Morgunblaðið - 27.02.2000, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.02.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 TBL. 88. ÁRG. SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS , , , Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson A SKIÐUMIODDSSKARÐI Slésvík-Holtsetaland CDU spáð fylgistapi Ltibeck. AFP. SÍÐUSTU skoðanakannanir í Slés- vík-Holtsetalandi bentu til þess að Kristilegir demókratar (CDU) undir forystu Volkers Riihe myndu tapa fylgi í þingkosningunum í sambands- landinu sem fram fara í dag. Var þeim spáð 36% atkvæða en jafnaðar- mönnum undir forystu Heidi Simon- is forsætisráðherra 44%. í könnuninni fengu Græningjar fimm af hundraði sem er lágmarkið ef flokkur sem býður fram á lands- visu á að hreppa þingsæti en Græn- ingjar eru í stjórn með jafnaðar- mönnum í Slésvík-Holtsetalandi. Ef þeir komast ekki inn gæti Simonis hugsanlega samið við flokk dönsku- mælandi kjósenda í sambandsland- inu sem ekki er háður 5%-reglunni. ■ Fyrsta kosningaprófraun/12 Skeggið tekur mik- inn toll RANNSÓKN vísindamanna á vegum ölgerðarinnar Guinn- ess hefur leitt í ljós að rúm- lega 80.000 lítrar af bjór fara til spillis á ári hverju í skeggi breskra drykkju- manna, að sögn frska dag- blaðsins The Irish Times. Blaðið segir að þetta kosti skeggjaða bjórdrykkjumenn í Bretlandi 423.000 pund, andvirði rúmra 48 milljóna króna, á ári. Sérfræðingar segja að rýrnunin sé mismikil eftir lögun, lengd og þéttleika skeggsins. Svokallað „rost- ungsskegg" sé sennilega verst að þessu leyti og að jafnaði verði það til þess að bjór fyrir andvirði 3.100 króna fari til spillis á ári hverju. Vísindamenn, sem eru að hanna flösku fyrir Guinness- tunnubjór, tóku eftir þessari sóun og fengu dr. Robin Do- ver, einn af virtustu skegg- fræðingum Bretlands, t.il að rannsaka umfang hennar til hlítar. Guinness áætlar að 92.370 bjórdrykkjumenn í Bretlandi séu með skegg og drekki að meðaltali um 90 lítra á ári, að sögn The Irish Times. Kúluskítur hef- ur aðdráttarafl Talið að 45 manns hafí farist í sprengjutilræði á Filippseyjum Múslimar bera af sér sakir lligan á Fiiippseyjum. AFP. AÐ MINNSTA kosti 45 manns, þeirra á meðal börn, biðu bana og 35 særðust þegar tímasprengjur sprungu í tveim rútum um borð í fíl- ippeyskri ferju við strönd Mindanao á föstudag. Sprengjusériræðingum tókst að aftengja í tæka tíð sprengju sem hafði verið komið fyrir í enn einni rútu er ók á sömu leið en í gær- morgun var kveikt í fjórðu rútunni í grennd við borgina Davao. Er talið að þar hafi verið á ferð hryðjuverka- menn kommúnista. Önnur af tveim þyrlum sem sendar voru á vettvang til að ná í slasaða úr ferjunni hrapaði í gærmorgun en ekki varð manntjón. Eldur blossaði upp í ferjunni, Our Lady of Mediatrix, þegar sprengj- umar sprungu. Þær voru svo öflug- ar að þak annarrar rútunnar splundraðist og farþegar þeyttust út úr henni. Farþegar ferjunnar urðu skelfingu lostnir og nokkrir þeirra stukku í sjóinn. Lögreglan sagði að sprengjurnar hefðu verið faldar í farangri í rútun- um. Þær sprungu þegar ferjan var að leggjast að bryggju í bænum Ozamis á Mindanao en þar hefur ár- um saman ríkt skálmöld vegna vopnaðra átaka hersins við upp- reisnarmenn múslima og kommún- ista. Samgöngufyrirtæki beitt fjárkúgunuin? Narciso Abaya, yfirhershöfðingi Filippseyja, sagði að grunur léki á að liðsmenn uppreisnarsamtaka múslima, MILF, sem hefðu beitt samgöngufyrirtæki fjárkúgunum, hefðu verið að verki á ferjunni. Talsmaður MILF vísaði ásökun- unum á bug. „Stríðsmenn MILF ráðast ekki á óbreytta borgara," Lögreglu- menn sýknaðir KVIÐDOMUR í New York-ríki sýkn- aði á föstudag fjóra hvíta lög- reglumenn af ákæru um að hafa myrt blökkumanninn Amadou Diallo fyrir ári. Kom til fjölmennra mót- mæla í New York og víðar en margir fúllyrða að hvítir lögreglumenn séu oft haldnir kynþáttafordómum er birtist í starfi þeirra. Alls fúndust 19 skotsár á Diallo, sem var óvopnaður og staddur við heimili sitt þegar lög- reglumennimir hófú skothríðina. Hann hafði stungið hendinni í bijóst- vasann til að ná í veskið en sakbom- ingamir töldu að hann væri að ná í AP skammbyssu og segjast hafa skotið í sjálfsvöm. Á myndinni sjást blökku- menn mótmæla dóminum í Bronx- hverfi en þar bjó Diallo. Æyintýramenu staldra sjaldn- ast lengi við VAXANDIÁHUGI Á VISTVÆNNI FERÐAMENNSKU Aleiðis til Norðurpólsins sagði talsmaðurinn, Sharif Julabbi. Um 15.000 manns eru í samtökunum sem hafa í rúma tvo áratugi barist fyrir því að stofnað verði sérstakt ríki múslima á suðurhluta eyjarinn- ar en flestir Filippseyingar eru ka- þólskir. Nýlega náði her landsins á sitt vald stærstu þjálfunarbúðum múslimasamtakanna en friðarvið- ræður eru fyrirhugaðar í byrjun mars. Fyrirhugað var að Joseph Estr- ada, forseti Filippseyja, færi í opin- bera heimsókn til Mindanao um helgina. I..... ..................] Sumarhúsa- eigendur á Spáni Alicante um Madrid fyrir aðeins 32.500kr* Beint flug tdl Madrid alla mánudaga fiá 12. júní m 4. sept *Innifalið: flug báðar leiðir og flugvallarskattar. www.iceiandair.is lCELANDAIR M MORGUNBLAÐIÐ 27. FEBRÚAR 2000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.