Morgunblaðið - 13.07.1986, Blaðsíða 60
SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Siglufjörður:
Stálvíkin
Slmeð
^ fullfermi
* eftir 4 daga
Siglufirði.
TOGARAR Siglfirðinga hafa
aflað mjög vel að undanförnu
og mikil vinna er í frystihús-
um staðarins. Stálvíkin kom
inn á laugardag með full-
fermi eftir fjögurra daga túr.
Svipaða sögu er að segjja frá
nágrannabyggðunum, Ólafs-
firði og Sauðárkróki.
Stálvíkin kom inn tii löndunar á
laugardag með fullfermi, um 130
lestir, eftir aðeins fjögurra daga
veiðiferð með karfa og þorsk af
1 Norðurlandsmiðum. Sigluvíkin
kom inn á föstudag með 190 lestir
og fyrr í vikunni landaði Skjöldur
um 70 lestum. Það er því mikil
vinna í öllum frystihúsunum og
saltfískverkun. Vinna hófst klukk-
an 4 aðfaranótt laugardagsins í
frystihúsi Þormóðs ramma, en þar
var bæði heilffyst og unnið í ýms-
ar pakkningar auk söltunar. Allar
líkur voru taldar á því, að nauðsyn-
legt yrði að vinna alla helgina til
... að spilla ekki gæðum físksins.
* Fréttaritari
Fann mó-
rauðan
hrafn í
laxagildru
SÁ sjaldséði atburður átti sér
stað sl. miðvikudag að mó-
rauður hrafn var handsamað-
f. —, ur lifandi. Það var Leifur
Óskarsson á Sólheimatungum
í Stafholtstungum í Borgar-
firði sem handsamaði fugl-
inn. Hrafninn er nú geymdur
í Sædýrasafninu í Hafnar-
firði.
„Ég fann fuglinn niður við Gljúf-
urá þegar ég var að ná í kýmar
en þar hafði hann flækst í laxa-
gildru," sagði Leifur Óskarsson í
samtali við Morgunblaðið. „Það er
eins og þeir komi hingað í bylgjum
þessir ftiglar, þeir eru iíklega
drepnir af hinum. Við erum nú
búin að sjá svona fugl héma við
og við í þijú ár. Svo var það líklega
■ 1966 sem einn bóndinn hér í sveit-
inni skaut mórauðan hrafn. Sá
fugl er nú geymdur á Náttúm-
gripasafninu."
Að sögn Erlings Ólafssonar
dýrafræðings er mórauður hrafn í
raun með sömu litarefni og svartur
hrafn. „Þetta er það sama og þeg-
ar svartar dúfur verða það sem
kallað er „dúnaðar". Mórauðir
hrafnar era nær óþekktir utan
Borgarfjarðar, en þar er a.m.k.
eitt ákveðið par sem vitað er um
og ungar út þessum hröfnum. Sér-
■ staklega hefur orðið vart við
hrafnana í kringum Gljúfurá. Ann-
ars er ekki vitað hvað verður um
þessa fugla, það er bara einn og
einn sem sést stöku sinnum. Það
hefur komið fyrir að mórauðir
hrafnar hafa verið skotnir en aldr-
ei áður hafði nokkur náðst lifandi,
svo ég viti," sagði Erlingur.
Albert Guðmundsson um fjárstuðninginn við Guðmund J.:
„Ekki talinn bjarnargreiði
þegar hann var veittur“
HEYSKAPUR VÍÐASTHVAR HAFINN
HEYSKAPUR virðist nú vera hafinn um allt land og spretta er
víðast hvar yfir meðallagi.
Hjalti Gestsson hjá Búnaðarsambandi Suðurlands sagði að tún litu
mjög vel út og hefði sprettan verið góð undanfarið. Sums staðar væri
þegar komið nokkurt hey í hlöðu þótt Landsmót hestamanna á Hellu
hefði eflaust tafíð fyrir á mörgum stöðum.
Hjá Búnaðarsambandi Austurlands sagði Páll Sigbjömsson að
spretta væri vel í meðallagi og lítið kal í túnum. Flestir bændur væra
byrjaðir að heyja eða við það að byija enda hefði verið þurrt síðustu
daga.
Guðbjartur Guðmundsson ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Austur-
Húnavatnssýslu sagði að á Norð-vesturlandi hefði sprettan verið
sæmileg, gras væri nokkuð þétt og byijað að heyja á flestum bæjum.
Engar teljandi kalskemmdir væra í túnum en veðrið hefði verið nokk-
uð þurrt og kait undanfarið.
A Vestfjörðum vora menn hins vegar þeirrar skoðunar að spretta
væri eitthvað undir meðallagi og langt í að hægt væri að slá. Jens
Guðmundsson í Kaldalóni bjóst við að geta farið að slá í kring um 20.
til 25. júlí. Þama spilaði inn í hret sem hefði komið snemma í júnf
og valdið því að síðar hefði verið borið á en venjulega.
Stefán Tryggvason bóndi á Skrauthólum á Kjalarnesi að slætti í góða veðrinu í vikunni.
Morgunblaðið/Einar Falur
ÞÓRIR ODDSSON settur rannsóknarlögreglustjóri greindi
frá þvi í gær, að rannsókn á þeim þáttum sem ríkissaksókn-
ari endursendi RLR í fyrradag, og tengjast meintri aðild
Alberts Guðmundssonar að Hafskipsmálinu væri lokið hvað
varðar rannsókn RLR, og það að ríkissaksóknari hefði endur-
sent gögn þess þáttar breytti engu þar um. Albert Guðmunds-
son segir m.a. í viðtali við Morgunblaðið i gær að hann muni
virða þá ákvörðun Guðmundar J. Guðmundssonar, að um vin-
slit þeirra i millum sé að ræða.
Albert segir að Guðmundi hafi
frá upphafí verið kunnugt um að
hann bað Björgólf Guðmundsson,
vin þeirra beggja, að standa fyrir
fjársöfnun: „Fólk verður að gera
greinarmun á því, að Guðmundur
vissi að ég bað Björgólf að standa
fyrir söfnun hjá vinum og kunn-
ingjum, og hinu að Guðmundur
vissi ekki hveijir höfðu lagt féð
ti!,“ segir Albert.
Hann segist harma að Guð-
mundur skuli nú kalla þann greiða
og aðstoð sem hann og aðrir vildu
veita honum bjarnargreiða. „Hann
var ekki talinn bjamargreiði, þegar
Guðmundur þurfti á aðstoð að
halda," segir Albert.
Albert segist ekki hafa viljað
ræða þessi mál í fjölmiðlum fyrr,
þar sem hann hafí talið eðlilegast
að rannsóknaraðilar fengju að
ljúka rannsókn sinni í friði. Hann
segir það út af fyrir sig skiljanlegt
að ljúka eigi heildarrannsókn Haf-
skipsmálsins í einu lagi, þó að það
skapi sér og fjölskyldu sinni vissu-
lega erfiðleika, að ríkissaksóknari
afgreiddi ekki þá þætti sem vora
til rannsóknar hvað hann varðaði,
heldur endursendi þá RLR.
„Það hefur ekki neitt saknæmt
komið fram í rannsókninni, enda
er ekki neitt saknæmt í samskipt-
um mínum við Hafskip," segir
Albert, „enda hefur Þórir Oddsson
rannsóknarlögreglustjóri lýst því
yfír nú í dag, að hann telji þessa
þætti fullrannsakaða, þótt þeir
hafí verið endursendir embætti
hans.“
Albert kveðst telja að öfl tengd
Alþýðubandalaginu standi fyrir því
upphlaupi, sem hann nefnir máls-
meðferð þessa alla, og segist hafa
fengið upplýsingar um að Guð-
mundur J. Guðmundsson hafi ritað
honum bréfið á föstudag, að undir-
lagi Inga R. Helgasonar lögfræð-
ings.
Sjá viðtal við Albert Guð-
mundsson á bls. 4: Vinslitin
ákvörðun Guðmundar og
hana virði ég.
Sigldi til hafnar
með gat á síðunni
BJARGEY EA 79 steytti á skeri
skammt undan Látrum í Eyja-
firði aðfaranótt laugardags.
Stórt gat kom á bátinn við
áreksturinn. Eigandinn, Ólafur
Ólafsson, var einn um borð. Sjór
flæddi inn í bátinn, en dælubún-
aðurinn hafði undan og tókst
Ólafi að sigla Bjargeynni til
Siglufjarðar. Þangað eru tæp-
lega 20 sjómUur frá slysstaðnum.
Bjargeyin var á leið frá Akureyri
til heimahafnar í Grímsey eftir stór-
viðgerð. Að sögn fréttaritara
Morgunblaðsins á Siglufirði sigldi
báturinn á skerið Þysling laust fyr-
ir kl. 2. Við það brotnaði aftur-
mastrið, og Ólafur rotaðist skamma
stund. Þegar hann rankaði við sér
kveikti hann á dælunum og setti
stefnuna á SigluQörð. Sjór var lá-
dauður um nóttina, en það mun
hafa tekið bátinn 3—4 tíma að kom-
ast til hafnar. Bjargeyin er ekki
talin sjófær og verður tekin upp í
slipp eftir helgi.