Morgunblaðið - 13.07.1986, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1986
Stundum kviknar
ástin ekki!
listamanninn á bakvið
sýninguna, tengiliðinn milli
höfundar og áhorfanda. Flesti
sitja og njóta þess sem fyrir
tilfinning svífur yfir hverju atriði. Hann er
sá sem fær listamennina á sviðinu til að
skapa sýninguna. Hvernig gerist það og
hvernig skyldi það starf vera?
Þegar fólk fer í leikhús og sér
leikara og listamenn flytja ver
einhvers höfundar hugsa
augu ber án þess að sjá þann sem hafði
veg og vanda af uppsetningunni —
leikstjórann! Samt er hann nærstaddur,
ósýnilegt handbragð hans, hugsun og
sennilega fæstir út í
eitt mesta alvöruverk leikbók-
menntanna að leikarar sem voru
eina mínútuna í bullandi tilfinning-
asenu á sviðinu gátu á næstu
mínútu komið út af sviðinu og gert
að gamni sínu og gantast. Ég skildi
þetta ekki fyrr en seinna, ég hef
staðið sjálfan mig að þessu sama í
mínu starfi. Sko, þegar vinnan er
sem alvarlegust, þá verður tii sterk
ómeðvituð þörf til að losna við alvör-
una og slaka á, þótt ekki sé nema
í stuttum hléum. Oft getur slíkt líka
farið út í algeran fíflagang. Auðvit-
að var fólk að leika Hamlet í fúlustu
alvöru á sínum tíma, það kunni
bara þá list að festast ekki alveg í
vinnunni. Eftir þessa reynslu hugs-
aði ég mig um, hvort ég ætti að
fara út á þennan vettvang. Ég
ákvað síðan að fara í leikhúsfræði,
ekki sem fræðigrein þó.“
Fannst sænska heill-
andi tungumál
— Hjá þér varð Svíþjóð fyrir
valinu, þegar þú hugðist leggja
stund á leikhúsfræði, hvers-
vegna?
„Ég sá leið eftir að Sveinn Ein-
arsson kom í menntaskólann og
flutti erindi um leikhúsfræði, en
hann lærði í Svíþjóð. Það má
kannski nefna það sem óbeinan
áhrifavald að á þessum tíma var
alltaf verið að sýna af og til í Hafn-
arfjarðarbíói stórmerkar myndir
eftir Ingmar Bergman og mér
fannst sænskan heillandi tungumál
og hljómfagurt."
— Varla hefur fólki i kringum
þig þótt þetta arðbært nám fyrir
ungan karlmann?
„Auðvitað var ekki hægt að
ganga út frá því, að maður fengi
einhveija vinnu að námi loknu,
vegna eðlis þess. Þess vegna varð
ég dálítið reikull og efins um þetta
allt. Satt að segja fór ég til Stokk-
hólms og ætlaði fyrst að láta innrita
mig í sálfræði við háskólann þar.
Viðtal við
Stefán Bald-
ursson leik-
hússljóra og
leikstjóra
eftir Hlín
Agnarsdóttur
Stefán Baldursson
leikhússtjóri hjá
Leikfélagi Reykja-
víkur er einn af
færustu leikstjórum
okkar í dag. Það fer
ekki mikið fyrir
honum, hann er engin „stjama" í
fjölmiðlamerkingu orðsins og það
gustar ekkert sérstaklega í kringum
hann. Samt á hann langan og
merkilegan leikstjómarferil að baki.
Hver man ekki eftir „Stundarfriði"
eftir Guðmund Steinsson, „Sölku
Völku" eftir Halldór Laxness,
„Draumi á Jónsmessunótt" eftir
William Shakespeare, allt frægar
leiksýningar frá liðnum árum í Þjóð-
leikhúsinu og Iðnó, sem Stefán setti
á svið. Hann fæddist árið 1944 á
Hjalteyri við Eyjafjörð og giftur
Þómnni Sigurðardóttur leikstjóra
og leikritahöfundi. Mér lék forvitni
á að vita hvemig svona prúðmenni
álpaðist út í þann ólgusjó sem leik-
listin er:
„Klassíska svarið er auðvitað að
maður hafí haft áhuga á leiklist sem
bam. Þegar ég lít um öxl þá man
ég að ég fór að stunda leiksýningar
nokkuð stíft þegar ég var 11 ára
og þá fullorðinssýningar. Þá dró ég
gjaman einhvem félaga með mér
en fór ekkert endilega með fullorðn-
um. Auðvitað byijar þetta allt með
því að maður fer með foreldmm
sínum pínulítill á bamasýningar.
Fyrsta stóra upplifunin var Snæ-
drottningin í Þjóðleikhúsinu,
reynsla, sem maður sá lengi í hill-
ingum. Strax í menntaskóla stefndi
ég að því að fara á einhvem hátt út
í leiklist, þó gerði ég mér ekki grein
fyrir hvaða svið ég ætlaði að leggja
fýrir mig. Um tíma var ég að spá
í leikmyndagerð, vegna þess að mér
gekk vel í teikningu. Nú, svo vildi
ég skrifa — það vilja allir verða
Úr hinni hugmyndaríku sviðsetningu Stefáns á Gisl eftir Breandan Behan, þar sem
Grétar Reynisson vann leikmynd með honum í fyrsta skipti. Gísli Halldórsson í hlut-
verki Pats uppi á húsgagnahrúgunni. Aðrir á myndinni: Kjartan Ragnarsson, Margrét
Ólafsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sigurður Rúnar Jónsson við píanóið.
Úr hinni stórskemmtilegu sýningu Stefáns á Draumi á
Jónsmessunótt, þar sem hann stefndi saman kornungum
leikurum úr Nemendaleikhúsinu og hinu reynda liði
Leikfélagsins. Hér eru Kjartan Ragnarsson og Gísii
Halldórsson sem áhugaleikarar að leika ástarsögu Píra-
musar og Þispu. í baksýn Karl Guðmundsson og Einar
Jón Briem.
rithöfundar í menntó. Í 6. bekk í
MR fór ég í Leiklistarskóla Ævars
Kvarans til að þreifa fyrir mér, en
ég tók samt engan virkan þátt í
leiklistarstarfsemi menntaskólans.
Ég sá fljótlega að ég var ekki gott
leikaraefni."
— Þú lést sem sagt lítið bera
á þér?
„Það er dálítið merkilegt hvemig
fólk velst til leiklistarstarfa. Annars
vegar fínnst manni það vera mjög
opið fólk, sem hefur gaman af að
koma fram og sýna sig, hinsvegar
fólk, sem mér fínnst reyndar miklu
stærri hópur meðal leikhúsfólks hjá
okkur. Það er hógvært og hlédrægt
og allt að því feimið. Eg var t.d.
sjúklega feiminn fram eftir öllum
unglingsárum. Meðan ég var í leik-
listarskólanum, vann ég líka sem
„statisti í sýningum á Hamlet i
Þjóðleikhúsinu (1963-64). Þá gerð-
ist skrýtinn hlutur. Allar skýjaborg-
imar um leikhúsið, sem maður hafði
borið gífurlega virðingu fyrir, þær
hrundu. Mér fannst furðulegt á
æfingum þegar verið var að leika
Það vildi mér til happs að búið var
að loka deildinni þegar ég kom —
ég segi hiklaust til happs, ekki
vegna þess að ég ætli að kasta rýrð
á starf sálfræðinga heldur vegna
þess að ég er mjög sæll með mitt
starf. Auðvitað stefna sálfræði og
leiklist á sömu mið. Hvort tveggja
er vinna með manneskjur á hug-
lægu plani. Ég tók sálfræði sem
aukafag í mínu námi síðar. Auk
leikhúsfræðinnar tók ég svo kvik-
myndafræði sem aðra aðalnáms-
grein og var reyndar í fyrsta
hópnum sem lauk námi í þeirri grein
við háskólann, því þetta var þá al-
veg nýtt fag.“
— Hvað lærðiröu svo að gagni
í þessu námi?
„Maður las leiklistarsögu frá
upphafí vega og mikið af leikritum.
í náminu voru verkleg námskeið,
þar sem leikstjórar komu til þess
að skoða og gera athugasemdir við
okkar vinnu. Við fórum á leiksýn-
ingar og lærðum að skrifa Ieikgagn-
rýni. Virtir gagnrýnendur komu til
okkar og fóru í gegnum gagnrýni