaði Jóhann Ingi, sem
síðar átti eftir að gera garðinn fræg-
an sem þjálfari í Þýskalandi og síðar
aftur hér á landi.
NÚ ER nokkuð um liðið frá lokum
Evrópumótsins í Króatíu og að
mestu hefur nú lægt það moldviðri
sem þyrlaðist upp hér á landi vegna
framgöngu landsliðsins. Eftir stend-
ur engin niðurstaða, engin klár
ástæða þess hvemig fór. Það er al-
slæmt að mati Víkverja, þar eð það er
að hans mati ávísun á að flotið verði
áfram í hægindum sofandi að feigðar-
ósi. Næstu átök verða í tveimur mikil-
vægum leikjum gegn Makedóníu-
mönnum, heima og heiman, í
undankeppni HM í Frakklandi sem
fram fer á næsta ári. Ekki er að efa að
landshðsþjálfarinn telur sig þekkja
leiðina að settu marki og hefur eflaust
sett þegar niður í huga sér leiðir og
aðferðir í því sambandi.
Gangi það ekki eftir, er hvort eð er
lítill skaði skeður, þar eð ávallt má
grípa til gamalkunnugra svara um
undirbúning hðsins, smæð þjóðarinn-
ar svo ekki sé minnst á bágan fjárhag
sambandsins. Svo er nefnilega for-
sjóninni fyrir að þakka, að sagan end-
urtekur sig.