Morgunblaðið - 27.02.2000, Qupperneq 48
48 SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
PAt) VÆRIILAGIEF HUN LETI
BARA SÚKKULAÐIHJÚPUÐU
ORMANA VERA!
Grettir
Hundalíf
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
TH/5 15 MY JOE
TORRE LOOK.J'M
G0IN6 10 U5E IT
NEXT 5EA50N..
I LL MANA6E THE TEAM
FROM THE BENCH UKE
JOE TORRE, AND l'LL 5TARE
AT EVERYBOPY LIKETHI5,
andwe'llwineverygame
NO, HE CAN'T COME
TO THE PHONE NOL)
HE'5 CRACKIN6 UP.
Svona er ég raeð svipinn
hans Joe Torre.Ég ætla
að nota hann á næsta
leiktfmabili.
Ég stýri liðinu mínu af bekknum
eins og Joe Torre. Stari á alla
með svipnum hans og við munum
vinna alla leiki
Nei, hann getur ekki
komið í simann núna,
hann er að brotna samann
Svona verð
ég með svipinn
hans Joe Torre.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
JC Reykjavík ■
sívinsæll
félagsskapur
Sigrún Viðai'S dót tir skrifar:
HEFUR þú skoðanir á málunum en
ekki nema örfáir eða færri fá að heyra
þær? Hver kannast ekki við það að
hafa skoðun á
málunum í vinn-
unni, á húsfélags-
fundunum, í skól-
anum, í veislum, á
kjarafundum o.fl.
en þora ekki að
láta þær í ljós
vegna; lítils sjálfs-
trausts, feimni,
ótta eða hvað það
er sem hindrar
manneskjuna í að hafa áhrif á málin?
Fólk getur öðlast þetta sjálfstraust
með því að gerast félagar í Junior
Chamber-hreyfingunni, sækja nám-
skeiðin og vinna í nefndum. Komdu í
JC Reykjavík og lærðu að koma
fram, láta í þér heyra og vera stolt(ur)
af því.
Junior Chamber er alþjóðlegur fé-
lagsskapur fyrir ungt fólk frá aldrin-
um 18-40 ára. Tilgangurinn með hon-
um er að þroska og þjálfa fólk í
mannlegum samskiptum, framkomu,
ræðumennsku og stjómun.
I boði em fjöldamörg námskeið
sem stuðla að framangreindri þróun
og má þá nefna Ræðu 1, sem er sex
vikna grunnnámskeið í ræðu-
mennsku. Aðildarfélögin hér á landi
em fjórtán og stefnir í 300 félaga.
Hátt í 400 þúsund félagar í 123 þjóð-
löndum spanna þessa hreyfmgu og
má þá nefna heimsþekkta félaga sem
stigu þar sín fyrstu spor á frama-
brautinni, þá Bill Clinton, John F.
Kennedy, Karl Gústaf Svíakonung,
Nixon o.fl.
Fjöratíu ár era liðin síðan JC-
hreyfingin varð til hér á landi en hún
á afmæli í sept. nk. og verður væntan-
lega haldið upp á það með pomp og
prakt. Það er liðið eitt og hálft ár síð-
an ég gekk í JC Reykavík. Síðan þá
hefur mikið vatn rannið til sjávar.
Hjá mér var það tiigangurinn að
vinna bug á feimni, kynnast sjálfri
mér, öðra nýju fólki og kanna hvað í
mér býr. Árangurinn lét ekki á sér
standa. Eg var logandi smeyk en vissi
innra með mér að það var að
„hrökkva eða stökkva". Ég valdi
seinni kostinn. Þátttaka mín hófst á
áðumefndu námskeiði, Ræðu 1, og ég
fann hvað „pontukvíðinn“ rénaði
smám saman og ég uppgötvaði hlið á
mér sem vOdi ólm fá að tjá sig fyrir
framan fjöldann. Einnig öðlaðist ég
kjark til að lesa ljóðin mín opinber-
lega en þau hafði ég eingöngu haft
fyrir sjálfa mig.
Eftir Ræðu 1 tóku við störf hjá rit-
og skemmtinefndinni þar sem skálda-
og skemmtigyðjumar fengu að njóta
sín. Þar reyndi á samstarf með öðr-
um, greinaskriftir og viðtöl svo eitt-
hvað sé nefnt.
Þegar til þess kom að mynda nýja
stjóm fyrir starfsárið 1999-2000
ákvað ég að bjóða mig fram í varafor-
setaembættið. Auðvitað var ég kvíðin
og áhyggjufull um að ég stæði mig
ekki en allar þessar áhyggjm’ reynd-
ust óþarfar því ég fékk góðan stuðn-
ing og hvatningu frá félögum mínum í
stjóminni og þá sérstaklega forsetan-
um. í ljós hefiir komið mikill metnað-
ur og áhugi hjá undirritaðri og tel ég
það JC-hreyfmgunni að þakka að
hafa gefið mér þetta tækifæri.
Ágætu lesendur. Nk. þriðjudags-
og miðvikudagskvöld, hinn 29. feb. og
1. mars, ætlar kynningamefnd JC
Reykjavíkur að vera með átak í kynn-
ingarmálunum í Hellusundi 3 (í Þing-
holtunum) frá kl. 20-21.30. Því ekki
að grípa tækifærið og mæta til okkar í
létt spjall og heitan kaffisopa og
kynna sér félag þar sem allir era jafn-
ir án tillits til menntunar, trúar eða
stjómmálaskoðana?
SIGRÚN VIÐARSDÓTTIR,
varaforseti með svið stjómunar.
„Sameinaðir
stöndum vér...“
Frá Sveini Kristjánssyni:
MIKIÐ er fjasað um það í fjölmiðl-
um, að sjúkrahús séu dýr í rekstri.
Mér finnst fullmikið á þessu tönnlast,
í tíma og ótíma. Eins og menn éti
þetta hver eftir öðram. Gleymist
mönnum þá ekki stundum hin dýr-
mæta þjónusta sem sjúkrahúsum er
ætlað að inna af hendi?
Lífið er dýrmætt og dýrt og við-
hald þess einnig. Við eigum í styrjöld
við ýmsa skæða sjúkdóma og að sjálf-
sögðu er herkostnaðurinn umtals-
verður. En ég hélt að þorri manna
væri samþykkur því að reyna að
halda víghnunni í þessum hernaði.
Eða jafnvel nota hið margumtalaða
góðæri til að sækja örlítið fram. Af
umfjöllun og fregnum fjölmiðla gæti
maður þó stundum efast um að sú
væri raunin.
Einhvern tíma í vetur opnaði ég
fyrir miðaftansfréttir í útvarpi. Þar
vora sagðar fréttir frá Alþingi.
Brugðið upp svipmynd þaðan. Deilt
var um gagnagrann, álver, fiskikvóta
og nektardans, svo fátt eitt sé talið. -
Já, og menn deildu af miklum krafti,
vora raddsterkir og háværir eins og
landsfeðram ber að vera.
Þangað til þau undur gerðust að
allir vora skyndilega sammáia. Radd-
styrkurinn hjaðnaði raunar ekki að
ráði, en beindist nú allur að sameigin-
legu átaki, enda er sagt menn standi
betur sameinaðir en sundraðir.
Og hvað var það svo sem blessaðir
þingmennimir okkar virtust flestir
sammála um á þessari stundu? Jú,
það vora sjúkrahúsin, þau væra allt
of dýr í rekstri.
Þetta gat minnt á þann stað í Heil-
agri ritningu þar sem Heródes og
Pílatus urðu skyndilega vinir.
SVEINN KRISTIN SSON,
Þórufelli 16, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.