Morgunblaðið - 27.02.2000, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2000 29
heiminn til að kynna málstað þeirra.
Hann var meðal annars fulltrúi eyj-
arskeggja hjá Sameinuðu þjóðunum
sem vildu ekki viðurkenna yfírráð
Indónesa.
Horta heimsótti okkur nokkrum
sinnum til Noregs og fylgdumst við
vel með því sem var að gerast í
heimalandi hans.
Það var svo rétt áður en frestur
til að senda inn tilnefningar til Nób-
elsverðlaunanna rann út, hinn 20.
febrúar 1995, að mér hugkvæmdist
að fá íslenska þingmenn til að til-
nefna José Ramos Horta til friðar-
verðlauna Nóbels. Aðeins þingmenn
og dómarar mega senda Nóbels-
nefndinni tilnefningar.
Það lá beinast við að tala við
Kristínu Astgeirsdóttur, þingmann
Kvennalistans, því ég þekkti hana,
en hún er systir mágs míns. Lagði
hún tillöguna fyrir Nóbelsnefndina
ásamt þingkonunum Kristínu Ein-
arsdóttur og Önnu Ólafsdóttur
Björnsson."
Heimildarmyndagerð
í þágu málstaðarins
„Ymis samtök í heiminum voru
einnig að vinna að því að kynna
málstað Austur-Tímora. Höfðu því
fleiri tilnefningar borist til Nóbels-
nefndarinnar um að veita Horta
verðlaunin.
Skömmu fyrir afhendingu friðar-
verðlaunanna benti ýmislegt til þess
að José Ramos Horta hlyti verð-
launin þetta árið. Horta koma þvi til
Osló í október og var við öllu búinn.
En eins og menn vita varð ekkert úr
því að hann fengi friðarverðlaunin
það árið. Eftir þetta urðum við svo-
lítið vonlaus. Skömmu síðar ákvað
ég að gera heimildarmynd um sögu
Austur-Tímor frá sjónarhorni
Norðurlandabúa. Breskur blaða-
maður að nafni Marx Stahl vann
með mér að gerð myndarinnar.
Stahl hafði myndað fjöldamorðin í
Austur-Tímor árið 1991 þegar verið
var að skjóta á mótmælagöngu í
kirkjugarði í höfuðborginni Dili og
fjöldi fólks lést. Marx hafði smyglað
sér inn í landið til að taka myndir af
ástandinu en mjög erfitt var að fá
vegabréfsáritun þangað. Við Mort-
en höfðum reynt að fá áritun en ver-
ið hafnað.“
Stóra stundin
„Gerð myndarinnar lauk vorið
1996. Við gerðum einnig 3-5 mín-
útna myndir sem áttu að vera til
taks ef friðarverðlaunin féllu í skaut
Austur-Tímor um haustið.
I samræðum okkar við íslensku
þingkonurnar kom fram að hyggi-
legast væri að tilnefna aðila til frið-
arverðlaunanna sem tilheyrðu
tveim ólíkum hópum, þ.e. fulltrúa
hins andlega samfélags í Austur-
Tímor, Carlos Ximenes Belo, sem er
biskup kaþólskra í landinu og sam-
einingartákn íbúanna og José Ram-
os Horta stjórnmálalegan leiðtoga.
Okkur var sagt að ísland hafi verið
eina landið sem tilnefndi þá báða.
Einn gleðilegasti atburðurinn í
lífi mínu var svo þegar þessir tveir
menn hlutu friðarverðlaun Nóbels
árið 1996,“ segir Sigurjón.
„Við Morten vorum viðstaddir af-
hendinguna ásamt þingkonunum
Kristínu Ástgeirsdóttur. Kristínu
Einarsdóttur og Önnu Ólafsdóttur
Björnsson."
Heimildarmynd Sigurjóns og
Stahls var sýnd í Noregi að kvöldi
verðlaunaafhendingarinnar. Sjón-
varpsréttinn að myndinni seldu þeir
CNN-sjónvarpsstöðinni en myndin
var sýnd víða um heim, meðal ann-
ars hér á íslandi.
José Ramos Horta var boðinn til
íslands árið 1997. Af því tilefni sagði
hann að ísland hefði alltaf stutt mál
Austur-Tímor þótt margar aðrar
þjóðir hefðu ekki þorað það vegna
hagsmunatengsla við Indónesíu."
Stofnaði eigið
fjölmiðlafyrirtæki
Sigurjón vann hjá TV Norge þar
til árið 1993 er hann stofnaði sitt
eigið fjölmiðlafyrirtæki sem heitir
Interfox.
„Það var mjög lærdómsríkt að
vinna hjá TV Norge og gaman að
taka þátt í að skrifa sögu frjálsu
sjónvarpsstöðvanna í Noregi," segir
hann. „Ég var 25 ára þegar ég hóf
störf þar og var þá nokkuð róttækur
í hugsun. Eg hafði fram að því verið
„Ég er heillaður af Netinu," bætir
hann við. „Þetta er miðill sem er af-
ar gefandi. Hann er eins konar
gluggi til alheimsins. Möguleikarnir
eru ótæmandi og staðan á netinu nú
minnir á fyrstu ár sjónvarpsins þeg-
ar svo margt var ógert.“
Þjóðvegur
sextíu og sex
„Það er mikilvægt þegar verið er
að setja fyrirtæki sem þetta á lagg-
irnar að þekkja besta fagfólkið á
þessu sviði og hef ég lagt áherslu á
góða samstarfsmenn,“ segir hann.
Jafnhliða netgáttinni starfar Int-
erfox að auglýsinga- og þáttagerð
fyrir sjónvarp eins og áður segir.
Sigurjón segist þó lítið koma nálægt
auglýsingagerðinni sjálfur. Hann er
nú að ljúka við ferðaþátt fyrir ríkis-
sjónvarpið sem hann kallar Rute 66.
í þættinum er ferðast frá Chicago
niður til Los Angeles. Hluta af þess-
ari leið fór Sigurjón á Harley Dav-
idsson-mótorhjóli fyrir nokkrum ár-
um og hreifst af. „Leiðin var einnig
kölluð „Boulevard of broken
dreams" eða „the Life line of Amer-
ica“. Nú er gamli þjóðvegurinn
kominn úr alfaraleið og kaffi- og
veitingahús sem þarna eru mega
muna fífil sinn fegri. í þættinum er
rætt við fólk sem bjó á þessum slóð-
um eða fór þarna um. Rifjar það upp
stemmninguna sem ríkti á þessari
þjóðleið til frægðar og frama.“
Sigurjón var staddur hér á landi í
nokkra daga þegar þetta samtal fór
fram. Hann flaug síðan til Banda-
ríkjanna á vit nýrra verkefna því
ævintýramenn staldra sjaldnast
lengi við á sama stað.
að gera listrænar, litlar
myndir og samdi handritin
að þeim sjálfur. Svo fór ég
að vinna við auglýsinga-
gerð sem ég hafði í raun-
inni aldrei gaman af. Ég
fékk þó heilmikið út úr
starfinu og kynntist mörgu
góðu fólki sem ég átti eftir
að vinna með síðar.“
Skömmu áður en Sigur-
jón hætti hjá TV Norge
hafði hann sett á laggirnar
matvælafyrirtæki ásamt
Islendingum og Norð-
mönnum. Fyrirtækið er
með umboð fyrir ýmsa
þekkta matvöru, einkum
bandaríska, í Skandinavíu.
Sigurjón hefur nú ekki
mikil afskipti af daglegum
rekstri fyrirtækisins en er stjórnar-
formaður þess.
Fyrir 5 árum seldu stofnendurnir
TV Norge og var þá afkoma sjón-
varpstöðvarinnar mjög góð. Þeir
gegna nú ýmsum mikilvægum störf-
um í norskum fjölmiðlaheimi. Helv-
ar Flatland vinnur til dæmis sem
þáttastjórnandi hjá norska ríkis-
sjónvarpinu.
Kaupandinn að TV Norge var
bandarískt fyrirtæki, SBA, sem er
alþjóðlegt fjölmiðlafyrirtæki.
Heillaður af Netinu
Interfox, fyrirtæki Sigurjóns,
hefur einnig verið að vinna við Net-
ið. Fyrstu afskipti hans af Netinu
hófust fyrir fjórum árum þegar
hann var beðinn að hanna heimasíðu
fyrir hljómsveitina AHA.
„Þrátt fyrir að hljómsveitin hafi
ekki komið fram í tíu ár þá á hún
fjölda aðdáenda út um allan heim,“
segir Sigurjón. „Inn á heimasíðu
hennar fara að meðaltali 500 manns
á dag alls staðar að úr heiminum.
Nú er hljómsveitin AHA að gefa
út sinn fyrsta geisladisk eftir allan
þennan tíma og kemur hann í versl-
anir eftir nokkrar vikur. Það verður
þó byrjað að leika lag af disknum á
útvarpsstöðvum nú fyrir helgina
sem heitir „Sommer moved on“.“
Það kemur fram í máli Sigurjóns
að hann hefur í bígerð að opna net-
gátt þar sem borðið verður upp á
ýmsa þjónustu. Hann vill lítið ræða
þessa starfsemi sem hann segir enn
vera í undirbúningi. „Nú eru fleiri
hundruð milljónir á Netinu og mikl-
ir möguleikar eru fyrir hendi,“ segir
Sigurjón.
Reuters
José Ramos Horta og Carlos Ximenes Belo, biskup kaþólskra í Austur-
Tímor, hlutu friðarverðlaun Ndbels árið 1996. Siguijón ásamt þremur
þingkonum Kvennalistans komu þar nokkuð við sögu.
SUZUKIBÍLAR HF
Skeifunni 17. Simi 568 51 00.
www.suzukibilar.is
Grand Vhara hefur margt fram yfir
aðra jeppa í sínum ver&flokki
Það fyrsta sem þú tekur eftir þegar þú
sest inn í Grand Vitara eru vel bólstruð
sætin og hve góðan bakstuðning þau
veita. Fjórhjóladrifið stóreykur notagildi
bílsins en háa og lága drifið gerir hann
að ekta hálendisbíl.
Grand Vitara er grindarbyggður sem
eykur styrk hans verulega og gerir kleift
að hækka hann ef þess er óskað. Svo er
hann jafn auðveldur í meðförum og um-
gengni og venjulegur fólksbíll og fæst á
svipuðu verði!
Grand Vrtara - Þægilegi jeppinn
TEGUND: VERÐ:
GR. VITARA 3 dyra 1.789.000 KR.
GR.VITARA 2,0 L 2.199.000 KR.
GR.VITARA 2,5 LV6 2.449.000 KR.
Sjálfskipting 150.000 KR.
$ SUZUKI
//
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson,
Grænukinn 20, sími 555 15 50. Hvammstangi: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, slmi 451 26 17. Isafjörður: Bílagarður ehf., Grænagarði, sfmi 456 30 95.
Keflavfk: BG bllakringlan, Grófinni 8, slmi 421 12 00. Selfoss: Bllasala Suðurlands, Hrlsmýri 5, slmi 482 37 00.