Morgunblaðið - 13.07.1986, Side 3
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1986
O
3
Eru
þeir að
fá 'ann
■?
Enn gott að frétta
úr Aðaldalnum
Nú eru trúlega komnir um 800
laxar á land úr Laxá í Aðaldal
og nýlega kom stór og góð ganga
í ána sem hressti upp á dulitla
lognmollu sem ríkt hafi um hríð.
Nú veiðast daglega þetta 8—20
laxar á 2 stangir fyrir neðan
Æðarfossa og svo er alltaf þessi
venjulega veiði ofar. Laxá á enn
stærsta lax sumarsins eftir því
sem komist hefur næst, 25 punda
físk, svo og nokkra 20—22 punda.
Ýmsir hafa séð ferlegan lax í
Stórafossi að undanfömu og
margir verið kallaðir til að ginna
ferlíkið en enginn útvalinn til
þessa. Enn hefur enginn vitanlega
viljað skjóta á stærðina á laxinum,
sem sagður er orðinn ieginn (!),
en hann er í myndarlegri fylgd
tveggja annarra gríðarvænna
iaxa sem eru nær þeirri stærð sem
menn treysta sér til að giska á.
Hafa félagar hins mikla lax verið
áætlaðir þetta 25—30 punda og
ekki orð um það meira. Frammi
á Núpum komst veiðimaður einn
í hann krappan er att var kappi
við geysistóran lax. Var dansinn
stiginn á Núpafossbrún og lauk
með því að laxinn kastaði sér fram
af brúninni og sleit sig lausan.
Samkvæmt bestu heimildum,
hefur mikið veiðst af laxi með
netaförum í Laxá það sem af er
og skammt er síðan að net fannst
á ólöglegum stað, í svonefndri
Saltvík. Var það kært til lögreglu
og mun í athugun. Ljóst er, að
laxinn flækir sig í sjávametum, í
ánni en engin netaveiði á þessum
tíma.
Enn um netaför
Laxar veiðast víðar með netaför
en í Laxá í Aðaldal, laxfískar sem
ganga í þverár Hvítár í Borgar-
fírði hafa löngum þurft að þræða
sig í gegnum hið svæsnasta völ-
undarhús. Haft er eftir erlendum
veiðimönnum sem veiddu 113 laxa
á einni viku í Kjarrá fyrir
skömmu, að ótrúlega margir lax-
anna hefðu verið meira og minna
rifnir eftir net, sumir mjög illa.
Næstum allt var það smálax sem
svona var á sig kominn, 4—6
punda fískar. Þessir erlendu gest-
ir veiddu nú í Kjarrá tíunda
sumarið í röð og sögðu ástandið
aldrei fyrr hafa verið svona slæmt.
Kvótinn í
Elliðaánum ...
Stutt er síðan að Elliðaámar
voru tíundaðar í þessum þætti og
litlu einu við það að bæta á þessu
stigi, þar er flest við það sama.
Til gamans má þó geta þess, að
einn veiðimaður hefur náð kvótan-
um til þessa, þ.e.a.s. 8 löxum á
hálfum degi. Það var veiðiklóin
mikla Garðar H. Svavarsson, sem
var ,að veiðum árdegis 9. júlí
síðastliðinn. Samkvæmt veiðibók-
inni í veiðihúsinu við Sjávarfoss
veiddi Garðar laxana vfðs vegar
í ánni og alla á mjög smáar flug-
ur, sérstakar túbur sem hann
hannar sjálfur með öngla nr. 12.
Ný lán duga skammt
— nýtt hlutafé
verður að koma til“
segir Olafur G. Einarsson alþingis-
maður um vanda hraðfrystihúsanna
„ÞAÐ ER náttúrlega mjög alvar-
legt mál þegar ein grein sjávar-
útvegs, frystingin, er rekin með
halla, jafnvel ár eftir ár,“ sagði
Egill Jónson, alþingismaður, er
hann var inntur álits á þeim
mikla vanda sem við blasir hjá
hraðfrystihúsum víða um land.
Sagði hann að skýringu vandans
væri meðal annars að fínna í hinni
hörðu gengisstefnu sem rekin hefði
verið. Hann taldi þó að ekki væri
hægt að nota gengisstefnuna sem
afsökun fyrir því að svona væri
komið. „Vandinn á sér fleiri rætur,
og ekki hvað sfst þær að margir
hafa fjárfest við ákaflega erfíðar
kringumstæður," sagði Egill.
„Verðbólga var mikil, lán sem feng-
in hafa verið til fjárfestinga og
skuldbreytinga hafa verið í erlendri
mynt og eigin fjárstöðu fyrirtækj-
anna verður að skoða í ljósi þessa.
Vandinn er hins vegar ekki allur
af sömu rót og stöðuna verður að
meta eftir því hvemig eiginfjár-
stöðu þeirra er háttað. Það er einnig
ljóst að vanda hraðfrystihúsanna
verður á einhvern hátt að færa til
betri vegar ef hægt á að vera að
halda uppi atvinnu í landi þar sem
fólk byggir afkomu sína að mestu
leyti á fiski,“ sagð Egill að lokum.
Ólafur G. Einarsson, alþingis-
maður Reykjanesi, sagði er blaða-
maður Morgunblaðsins ræddi við
hann um vandann þá er hann var
staddur á stjómarfundi Byggða-
stofnunar á Isafírði, að ekki hefði
verið rætt um þetta mál á fundinum
þar sem málið væri í höndum ríkis-
stjómarinnar. „Vandinn er vissu-
lega mikill þó enn sé allt í fullum
gangi hjá þessum fyrirtækjum og
ég veit ekki hvemig hann verður
leystur," sagði Ólafur. „Ný lán duga
skammt, nýtt hlutafé verður að
koma til,“ sagði hann að lokum.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
sagði að vissulega væm fréttir um
vanda ftystihúsanna slæmar en þó
ekki nýjar. „Það er mikill vandi á
höndum í sjávarútveginum og ég
tel ástæður þess aðallega tvær;
kvótaskiptinguna og gengisstefn-
una,“ sagði Þorvaldur. „Hins vegar
er hér ekki einungis um að ræða
vanda sjávarútvegsins heldur vanda
allra landsmanna. Fiskverð var
ákveðið á þeirri forsendu að gengið
yrði lækkað en það er hins vegar
langt í að staðið verði að slíkri ráð-
stöfun. Stjómvöld tala eins og það
sé ekkert mál að halda genginu
stöðugu. Það er hins vegar ljóst að
gengið verður að laga að markaðs-
þróun erlendis. Einnig verður að
bæta rekstrarstöðuna og efla eigin-
fjárstöðu hraðfrystihúsanna, það er
eina framtíðarlausnin sem ég sé og
það verður ekki gert öðmvísi en
að rekstrargmndvöllurinn verði
tryggður með bættri afkomu,"
sagði Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son að lokum.
Framfærsluvísitalan:
*
Arshraði
verðbólg-
unnar 5,3%
Matvörur hækkuðu um
1,35% júní til júlí
Framfærsluvísitalan hækkaði
um 0,43% á einum mánuði frá
júní til júlí. Hækkunin svarar til
5,3% árshækkunar. Mest hækk-
uðu drykkjarvörur og tóbak eða
um 1,58% og matvörur um
1,35%. Hlutdeild matvara í
hækkun vísitölunnar er 74%.
Mest munar um 5,45% verð-
hækkun á grænmeti, ávöxtum
og berjum en til hennar má
rekja 32% af hækkun vísitölunn-
ar.
Samkvæmt útreikningum Kaup-
lagsnefndar er vísitala framfærslu-
kostnaðar 170,89 stig miðað við
verðlag í byrjun þessa mánaðar
og gmnninn 100 í febníar 1984.
I frétt frá Hagstofu íslands er
bent á að lækkun bensíns um 7,1%
í byijun mánaðarins hefði komið í
veg fyrir frekari hækkun fram-
færslukostnaðar. Sé ekki tekið tillit
til þess hefði hækkunin verið
0,3%-stigum hærri og hefði svarað
til um 9% verðbólgu.
Kartöflur og vörur sem eru únn-
ar úr þeim hækkuðu á umræddu
tímabili um 2,83% og kjöt og -vör-
ur um 1,72%. Verð á fatnaði var
1,42% hærra í byijun júlí en í júní.
Síðastliðna 12 mánuði hefur
vísitala frramfærslukostnaðar
hækkað um 21,5%. Undanfarna
þijá mánuði hefur vísitalan hækk-
að um 2,8% og jafngildir það 11,8%
verðbólgu á heilu ári.
Sr, 1.
'' \T, j
■.v-'v.v ; |
I
—
Enska
Rivieran
Hillesdon Court ★ ★ ★ ★ íbúðir í algjörum sérflokki
Verðkannanir leiða í Ijós að
verðlag í Bretlandi er marg-
falt hagstæðara en hér. Nú
er tækifærið að sameina
skemmtilegt sumarleyfi fjöl-
skyldunnar og frábær
innkaup.
Frábær
innkaup
er tvímælalaust vinsælasti sumarleyfisstaður
Bretlands, með ótal mörguleika til skemmt-
unar og fróðleiks fvrir ferðamenn. Nú hefur
sumarið verið eindæma gott á ensku Rivie-
runni og allt bendir til að framhald verði á.
Ennþá er örfáum íbúðum óráðstafað á hin-
um frábæra gististað Hillesdon Court.
íslenskur fararstjóri.
Sumarútsölurnar
eru að byrja og hægt er að gera
hreint ótrúleg kaup
Leiguflugift
8. maí Spánn — uppselt
22 mai Spánn — uppsolt
22. mai Portúgal - uppselt
29. mai Spánn — uppsölt
19. juní Spónn — uppselt
26. júní Ítalía — uppselt
3 júlí Portúgal — uppselt
3. júli Spánn — uppselt
10. júli Spánn — uppselt
- Loftbrú í sólina á 5 klst.
21 ágúst Spánn - biðlisti
28. ágúst italía — laus sæti
4. sept. Spánn - biðljsti
4. sept. Portúgal — biölisti
11. sept. Spánn — biðlisti
25. sept. Spánn - 10saeti
25. sept. Portúgal - laus ssetil
2.okt.Spánn — laussseti 1
17. júliitalía- Uppselt
24. júlí Portúgal - Uppselt
24. júlí Spánn •— 2 saati
24. júli itatia - 3 sæti
14. ágúst ítalia—biðlisti
14. ágúst Portúgal — biðlisti
14. ágúst Spánn — biölisti
21. ágúst italia — biðlisti
Feróaskrifstofan
UTSÝN
Austurstræti 17, sími 26611