Morgunblaðið - 13.07.1986, Blaðsíða 7
r
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1986
46 útlendingar á vina-
bæjamóti á Blönduósi
Blönduósi.
DAGANA 1.—5. júlí stóð yfir
vinabæjamót á Blönduósi. Alls
sóttu okkur heim 46 fulltrúar frá
vinabæjum Blönduóss en þeir eru
Horsens í Danmörku, Moss i
Noregi, Karlstad í Svíþjóð og
Nokia í Finnlandi.
Dagskrá þessa móts var með því
sniði að fulltrúar skiptu sér í hópa
og fjölluðu um margvísleg atriði
sem tengja þessa bæi á einn eða
annan hátt. Morgnarnir voru notað-
ir til þessara hluta en eftir hádegið
skoðuðu gestirnir fyrirtæki á
Blönduósi og ennfremur voru ná-
grannabyggðir heimsóttar. Veðrið
lék ekki við mótsgesti meðan á
dvölinni stóð. Þoka og norðan nepja
lagðist yfir svo að segja um leið
og hinir norrænu gestir komu á
Blönduós sl. þriðjudag. Þessu vina-
Fæðingar fyrri
hluta ársins:
Þriðjungi
færri á Nes-
kaupstað
en í fyrra
FÆÐINGAR fyrstu sex mán-
uði þessa árs hér á landi eru
svipaðar að fjölda og- í fyrra.
Þó er talsvert mismunandi
eftir landshlutum hvernig
þessum niáluni er háttað og
má nefna sem dæmi að á
Neskaupstað hafa fæðingar
ekki verið nema þriðjungur
þess sem þær voru á fyrri
hluta árs í fyrra, eða einung-
is 16 að tölu.
í Reykjavík eru fæðingar á
árinu fram til 1. júlí 1031 að
tölu en voru á sama tíma í fyrra
1015. Þá voru fæðingar á Akur-
eyri nokkru fleiri það sem af er
árinu miðað við sama tíma í
fyrra. A sjúkrahúsinu á Selfossi
hefur fæðingum hins vegar fækk-
að úr 60 á síðasta ári í 46 á
þessu ári og á sjúkrahúsinu í
Keflavík var fjöldi fæðinga svip-
aður og í fyrra, eða 109 fæðingar.
Sem fyrr greinir hafa fæðingar
á árinu verið mun færri á Nes-
kaupstað en tvö undanfarin ár,
voru 48 árið 1984 og 47 árið
1984, en einungis 16 fæðingar
hafa átt sér stað fram að 1. júli
í ár.
Þegar á heildina er litið í ljósi
þeirra upplýsinga sem fengust á
framangreindum stöðum þá eru
fæðingar alls 1.379 á fyrri hluta
þessa árs, en voru 1.385 í fyrra,
sem er óveruleg fækkun.
.A^glýsinga-
síminn er 2 24 80
T-Jöföar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!
bæjamóti lauk formlega með
lokahófi á Hótel Blönduós á föstu-
dagskvöldið 4. júlí þar sem skipst
var á gjöfum og hlýjum óskum. A
eftir fóru síðan allir á stórdansleik
í félagsheimilinu. Á laugardags-
morguninn héldu síðan hinir
norrænu gestir heim á leið með við-
komu í Borgarfirðinum og skoðuðu
m.a. Surtshelli. Skipulag og undir-
búningur þessa vinabæjamóts var
að mestu í höndum Eiríks Jónsson-
ar skólastjóra auk þess tók stór
hluti æskufólks sem sótt hefur vina-
bæjamót á hinum norðurlöndunum
virkan þátt í þessu vinabæjamóti.
tsiPNtí
Frá lokahófi vinabæjamóts sem var haldið á Blönduósi dagana 1.-
Morgunblaðið/Jón Sig.
HUERMB
MHMfttK!
Herbz
...býðurbetur!
Fyrsta flokks gisting í Kaupmanna-
höfn og Hertz - bílaleigubfll fyrir
ótrúlegt verð. Dæmi: Kr. 15.900
fyrir flug og Opel Kadett í 2 vikur.
Það er flest sem mælir með góðu sumarfríi
í Danmörku. Fallegt umhverfi, forvitnilegir
bæir og borgir, skemmtilegt fólk og
makalaust lifandi höfuðborg.
í Kaupmannahöfn eraldrei dauðurtími,
hvortsem hugurinn stendurtil afslöppunar
og notalegrar skemmtunar eða fjörugra
uppákoma að degi og nóttu. Strikið,
Ráðhústorg, Kóngsins Nýjatorg, Cirkus
Benneweis, dýragarðurinn, skrúðgarðamir,
bjórstofumar, matsölustaðimir,
götutónlistin, húmorinn og góða veðrið,
allt gefur þetta Kaupmannahafnardvölinni
ógleymanlegan Ijóma og Tívolíið setur
auðvitað punktinn yfir iið.
Gististaðirokkar í Kaupmannahöfn eru
fyrsta flokks og valdir með það í huga að
eftirsóknarverðustu staðir borgarinnar séu
innan seilingar. Vinsæl hótel og sérlega vel
staðsett.
Á Hertz-bíl í Kaupmannahöfn eru þér svo
allir vegir færir til áfangastaða innanlands
eða utan. Þú skreppur í Legoland, skýst
með ferjunni yfirtil Svíþjóðar, rennir þér
niðurtil Þýskalandsog jafnvel lengra. Þetta
er þín ferð, þín ferðaáætlun.
Gódaferð!
\ aksW'- t
'&8$£&*1***
mi
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 • Símar 91 -27077 & 91 -28899
Hótel Sögu við Hagatorg • 91-622277 Akureyri: Skipagötu 18 • 96-21400
11 Innifalið: Flug og
OpelKadett(2vikur,
miðaðvið4farþega.