Morgunblaðið - 13.07.1986, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1986
25
annað tímabundið, þá sækir það
aftur í leikhúsið er ég sannfærður
um.“
— Það er sem sagt ekki ósam-
ræmanlegt að reka listrænt
leikhús og leikhús sem „fólkið
vill“?
„Þetta þurfa alls ekki að vera
andstæður. En þegar maður verður
vitni að góðum hlut í leikhúsinu,
sem fær lélega aðsókn, þá hvarflar
stundum að manni að þetta séu
ósættanlegar andstæður. Það sem
fær mann til að átta sig á að hægt
sé að samræma þessi tvö markmið
í rekstri er þegar dæmið gengur
upp kannski í sýningunni á eftir,
þar sem þá allt í einu fara saman
gæði og aðsókn. Leikhúsin mega
ekki detta í þá gryfju að sýna ein-
göngu það sem „fólkið vill“. Ef
fólkið sér aldrei neitt annað en það
sem leikhúsið heldur að „fólkið vilji"
þá vill það á endanum ekki neitt
annað. Leikhúsið verður að hafa
það að markmiði að sýna svo góðar
og merkilegar sýningar, að fólk
átti sig á því, þegar það sér þær,
að „það er einmitt þetta sem ég
vil“.“
Hús allra borgarbúa
— Því hefur verið slegið fram
af „framapoturum" í leikhús-
bransanum að Leikfélagsmenn
eigi engan einkarétt á aðstöðunni
í væntanlegu Borgarleikhúsi,
hvað viltu segja um það?
„Þetta byggist á vanþekkingu,
eða eigum við að segja misskiln-
ingi. Viðkomandi aðilar þekkja
greinilega ekki nógu vel sögu og
fortíð Leikfélags Reykjavíkur.
Borgarleikhúsið er komið til að
frumkvæði LR. Hugmyndin um það
kom fram fljótlega eftir að Þjóðleik-
húsið var opnað 1950, en áður hafði
Iegið í loftinu að starfsemi LR flytt-
ist þangað. Gleymum ekki að LR
hefur alla tíð verið og er enn í leigu-
húsnæði. Þegar ráðinn var Þjóðleik-
hússtjóri og skipað pólitískt í
leikhúsráð og leikarar fastráðnir,
skipast veður þannig í lofti að
nokkrir leikarar ákveða að verða
eftir í Iðnó og telja það heillavæn-
legast fýrir íslenska leikhúsþróun
að tvö leikhús verði í borginni. Fljót-
lega, eða í kringum 1953—54, er
farið að hreyfa þessari hugmynd
um Borgarleikhús. Það er stofnaður
Húsbyggingarsjóður og farið að
safna peningum. Síðan er mjög
fljótlega farið að leita samstarfs við
Reykjavíkurborg, því hún hefur
löngum styrkt LR. 1963 verður LR
atvinnuleikhús. Hugmyndin um
Borgarleikhús fékk strax mjög góð-
an hljómgrunn hjá borgaryfirvöld-
um. Fýrir rúmum 10 árum, eða
1975, var gerður endanlegur stofn-
samningur um það, þar sem mjög
nákvæmlega er kveðið á um rekst-
urinn. Eignaraðilar hússins eru LR
og Reykjavfkurborg. Reksturinn
samkvæmt stofnskrá er algerlega
í höndum leikhúsráðs LR. Það er
ekki óeðlilegt að misskilnings gæti
um þetta mál. Allt í einu er risið
leikhús og við vitum vel af þeirri
húsnæðiseklu sem hijáð hefur aðra
leijkhússtarfsemi í Reykjavík.
Yngra fólk þekkir ekki alveg for-
sögu þessa máls og heldur að borgin
sé allt í einu komin með hús og
ætli síðan að velja LR til að reka
það. LR á allt frumkvæði að þess-
ari byggingu. Mér fmnst ískyggi-
legt þegar þessum efasemdum er
slegið fram og LR sett í andstöðu
við alla aðra leikstarfsemi í borg-
inni. í Borgarleikhúsinu verða að
sjálfsögðu atvinnutækifæri fyrir allt
íslenskt leikhúsfólk. Það er tiltölu-
lega auðvelt að ganga í LR.
Reykjavíkurborg hefur allan að-
gang að húsinu þegar LR er ekki
að leika, t.d. undir ráðstefnuhald
og þ.h. Þetta verður ekki bara leik-
hús LR heldur allra borgarbúa."
„Dagur vonar“
— Finnst þér þú fá nógu mikla
athygli sem listamaður?
„Ég hef enga þörf fyrir persónu-
lega athygli. Maður óskar þess í
senn að sjást í gegnum sýningu,
sem maður setur upp, en vera einn-
ig ósýnilegur. Sem leikstjóri er ég
fyrst og fremst að koma ákveðnu
verki á framfæri, jafnframt því skil-
ar sér túlkun mín á viðkomandi
verki, ef það tekst vel. Leikstjóri á
ekki að nota verkið til að þjóna
sér, heldur á hann að þjóna því.
Leikstjórinn er milliliður, miðill.
Sköpunarþörf mín fær útrás í leik-
stjóm. Stundum verður maður þó
gramur yfir að hinn venjulegi áhorf-
andi skuli ekki átta sig á því hvað
leikstjóri á mikið í hverri sýningu."
— Dreymir þig um eitthvað
sérstakt á þessu sviði?
„Þegar vel hefur tekist til og
maður er ánægður, þá sakna ég
þess stundum að geta ekki haldið
áfram með sama fólkinu. í stærri
leikhúsum er maður ekki endilega
að starfa með því fólki á öllum
vígstöðvum, sem maður hefði kosið
sér. Ef ég ætti eina ósk, þá væri
hún sú að geta valið með mér fólk,
bæði leikara og tæknifólk, að starfa
með — ég held maður gangi með
það fram á grafarbakkann að
stofna sinn eigin leikhóp eða leikhús
þar sem gagnkvæmt traust allra
aðila er fyrir hendi."
— Leikhúsið er fyrir þér mik-
ilvægara en allt annað?
„Þegar maður velur svona starf
að lífsstarfi, þá er það vegna þess
að maður er sannfærður um að í
gegnum það geti maður komið
miklu til leiðar í stærra samhengi.
Þetta er framlag mitt til að bæta
heiminn. Þetta eru stór orð en mér
finnst — ekki síst í þessum tækni-
vædda nútíma — mjög mikilvægt
að halda áfram að þroska tilfinning-
alíf og fegurðarskyn manneskjunn-
ar. Gott leikhús getur gert það.“
— Hveijir hafa haft mest
áhrif á þig sem leikhúsmann?
„Ég get ekki nefnt neinn einn
ákveðinn leikhúsmann sem hefur
verið mér fyrirmynd. Ég á nokkra
góða vini innan leikhússins, sem ég
tek mjög mikið mark á. Ég hef þó
lært meira af einni leikhúsmann-
eskju en nokkurri annarri og það
er konan mín. Það er stundum sagt
að það sé mikill kostur fyrir leik-
stjóra að vera jafnframt leikari. Ég
vil ekki skrifa undir að það sé nauð-
synlegt. Ég hef fengið þekkingu
mína á leikurum dálítið í gegnum
konuna mína, sem er leikari sjálf,
þ.e. á því hvemig leikarinn hugsar
og vinnur. Hún er minn harðasti
gagnrýnandi og ég tek mest mark
á henni. Svo get ég farið að telja
upp þessa stóm, Ingmar Bergman
og Peter Stein.“
— Hvert stefnirðu núna?
„Mér finnst ég vera beturí stakk
búinn til að takst á við næsta verk-
efni, en ég hef verið nokkru sinni
fyrr. Mér finnst ég eiginlega fyrst
núna ráða við það sem ég er að
fást við. Sem betur fer verður mað-
ur þó aldrei fullnuma. Það er á
annað ár síðan ég leikstýrði síðast
hjá LR. Ég hlakka óskaplega mikið
til að takast á við nýja leikritið
hans Birgis Sigurðssonar, sem heit-
ir „Dagur vonar" og verður frum-
sýnt í október nk.
AP-farsfminn
Litla tæknitröllið
PHILIPS
Glæsilegt útlit sem fellur vel
inn í fullkomnasta farstma-
kerfi heims.
AP-farsímann getur þú notað
við hinarfjölbreytilegustu
aðstæður, í bílinn, bátinn,
sumarbústaðinn eða sem
ferðasíma. Nýglæsileg hönn-
un, léttur og lipur, svartur eða
hvítur. Á augnabliki getur
litla tæknitröllið breyst úr
bflasíma í ferðasíma.
AP-farsíminn samanstendur
af 4 litlum einingum: Fjar-
skiptaeiningu, rafhlöðuein-
ingu, handfangi og símtóli
með takkaborði. Á nokkrum
sekúndum smellirðu eining-
unum saman og bílasíminn
þinn er orðinn ferðasími og
vel á minnst með ótrúlega
litla straumnotkun. Með öðr-
um orðum, þú ert frjáls sem
fuglinn með AP-farsímanum.
Nýi fjölhæfi farssíminn
Erum sveigjanlegir í samningum
Heimilistæki hf
Tæknideild - Sætúni 8 - Sfmi 27500.
Nútímaleg hönnun sfmtóls-
ins gefur ótal möguleika,
ekki síst fyrir það að símtólið
liggur lárétt í mælaborði bif-
reiðarinnar sem auðveldar
þér alla notkun og aflestur
af skjánum. Stórir og grein-
anlegir valtakkar, skjár sem
rúmar 16 stafi, sjálfvirk lýsing
á skjá og takkaborði, 100
símanúmera minni sem þú
getur kallað fram á augna-
bliki, stillanlegur hringistyrk-
ur, innbyggðurmælirfyrir
sendistyrk frá móðurstöð,
gjaldmælir, hleðslumælirfyrir
rafhlöðu. í stuttu máli: AP-
farsíminn er eitt af því full-
komnasta í fullkomnasta
farsímakerfi heims.
Komdu við í Sætúni 8 og
kynntu þér yfirburði
AP-farsímans. Sjón er sögu
ríkari.