Morgunblaðið - 13.07.1986, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1986
Stórkostleg ferð
til Bountyful
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Ferðin til Bountyful (The Trip
to Bountyful). Sýnd i Laugarás-
bíói.
Stjörnugjöf: ☆ ☆ ☆ ☆
Bandarísk. Leikstjóri: Peter
Masterson. Handrit: Horton
Foote, gert eftir eigin leikriti.
Framleiðendur: Sterling Van
Wagenen og Horton Foote. Kvik-
myndataka: Fred Murphy.
Klipping: Jay Freund. Leikmynd-
ir: Neil Spisak. Búningar: J.A.C.
Redford. Helstu hlutverk: Ger-
aldine Page, Carlin Glynn, John
Heard og Rebecca De Mornay.
Ferðin til Bountyful eftir þá
Peter Masterson og Horton Foote
segir frá pílagrímsför gamallar
konu til æskustöðva sinna. Hún er
um minningar konunnar frá
Bountyful, söknuð hennar og trega,
gleði og hamingju. Öll hennar bestu
5 45 11
Opið kl. 13.00-16.00 ídag
Opið virka daga 9-18
Laufvangur
Mjög skemmtileg 97 fm
3ja herb. íb. á 3. hæð.
Breiðvangur
Falleg 120 fm 4ra herb. íb. á
1. hæð + 35 fm herb. i kj. Bílsk.
Breiðvangur
Góð 120 fm 4ra-5 herb. íb. á
1. hæð. Bílsk.
Grænakinn
160 fm einbhús. Nýr bílsk.
Hringbraut
94 fm sérhæð + bílsk. Þarfnast
lagf.
Arnarhraun
Vandaö 150 fm einbhús. í kj.
er mögul. á litilli íb. Hraunlóð.
Bílsk.
Hrísholt Gb.
Fokh. 256 fm einbhús á tveimur
hæðum. Innb. bílsk. Mögul. á
lítilli íb. á neðri hæð. Stórkostl.
útsýni. Teikn. á skrifst.
Álfaskeið
Fallegt 136 fm einbhús á einni
hæð. 50 fm bílsk.
Hraunhvammur
Gott 160 fm einbhús á tveimur
hæðum.
Hellisgata
Nýstandsett 75 fm 2ja herb. íb.
Miðvangur
Mjög góðar 65 fm 2ja herb. íb.
á 2. og 7. hæð.
45-55 fm 2ja herb. íb. á
Selvogsg. — Vesturbr. —
Austurg. — Holtsg. oJI.._
Skiphóll
Til sölu húseignin Strandgata
1-3. Uppl. aðeins á skrifst.
Tískuvöruverslun
Til sölu ein fallegasta búð í
Hafnarfiröi. Uppl. aðeins á
skrifst.
Engjasel — Rvk.
Góð 50 fm einstaklíb. Skipti á
2ja herb. í Hafnarf.
Hvammabraut 14-16
2ja, 3ja og 4ra herb. íb. Skilast
tilb. undir trév. Ath. Nýbygglán
geta verið allt að 2,1 millj.
Söluskrá liggur frammi.
áá
m
ÍHRAUNHAMAR
IFASTEIGNASALA
Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði
Bergur Oliversson hdl.,
Magnús Emilsson, hs. 53274.
ár eru bundin minningum úr sveit-
inni og þær bijótast út í þrá hennar
eftir að sjá Bountyful einu sinni enn
áður en hún deyr; ekki bara til að
heilsa upp á fornar slóðir heldur til
að staðsetja sig í tilverunni, vitja
uppruna síns og fortíðar og komast
aftur í samband við náttúruna eftir
þrúgandi borgarlífið. Geraldine
Page leikur konuna og hlaut
Óskarsverðlaun fyrir túlkun sína.
Það er auðvelt að sjá hvers vegna:
leikur hennar er einhver sá magnað-
asti sem sést hefur lengi í kvik-
mynd. Page er hreinasta perla eins
og raunar myndin öll frá upphafi
til enda.
„Bountyful" er gerð eftir leikriti
Horton Foote, sem skrifar sjálfur
handritið að myndinni og er annar
framleiðandi hennar. Foote hlaut
Óskarinn fyrir handrit sitt að Tend-
er Mercies og þetta hér er engu
síðra. „Bountyful" er frábærlega
vel skrifað verk í einfaldleik sínum
og einlægni og það snertir mann
GíJvfasiugnasaun '
IQjfJÁRfESTINGHF.
M - «1 • •: «MMI
LögMmgar. PMurÞórS^ortaMnhdL,
Opið kl. 1-3
2jaherb.íbúðir
BRÆÐRABST. 75 fm 1.h. V.2,1
FRAKKAST. 50 fm l.h. V.1,35
HOLTSGATA 70fm 1.h. V.1,7
HRAUNBÆR 55fm 3.h. V.1,7
JÖKLASEL 75 fm 2.h. V.1,85
MEISTARAVELLIR 65 fm jh. V.1,7
KRÍUHÓLAR 55 fm 7.h. V.1,6
OFANLEITI 70 fm jh. V.2,3
3jaherb.íbúðir
ÁLFHEIMAR
RAUÐÁS
85 fm 4.h. V.2,1
95 fm jh. V.1,6
4raherb.íbúðir
FÁLKAGATA
FLÚÐASEL
FRAMNESV.
MIÐLEITI
OFANLEITI
110fm1.h. V.2,5
120fm l.h. V.3
126 fm 4.h. V.2,9
130 fm 1.h. V.4,5
137fm1.h. V.4,5
Sérhæðir
GOÐHEIMAR 130 fm 1 .h. V.3,9
HVASSALEITI 150 fm 2.h. V.4,8
SUÐURGATA HF. 150 fm 1 .h. V.4,5
Atvinnuhúsnæði
ÁRMÚLI
BÍLDSHÖFÐI
HÓLMASLÓÐ
HRÍSMÓAR
ÞARABAKKI
SKÚLAGATA
270 fm jh.
ýmsar stærðir
570 fm l.h.
70 fm l.h.
1-200 fmofl.
240 fm ofl.
SMIÐJUVEGUR ýmsar stærðir
Ismíðum
VESTURBÆR. 2ja, 3ja og
4ra herb. íb. á mjög góð-
um stað. Tilbúnar undir
tréverk.
FROSTAFOLD. 2ja og 3ja
herb. íb. Mjög góð stað-
setning og útsýni. Verð frá
1750 þús. Góð kjör. Bygg-
ingaraðili Gylfi og Gunnar.
© 62-20-33
XJofóar til
JLXfólks í öllum
starfsgreinum!
djúpt í vandaðri og fallegri samsetn-
ingu leikstjórans Mastersons. Andi
sviðsverksins ríkir í hvetju atriði:
leikmyndir eru fáar og gefa einkar
góða mynd af þeim tíma sem verk-
ið gerist á (seinni hluta fímmta
áratugarins), leikaramir hreyfa sig
oft eins og þeir væru á sviði, text-
inn fær að njóta sín í hvívetna og
meira að segja kvikmyndatökumað-
urinn Fred Murphy hefur neitað sér
um að taka fallegar og hugljúfar
póstkortamyndir af sveitinni.
Carrie Watts (Page) býr hjá syni
sínum Ludie (John Heard) og konu
hans Jessie Mae (Carlin Glynn) í
heldur fátæklegu úthverfi í Houston
í Texas. Watts og tengdadótturinni
semur ekkert sérlega vel: Jessie
Mae þolir ekki sálmaraulið í Watts,
hirðir af henni ellilífeyrinn og lætur
hana far í taugamar á sér á allan
mögulegan hátt. Sonur Watts er
mannleysa hin mesta sem lætur
stjómast af ráðríkri eiginkonu sinni.
Hann er ófær um að eignast böm,
lasburða og hamingjulaus maður
og bitur út í lífið.
Watts dreymir um gamla daga.
Hún sér Bountyful í hyllingum sem
eitthvað stórkostlegt, fijálst og
hamingjuríkt samanborið við heldur
nöturlegan raunvemleika ellinnar í
Houston. Sveitin var hennar líf og
yndi og þangað vill hún fara áður
en hún deyr en Jessie Mae og Ludie
vilja ekki leyfa henni það af tómu
hirðu- og skilningsleysi. En einn
daginn stelst hún í bUrtu og fer
niður á brautarstöð og biður um
miða til Bountyful. Þangað fara
engar lestir Iengur segir afgreiðslu-
maðurinn. Þá fer Watts á rútubíla-
stöð og afgreiðslumaðurinn þar
heldur að Bountyful sé ekki til en
selur henni miða í rútu sem fer langt
Rebecca De Mornay og Geraldine Page í hlutverkum sínum í Ferð-
inni til Bountyful.
þangað áleiðis. Um borð í rútunni
hittir Watts einmana konu her-
manns (Rebecca De Morway) og á
leiðinni hressa þær hvor aðra upp.
Og Bountyful er ekki lengur til.
Þar em aðeins tómir húskofar í
niðumíðslu, eyðibýli þar sem enginn
á lengur ferð um. En það skiptir
ekki öllu máli fyrir Watts. Hún er
komin heim og finnur loks frið og
ró í sínum beinum. Minningamar
frá þessum stað em svo góðar að
sonur hennar vill ekki geyma þær.
„Ég vil ekki eiga þessar minning-
ar,“ segir hann við móður sína því
fyrir honum em þær eitthvað
óraunverulegt eins og draumur sem
mótlæti lífsins hefur fengið hann
til að hætta að trúa á.
Hvað svo sem segja má um
Óskarsverðlaunaafhendingar í
gegnum árin er varla hægt annað
en að gleðjast yfír þeim úrskurði
dómnefndarinnar að veita Geraldine
Page Óskarinn að þessu sinni og
veita henni þá viðurkenningu sem
hún á skilið. í „Bountyful" veitir
hún sjaldgæfa innsýn í hugarheim
og tilfínningalíf gamallar konu, sem
þráir að snúa heim; hún fyllir mann
áreynslulaust samúð og skilningi á
þessum einstæðingi, full af hjarta-
hlýju og hreinleika. Leikur Page er
kraftmikill og ljúfur í senn, átakan-
legur og rólegur en aldrei ofhlaðinn
og væminn eða falskur. Fljótandi
augun eða munnvipmr segja oft
meira en nokkur orð.
Aðrir leikarar falla síður en svo
í skuggann af Page. John Heard
fer sérlega vel með hlutverk sitt,
litlaus maður, vonsvikinn og beiskur
og Carlin Glynn gerir líka góða hluti
sem eiginkonan Jessie Mae, sínöldr-
andi, frek og ófyrirleitin en samt
ekki laus við mannlegar tilfínning-
ar. Og Rebecca De Momay (sem er
í gerólíku hlutverki í Flóttalestinni
hans Konchalovskys) er ákaflega
elskuleg og hjálpleg í hlutverki
fömnautar Watts og veitir gömlu
konunni þann skilning sem fjöl-
skylda hennar hirðir ekki um.
Afturhvarf til sveitarinnar og
náttúrunnar í amerískum kvik-
myndum síðustu ára (The River,
Country, Tender Mercies, Places in
the Heart) veitir ágæta hvíld frá
þeim stórborgarþrillemm sem ann-
ars vaða uppi. Þessar myndir eru
að sjálfsögðu misjafnar að gæðum
en „Bountyful" er kannski þeirra
mannlegust, látlaus og róleg, laus
við peningaaustur og Hollywood-
sigra. Kyrrðin var slík eftir sýningu
hennar að það var eins og að ganga
út úr kirkju að koma úr Laugarás-
bíói þetta kvöld.
Ólympíuleikarnir í eðlisfræði:
Lið íslands utan í vikunni
FJÓRIR íslenskir drengir verða
meðal rúmlega 100 þátttakenda
hvaðanæva að úr heiminum á 17.
Ólympíuleikunum í eðlisfræði
sem fram fara í London í næstu
viku. Leikamir era haldnir ár-
lega fyrir framhaldsskólanem-
endur og til skiptis austan- og
vestantjalds.
Drengimir em Davíð Aðalsteins-
son, Eiríkur Karlsson, Kristján S.
Guðmundsson og Kristján Halldórs-
son. Þeir urðu hlutskarpastir í
innanlandskeppnum í febrúar og
mars á þessu ári og uppfylla jafn-
framt það skilyrði Olympíuleikanna
að vera hvorki í háskóla né orðnir
tvítugir á Ólympíuleikunum. Farar-
stjóramir Viðar Ágústsson og Einar
Júlíusson hafa annast þjálfun
drengjanna ásamt Jakobi Yngva-
syni.
Ólympíuleikamir fara fram í
Framhaldsskólanum í Harrow í
London og verða settir 14. júlí.
Keppnin fer fram í tveimur hlutum.
15. júlí gangast keppendur undir 5
tíma fræðilegt próf en 17. júlí fram-
kvæma þeir tvær tilraunir og skila
niðurstöðum. Samanlagður árangur
keppnisdaganna tveggja ræður röð
keppenda við verðlaunaafhendingu
sem fram fer 19. júlí.
Menntamálaráðuneytið hefur
greitt þjálfun keppendanna og far-
gjöld á leikana en enska Ólympíu-
nefndin greiðir uppihald þátttak-
enda og gefur þeim að auki nokkra
vasapeninga.
MetslHuHcu) á hverjum degi!
Lið íslands sem fer á Ólympíuleikana í eðlisfræði, ásamt farar-
stjórum. Frá vinstri: Viðar Ágústsson, fararatjóri, Kristján
Halldórsson, Davíð Aðalsteinsson, Einar Júlíusson, fararstjóri, og
Kristján S. Guðmundsson.