Morgunblaðið - 27.02.2000, Page 10
10 SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Valgerður Gunnarsdóttir sýnir miklar framfarir í endurhæfíngu eftir skíðaslys
„Veitti mér mikið
frelsi að komast á
hækjurnar“
MIKIÐ vatn hefur runnið til sjávar
síðan skíðakonan Valgerður Gunn-
arsdóttir kom til Iandsins eftir al-
varlegt skfðaslys í Bad Hofgastein í
Austurríki hinn 14. janúar síðastlið-
inn. Valgerður hryggbrotnaði og
hlaut önnur slæm meiðsl er hún
hafnaði á skúr í skíðabrekku að lok-
inni æfingu með Skíðaliði Reykja-
víkur og lá á sjúkrahúsi í Austurríki
í hálfan mánuð áður en hún var flutt
heim með sjúkraflugi 31. janúar sl.
Eftir komuna til landsins lá Val-
gerður á bæklunardeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur í viku áður en hún hóf
endurhæfingu á Grensásdeild SHR.
Siðastliðnar þijár vikur hefur hún
verið undir handleiðslu sjúkraþjálf-
ara og sýnt feiknamiklar framfarir í
Ijölbreyttum æfingum sem hún
stundar daglega. Styrkur hcnnar
eykst með hverjum degi og er hún
fyrir allnokkru komin á fætur og
nýlega farin að ganga um á hækjum
sem markaði mikilvæg tímamót í
endurhæfingunni.
„Það veitti mér mjög mikið frelsi
að komast á hækjumar, og mér
fannst alveg æðislegt að geta farið
að ganga upp og niður stiga undir
handleiðslu sjúkraþjálfara," sagði
Valgerður í samtali við Morgunblað-
ið. „Ég hafði líka beðið lengi eftir því
að komast í sund,“ bætti hún við. „í
síðustu viku var ég orðinn nógu fær
til að fara í sund og fór þá að æfa
mig i innanhússlauginni héma og
finnst það bera vott um enn einn
áfangasigurinn."
Keppnisskap og íþróttabak-
grunnur hafa mikla þýðingu
Friðrik Ellert Jónsson, sjúkra-
þjálfari á Grensásdeild, segir fram-
farimar hjá Valgerði mjög miklar
og segir að keppnisskap hennar og
íþróttabakgmnnur hafi haft mikið
að segja í endurhæfingunni.
„Endurhæfingin hefur gengið
ljómandi vel og atburðarásin hefur
verið mjög hröð, enda hefur Val-
gerður staðið sig mjög vel, ekki síð-
ur andlega sem likamlcga," segir
hann.
Markmið þjálfunarinnar er að
sögn Friðriks að endurhæfa Val-
gerði eins vel og mögulegt er en
hingað til hefur þjálfunin lofað góðu.
Valgerður byijar hvem dag á því
að fara í sund og það sem eftir lifir
dagsins stundar hún fjölbreyttar æf-
ingar með hvíldum inn á milli. Eink-
um er þar um að ræða gönguæfing-
ar og svokallaðar fæmisæfingar, t.d.
að ganga upp og niður stiga, stíga
inn í og út úr bíl að ógleymdum
Morgunblaðið/Ásdís
Friðrik Ellert Jónsson sjúkraþjálfari mælir jafnvægið hjá Valgerði með sérhönnuðu tæki, þar sem m.a. er unnt
að sjá hvernig þungi líkamans leggst á fæturna.
styrkingaræfingum og sundinu. Á
kvöldin gerir hún ennfremur auka-
æfingar eftir að hún er kominn í upp
í rúm og segist hún ekki eiga erfitt
með að festa svefta að loknum venju-
legum degi.
„Æfingamar hafa verið teknar
upp á myndband og það er ótrúlegt
að fylgjast með upptökunum, því þar
sér maður hvemig daglegar fram-
farir eiga sér stað í raun og vem.
Maður er nefnilega ekki fyllilega
meðvitaður um framfarimar frá
degi til dags fyrr en þær birtast
manni á skjánum," segir Valgerður.
Hún hóf nám í Menntaskólanum
við Hamrahlíð siðastliðið haust og
hefur lokið einni námsönn við skól-
ann, en meiðsla sinna vegna hefur
hún verið fjarri námi á yfír-
standandi vorönn. Á því verður lík-
lega breyting bráðlega, enda kom
umsjónarkennari hennar í heimsókn
fyrir skömmu og mun útvega henni
námsáætlun eftir helgina.
„Ég ætla a.m.k. taka stærðfræði
og þarf því að vinna á tvöföldum
hraða, enda hef ég misst talsvert úr.
Mig langar lika að læra spænsku og
hef haft áhuga því lengi, enda finnst
mér spænskan fallegt tungumál."
Af þessu má dæma að dagskrá
Valgerðar fari að verða býsna þétt
og hefur hún þó ekki verið gisin
fram til þessa. Gestagangur er að
jafnaði mikill hjá henni þar sem vin-
ir hennar og vandamenn koma
reglulega til að heyra nýjustu fréttir
af batanum. Þá hefur hún ekki síður
haft mikið af sjálfu starfsfólkinu á
Grensásdeild að segja.
„Starfsfólkið hérna er alveg frá-
bært og er tilbúið til að gera allt fyr-
ir mann og fyrir það er ég mjög
þakklát," segir Valgerður og biður
að lokum fyrir góðar kveðjur til vina
sinna og fjölskyldumeðlima um land
allt.
Grynberg Petroleum í Denver vill leita að olíu á hafsbotni
Frekari rannsóknir o g
viðræður framundan
Þeim sem versla á
Netinu Qölgar ekki
samkvæmt könnun
Gallups
Aðgang-
ur að
Netinu
eykst enn
ÞEIM sem hafa aðgang að Net-
inu fer enn fjölgandi, sam-
kvæmt nýrri könnun Gallups.
Þeim sem versla á Netinu fjölg-
ar hins vegar ekki en 45% af
þeim sem notuðu þá þjónustu
keyptu bækur. Ríflega þrír af
hverjum fjórum keyptu þær frá
Amazon.com.
Alls hafa um 70% þátttak-
enda í könnuninni aðgang að
Netinu, ríflega 54% hafa að-
gang að Netinu á heimili og eru
það um 5% fleiri en samkvæmt
könnun í desember á síðasta
ári. Aðgangur að Netinu er sem
fyrr algengari meðal íbúa höf-
uðborgarsvæðisins en lands-
byggðarfólks. Aðgangurinn er
einnig tekjutengdur, því hærri
sem tekjur einstaklinga eru því
meiri líkur eru á því að hann
hafí aðgang að Netinu.
Þeim sem versla á Netinu
hefur ekki fjölgað síðastliðið ár
samkvæmt könnun Gallup en
þeir eru 23,4% í úrtaki könnun-
arinnar. Þeim fjölgaði hins veg-
ar verulega árið þar á undan, úr
8,7% í apríl 1998 í 23,5% í apríl/
maí 1999. Fólk á bilinu 25 til 34
ára verslar mest á Netinu.
Borgarbúar versla meira en
landsbyggðarfólk og sömuleiðis
notar hátekjufólk Netið meira
til kaupa á vöru en þeir sem
lægri laun hafa.
Könnunin var unnin dagana
19. janúar til 6. febrúar síðast-
liðinn í gegnum síma. Svarend-
ur voru 804 af 1200 manna til-
viljunarúrtaki úr þjóðskrá á
aldrinum 16 til 75 ára.
OLÍUFYRIRTÆKIÐ Grynberg
Petroleum í Denver í Colorado í
Bandaríkjunum hefur sótt um leyfi
til olíuleitar á Jan Mayen-hrygg, þar
sem íslendingar eiga fjórðungs rétt-
indi á móti Norðmönnum, og á Hatt-
on Rockall-svæðinu. Fyrirtækið
sýndi þessu máli fyrst áhuga 1998 en
lagði síðan fram formlega beiðni fyrr
í mánuðinum.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu sl. fimmtudag telur fyrirtækið
forsendu fyrir frekari athugunum
hér við land að sett verði lög um leit
að olíuefnum og vinnslu þeirra,
ásamt reglum um veitingu leitar- og
vinnsluleyfa. Jack Reiber, talsmaður
Grynberg Petroleum, sagði í samtali
við Morgunblaðið að fyrirtækið hefði
einkum áhuga á hafsvæðinu suðaust-
ur af íslandi, þ.e. Hatton Rockall-
svæðinu. Fulltrúar fyrirtækisins
hefðu komið til landsins á síðasta ári
og átt viðræður við íslensk stjórn-
völd en hann sagði að málið væri á
frumstigi og fátt um það að segja á
þessu stigi. Enn væru menn að meta
líkumar á því að olíu væri þar að
finna. Hann sagði að framundan
væru enn frekari rannsóknir og við-
ræðum yrði haldið áfram við íslensk
stjómvöld. Vænta mætti frekari tíð-
inda af þessu máli í sumar.
Mestar líkur á
Hatton Rockall
Sveinbjörn Bjömsson, sem á sæti
í samráðsnefnd iðnaðarráðherra um
landgmnns- og ohuleitarmál, segir
að sterk von sé um að olíu sé að finna
á Jan Mayen-hryggnum og svo geti
farið að olíufélög hefji boranir þar
eftir u.þ.b. einn áratug. Islendingar
gera kröfu til hafsvæðisins við Hatt-
on Rockall en þurfa að rökstyðja þá
kröfu á alþjóðlegum vettvangi og
segir Sveinbjörn að lítið hafi verið
aðhafst í því máli. Hann segir að þar
séu mestar líkur á því að finna olíu
og þar séu þegar hafnar tilraunabor-
Sveinbjöm segir að veittar hafi
verið tvær milljónir króna á ári und-
anfarin ár til rannsókna á setlögum
úti fyrir Norðurlandi þar sem hugs-
anlegt er talið að olíu geti verið að
finna. Teiknað hafi verið kort af hafs-
botninum fyrir austanverðu Norður-
landi, frá Eyjafjarðarál og austur
undir Melrakkasléttu. Sjómælingar
hafi unnið að þessum mælingum á tíu
ára tímabili en það hafi ekki verið
unnið úr þeim og gert kort fyrr en
nú. Sveinbjörn segir að nú megi sjá
ýmsar misfellur á botninum sem
ekki sáust áður. „Vonir standa til að
hægt verði að sjá þarna misgengi
sem hafi orðið til í skjálftum. Ef það
hefur myndast í þessum setlögum,
sem era 4 km þykk þar sem þau era
þykkust, olía eða gas mætti hugsa
sér að hægt verði að ná sýnum með
skynjuram og sjá þannig hvort
þarna smitist út olía eða gas. Með
kortinu er orðið auðveldara að vinna
markvisst starf fyrir minni peninga,"
segir Sveinbjöm.
Hann segir að tillögur séu uppi um
að bora í Tjörneslögin svonefndu og
ná þaðan sýnum af surtarbrandi sem
í þeim era. Sýnin yrðu send út til
rannsókna þar sem fengist úr því
skorið hvort hugsanlegt sé að surtar-
brandurinn framleiði olíu við ferg-
ingu og hita. Tjörneslögin liggi
grannt en væntanlega liggi svipuð
lög mun dýpra í setlögum úti fyrir
Norðurlandi. 1998 lagði samráðs-
hópurinn til að ríkið legði fram 30-50
milljónir kr. á ári til kortlagninga og
mælinga. „Þetta þurfa íslendingar
að gera sjálfir til þess að þekkingin
verði nóg til að vekja áhuga erlendra
aðila. Setlögin era miklu yngri en
menn eiga að venjast en aðstæður
hér era líka afbrigðilegar vegna þess
að hér hitnar hratt með auknu dýpi.
Jarðfræðilegar aðstæður geta verið
til hraðrar myndunar olíu og gass
hérlendis," segir Sveinbjörn.
Sérfræðingur á vegum Statoil mat
líkurnar á því að gas væri að finna úti
fyrir Norðurlandi 1 á móti 10 en lík-
urnar á vinnanlegri olíu 1 á móti 40.
Sveinbjöm segir að líkurnar vaxi um
leið og takist að sanna að það mynd-
ist olía í setlögunum með frekari
rannsóknum. Olíufélögin hafi enn að-
gang að mörgum svæðum þar sem
líkumar era 1 á móti 2 og hefja
vinnslu á slíkum svæðum áður en at-
hygli þeirra beinist annað. Fyrirtæki
eins og Grynberg Petroleum, sem er
lítið fyrirtæki á alþjóðlegan mæli-
kvai'ða, hreiðri gjarnan um sig á
svæðum þar sem ríki mikil óvissa í
þeirri von að stóra olíufélögin fái
áhuga á svæðinu. Þá selji litlu fyrir-
tækin þeim gjarnan rannsóknir sín-
ar. Sveinbjöm segir að greinilega
verði vart við slíka aðila núna þegar
olíuvinnsla er að hefjast í Færeyjum.