Morgunblaðið - 13.07.1986, Page 5
5
MÖRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚlÍ 1986
Hótel Örk:
Öll herbergi komin í gagnið
og bókanir nær 50%
„Enginn fótur fyrir því að ég sé að selja hótelið,“ seg-
ir Helgi Þór Jónsson
HELGI Þór Jónsson, eigandi
Hótels Arkar í Hveragerði,
stjórnar nú hóteli sínu ásamt
Sólveigu konu sinni, en eins og
fram hefur komið i Morgun-
blaðinu hætti nýráðinn hótel-
stjóri störfum vegna ágreinings
um stjórnunaraðferð og því
voru gerðar skipulagsbreyting-
ar á yfirstjórn.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Helgi Þór að það mál hefði
verið leyst með friði, en nú væri
starfsemi Arkar að komast í fullan
gang. Helgi Þór sagðist hins veg-
ar ætla að ráða nýjan hótelstjóra
fljótlega. Við vígslu Arkar voru
20 herbergi opnuð, en á föstudag-
inn voru 39 herbergi í viðbót tekin
í notkun og eru þá öll gistiher-
bergi hótelsins tilbúin að hýsa
gesti. Hótel Örk er fullbókað um
helgina, en þar gistir m.a. sveit
ítalska flughersins sem er í heim-
sókn hér á landi.
Mikil aðsókn hefur verið að sundlaug Hótels Arkar. Hún er hótel-
gestum til reiðu endurgjaldslaust en aðrir verða að borga 300
krónur í aðgangseyri.
43 starfsmenn vinna nú í Hótel
Örk og að auki eru 10 í hlutastörf-
um. Helgi Þór sagði að bókanir i
gistingu væru mjög góðar og þeg-
ar væri búið að bóka nær 50%
af herbergjum fram í október án
þess að búið væri að auglýsa gist-
ingu. Hótel Örk er nú komið inn
í bókunarkerfi Flugleiða erlendis
og þar með í markaðssetningu um
allan heim. Helgi Þór sagði að
mikið hefði verið um matargesti
síðan Hótel Örk tók til starfa,
bæði í aðalmatsal hótelsins og
einnig í skyndibitastaðnum. Þá
kvað Helgi Þór ánægjulegt hve
mikil aðsókn hefði verið að sund-
lauginni og leiktækjum þar, en
sundlaugin er opin almenningi
daglega frá kl. 10—18 en að auki
sérstaklega fyrir hótelgesti frá kl.
8—10 á morgnana og 18—22 á
kvöldin.
Helgi Þór sagði að unnið væri
af fullum krafti við lokafrágang
heilsuræktaraðstöðunnar, en það
er það eina sem er ólokið við í
hótelinu og er stefnt að því að
verkinu verði lokið að fullú í
ágústmánuði. Helgi Þór sagðist
vilja taka það fram vegna þráláts
orðróms um að hann væri að selja
hótelið, ýmist innlendum eða er-
lendum aðilum, að fyrir því væri
enginn fótur, en hins vegar væri
starf hótelsins að komast í fullan
gang eins og ætlað var.
OLIS opnar
uýja þjón-
ustumiðstöð
Húsavík.
OLÍUVERSLUN íslands hefur
opnað nýja þjónustumiðstöð á
Húsavík. Félagið hefur keypt
hluta af húseigninni Garðars-
braut 62 til 64 og hefur innréttað
vistlega búð og afgreiðslu fyrir
bensin og oliu.
Stórt og velfrágengið plan er utan
dyra og aðstaða hin besta til þvotta
og hreinsunar bifreiða. Stöðin er
staðsett við aðalinnkeyrslu í bæinn
að sunnan. Stöðvarstjóri er Þórhallur
V. Einarsson, en hann tók við um-
boði OLÍS fyrir tveimur árum.
Fréttaritari
Rjómabúið
hjá Baugs-
stöðum
til sýnis
GAMLA ijómabúið hjá Baugs-
stöðum austan við Stokkseyri
verður opið almenningi i sumar
eins og undanfarin sumur.
Rjómabúið verður opið til skoðun-
ar síðdegis á laugardögum og
sunnudögum í júlí og ágúst milli kl.
13 og 18.
Tíu manna hópar eða fjölmennari
geta fengið að skoða ijómabúið á
öðrum tíma ef haft er samband við
Gísla í síma 99-1048 eða Sigríði í
síma 99-1308 með góðum fyrirvara.
Hitaveita Suðurnesja:
Vantar
vitneskju
um
fyrirhuguð
orkufrek
fyrirtæki
HITAVEITA Suðurnesja beinir
þeim tilmælum til þeirra, sem
hyggjast stofna eða stækka raf-
orkufrek fyrirtæki á Suðurnesj-
um á næstunni, að senda
upplýsingar um fyrirhugaðar
framkvæmdir til veitunnar. Upp-
lýsingarnar eiga að hafa borist
fyrir 1. ágúst nk.
„Á undanfömum mánuðum hafa
streymt til okkar upplýsingar bæði
opinberar og óopinberar um hin og
þessi áform um raforkufrek fyrir-
tæki,“ sagði Ingólfur Aðalsteinsson,
forstjóri Hitaveitu Suðumesja.
Hann sagði að þetta ætti sérstak-
lega við um laxeldisstöðvar, sem
þegar væri búið að reisa á Suður-
nesjum og eins aðrar, sem em í
bígerð. Komið hefur fyrir að til
þeirra leiti menn, sem ætluðu að
setja upp laxeldistöðvar og vildu fá
hálft megawatt með haustinu og
eitt til viðbótar að vori. „Þetta eru
ákaflega losaraleg vinnubrögð og
við vitum raunverulega ekki með
hveiju við eigum að reikna,“ sagði
Ingólfur. „Með þessum tilmælum
emm við fyrst og fremst að reka á
eftir mönnum að setja á blað það
sem þeir em að hugsa. Það er eins
og oft vill verða, menn átta sig
ekki á því að margir aðilar þurfa
að vita af fyrirhuguðum fram-
kvæmdum."
Ingólfur sagði að þegar lægju
fyrir ákveðnar hugmyndir um
aukna raforkuframleiðslu. Hefur
þegar verið gerð áætlun um hana,
en jafnframt þyrfti að huga að því
að bæta við línu til Suðurnesja af
veitukerfi Landsvirkjunar.
i-ifiKSísaisKlsu
pigjggil
IHHMi
PHJUPS
Reynsla og þekking er undirstaða
framleiðslu Philips-myndbandstækja.
Philips-myndbönd eru sérhönnuð til
að standast öll gæðapróf og bjóða
aðeins það besta eins og Philips er
þekkt fyrir.
PHILIPS myndbandstæki
fuilkomnun á mynd-
og hljóðgæðum.
Nokkrar upplýsingar
um VR-6462-tækið:
★ Sjálfvirk bakspólun þegar bandið er á
enda
★ Tölvustýrð mundstilling
★ 30 daga minni fyrirtvær upptökur
★ Hraðgeng myndskoðun fram og til
baka
★ Hæggeng myndskoðun fram og til
baka
★ Hæggeng myndskoðun? Skoða má
hverja einstaka kyrrmynd á bandinu
★ Þráðlausfjarstýring
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655
IBiÍl