Morgunblaðið - 27.08.1994, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
í land með hólkinn Hafsteinn. Við megum ekki hræða líftóruna úr Nossurunum góði . . .
Stórlaxa-
þingí
Aðaldal
STÓRLAXARNIR gefa sig nú
hver af öðrum og sannarlega eru
þeir fleiri í ánum nú en um langt
árabil. Tveir í hópi fjögurra
stærstu laxa sumarsins veiddust í
vikunni, sá stærsti 27 punda sem
bandarískur veiðimaður veiddi í
Presthyl í Laxá í Aðaldal á Háiry
Mary númer sex.
Á dögunum veiddist einmitt 26
punda hængur í sama hyl, einnig
24 og 22 punda fiskar í vikunni,
þannig að ljóst er að mikið stór-
laxaþing stendur þar yfir þessa
dagana. Og á miðvikudagskvöldið
veiddi Geir A. Gunnlaugsson 26
punda hæng í Klapparfljóti í Þverá
í Borgarfirði. Það má því segja
að Laxá í Aðaldal og Þverá hafi
borið höfuð og herðar yfir aðrar
ár landsins í sumar þegar höfðin-
gjarnir eru annars vegar. Í Laxá
hafa veiðst meðal annarra stórlaxa
27, 26 og 25 punda laxar og í
Þverá 26 og 25 punda.
Skáldsögu líkast
Geir A. Gunnlaugsson veiddi 26
punda hænginn á svarta mík-
rótúbu með þríkrók númer 14 og
taumurinn var með 10 punda
endaþoli. Engu að síður var Geir
aðeins tuttugu mínútur að sigra
laxinn sem var 106 sentímetrar
og mjög leginn. Hefði trúlega ver-
ið um 30 pund nýgenginn í ána.
„Það var annaðhvort að taka á
honum eða vera í marga klukku-
tíma að glíma við hann. Ég er
með góðar græjur, að vísu var
flugan smá og taumurinn grann-
ur, en ég er með diskabremsuhjól
STÓRLAX og stoltur veiðimaður. Geir A. Gunnlaugsson með 26
punda hænginn úr Klapparfljóti í Þverá.
sem gefur laxinum aldrei frið.
Hann lét illa í byijun, fór víða um
svæðið í miklum rokum og eyddi
þannig strax kröftunum. Er hann
hægði á sér tóku tækin fljótt sinn
toll, enda var þetta mjög leginn
lax og ekki eins úthaldsmikill og
hann hefði verið nýr úr sjónum.
Þá hefði ég trúlega verið mun
lengur að eiga við hann,“ sagði
Geir í samtali við Morgunblaðið.
Klapparfljót er mikill og frægur
stórlaxahylur og fleiri miklir boltar
liggja þar um þessar mundir. Er
Geir hafði dregið tröllið sitt á land
fór annar veiðimaður af stað og
setti í annan stórlax, örlítið minni,
en missti laxinn.
Smáskot í Miðfjarðará
„Jæja, það komu sjö á land í
morgun, þannig að myrkrið er
ekki algert svartnætti. Þetta voru
ekki lúsugir laxar, en nokkrir
þeirra voru silfurbjartir í Miðfjarð-
aránni. Svo voru legnir laxar úr
Austuránni einnig í aflanum,“
sagði Böðvar Sigvaldason á Barði
við Miðfjarðará í gær. Þá voru
komnir 537 laxar á land. „Þetta
hefur verið mjög þungt sumar,
bæði miklu minna af laxi en æski-
legt hefði verið, og svo vatnslaust
að kalla, Vesturá og Núpsá hafa
verið illveiðandi um langt skeið
vegna þurrkanna. Þó er nokkur
fískur í ánni og ef það rigndi al-
mennilega myndi eflaust veiðast
slatti," bætti Böðvar við. Hann gat
þess einnig, að menn hefðu séð
mikinn hængshöfðingja við Skara-
staðabrú í Austurá efri. Það
reyndu flestir við hann, en laxinn
hefði ekki viljað taka. „Hann er
gríðarstór, en svo virðist sem hann
sé enn stærri en menn ætluðu.
Hann hafði nefnilega tekið sér
hrygnu sem mönnum sýndist vera
um það bil 8 eða 9 pund. Svo veidd-
ist hrygnan í gær og þá kom í ljós
að hún var 15 pund. Það kemur
vonandi í ljós síðar hvað hængur-
inn er stór,“ bætti Böðvar við. í
nýja laxastiganum í Kambsfossi
er búnaður sem mælir lengd laxa
sem um hann ganga. Samkvæmt
honum eru þó nokkrir laxar þar
efra á bilinu 100 til 110 sentí-
metra langir.
Betri útkoma í Gljúfurá
Gljúfurá í Borgarfirði hefur gef-
ið fleiri laxa en frá var greint í
þessum þætti á dögunum. A há-
degi fimmtudags voru komnir 123
laxar á land og veiðimenn sem þá
voru að ljúka veiðum sáu laxa víða
um ána. Áin hefur farið minnk-
andi að undanförnu, en ætti ekki
að minnka meiri í bili, því nú rign-
ir af og til. Gljúfurá hefur verið
itla nýtt allan síðari hluta ágúst
og líkt horfir með september.
Ætla mætti að tölur úr ánni væru
mun hærri ef nýtingin hefði verið
betri.
Iþróttafélag fatlaðra í Reykjavík 20 ára
Bylting á
síðustu árum
Arnór Pétursson
Arnór segist enn
muna vel eftir að-
draganda þess að
íþróttafélag fatlaðra í
Reykjavík var stofnað.
„Stofnun félagsins er eitt
af því fáa sem við kemur
fötluðum sem er ekki
komið frá þeim sjálfum.
Þannig var að Sigurður
Magnússon, fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ, var á
trimmfundi erlendis og
þar var bent á að það
væri fleira en trimmið
sem þyrfti að auka í
heiminum og í framhaldi
af því var skipuð þriggja
manna nefnd til að und-
irbúa stofnun félagsins. í
henni áttu sæti, auk Sig-
urðar, Guðmundur heit-
inn Löve og Trausti hejt-
inn Sigurlaugsson. Ég
kom fljótlega inn í þetta
og var kosinn formaður
á stofnfundinum en hann sóttu
um 40 manns sem þótti ágætt.
Ég var formaður í tólf ár sam-
fleytt, tók mér eins árs frí og
var síðan formaður í eitt ár til
viðbótar," segir Arnór.
— Hvernig voru fyrstu árin?
„Það var nú talsverður frum-
býlisháttur á þessu í upphafi.
Stjórnarmenn notuðu heimilið
sem skrifstofu og síminn hjá
þeim var notaður óspart í þágu
félagsins en nú er öll aðstaða
orðin mun betri og munar þar
mestu um hið nýja íþróttahús
okkar sem tekið var í notkun
fyrir nokkrum árum. Konan mín
orðaði þetta ansi skemmtilega
um daginn. Þá kom hún niður
í íþróttahús til mín, lítur í kring-
um sig og segir svo: „Þetta er
nú óskaplega mikill munur frá
því við vorum með félagið uppi
í hjónarúmi." Þetta er alveg
rétt hjá henni og það varð í
rauninni bylting með tilkomu
hússins.
Það sem hefur ráðið mestu
um hversu vel hefur tekist til,
bæði hjá ÍFR og íþróttahreyf-
ingu fatlaðra um allt land, er
sá skilningur sem fólkið í land-
inu og ráðamenn þjóðarinnar
hafa á mikilvægi íþrótta fyrir
fatlaða. Þetta hefur gert okkur
kleift að þjálfa og byggja upp
íþróttamenn sem eru margfaldir
ólympíu- og heimsmeistarar og
þannig hafa fatlaðir íþrótta-
menn komið íslandi
kyrfilega á heims-
kortið og verið mikil
pg góð landkynning.
íþróttahúsið var til
dæmis byggt fyrir
söfnunarfé og lögbundin fram-
lög opinberra aðila og ég vil
nota tækifærið a þessum tíma-
mótum í sögu félagsins til að
þakka öllum sem stutt hafa við
bakið á félaginu í þessi tuttugu
ár.“
— Hefur það mikla þýðingu
fyrir fatlaða að geta stundað
íþróttir?
„Já, alveg gífurlega mikla
þýðingu. Það hefur ekki bara
sömu þýðingu og fyrir ófatlaða
einstaklinga, það gefur fötluð-
um miklu meira. Ég hef starfað
hjá Tryggingastofnun ríkisins í
tvo áratugi, byijaði hér nokkr-
um mánuðum eftir að ÍFR var
stofnað, þannig að ég hef nokk-
uð góðan samanburð. Ég gæti
tekið einstaklinga með svipaða
fötlun þar sem annar stundar
► ARNÓR Pétursson er fædd-
ur í Kópavogi 14. nóvember
1949 og segist vera einn fárra
Islendinga sem fæddir eru í
Kópavoginum, nánar tiltekið í
sumarbústað við Vatnsenda.
Hann vill þó taka það skýrt
fram, svo það valdi ekki nein-
um misskilningi, að hann sé
Skagamaður, en hann ólst upp
á Akranesi. Iþróttafélag fatl-
aðra í Reykjavík heldur í dag
upp á 20 ára afmæli sitt en
Arnór var fyrsti formaður fé-
lagsins og gegndi því embætti
í 13 ár. Hann er nú formaður
hússtjórnar íþróttahúss fatl-
aðra við Hátún 14. Eiginkona
Arnórs er Áslaug Magnúsdóttir
og eiga þau eina dóttur og „svo
auðvitað félagið," eins og Árn-
ór orðaði það.
íþróttir en hinn ekki og ég get
fullyrt að í 80-90% tilfella er sá
sem stundar íþróttir miklu betur
á sig kominn, bæði líkamlega
og ekki síður andlega. Ég hef
þar til samnanburðar fólk sem
nú er um og kringum tvítugt
og byijaði að æfa hjá félaginu
sem börn og unglingar. íþrótt-
irnar hafa gefið þessu fólki
tækifæri til að ferðast og skoða
sig um í heiminum, mikilvægt
tækifæri sem annars hefði vart
gefist. Sá sem er í íþróttum
þarf mun minna á al-
mannatryggingakerf-
inu að halda og honum
líður í flestum tilfell-
um mun betur en hin-
um, Þetta á einnig við
um aðstandendur og ég vil endi-
lega benda foreldrum og að-
standendum fatlaðra einstakl-
inga á að hafa samband við
okkur eða eitthvert íþróttafélag
fatlaðra því íþróttir eru fötluð-
um mjög mikils virði.“
— Þið ætlið nð Imlda upp á
20 ára afmæli ÍFR í dag. Með
hvaða hætti verður það gert?
„Við verðum með mótttöku
kl. 14 í Hátúni 14 og vil ég
hvetja alla félagsmenn og vel-
unnara félagsins að koma og
heimsækja okkur í dag. í kvöld
verður svo kvöldvaka hjá okkur
og skemmtidagskrá þannig að
við ætlum að gera okkur daga-
mun af þessu tilefni,“ sagði
Arnór Pétursson, fyrsti formað-
ur íþróttafélags fatlaðra í
Reykjavík.
íþróttir eru
fötluðum mik-
ilvægar