Morgunblaðið - 13.07.1986, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B
154. tbl. 72. árg.
Nýtækni
til að vinna
bug á skalla
Chicago, AP.
NÝ TÆKNI hefur verið fundin
upp til að vinna bug á skalla.
Er hún í því fólgin að teygja á
hársverðinum, þar sem enn vex
hár. Tækni þessi hefur reynst
árangursrík, og hafa nokkrir
lýtalæknar þegar tileinkað sér
hana. Samkvæmt skýrslu, sem
gerð hefur verið um aðferðina,
getur hún markað tímamót í bar-
áttunni við skallann.
Dr. Sheldon Kabaker, sem er
lýtalæknir, sagði á föstudag, að
engin auðveld lausn væri hugsanleg
til að vinna bug á skalla, en nýja
tæknin „er mikilsverður sigur og
gerir okkur kleift að „rækta upp“
stór skallasvæði, sem við réðum
ekki við áður.“
Kabaker sagði í símaviðtali, að
aðgerðin fælist í því, að belglaga
hlutum, svokölluðum „vefstrekkjur-
um“, væri komið fyrir undir hár-
sverðinum, í því skyni að teygja á
húðvefnum, þar sem enn væri hár-
vöxtur.
Sagt er frá tilraunum Kabakers
og samstarfsmanna hans í júlíhefti
vísindarits, sem bandarísku lækna-
samtökin gefa út í Chicago.
Mesti vandinh í sambandi við
þessa nýju meðferð, samkvæmt því
sem fram kemur í frétt tímaritsins,
hefur verið „tregða sjúklinganna
við að láta sjá sig á almannafæri
með strekkjarana skagandi út í
hársvörðinn".
Evrópa:
Alnæmis-
sjúkling-
um fjölgaði
um fjórðung
— áfyrstu þremur
mánuðum þessa árs
Genf, AP.
SKRÁÐUM alnæmissjúklingum
fjölgaði um tuttugu og sjö pró-
sent í Evrópu á fyrstu þremur
mánuðum þessa árs og eru þeir
nú 2.542. Af upplýsingum má
ráða að veiran breiðist nú hratt
milli eiturlyfjaneytenda, segir í
tilkynningu frá heilbrigðismála-
stofnun Sameinuðu þjóðanna
(WHO).
í fréttabréfí WHO, sem kemur
út vikulega, segir að ijörutíu og tvö
alnæmistilfelli hafi verið skráð að
meðaltali á viku frá 1. janúar til
31. mars. Alnæmissjúklingum fjölg-
aði mest í Vestur-Þýskalandi,
Frakklandi og á Ítalíu.
Tuttugu og fimm ríki létu af
hendi upplýsingar um alnæmis-
sjúklinga.
Frá aprílbyijun 1985 til marsloka
1986 þrefaldaðist fjöldi sjúklinga í
sautján ríkjum, sem veitt hafa upp-
lýsingar frá upphafi. I þessum
löndum var greint frá 940 atnæmis-
sjúklingum í mars 1985, en 2.477
ári síðar. Alnæmissjúklingum fjölg-
aði um 163 prósent í þessum
löndum.
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1986
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
RenntíLaxá íKjós
DularfuII
herþota
hrapar
Bakersfield, Kaliforníu, AP.
BANDARÍSK herþota hrapaði
niður í skógarsvæði í Sequoia-
þjóðgarðinum i Sierra Nevada
snemma á föstudagsmorgun.
Flugmaðurinn fórst og eldar
kviknuðu, þar sem þotan skall
niður, um 19 km norðaustur af
Bakersfield. Mikil leynd hvildi
yfir rannsókn slyssins og var
skógarsvæðinu þegar lokað.
Talsmenn flughersins neituðu að
greina frá tegundarheiti vélarinnar
eða hvort þarna hefði verið um að
ræða tilraunaflugvél frá Edwards-
flugstöðinni, sem er um 129 km
suðvestur af slysstaðnum.
Skógareldurinn breiddist ört út,
og voru um 18 hektarar sviðin jörð,
áður en unnt reyndist að slökkva
hann.
Sérfræðingar telja, að flugvélin
hafi verið tilraunavél frá Lockheed-
verksmiðjunum, af gerðinni F-19.
Vélar af þeirri tegund eru búnar
tækni, sem gérir þær „ósýnilegar"
í ratsjá. Talsmenn hersins viður-
kenna ekki tilvist þeirra.
Egyptolaiid:
27 manns fór-
ust er íbúð-
arhús hrundi
Kaíró, Egyptalandi, AP.
TUTTUGU og sjö manns fórust
og 30 slösuðust, þegar sjö hæða
íbúarhús hrundi í borginni Mit-
Ghamr í Nílaróshólmunum á
föstudag.
í Kaíróblaðinu AI-Ahram sagði á
laugardag, að 100 manns hefðu
búið í húsinu, sem var aðeins fárra
ára gamalt. Atburðurinn átti sér
stað snemma morguns að staðar-
tíma, og voru björgunarmenn enn
að leita í rústunum, samkvæmt frétt
blaðsins. Mit-Ghamr er um 75 km
norður af Kaíró.
Annað Kaíróblað, Al-Gomhouria,
sagði, að eigandi hússins og átta
böm hans hefðu verið meðal þeirra,
sem fórast.
í hvoragu blaðinu var getið um
ástæður þess, að húsið hrandi.
Herinn mun verða áfram
við stjómvölinn í Chile
— segir Pinochet forseti
Santiago, AP.
AUGUSTO Pinochet, forseti Chile, lýsti yfir því á föstudag
að herinn myndi áfram sitja í ríkisstjórn landsins og gaf
aukinheldur í skyn að hann ætlaði að sækjast eftir forsætisem-
bættinu eftur að þetta tímabil rennur út 1989.
fram til forseta 1989 og sitja til
„Ég er þess fullviss að þjóðin mun
styðja stjómina til næsta kjörtí-
mabils," sagði Pinochet í ræðu í
næst stærstu borg Chile, Concepic-
on.
Samkvæmt stjómarskrá Chile á
Pinochet þess kost að bjóða sig
1997.
Pinochet gat þess einnig í ræðu
á fimmtudag að herforingjastjóm-
in væri til reiðu búin að halda
áfram um stjómartaumana S Chile.
Herforingjastjómin settist að völd-
um 1973 eftir að hafa steypt
lýðræðislega kjörinni stjóm
Salvadors Allende af stóli.
Stjóm Chile sendi á föstudag
mörg hundrað hermenn inn í höf-
uðborg landsins, Santiago, til þess
að aðstoða lögreglumenn og út-
sendara leyniþjónustunnar við að
hafa hendur í hári „grunaðra
hryðjuverkamanna og ótíndra
glæpamanna í fátækrahverfi borg-
arinnar".
Hermennirnir umkringdu hverf-
ið meðan lögreglan athafnaði sig.
Lögreglan hefur oft gripið til að-
gerða af þessu tagi á undanförnum
mánuðum.
Fréttaskýrendur telja yfirlýsing-
ar Pinochets á fimmtudag og
föstudag bera því vitni að hann
ætli að reyna að ná endurkjöri í
forsetaembættið.
„Meirihluti landsmanna virðir
ekki þrjósku Pinochets og af því
leiðir ágreiningur, sem hann ber
fulla ábyrgð á,“ segir Gabriel Vald-
es, forseti stjórnarandstöðuflokks
kristilegra lýðræðissinna.