Morgunblaðið - 13.07.1986, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1986
51
Sláttur gengur vel í Kjós
en álftir eru til óþurftar
„Það er ekkert nýtt að upp
komi raddir um að fækka þurfi
bændum,“ sagði Hjalti Sigur-
björnsson bóndi á Kiðafelli í
Kjós í samtali við Morgunblað-
ið. „Fyrir 20—30 árum vorum
við hvattir til að framleiða
meira, en nú er framleiðslan
sögð of mikil samfara þvi að á
okkur dynur sífelldur áróður
gegn kjötneyslu og mjólkur-
drykkju. Það sem var mannin-
um hollt í gær er orðið hið
mesta ómeti í dag, gott ef ekki
banvænt", bætti Hjalti við.
Kjós er breiður dalur milli Eyr-
arfjalls og Esju að sunnan og
Reynivallaháls að norðan. í þess-
um dal setti Hjalti niður bú sitt
árið 1938, í svörtustu kreppu.
Síðan eru liðin mörg ár og nú er
sonur Hjalta, Sigurbjörn, sem
heitir í höfuðið á afa sínum Sigur-
Kristján Oddsson bóndi Neðri-
Hálsi í Kjós.
birni í Vísi, að mestu tekinn við
búrekstrinum.
Þeir feðgar sögðu heyskap vera
hafinn fyrir nokkru enda búinn
að vera brakandi þurrkur síðustu
vikur. Það eru um 50 hektarar
sem þeir slá en nálega helmingur
heysins fer í súr. Sigurbjörn kvað
talsvert um það í sveitinni að
bændur verkuðu í vothey, það er
gott fóður handa kúm en 28
mjólkandi kýr eru í fjósi á Kiða-
felli. Bústofn þeirra feðga telur
einnig um 80 kindur, nokkra hesta
og eitthvað geldneyti.
Til viðbótar búskapnum er rek-
in gistimóttaka á Kiðafelli, ferða-
menn fá þar svefnaðstöðu og
mat, og gefst auk þessa tækifæri
til að leigja sér reiðskjóta. Hjalti
sagði Kiðafell vera einn rótgrón-
asta ferðamannabæ hérlendis því
full 15 ár eru síðan hann byijaði
að leigja út svefnpláss. Fyrstu
árin voru það mest Þjóðveijar sem
gistu Kiðafell. Sagði Hjalti þá
venjulega hafa pantað með góðum
fyrirvara en í seinni tíð kvað hann
það verða æ algengara að ferða-
menn komi fyrirvaralaust, beint
af þjóðveginum og gisti eina, tvær
nætur.
Að Neðri-Hálsi, sem er nokkru
innar í Kjósinni en Kiðafell, býr
Kristján Oddsson. Þegar blaða-
mann bar þar að garði var hann
að dytta að tækjabúnaði búsins.
Sagði Kristján það nauðsynlegt
hveijum bónda að vera ekki að-
eins natinn við skepnumar, hann
þyrfti jafnframt að kunna skil á
vélum og vera trésmiður ef vel
ætti að vera.
Aðspurður kvað Kristján hey-
skapinn hafa gengið vel, hann
væri rúmlega hálfnaður, en um
Feðgarnir Hjalti Signrbjömsson og Signrbjörn Hjaltason í hlað-
varpanum á Kiðafelli. Að baki þeim sést brot af steinasafni
Hjalta sem hann hefur safnað á ferðum sinum um landið.
Morgunblaðið/Einar Falur
Fjölskyldan á Skrauthólum i félagsskap Húfu. Inga Árnadóttir held-
ur á yngri syni sínum, Árna Steinari, en eldri sonurinn, Tryggvi'*
Sturla, reynir i ömggum höndum pabba, Stefáns Tryggvasonar, að
tjónka við fýlupokann Húfu.
3/4 hlutar heysins fara í vothey.
Undanfarin ár hafa álftir sótt
nokkuð í tún hjá Kristjáni og sagði
hann þeim fara ört fjölgandi ár
frá ári. „Ég gæti trúað að þær
bafi verið á milli 70—80 álftirnar
sem heimsóttu mig núna í vor,“
sagði Kristján. Hann kvað þær
bíta ótrúlega mikið gras, sem þær
slita upp með rótum, og engum
ofsögum sagt að ein álft æti svip-
að af grasi og vænt lamb. Kristján
sagðist líta á þetta sem hvern
annan toll er yrði að gjalda náttúr-
unni en hins vegar væri það
athugandi hvort ekki þyrfti að
halda álftinni eitthvað í skefjum.
Á Kjalamesi stendur bærinn
Skrauthólar, en þar var fyrir
nokkrum dögum sýning sem köll-
uð var „opinn búgarður“. Þar býr
Stefán Tryggvason ásamt fjöl-
skyldu sinni.
„Upphaf þess að gestum var
boðið hingað að skoða búskapinn
var beiðni áhugamanna um bygg-
ingu náttúrufræðihúss, en þeir
föluðust eftir kú hjá mér að sýna
á 17. júní í Reykjavík," sagði Stef-
án. Niðurstaðan varð sú að Stefán
bauð Reykvíkingum að koma til
sín.
Stefán sagði það mikið áhuga-
mál margra bænda í sveitinni að
borgarbúum yrði gert kleift að
kynnast sveitalífinu betur en nú
er kostur. „Þessir opnu dagar hjá
mér eru vonandi fyrsti vísirinn að
opnum sveitabæ, þangað ættu
þéttbýlisbúar að geta sótt til að
kynnast búskap, en það gerist nú
sífellt algengara að börn vaxi úr
grasi án þess að fá minnstu nasa-
sjón af því hvernig lífið í sveitun-
um er,“ sagði Stefán. Með slikri
starfsemi getur a.m.k. tvennt
áunnist að áliti Stefáns: Steinn
yrði lagður í götu þeirra fordóma
í garð bænda er nú vaða uppi í
þjóðfélaginu og slegið gæti á tor-
tryggni fólks gagnvart landbún-
aðarvörum.
Stefán sagðist vera staðráðinn
í því að bjóða borgarbúum og
öðrum vegfarendum í heimsókn
til sín aftur í sumar.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar I
IBM PPC
IBM Portable PC ásamt prentara og litskjá
til sölu.
Upplýsingar í síma 622626.
Kranar og kranabrautir
ásamt plötuvalsi 3 metrar x 10 m/m til sýnis
og sölu í Hamarshúsinu v/Borgartún.
Upplýsingar gefa Hrafnkell eða Gylfi. Sími
22123.
Bókbönd—Prentsmiðjur
Til sölu SULBY MARK II, Auto-minabinda,
kjöllímingarvél. Vélin er í mjög góðu ástandi.
Upplýsingar í Prenthúsinu, Barónsstíg 11a,
sími: 26380.
Sumarbústarland
skógi vaxið 3300 m2 eignaland til sölu. Stað-
sett í fjallshlíð innarlega austur í Laugardal.
Frábært útsýni. Veðursæld og rólegt um-
hverfi.
Listhafendur leggi inn nafn og símanúmer á
augld. Mbl. merkt: „Skógur-374“.
Trésmíðavélar
Eftirtaldar trésmíðavélar eru til sölu:
Holtzher kantlímingarvél árg. 1980,
Cennerskov staflari árg. 1982,
Stálvirkja fjölblaðasög árg. 1978.
Vélarnar er í góðu ásigkomulagi.
Upplýsingar um verð og greiðsluskilmála í
símum 92-4700 og 92-3320.
Fjölritunarstofa
Ólafsvík
Til sölu fjölritunarstofa í fullum rekstri.
Næg verkefni.
Viðskiptaþjónustan sf.
Páll Ingólfsson,
Simi 93-6490,
Ólafsvík.
Söluturn með mynd-
bandaleigu
til sölu í Reykjavík. Mjög góður söluturn með
myndbandaleigu. Há mánaðarvelta. Þeirsem
hafa áhuga leggi nafn sitt ásamt heimilis-
fangi og símanúmeri inn á auglýsingad.
Morgunblaðsins merkt: „Ó — 5510“ í síðasta
lagi 16. þ.m.
Athugið aðeins fjársterkur aðili kemur til
greina.
íbúðtil leigu
Þriggja herbergja íbúð til leigu á Akureyri frá
1. september. Upplýsingar gefur Sólveig í
síma 96-25974 og 96-26366.
Veitingastaður
Matreiðslumenn — þjónar
Til leigu er mjög sérstakt hús sem ætlað er
sem veitingastaður á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu. Mjög vandaðar innr. Góð staðsetning.
Þeir sem áhuga hafa leggi inn nöfn og síma-
númer á augldeild Mbl. fyrir 20. júlí mert:
„Áhugi - 200“.
^5 Iðnaðarlóð
Gilsbúð - Garðabæ
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir lausa til
umsóknar iðnaðarhúsalóð við Gilsbúð 3
Garðabæ.
Um er að ræða 1500 m2 lóð fyrir þrifalegan
iðnaðarrekstur og þjónustustarfsemi tengd-
um rekstringum.
Lóðin er tilbúin til afhendingar strax.
Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofu
Garðabæjar. Bæjarstjóri.
<