Morgunblaðið - 27.02.2000, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Camerarctica leikur í Kammermúsíkklúbbnum í kvöld
Þriggja alda og
þriggja heima verk
Morgunblaðið/Jim Smart
Camerarctica leikur verk eftir Shostakovich, Boccherini og Dvorák á
tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Bústaðakirkju í kvöld.
VERK eftir Luigi Boccherini, Ant-
onin Dvorák og Dmitri Shostakovich
verða á efnisskrá tónleika Kamm-
ermúsíkklúbbsins í Bústaðakirkju í
kvöld, sunnudagskvöld, kl. 20.30.
Um flutninginn sér Camerarctica en
hópurinn er skipaður fíðluleikurun-
um Hildigunni Halldórsdóttur og
Sigurlaugu Eðvaldsdóttur, Guð-
mundi Kristmundssyni víóluleikara,
Sigurði Halldórssyni sellóleikara,
Hallfríði Ólafsdóttur flautuleikara,
Richard Com, bassaleikara og Emi
Magnússyni píanóleikara.
Hildigunnur segir verkin þrjú
mjög ólík innbyrðis. „Við förum vítt
og breitt um tónlistarsöguna - um
þrjár aldir og þrjá heima,“ segir
hún. Fyrstur á efnisskránni er
strengjakvartett nr. 9 í Es-dúr op.
117 eftir Shostakovich. „Verkið er í
fimm þáttum, sem við spilum sem
eina heild, án þess að gera hlé milli
kafla. Lokin á hverjum kafla leiða
inn í næsta kafla. Fyrstu fjórir kafl-
arnir eru aðdragandi síðasta kaflans
en hann er næstum helmingur
verksins. Allt frá upphafi er undir-
liggjandi mikil alvara og mikil angist
í tónlistinni og í lokakaflanum brýst
út hálfgert stríðsástand. Þetta er
magnað stykki og spennandi við-
fangsefni."
Rýnt í gamalt handrit
Eftir hlé verður leikinn kvintett
fyrir flautu, fiðlu, víólu, selló og
bassa í C-dúr eftir ítalska tónskáldið
og sellóleikarann Boccherini. Eftir
hann liggur mikill fjöldi verka, flest
fyrir strengi. Fyrir nokkrum ámm
fundust sex kvintettar eftir hann í
skjalasafni konungshallarinnar í
Madríd en síðari hluta ævi sinnar
var Boccherini einmitt hirðtónskáld
í þjónustu sonar Spánarkonungs.
Kvintettarnir nýfundnu hafa enn
ekki verið gefnir út á nótum. „Þann-
ig að við spilum þetta upp úr hand-
riti,“ segir Hildigunnur og bætir við
að reyndar sé það ekki með hand-
skrift Boccherinis sjálfs, heldur
virðist sem einhver annar hafi fund-
ið raddskrána og skrifað verkið út í
raddir. „Það er mjög gaman að lesa
eftir þessum nótum, þetta er svona
handritalestur." Hildigunnur segir
ekki ljóst hvort verkið hafi verið
flutt á sínum tíma, en Boccherini
samdi það fjórum árum fyrir andlát
sitt. „Við höldum að það hafi verið
lagt til hliðar og ekki verið flutt,“
segir Hildigunnur, sem gerir þó
ekki ráð fyrir að um heimsfrum-
flutning verði að ræða í Bústaða-
kirkju í kvöld, en að minnsta kosti
örugglega frumflutning á Islandi.
Tónleikunum lýkur svo með
kvintett fyrir tvær fiðlur, víólu, selló
og píanó í A-dúr, op. 81 eftir Dvorák.
„Alveg ótrúlega fallegt verk, sem
ber með sér þjóðlegar stemmning-
ar,“ segir Hildigunnur, „til dæmis
bera miðþættimir tveir hin óvenju-
legu nöfn Dumka og Furiant, sem
Sunnudagur 27. febrúar
Heiðmörk - skíðaganga kl.
13.30.
Heiðmörk fagnar 50 ára
afmæli sínu á menning-
arárinu og af því tilefni
verður efnt til ýmissa
viðburða, m.a. skfðagöngu-
móts eftir göngustígum í
Heiðmörk þar sem
keppt verður í ald-
ursflokkum og karla-
og kvennaflokkum. Keppnis-
svæðið er við Borgar-
stjóraplan en eins og venja
er til, þegar um viðburði und-
ir berum himni á íslandi er að
ræða, er keppnin háð veðri og
vindum.
Job - þjáning manns,
Neskirkja kl. 20:30.
í einni af bókum Biblfunnar,
eru einhvers konar dansanöfn. Eig-
inlega má segja að þetta sé
bjartsýnisverkið á tónleikunum en
það er sérstaklega valið til þess að
áheyrendur yfirgefi tónleikana með
bros á vör og fullir bjartsýni.“ Enda
vel við hæfi, þar sem þessir tónleik-
ar eru hinir fimmtu og síðustu á veg-
um Kammermúsíkklúbbsins í Bú-
staðakirkju á þessu starfsári.
Jobsbók, er tekist á við spurningu
sem á sér djúpar rætur í mann-
legri tilveru. Hér glímir maður
við Guð sinn - það er trúarleg
glíma sem um leið er tilvistar-
leg glíma mannsins á
öllum tímum. Verkið er
fyrir einn leikara og tek-
ur um tvær klukkustundir
í flutningi. Leik-
stjóri og leikari
verksins, þeir
Sveinn Einarsson og Arnar Jóns-
son, hafa fært texta Jobsbókar í
Ieikbúning. Áskell Másson samdi
tónlist og leikhljóð. Síðari sýn-
ingin á Job - þjáning manns er
29. febrúar. Miðasala í Nes-
kirkju v/Hagatorg kl. 10-17 alla
virka daga og við inngang,
Kirkjuhúsinu Laugavegi 31, og
Esso-stöðinni v/Ægissíðu.
M-2000
Dæmi: IVikkHl
Skrifboró 160x80 cm.
Skrifboró 120x80 crn.
Hornboró m. boga / svarl
Kapalrennur í borðum
4ra skúffuskápur á hjólum
Útdragsplata fyrir lyklaboró
3 skápar 190x80 cm.
1 með hurðum og skjaluskúffu
2 opnir meÓ 5 hillum
Siimt als stgr: 'samst'it
153,041
VömluÁskrifstortjliásgöjl EG Skjilstofubú.m\irehf
fyrir fynrtæki oe heimili a A ,, ..
Armula 20
Leðurklæddur skrifborðsstóll á mynd kr. 54.900,- Sími 533 5900 • Fax 533 5901
Björn Steinar leikur
í Hallgrímskirkj u
LISTVINAFÉLAG Hallgríms-
kirkju gengst fyrir orgeltónleik-
um í dag, sunnudag, kl. 17. Þá
leikur organisti Akureyrarkirkju,
Björn Steinar Sólbergsson, orgel-
tónlist eftir J.S. Bach, Pál ísólfs-
son og Jón Leifs. Tónleikarnir eru
aðrir í röð tónleika þar sem ís-
lenskir orgelleikarar flyfja ís-
lenska orgeltónlist og tónlist
Johanns Sebastians Bach.
Á efnisskránni eru Tokkata í F-
dúr og sex Schúbler-sálmforleikir
Bachs, Chaconne eftir Pál Isólfs-
son og Rímnadanslög ópus 11 eftir
Jón Leifs, en þau eru umskrifuð
fyrir orgel af Birni Steinari.
Umritanir Bachs á sex aríúm úr
kantötum sínum gerði hann fyrir
nemanda sinn G. Schúbler og eru
þær nefndar eftir honum,
Schúbler-forleikir. Þessir sálmfor-
leikir eru á meðal vinsælustu org-
elverka Bachs. Tokkata í F-dúr er
eitt af stóru orgelverkum Bachs
og einkennist af mikilli notkun fót-
spilsins. Chaconne um stef úr Þor-
Iákstíðum skrifaði Páll ísólfsson
undir áhrifum af orgeltónlist Max
Regers sem hann kynntist á náms-
árum sínum í Leipzig. Hið dóríska
upphafsstef Þorlákstíða og fjöl-
breytt útfærsla Páls á því gefur
verkinu mjög persónulegt yfir-
bragð. Rímnadanslög Jóns Leifs
eru til í margs konar búningi, en
Björn Steinar er fyrstur til að út-
færa þau fyrir orgel.
Björn Steinar er nýkominn úr
tónleikaferð til Bandaríkjanna þar
sem hann flutti orgelkonsert Jóns
Leifs. Á þessu ári leikur hann á
tónleikum í Bandaríkjunum, Eng-
landi, Danmörku, Finnlandi og
Þýskalandi.
Aðgangseyrir er krónur 1.000.
Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel í Hallgrímskirkju í dag.
Islenskt leikhús
kynnt í Genúa
Genúa. Morgpunblaðið.
KYNNING var haldin í Genúa á
Norður-Ítalíu á íslenskri leiklist
fyrir íbúa borgarinnar á dögunum.
Kynninguna skipulagði leikhús í
Genúa, Teatro della Tosse, með
stuðningi íslenska menntamála-
ráðuneytisins og íslensku aðal-
ræðismannsskrifstofunnar. Við-
staddur var íslenski heiðurs-
konsúllinn í Genúa, Maria
Cristina Rizzi. í tilefni kynningar-
innar komu til Genúa fulltrúar ís-
lenskrar leiklistar Stefán Bald-
ursson þjóðleikhússtjóri, Guðjón
Pedersen leikstjóri, Baltasar Kor-
mákur, leikstjóri og leikari, Ami
Ibsen leikskáld og Helga I. Stef-
ánsdóttir, leikmynda- og búninga-
hönnuður, sem túlkaði fyrir við-
stadda.
Inngangsorð flutti Sergio Man-
fredi, leikstjóri Teatro della Tosse
en á eftir tók til máls Gianna
Chiesa Isnardi, prófessor í skand-
inavískum bókmenntum og tungu-
málum við Háskólann í Genúa og
höfundur rita um íslenskar bók-
menntir og þýðingar bæði á forn-
bókmenntum og nútímaljóðum.
Hún lýsti mjög fræðilega þróun ís-
lenskrar menningar, tungu og
samfélags. íslensku gestirnir
lýstu hins vegar einkennum og
þróun íslenska leikhússins og
gerðu grein fyrir starfsemi Þjóð-
leikhússins, Borgarleikhússins og
íslensku óperunnar og einnig
minni leikhúsa og leikfélaga. Sér-
stök áhersla var lögð á mikla þátt-
töku áhorfenda í öllum leik-
hússýningum, að bamasýningum
meðtöldum; fyrirlesarar sögðu
hana vera meiri en í mörgum
Evrópulöndum. Þeir bentu líka á
mikla framför íslenska leikhúss-
ins, á það hversu nýtískulegt það
væri og á samfellda nýsköpun í
textum, túlkun og sviðsetningu
sem hefur skapast með ámnum,
meðal annars sökum mikillar
reynslu leikhúsfólksins í útlönd-
um. Einnig var talað um mikil-
vægi leikhússins á íslandi ekki
bara sem menningarmiðill í al-
mennri merkingu heldur líka sem
magnað tæki til verndar íslenskri
tungu.
Aheyrendur í Genúa sýndu mik-
inn áhuga og báru fram fjölmarg-
ar spurningar, bæði um leikhúsið
sjálft og um íslenska samfélagið
almennt. Upptökur úr nýlega
sviðsettum leikritum í Reykjavík
voru sýndar undir lok kynningar-
innar, meðal annars úr Gullna
hliðinu og var þeim mjög vel tekið.
Kynningunni lauk með þeirri
ósk að samstarfi yrði komið á sem
íyrst á milli leikhúsa landanna
tveggja til þess að styðja gagn-
kvæm samskipti á sviði menn-
ingar.