Morgunblaðið - 27.02.2000, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2000
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLAND - HVERNIG
FRAMTÍÐ VILJUM VIÐ?
Þróun á verði súráls og hrááls á alþjóðamarkaði
árin 1997-99
- Hráál —----------------
2.000 Bandaríkjadollarar
1.800
(Metal Bulletin, High Grade 99,7%,-
í Official London Metal Exchange
0 ~p-rrr-r
jan.1997
des.1997
" 11111" i
des.1998
des.1999
HVAÐ vilja íslendingar að ísland
verði á tuttugustu og fyrstu öldinni;
verstöð, miðstöð fyrir orkufrekan
- iðnað, ferðamannaparadís, þekking-
arsetur eða jafnvel allt þetta og
meira til?
Sumir hafa haldið því fram að Is-
land sé verstöð sem eigi sér fáa aðra
möguleika nema þá að auka fjöl-
breytni með því að virkja orkulindir
og byggja upp orkufrekan iðnað.
Betri vegir á milli virkjana og orku-
vera muni síðan leiða til íjölgunar
ferðamanna vegna bætts aðgengis á
hálendinu. Að vísu er
oft um það talað á há-
tíðarstundum að mann-
auðurinn skipti ís-
lenska þjóð mestu en
þetta virðist þó oft
gleymast í erli dagsins.
Að undanfömu hefur
mikið verið rætt og
skrifað um atvinnuupp-
byggingu á lands-
byggöinni. Umræðan
hefur snúist um bygg-
ingu Fljótsdalsvirkjun-
ar án lögformlegs um-
hverfismats og bygg-
ingu álvers við
Reyðarfjörð. Sumir
telja að þessar fram-
kvæmdir séu nauðsyn-
legar til þess að koma í veg fyrir
fólksflótta frá Austfjörðum, en aðrir
telja að áhrif framkvæmdanna verði
ekki nægjanlega mikil til þess að
réttlætanlegt sé að setja Eyjabakka
undir vatn. Ég mun ekki í þessari
grein leggja mat á áhrif fram-
kvæmda á Eyjabakka, en leyfi mér
hins vegar að efast um skynsemi
byggingar álvers við Reyðarfjörð á
þeim forsendum sem nú er gengið út
frá.
Áform um byggingu
álvers við Reyðarfjörð
í Morgunblaðinu 1. febrúar sl. var
haft eftir upplýsingafulltrúa Hydro
Aluminium að fyrirtækið teldi sig
ekki hafa burði til þess að eiga mikið
j stærri hlut en 20-25%. Fyrirtækið
hefur að markmiði að stórauka
framboð á áli til viðskiptavina sinna í
flestum heimsálfum og leitar Hydro
Aluminium auðvitað hagkvæmustu
leiða til þess að ná þessu markmiði.
Hydro Aluminium leggur nú mikla
áherslu á að vera í sem nánustum
tengslum við endanlega notendur,
því þar eru mestir möguleikar á að-
greiningu frá keppinautum og virð-
isaukinn því mestur.
Petta er í góðu samræmi við um-
mæli Jóns Sigurðssonar, fyrrver-
andi forstjóra Járnblendifélagsins,
en hann sagði á ráðstefnu í nóvem-
ber að líklega yrði framlag Hydro
fyrst og fremst í formi tækniþekk-
- ingar. Islendingar yrðu að leggja til
megnið af fjármagninu og líklega
mundi álver við Reyðarfjörð síðan
greiða Hydro Aluminium árlega
tækniþóknun. Jón Sigurðsson taldi
3% af veltu á ári vera kunnuglega
tölu eftir reynslu sína hjá Islenska
járnblendifélaginu. Afleiðing þessa
fyrirkomulags yrði að hagsmunir
samstarfsaðila færu síður saman en
ef báðir tækju svipaða áhættu.
Hydro Aiuminium hefur frestað
áformum um byggingu álvers á
Trinidad þar sem því fylgir mun
minni fjárhagsbyrði að vera minni-
' hlutaaðili í álveri á íslandi. Á Trin-
idad hefði Hydro Aluminium orðið
að fjárfesta fyrir 70 milljarða ís-
lenskra króna í álveri með 240.000
tonna afkastagetu. Pó svo að Hydro
verði minnihlutaaðili í álveri á Reyð-
arfirði virðist sem Hydro Aluminium
muni í raun stjórna álverinu eins og
fyrirtækið væri eini eigandi þess.
Hydro Aluminium mun annast sölu
og markaðssetningu afurða álvers
við Reyðarfjörð til viðskiptavina
sinna, leggja til framleiðslutækni
verksmiðjunnar og selja henni hrá-
efni. Hráefnin eru tvö; súrál og raf-
skaut. Væntanlega mun súrálið
koma frá súrálsverksmiðju í Brasi-
líu, sem Hydro Aluminium hefur
nýlega fjárfest niu milljarða ís-
lenskra króna í, en rafskautin frá
verksmiðjum Hydro Aluminium í
Árdal eða Sunndalspra. Álver við
Reyðarfjörð verður því einangraður
hlekkur í virðiskeðju sem Hydro Al-
uminium stjórnar. Al-
mennt er talið að virð-
isauki sé mestur ann-
ars vegar hjá þeim sem
hafa aðgang að tak-
markaðri auðlind og
hins vegar hjá þeim
sem hafa aðgang að
mörkuðum fyrir tilbún-
ar afurðir. Sá hlekkur
sem íslenskir fjárfestar
munu eiga í miðri virð-
iskeðju Hydro Alumin-
ium er því ekki líklegur
til þess að gefa af sér
verulega mikinn virðis-
auka. Það virðist því
skynsamlegt fyrir
Hydro Aluminium að
fjárfesta sem minnst í
þessu framleiðsluþrepi ef aðrir eru
bæði tilbúnir að taka á sig fjárhags-
lega ábyrgð og gera langtímasamn-
ing um kaup á hráefnum og sölu af-
urða við Hydro Aiuminium.
Á mynd 1 er sýnd þróun á verði
súráls og hrááls á alþjóðamarkaði sl.
þrjú ár, en í eitt tonn af áli fara tvö
tonn af súráli.
Frá ágúst 1997 og fram í febrúar
1999 lækkar verð á áli um 33% en
verð á súráli lækkar aðeins um 24%.
Frá því í febrúar 1999 og fram í febr-
úar 2000 hækkar verð á áli um 47%
en verð á súráli hækkar um 169%. Á
árinu 1997 er verð á tonni af súráli
12,6% af verði á tonni af áli. Á árinu
1998 er hlutfallið 13,6% og á árinu
1999 er hlutfallið 16,8%. I upphafi
ársins 1997 kostaði tonn af súráli
9,8% af verði eins tonns af áli en í
upphafi ársins 2000 kostar tonn af
súráli 23,9% af verði eins tonns af áli.
Samstarf aðila með
gagnstæða hagsmuni
Fyrir eigendur álvers við Reyðar-
fjörð eru aðstæður hagstæðar þegar
verð á súráli er lágt en verð á áli er
hátt. Árið 1997 hefði því verið þeim
hagstætt. Óskastaða Hydro Alumin-
ium varðandi álver við Reyðarfjörð
er hins vegar sú að verð á súráli sé
hátt og verð á áli lágt. Undanfarnir
mánuðir hefðu því verið Hydro Al-
uminium mjög hagstæðir. Erfitt er
að sjá að samstarf aðila sem hafa svo
gagnstæða hagsmuni geti farið vel
saman. Ef það er hagkvæmt að reisa
álver við Reyðarfjörð ættu Islend-
ingar að gefa sér meiri tíma í undir-
búning og reyna að finna erlenda
fjárfestingaraðila sem hafa efni á að
fjármagna og reka álver við Reyðar-
fjörð án þess að Islendingar taki á
sig megnið af áhættunni.
Raforkuverð -
hagsmunaárekstrar
Gert er ráð fyrir því að íslenskir
fjárfestar verði helstu eigendur ál-
vers við Reyðarfjörð. Jafnvel er gert
ráð fyrir því að íslenskir lífeyrissjóð-
ir muni fjárfesta í álverinu. Þessir
fjárfestar verða að bera mikið traust
til hins norska fyrirtækis til þess að
vera tilbúnir að leggja fram umtals-
vert fé án þess að geta haft afger-
andi áhrif á afkomu álversins. Rétt-
lætanlegt er að einkaaðilar fjárfesti í
því sem þeir hafa áhuga á og taki
verulega áhættu. Vafasamara er að
þeir sem eiga að tryggja örugga
ávöxtun lífeyrissparnaðar geri slíkt
hið sama. Mér létti að vísu við að fá
þær upplýsingar frá mínum lífeyris-
sjóði að ekki stæði til að festa minn
lífeyrissparnað í álbræðslu þar sem
sú fjárfesting væri allt of áhættusöm
fyrir lífeyrissjóðinn. Ég vil hvetja
þig, lesandi góður, til þess að afla þér
upplýsinga um stefnu þíns sjóðs
hvað þetta varðar.
Ef núverandi áform um álver við
íslendingar þurfa að
taka sér tak og horfa
langt fram í tímann,
a.m.k. 50 ár, segir
Ingjaldur Hannibals-
son, til þess að meta
þá valkosti sem unnt
er að velja um.
Reyðarfjörð ganga eftir munu for-
svarsmenn álversins með einhverja
lífeyrissjóði á bak við sig semja við
forsvarsmenn Landsvirkjunar um
raforkuverð til álvers við Reyðar-
fjörð. Fulltrúum Landsvirkjunar,
sem eru vörslumenn þjóðareignar,
ber að reyna að fá eins hátt verð og
mögulegt er. Fulltrúar álvers við
Reyðarfjörð munu reyna að semja
um eins lágt raforkuverð og mögu-
legt er. Því er komin upp sú staða að
vörslumenn þjóðareignar eiga að
semja við vörslumenn lífeyrissparn-
aðar hluta þjóðarinnar um raforku-
verð. Hvort er líklegra að Lands-
virkjun fái hærra verð í samningum
við erlendan kaupanda eða í samn-
ingum við fyrirtæki sem er að mestu
í eigu íslendinga, þ.m.t. lífeyris-
sjóða, og hafa auk þess verulegan
pólitískan stuðning við áform sín?
Þróun áliðnaðar á íslandi -
brostnar væntingar
Rétt er að rifja upp þróun áliðnað-
ar á íslandi á undanfömum áratug-
um. Upp úr 1980 tókst íslenskum
stjórnvöldum að skaða ímynd ís-
lands í augum erlendra fjárfesta
verulega. Litlu munaði að ríkisstjórn
íslands færi í mál við Alusuisse, eig-
anda Álversins í Straumsvík, um
álitaefni sem eðlilegt hefði verið að
gera út um við samningaborð. Það
tók mörg ár að bæta ímyndina að
nýju þannig að erlendir fjárfestar
höfnuðu ekki íslandi sem valkosti
vegna pólitískrar áhættu. Undir lok
níunda áratugarins fengu fjögur er-
lend fyrirtæki forgang til þess að
kanna hagkvæmni nýs álvers í
Straumsvík (Austria Metall, Gráng-
es, Hoogovens og Alusuisse). Alu-
suisse hætti í hópnum og var
Straumsvík þá ekki lengur inni í
myndinni. Alumax kom í staðinn í
hópinn sem hafði fengið heitið
Atlantsál og varð niðurstaða hans að
Keilisnes væri heppilegt fyrir álver.
Á þessum tíma höfðu sex önnur fyr-
irtæki samband við íslensk stjórn-
völd og óskuðu eftir viðræðum um
byggingu álvera á íslandi, meðal
þeirra var Hydro Aluminium. Undir
lok níunda áratugarins höfðu því
mörg erlend álfyrirtæki sýnt áhuga
á byggingu álvera á Islandi. Sum
voru á forgangslista en önnur á bið-
lista.
Alkunna er að ekkert varð úr
byggingu álvers á Keilisnesi þrátt
fyrir að unnt hefði verið að semja um
lágt raforkuverð vegna þess að raf-
magn frá Blönduvirkjun var að
mestu ónotað. Alusuisse ákvað hins
vegar nokkrum árum síðar að
stækka álver sitt í Straumsvík og
Columbia Ventures byggði Norðurál
á Grundartanga. Öll hin erlendu ál-
fyrirtækin sem verið höfðu á for-
gangslista og biðlista beindu sjónum
sínum annað og ekkert varð úr fram-
kvæmdum þeirra á Islandi.
Verkefnafjárniögnun
án ríkisábyrgðar
Á árinu 1997 var sett fram mjög
áhugaverð hugmynd um byggingu
álvers. Stofnuð yrðu tvö sjálfstæð
fyrirtæki með mismunandi eignar-
aðild. Annað um álbræðslu og hitt
um orkufyrirtæki til að reisa og reka
virkjun fyrir álbræðsluna. Álbræðsl-
an yrði í meirihlutaeigu Hydro Al-
uminium og íslenskra fjárfesta,
skráð á verðbréfaþingum á íslandi
og í Noregi og um reksturinn yrði
gerður stjórnunarsamningur við
Hydro Aluminium. Orkufyrirtækið
gæti orðið í eigu raforkufyrirtækja
(t.d. Landsvirkjunar og Hydro En-
ergi) og innlendra sem erlendra
langtíma stofnanafjárfesta. Um
rekstur orkufyrirtækisins yrði gerð-
ur stjórnunarsamningur við Lands-
virkjun. Ef þessi leið væri farin
þyrfti orkufyrirtækið ekki ríkis-
ábyrgð og fjármögnun beggja verk-
efnanna byggði á mati á hagkvæmni
verkefnisins í heild.
Þessi hugmynd er mjög áhuga-
verð en einhverra hluta vegna hefur
henni verið ýtt út af borðinu. Sumir
töldu að ef þessi leið yrði farin yrði
Austurland nýlenda Hydro Alumin-
ium. Ekki er ótrúlegt að Hydro Al-
uminium hafi misst áhuga á þessari
hugmynd þegar forsvarsmenn þess
gerðu sér grein fyrir því að margir
Islendingar eru hræddir við er-
lendar fjárfestingar í landinu og vilja
frekar taka á sig fjárhagslegar
skuldbindingar heldur en að opna
landið fyrir erlendum fjárfestum.
Einnig kann það að hafa haft áhrif á
stjórnendur Hydro Aluminium að
búast mátti við andstöðu á Islandi
vegna umhverfíssjónarmiða og að
fjárfestingin væri ef til vill ekki svo
hagkvæm.
OECD hefur skipt atvinnugrein-
um í flokka eftir hlut rannsókna og
þróunar í veltu þeirra. Flestar at-
vinnugreinar á Islandi falla undir
lágtækni (t.d. matvælaiðnaður, hús-
Ingjaldur
Hannibalsson
gagnaiðnaður og fataiðnaður) og
nokkrar undir meðal-lágtækni (t.d.
skipaiðnaður og áliðnaður). Aðeins
örfá fyrirtæki eru með starfsemi,
sem fellur undir meðal-hátækni (t.d.
framleiðsla á rafeindabúnaði) en
engin falla enn undir hátækni en
undir hana falla t.d. flugvélaiðnaður,
fjarskiptaiðnaður og lyfjaiðnaður.
Á Islandi eru 99% af vöruútflutn-
ingi í lágtækni og meðal-lágtækni í
samanburði við 56% á Norðurlönd-
um, 33% í Þýskalandi og 28% í
Bandaríkjunum. Á Islandi fellur
98% af framleiðslu í lágtækni og
meðal-lágtækni en 72% á Norður-
löndum, 51% í Þýskalandi og 56% í
Bandaríkjunum. Þau af ríkjum
OECI), sem að þessu leyti líkjast
mest Islandi eru Portúgal, Grikk-
land og Nýja-Sjáland. í þessum
löndum sem eru þó ekki eins mikil
„lágtæknilönd11 og ísjand eru laun
verulega lægri en á íslandi. ísland
hefur því nokki-a sérstöðu meðal fá-
mennra „lágtæknilanda". Laun eru
svipuð og í mörgum af þróaðri
OECD-ríkjum, en vægi lágtækni og
meðal-lágtæknigreina er mun meira
bæði í framleiðslu og vöruútflutn-
ingi-
Framleiðsla
á lágtækniafurðum
Almennt má gera ráð fyiir, að
virðisauki af hátækni-framleiðslu sé
meiri en af lágtækni-framleiðslu.
Samkeppni er mun meiri í lágtækni-
greinum þar sem eðli lágtækninnar
er, að flestir geta stundað þær, m.a.
þróunarlönd. Það býst því enginn við
að land, sem byggir að mestu á lág-
tækni bjóði þegnum sínum góð lífs-
kjör. Island er að mörgu leyti undan-
tekning vegna mikilla auðlinda og
umtalsverðrar tæknivæðingar. Því
er ástæða til að hafa áhyggjur af
áframhaldandi vexti þar sem auð-
lindir era takmarkaðar. Það ræður
þó ef til vill úrslitum að mörg íslensk
fyrirtæki hafa lagt áherslu á fjár-
festingu í tækni. I mörgum tilvikum
er verið að framleiða lágtækniafurð-
ir með hátækniaðferðum. Með því
móti lækkar framleiðslukostnaður
og samkeppnishæfni batnar. Þetta
er þó aðeins tímabundið ástand því
fyrr eða síðar munu mörg þróunar-
lönd taka þessa sömu tækni í notkun
og vegna lægri tilkostnaðar þar
munu þau ná betri samkeppnisstöðu.
Álbræðsla á Reyðarfirði getur því
verið samkeppnishæf í einhvern
tíma ef þar er notuð fullkomnasta
tækni til þess að framleiða ál, sem er
meðal-lágtækniafurð. Það er þó lík-
legt að samkeppnisstaðan versni eft-
ir því sem álbræðslur í þróunarlönd-
um taka sambærilega eða jafnvel
betri tækni í notkun. Því þarf að
kanna betur hvort unnt sé að skapa
meiri virðisauka með þvi að leggja
aukna áherslu á hátækni- og meðal-
hátæknigreinar á íslandi.
í Evrópu er ekki lengur talið hag-
kvæmt að byggja upp nýjan orku-
frekan iðnað. Þar er rafmagnsverð
of hátt til þess að slíkur iðnaður sé
samkeppnisfær. Þar er vilji til þess
að nýta orkuna frekar í úrvinnslu
sem skapar meiri virðisauka en
frumvinnslan og getur þar með stað-
ið undir hærri launum. Þó svo að ál-
bræðsla á Islandi geti verið sam-
keppnisfær, a.m.k. í einhvern tíma,
er ekki þar með sagt að nýta eigi
takmarkaðar orkulindir til uppbygg-
ingar á lág- og meðal-lágtækniiðn-
aði. Það gæti verið hagkvæmara að
selja minni orku en til fyrirtækja
sem skapa meiri virðisauka en ál-
bræðsla gerir. Ekki eru það einungis
orkulindirnar sem eru takmarkaðar.
Það sama á við um fólk og fjármagn.
Ákvörðun um eina framkvæmd get-
ur komið í veg fyrir aðrar af þessum
sökum.
Orkufrekur iðnaður
og fólksflótti
í álbræðslum er mikill meirihluti
starfa ætlaður ófaglærðum og fag-
lærðum. Álbræðsla við Reyðarfjörð
mun því ekki skapa nægjanlega
mörg sérhæfð störf til þess að flótti
fólks, sem aflað hefur sér sérhæfðr-
ar þekkingar, stöðvist frá Austfjörð-
um. Forsvarsmenn Hydro Alumin-
ium hafa að vísu sagt að í álveri við
Reyðarfjörð muni starfa vel þjálfað
starfsfólk. I fiskvinnslu á Islandi
starfar vel þjálfað starfsfólk. Störf