Morgunblaðið - 13.07.1986, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1986
Sumirfesta hug-
myndaflugiðáfilmu,
aðrirláta raunveru-
leikann með öllum
sínum ótrúlegu stað-
reyndum og aðstæð-
um um að sjá fyrir
efnivið í kvikmynda-
gerð. Með öðrum
orðum, sumirgera
leiknar kvikmyndir og
aðrirgera heimildar-
myndir. í hópi síðar-
nefndra er kanadíska
kvikmyndagerðar-
konan Bonnie Sherr
Klein, sem segir: „Ef
ég kem einhvern
tíma til með að fá
hugmynd að leikinni
kvikmynd sem er
stórbrotnari en sjálf-
ur raunveruleikinn,
þá fer ég að gera
leiknar kvikmyndir.
En ekki á meðan
raunveruleikinn býð-
ur mér upp á slík
óþrjótandi og heill-
andi verkefni sem
raun bervitni."
Rætt irið Bonnie Sherr Klein, leikstjóra og höf-
und myndarinar „Not a iove story" og starfs-
mann Studio D, deildar innan kanadísku kvik-
myndastofnunarinnar sem fæst við kvenna-
k vikmyn da gerð.
B'.ormie Sherr Klein kom
nýlega hingað til lands
og sýndi mynd sína „Spe-
aking of peace", (Talandi
um frið) í Norræna húsinu, en í
myndinni tala konur af þremur
þjóðernum, kanadísku, bresku og
sovésku um viðhorf sín til heims-
friðar og friðarmála almennt.
Ástæða þess að það eru konur
körlum fremur sem þarna láta
skoðun sína í Ijós er af tveimur
rótum runnin. Annars vegar þess
sem m.a. er sagt í myndinni: Því
fleiri ákvarðanir sem teknar eru við
kvöldverðarborðið, á heimilunum
og í bæjarstjórnum, því betra. Það
er valdalausa fólkið sem á eftir að
endurskipuleggja heiminn, verði
honum á annað borð bjargað."
II Á 3. hundrað
| kvennamyndir
Hins vegar er ástæðan sú að
Sherr Klein er ein fimm fastra
kvenleikstjóra sem starfa við
Studio D, deild innan kanadísku
kvikmyndastofnunarinnar sem var
stofnuð 1974 í þeim tilgangi að
styrkja kvikmyndagerð kvenna.
Nú, rúmum áratug síðar hafa verið
gerðar á vegum Studio D einar 248
kvikmyndir, heimildarmyndir um
margvísleg málefni sem á einn eða
annan máta varða konur og endur-
spegla viðhorf kvenna til viðkom-
andi málefnis.
„Speaking of Peace" er ein
slíkra mynda en konurnar sem
unnu að henni, fyrrnefnd Bonnie
Sherr Klein og Terry Nash eiga
báðar að baki verðlaunaðar og
viðurkenndar heimildarmyndir frá
Studio D. Terry Nash hlaut Óskars-
verðlaun 1983 fyrir heimildarmynd
sína „If you love this planet" (Ef
þú elskar þessa jörð). Þar er greint
frá kenningum læknisins Helen
Caldicott um afleiðingar kjarnorku-
styrjaldar.
IEkki ástarsaga
— kvikmynd
umkiám
Þá gerði Bonnie Sherr Klein þá
kvikmynd sem hefur vakið einna
mesta eftirtekt af heimildarmynd-
um kanadísku kvikmyndastofnun-
arinnar og heitir „Not a love story
— a film about pornography" (Ekki
ástarsaga — kvikmynd um klám).
Þar kannaði hún ásamt nektar-
dansmeyju að nafni Linda Lee,
ástæður og afleiðingar klámiðnað-
arins og hver áhrif hans eru á
mannleg tengsl almennt. „Not a
love story - a film about pornogr-
aphy" var sýnd hér á kvikmyndahá-
tíð fyrir nokkrum árum, en þar að
auki er um að ræða þá mynd frá
Studio D sem hefur verið sýnd
mjög víða. Hún gekk m.a. um sex
vikna skeið í kvikmyndahúsi í New
York, sem þykir met, sérstaklega
þegar um heimildarmynd er að
ræða.
II Ekki kvikmyndir
| fyrir„allaeí
Af þessum tveimur myndum
má sjá að Studio D lætur til sín
taka á mörgum sviðum. Um deild-
ina segir Sherr Klein:
„Hugmyndin að Studio D vakn-
aði þegar kvennaáratugurinn var
að hefjast og búið var að ákveða
alþjóðakvennaárið 1975. Menn
fóru þá að athuga hvar mætti
styrkja kvennamenningu og kvik-
myndagerðin var einn þáttur sem
augljóslega sinnti konum ekki sem
skyldi. Nokkuð merkileg staðreynd
í Ijósi þess að skoðanakannanir
hafa alltaf sýnt að stærstur hluti
áhorfenda, hvort heldur er fyrir
framan breiðtjald eða sjónvarp, er
konur. „En kvikmyndagerð hefur
meira og minna verið í höndum
karla og endurspeglað þeirra sjón-
armið eða þá sjónarmið kvenna
eins og karlar viíja hafa þau, eða
halda að þau séu," segir Sherr
Klein og bætir við að þarna sé
ekki um að ræða hreina árás á
framlag karla til kvikmyndagerðar,
„þó svo að við séum vissulega að
gera myndir fyrst og fremst fyrir
konur en ekki fyrir „alla". Við erum
landkönnuðir að þessu leiti, því að
hvar sem okkur ber niður í efnis-
vali þá er óplægður akur, a.m.k
hvað sjónarmið og viðhorf kvenna
varðar gagnvart viðfangsefninu."
Viðhorf kvenna
á öllum víg-
stöðvum kvik-
myndagerðar
Til að gefa innsýn í starf Studio
D má geta þess myndirnar 248
frá upphafi eru um margt breytileg-
ar, spanna allt frá rúmum 5 mínút-
um upp í 130 mínútur í sýningu
og allt þar á milli. Þegar flett er í
gegnum handbók Studio D sést
að viðfangsefnin eru margvísleg,
en í handbókinni eru þau gróflega
flokkuð á eftirfarandi hátt: Konur
sögunnar; Hjónabandið og fjöl-
skyldan; Mæður á atvinnumark-
aðnum; Konur á vinnustað; Konur
og listir; Konur og stjórnmál;
Nauðgun og misþyrmingar; Eldri
konur; Breytingar karla; Stúlkur og
ungar konur; Heilbrigðismál og
kynlíf; Menning annara landa;
ímyndir í þjóðfélaginu. Innan hvers
flokks er svo að finna stuttar og
langar myndir þar sem litið er á
málin frá mismunandi sjónarhorn-
um, í heild eða einstök atriði.
Sherr Klein segir að frá upphafi
hafi Studio D tekist á við misjöfn
verkefni. „Ein af fyrstu myndunum
sem ráðist var í að gera hét „Great
Grandmothers" (Stórkostlegar
ömmur) og fjallaði um konurnar í
hópi landnema villta vestursins,
en strax á sama tíma var hafist
handa við að gera myndir um
brjóstagjöf, heilsufarsmál, nauðg-
un og misþyrmingar, atvinnumál
og hvaðeina."
Mismunandi
leiðir til styrktar
kvennakvik-
myndagerð
Hún heldur áfram: „[ gegnum
tíðina hefur verið breytilegt hvaðan
hvatinn að gerð einstakra mynda
kemur. Studio D hefur ekki frum-
kvæði að öllum myndunum eða við
leikstjórar þess, en okkar hug-
myndir eru lagðar fram og metnar
á nákvæmlega sama hátt og utan-
aðkomandi hugmyndir að kvik-
myndum. En það eru ýmsar leiðir
sem Studio D fer, bæði kemur fyrir
að hugmynd er borinn upp og
unnin alfarið af fastráðnum starfs-
mönnum, eins er möguleiki á að
Studio D styrki leikstjóra sem
sendir inn handrit eða ráði hann
til að gera sína eigin mynd, þá
getur Studio D framleitt myndir
sem að öðru leyti eru unnar utan
stofnunarinnar og það eru fleiri
möguleikar sem boðið er upp á
kvikmyndagerðinni.
IÞjálfun kvenna I
kvikmynda-
störfum
Svo er tilgangurinn ekki síst sá
að þjálfa konur í störfum innan
kvikmyndagerðar, bæði í leik-
stjórn, handritagerð, hljóðtöku,
kvikmyndatöku og öðrum störfum,
þó svo að það sé ekkert í reglum
deildarinnar sem segir að karl-
menn megi ekki vinna við kvik-
myndagerð á hennar vegum. En
okkar reynsla samræmist mark-
miðunum og við vitum að það er
mun eðlilegra að konur starfi alfar-
ið að kvikmyndum seni endur-
spegla viðhorf kvenna.
Þar fyrir utan er stundum um
að ræða aðstæður sem einungis
konur geta ráðið viö, t.d. heimildar-
mynd sem við gerðum nýlega um
nunnur, þeirra daglega og andlega
Bonnle Sherr Kleln
líf á mjög ítarlegan hátt. Þannig
mynd hefðu karlmenn aldrei getað
gert, einfaldlega af því að þeir
fengju aldrei leyfi til að fara í
klaustur og komast undir yfir-
borðið á klausturlífinu. Þetta er
svona mjög áþreyfanlegt dæmi,"
segir Sherr Klein og brosir í kamp-
inn við spurningunni um hvort
Studio D hafi fengið á sig gagnrýni
í gegnum tíðina.
Raunveruleikinn
ekki hlutlaus -
kvikmyndir um
hann ekki heldur
„Auðvitað hafa ýmsir orðið til
að gagnrýna það, að sérstaklega
sé hlúð að kvennakvikmyndagerð
á kostnað ríkisins og svo heyrast
alltaf af og til raddir um að þarna
séu á ferðinni pólitískar rauðsokk-
ur. Nú síðast ritaði einmitt ritstjóri
kvennatímarits grein þar sem
henni fannst við ekki beint nógu
kvenlegar. En engum datt nokkru
sinni í hug að Studio D myndi ekki
valda slíkum skoðanaskiptum og í
raun væri eitthvað að ef það skap-
aði ekki umræðu. Auðvitað sýnist
sitt hverjum og forráðamenn
kanadíska sjónvarpsins hafa í
sumum tilvikum bent á að þeim
finnist heimildargerðin ekki nógu
hlutlaus. Við höfum hins vegar
aldrei reynt að vera „hlutlausar" í
þeirri merkingu orðsins að það eigi
að sýna jafnt báðar hliðará málinu.
Auðvitað tökum við afstöðu með
því einu að vinna út frá sjónarmið-
um og reynsluheimi kvenna og
þegar raunveruleikinn er ekki hlut-
laus í sjálfu sér þá verða heimildar-
myndir um hann það ekki heldur.
IKvikmyndir
sem konur
þurfa að sjá
Ég held að það sem við erum
að gera verði kannski best útskýrt