Morgunblaðið - 27.02.2000, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
► Umhverfisráðherrar
Norðurlanda sendu frá sér
sameiginlega ályktun á
þriðjudag þar sem þeir
lýsa yfir áhyggjum sínum
vegna frétta af lélegum
öryggismálum kjarnorku-
endurvinnslustöðvarinnar
í Sellafield.
► Fulltrúar stérra lífeyris-
sjóða stóðu ekki að tillögu
um skipan stjórnar FBA á
aðalfundi félagsins. Þeir
segja að ekki hafi náðst
samkomulag við fulltrúa
Orcahópsins vegna kröfu
hans um að tilnefna meiri-
hluta stjórnar.
► Litlu munaði að illa færi
þegar festar flutninga-
skipsins Bremerflagge
slitnuðu í höfninni í
Grindavík í óveðrinu að
morgni miðvikudags. Skut-
ur skipsins stefndi upp í
land þegar tókst að skjóta
h'num upp í það og koma
því upp að bryggju.
► Samkvæmt niðurstöðum
í skýrslu sem unnin var
fyrir sjávarútvegsráðherra
er kvótaþing óþarft í nú-
verandi mynd, enda hafi
þingið ekki skilað tilætluð-
um árangri þar eð sjómenn
taki enn þátt í kvótakaup-
um.
Tveir stjórnendur
Þjóðminjasafns segja
upp störfum
Hjörleifur Stefánsson minjastjóri og
Guðný Gerður Gunnarsdóttir safn-
stjóri hafa sagt upp störfum sínum
innan Þjóðminjasafnsins. Hjörleifur
segist ekki sætta sig við þær aðstæður
sem nú ríki innan safnsins eftir að
Hrafni Sigurðssyni var vikið úr starfi
vegna þessa að safnið fór fram úr fjár-
veitingum á síðasta ári. Hann segir
safnið vera stjórnlítið og að ekki ríki
traust á milli yfirstjómar þess og
framkvæmdaráðs annars vegar og
þjóðminjaráðs og menntamálaráð-
herra hinsvegar.
Einn stórhríðardagur
kostar um 6 milljónir
Kostnaður vegna snjómoksturs á höf-
uðborgarsvæðinu þá stórhríðardaga
sem komið hafa að undanförnu, nemur
um 6 milljónum króna á dag, þegar
álagið hefur verið sem mest. I kjölfar
fyrsta óveðurskaflans voru 50-60
snjóruðningstæki í notkun hjá Reykja-
víkurborg. Á venjulegum vetrardegi
eru ekki nema um það bil sjö tæki í
notkun.
Þrír létust og sjö
slösuðust alvarlega
► Umhverfisráðherra hef-
ur ógilt úrskurð skipulags-
stjóra um frekara mat á
áhrifum 480 þúsund tonna
álvers í Reyðarfirði og
meðferð málsins frá upp-
hafi. Forstjóri Landsvirkj-
unar telur að seinkun á
ákvörðun um byggingu ál-
vers geti haft í för með sér
að framkvæmdir hefjist
ekki í sumar.
Þrír menn létust í einu mannskæðasta
umferðarslysi sem orðið hefur hér á
landi, þegar rúta með nítján farþegum
innanborðs og jeppabifreið skullu
saman á Vesturlandsvegi um klukkan
19 á fóstudagskvöld. Ellefu farþegar
voru fluttir slasaðir á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur og um þrír
tugir manna voru fluttir á Landspítal-
ann, þar sem veitt var áfallahjálp og
gert að minniháttar meiðslum.
Umbótasinnar
*
sigruðu í Iran
FRAMBJÓÐENDUR umbótasinna
unnu stórsigur í þingkosningunum í
Iran sem fram fóru í landinu 18. febr-
úar. Höfðu þeir er síðast fréttist fengið
141 sæti af 195 í kjördæmunum þar
sem úrslit fengust þegar í fyrri umferð
en kjósa verður að nýju um 65 sæti og
nokkrum var enn óráðstafað. í höfuð-
borginni Teheran komst fulltrúi heit-
trúarklerka, Akbar Hashemi Rafsanj-
ani, fyrrverandi forseti, naumlega á
þing, varð 29. í röðinni af frambjóðend-
um. Leiðtogar heittrúarmanna lýstu á
miðvikudag gremju sinni með úrslitin
og kenndu fjölmiðlum um ósigurinn,
þeir hefðu rekið áróður gegn heit-
trúarmönnum. Sumir þeirra sögðu þó
að baráttuaðferðir þeirra og stefna
hefðu ekki höfðað til almennings.
Kjörsókn var um 83%.
Umbótasinnar ætla að auka frjáls-
ræði í ýmsum efnum og lofa til dæmis
að draga úr hömlum í fjölmiðlun. For-
ystumaður umbótaaflanna er Moh-
ammad Reza Khatami, bróðir forseta
landsins, Mohammads Khatamis.
Hinn nýkjörni leiðtogi sagði er úrslitin
voru ljós að hann myndi beita sér fyrir
bættum samskiptum við Bandaríkin.
Ljóst þykir að þáttaskil hafi orðið í Ir-
an sem hefur verið undir stjóm heit-
trúarklerka í rúma tvo áratugi.
Mótmæli í Kosovo
Hátt í hundrað þúsund Kosovo-Alban-
ar tóku á mánudag þátt í mótmæla-
göngu sem farin var frá héraðshöfuð-
staðnum Pristina til Kosovska Mitr-
ovica í norðausturhluta héraðsins. Var
markmiðið að lýsa andúð á tilraunum
Kosovo-Serba til að gera norðurhluta
Mitrovica að algerlega serbnesku
hverfi og skipta þannig borginni. Liðs-
menn friðargæsluliðsins, KFOR,
komu í veg fyrir að til átaka kæmi milli
þjóðarbrotanna í borginni.
► FORYSTUMAÐUR úr
röðum sósíalista í Baska-
landi Spánar fórst ásamt
lífverði sinum er bíl-
sprengja sprakk í höfuð-
stað héraðsins, Vitoria, á
þriðjudag. Fullvíst var tal-
ið að hryðjuverkamenn í
ETA-samtökunum hefðu
staðið fyrir tilræðinu. Þús-
undir manna efndu til úti-
funda gegn ETA í borgum
Spánar daginn eftir.
► John McCain öld-
ungadeildarþingmaður
sigraði í forkosningum
repúblikana í Michigan og
Arizona á þriðjudag. Hefur
hann nú hlotið 90 kjör-
menn en helsti keppinaut-
ur hans, George W. Bush,
ríkisstjóri í Texas, 67. Til
að verða tilnefndur for-
setaefni flokksins í kosn-
ingunum, sem verða í nóv-
ember, þarf 1.034
kjörmenn.
► STÓR svæði í Mósambík
voru á fimmtudag undir
vatni vegna gífurlegs úr-
hellis sem staðið hefur í
nokkrar vikur. Um 300
þúsund manns hafa misst
heimili sín í hamförunum
og er óttast að farsóttir
breiðist út.
► Þingmenn á Evrópu-
þinginu kröfðust þess í vik-
unni að liafin yrði rann-
sókn á ásökunum þess
efnis að Bandaríkjamenn
notuðu háþróuð hlerunar-
kerfi til að stunda iðnaðar-
og viðskiptanjósnir í
Evrópu. Njósnakerfið sem
um ræðir er nefnt Echelon
og standa auk Banda-
ríkjamanna að því Bretar,
Kanadamenn, Astralir og
Nýsjálendingar.
Lögboðnar ábyrgðartryggingar ökutækja árið 1999
Sjóvá-Almennar og VIS
með 71% allra trygginga
SJÓVÁ-Almennar tryggingar hf.
hafði mesta hlutdeild á innlendum
tryggingamarkaði í lögboðnum
ábyrgðartryggingum ökutækja á
síðasta ári, þ.e. án lögboðinnar
slysatryggingar ökumanns og eig-
anda. Félagið hafði þá 36,2% hlut-
deild en Vátryggingafélag íslands
hf. 35,03%. Árið 1998 hafði VÍS hins
vegar forystuna með 35,7% hlut-
deild á móti 35,59% Sjóvár-Al-
mennra.
Fimm aðilar bjóða ökutækja-
tryggingar hér á landi. Trygginga-
miðstöðin hafði 23,79% af markaðn-
um á síðasta ári en hafði 25,01% árið
1998. Lloyd’s of London, sem trygg-
ir í gegnum FÍB-tryggingu, hafði
aukið hlutdeild sína úr 3,5% árið
1998 í 4,46% á síðasta ári. Vörður
vátryggingafélag hafði 0,52% mark-
aðarins en hafði árið 1998 0,2%.
Kostnaður við uppgjör tjóna af
völdum óþekktra eða óvátryggðra
ökutækja er jafnað út á milli aðild-
arfélaga eftir markaðshlutdeild
þeirra í lögboðinni ábyrgðartrygg-
ingu ökutækja í gegnum Alþjóðleg-
ar bifreiðatryggingar á íslandi, sem
félögin eiga öll aðild að.
Þróun íslenska tryggingamarkaðarins* 1996-1999
Markaðshlutdeild
%
Almennar
5---------------------------
0 -i-------1-------1------r-
1996 1997 1998 1999
%
íslands
5-----------------
0-|-------t------t-------1-
1996 1997 1998 1999
* Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækja
Tryggingamiðstöðin
% (Trygging)
30---------------------
24,7%___________23,8%
Vörður
Vátryggingafélag Q g%
1996 1997 1998 1999
%
5
0
Lloyd’s of London
4,5%
1996 1997 1998 1999
Fjórir matsölustaðir
opna brátt í borginni
192 veitingastaðir eru starfræktir í höfuðborginni
ÞRÍR nýir matsölustaðir verða opn-
aðir í miðborg Reykjavíkur í næsta
mánuði og er Morgunblaðinu þar að
auki kunnugt um einn nýjan veit-
ingastað til viðbótar sem verður opn-
aður í miðbænum með vorinu. Stað-
irnir heita Tveir fiskar, Sommelier,
Siggi Hall á Óðinsvéum og Sticks’n
Sushi og koma reyndir veitinga- og
matreiðslumenn við sögu á öllum
stöðunum fjórum.
Einn af aðstandendum staðanna
kveðst í samtali við Morgunblaðið
telja að það sé bæði pláss og þörf fyr-
ir nýja matsölustaði í Reykjavík og
vísar m.a. til þess að æ fleiri íslend-
ingar séu famir að fara út að borða.
Alls 192 veitingastaðir, með vín-
veitinga- og skemmtanaleyfi, eru
starfræktir í Reykjavík um þessar
mundir, samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Reykjavík en í þeim
hópi eru auk hefðbundinna matsölu-
staða, allir skyndibitastaðir og veit-
ingastaðir sem bjóða upp á kráar-
stemmningu fram eftir nóttu.
Fyrstur umræddra staða til að
verða opnaður í Reykjavík er mat-
sölustaðurinn Tveir fiskar í Hafnar-
búðum við Tryggvagötu. Að sögn El-
íasar Einarssonar, eins eigenda
staðarins, er stefnt að því að staður-
inn verði opnaður 1. mars nk., og
verður aðallega boðið upp á fjöl-
breytta fiskrétti. Auk þess verður
boðið upp á japanska matargerð,
svokallað sushi, en þeir sem ekki
vilja fisk geta valið á milli nokkurra
kjötrétta. Þegar Elías er inntur eftir
því hvort markaðurinn rúmi fleiri
veitingastaði í bænum leggur hann
áherslu á að fyrst og fremst sé um
matsölustað að ræða en ekki skyndi-
bitastað eða veitingastað þar sem
gestir geti skemmt sér fram eftir
nóttu. . Auk Elíasar eiga staðinn
Friðrik Sigurðsson og Eyjólfur Ein-
ar Elíasson.
Bjdða 2000 ldttvínstegundir
Matsölustaðurinn Sommelier, á
Hverfisgötu 46 milli Klapparstígs og
Námsskeið Listasjóðs Hcimsklúbbsins undir leiðsögn
Ingólfs Guðbrandssonar hefst þri. 14. mars í Safnaðarsal Hátcigskirkju.
5 þriðjudagskvöld x 2 st. frá kl. 20.00. Ætlað óperuunnendum, einkum
þátttakendum í ferðinni „LISTATÖFRAR ITALÍU" sem fá afslátt af ferðinni
12.-27, ág. en öllum heimilt. Síðasta námsskeiði: „Frá klassík til rómantíkur"
er að Ijúka með þáttöku 120 manns. Verð námssk. kr. 5000.
Spyrjist fyrir um árangur. Örfá sæti enn laus. S. 56 20 400.
Styrkt af Listasjóði Heirasklúbbsins. WORLD CLUB.
Útnefnd í alþjóðasamtökin jS&St FERÐASKRIFSTOFAN
EXCELLENCE IN TRAVEL
NETWORK
Fyrir frábærar ferðir
56 20 4(X)
PRIMA>
VISA
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavik, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@ heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is
Lærðu að njóta
ÍTÖLSK ÓPERA-
t ó n 1 i s t a r
VERDI
Vatnsstígs, verður opnaður 10. mars
nk. en þar er m.a. ætlunin að bjóða
upp á langmesta vínúrval allra veit-
ingasaða á Islandi eða 2000 Iéttvíns-
tegundir. Einar Logi Vignisson, einn
af aðstandendum staðarins, segir að
Sommelier leggi áherslu á ferska al-
þjóðlega matargerð í stíl við það sem
kallað er „fusion-eldhús“.
„Ég held að það sé pláss á mark-
aðnum,“ segir Einar Logi þegar
hann er spurður um möguleika
Sommelier og bendir m.a. að vanir
veitingamenn standi að staðnum, þar
á meðal Vignir Már Þormóðsson,
eigandi Karólínu Restaurant á Akur-
eyri. „Okkur hefur lengi langað til að
opna okkar eigin stað og þar fyrir ut-
an höldum við að það sé bæði pláss og
þörf fyrir hann á markaðnum," segir
Einar Logi ennfremur og bendir á að
fólk sé í æ meiri mæli farið að fara út
að borða... Helstu eigendur Somm-
elier, sem merkir vínþjónn á frönsku,
eru Haraldur Halldórsson og Þor-
leifur Sigurbjömsson auk Vignis
Más sem áður var nefndur.
Siggi Hall á Óðinsvéum er, eins og
nafnið bendir til, nýr staður undir
forystu matreiðslumeistarans Sig-
urðar Hall sem verður opnaður um
miðjan eða seinni hluta marsmánað-
ar. „Þar verður lögð áhersla á gæði
Islands og langa reynslu mína út um
allan heim,“ segir Sigurður Hall að-
spurður um áherslur staðarins en á
Óðinsvéum við Óðinstorg hefur eins
og kunnugt er verið rekinn veitinga-
staður um áratugaskeið. „Það má því
segja að þetta verði nýr staður á
gömlum merg,“ segir Sigurður.
Þegar Sigurður erspurður að því
hvort hann hyggist reyna að höfða til
einhvers ákveðins markhóps segir
hann skýrt og skorinort: „Þetta verð-
ur einfaldlega staður fyrir venjulega
Islendinga sem vilja fara út og borða
mat sem eldaður er af ást og alúð.“
Að síðustu má nefna matsölustað-
inn, Sticks’n Sushi, en hann verður
að sögn eins forsvarsmanna staðar-
ins, Snorra Birgis Snorrasonar, opn-
aður með vorinu í Hvítakoti við
Lækjargötu og eins og nafnið bendir
til verður þar lögð áhersla á sushi-
rétti.