Morgunblaðið - 10.09.1993, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998
Yirðing íslendinga
fyrir lífinu lofsverð
Frá Rick Ray:
UNDIRRITAÐUR hefur dvalið á
íslandi í nokkra mánuði með aðstoð
Flugleiða, Ferðamálaráðs og fleiri
aðila við gerð heimildamyndar um
ísland sem dreifa á í Bandaríkjun-
um og Kanada.
Ég tek myndir af villtri náttúru
og dýralífi og veiti meðferð dýra
og umgengni við náttúruna sér-
staka athygli í þeim löndum sem
ég heimsæki. I Bandaríkjunum er
yfirvöldum látið eftir að hafa
áhyggjur af gæludýrum sem týnast
og flökkudýrum og þar eru dýraat-
hvörf oft líkust fangelsum, niður-
drepandi og skítug.
Fyrir skömmu fékk ég tækifæri
til að heimsækja Kattaholt í Reykja-
vík. Um leið og ég kom þar inn
fyrir dyr fann ég fyrir friðsæld og
hreinleika. Augljóst var að allir
kettirnir á Kattholti voru ánægðir
og vel um þá hugsað. Lofsvert er
að eigendur Kattholts hafa lagt á
sig mikið starf eingöngu af eigin
hvötum og ást á skjólstæðingum
sínum, köttunum.
Mín skoðun er sú að viðleitni
VELVAKANDI
AÐGETAÞESS SEM
VEL ERGERT
KONA hringdi og sagðist hafa
verið á ferð um Snæfellsnes í
ágústmánuði. Hún vildi geta þess
að er hún kom að kvöldi til til
Ólafsvíkur, hafi hún gist á Ver-
sölum sem hefur 25 tveggja
manna herbergi. Þar hafí öll þjón-
usta verið til fýrirmyndar og
maturinn frábær á hóflegu verði.
Salir voru skreyttir málverkum,
blómum og vönduðum húsgögn-
um, öllu smekklega komið fyrir
og þar var einnig bar. Fyrir allt
þetta vill hún þakka.
TAKKFYRIRAÐ
BJARGA
HUNDINUM
SÓLEY Möller hringdi og vildi
koma á framfæri þakklæti til
unga mannsins sem bjargaði
hundinum hennar á þriðjudags-
kvöldið á Kringlumýrarbraut-
inni. Þannig var að það var keyrt
á hundinn sem er enskur Sett-
er, hvítur með svörtum doppum,
um áttaleytið um kvöldið á
Kringlumýrarbrautinni og sá
sem keyrði á hann ók bara í
burtu, en ungur maður sem
þarna var á ferðinni hljóp á eft-
ir hundinum og fann hann ofan
í skurði á Sléttuvegi. Ef hann
hefði ekki hlaupið á eftir honum
hefði ég aldrei fundið hann sjálf,
en þar sem ég var í sjokki og
allt gerðist svo hratt, þá hafði
ég ekki tíma til að þakka mann-
inum fyrir. Kærar þakkir.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Gullarmband tapaðist
GULLARMBAND tapaðist 14.
ágúst sl. Ef einhver veit um
armbandið þá vinsamlega hring-
ið í síma 75754.
Skjöl töpuðust
FYRIR um það bil viku tapaðist
glært plastumslag með skjölum
(samanbrotin A-3, ljósrit). Upp-
lýsingar í síma 25143.
Útilegu- og veiðidót
tapaðist
FIMMTUDAGINN 12. ágúst sl.
tapaðist veiðitaska, svefnpoki,
dýna, skíðagalli og klofstígvél á
leið yfir Amarvatnsheiði.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 676470.
Gleraugu fundust
SILFURSPANGAR gleraugu
fundust á bílastæðinu við Gróttu
á Seltjamarnesi fimmtudaginn
2. september sl. Eigandinn getur
vitjað þeirra í síma 611911.
Ullarjakki tapaðist
BLÁR karlmannsullarjakki var
tekinn í misgripum á skemmti-
staðnum „Tveir vinir og annar
í fríi“_ föstudagskvöldið 27. ág-
úst. í honum var lyklakippa
ásamt veski, engir seðlar, en
ökuskirteini og annað sem eig-
andinn saknar sárlega. Sá sem
hefur hann undir höndum er
vinsamlega beðinn að skila hon-
um, lyklunum og veskinu á fýrr-
nefndan skemmtistað eða
hringja í síma 615945 eða
677647.
Seðlaveski tapaðist
SVART seðlaveski tapaðist sl.
þriðjudag á BSR í Skógarhlíð
18.1 veskinu eru persónuskilríki
og fleira. Finnandi vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 74595
eða í afgreiðslu BSR, sími
611720.
Gullarmband tapaðist
í vikunni fyrir verslunar-
mannahelgi á leiðinni frá
Egilsstöðum til Reykjavíkur.
Vinsamlega hringið í síma
79517. Fundarlaun.
Myndavél tapaðist
CANON-myndavél, sjálfvirk, í
svörtu hulstri, tapaðist í Esjunni
sunnudaginn 22. ágúst sl.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 652274.
Hálsmen tapaðist
GULLHÁLSMEN með tópas-
steini tapaðist seinnipart ágúst-
mánaðar, líklega í Kópavogi.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 40820.
GÆLUDÝR
Týndur högni
BRÖNDÓTTUR og hvítur högni
hvarf frá heimili sínu, Tungu-
seli, fímmtudaginn 19. ágúst sl.
Hann er ólarlaus en eyma-
merktur R-2211. Ef einhver
hefur séð hann eða getur gefíð
upplýsingar um afdrif hans er
hann vinsamlega beðinn um að
hringja í síma 71960.
íslensk kanína
HÉRALITUÐ (grá) karlkyns
kanína, þriggja mánaða, fæst
gefíns á góðan stað. Upplýs-
ingar í síma 18821.
Fallegir kettlingar
ÞRÍR fallegir tæplega 8 vikna
kettlingar fást gefins á gott
heimili. Kassavanir. Upplýs-
ingar í síma 45744.
Hvolpar fást gefins
FALLEGIR og góðir hvolpar
átta vikna, fást gefins til dýra-
vina. Þeir sem hafa áhuga hringi
í síma 685693 árla dags eða
eftir klukkan 19.
þessi eigi skilið mikinn stuðning,
bæði einstaklinga og opinberra að-
ila og ég vona að Islendingar geri
sér ljóst mikilvægi slíkrar mannúð-
arstofnunar.
Ein besta hlið íslands í augum
útlendings er hin mikla virðing sem
íslendingar bera fyrir lífínu og ná-
unganum sem birtist í öllum hliðum
samfélagsins. Þetta er svo sannar-
lega land þar sem fólk hjálpar hvert.
öðru af hjartagæsku einni saman.
Það sem ég gerði mér ekki grein
fyrir, fyrr en ég heimsótti Kattholt,
var að þessi hjartagæska nær til
allra lifandi vera, þ.á m. katta.
Umhyggja þessi ber því vitni að í
landinu er borin djúp virðing fyrir
öllu lífí. íslendingar eiga mikið hrós
skilið af þessum sökum.
Ég vona að þjóðin haldi áfram
að styðja starfsemi eins og Katt-
holt um ókomna framtíð.
RICK RAY
kvikmyndaframleiðandi
Sóuní
heilbrigð-
iskerfinu
Frá Þorsteini Hannessyni:
HINN 28. júlí sl. fór ég í skoðun á
Landspítalanum. Við skoðunina var
notað tæki sem heita mun seguló-
munartæki. Þetta er í sjálfu sér
ekki í frásögur færandi. Hitt er
aftur á móti í frásögur færandi að
eftir þessari skoðun hafði ég þurft
að bíða í 55 daga. Ég lagði inn til-
vísun frá sérfræðingi 3. júní og
þegar ég spurði hvenær rannsóknin
mundu fara fram var mér sagt að
það yrði „einhvemtímann í júlí eða
ágúst". Ég tók þessari bið að sjálf-
sögðu sem hverju öðru hundsbiti,
en þar sem óþægindi þau sem or-
sökuðu það að ég var sendur í skoð-
unina jukust frekar en hitt og sér-
fræðingurinn hafði sagt mér að
nauðsynlegt væri að rannsóknin
færi fram áður en hægt væri að
taka ákvörðun um hvað ætti að
gera til að losa mig við þessi óþæg-
indi fór ég að athuga hvernig á
þessari löngu bið gæti staðið. Ég
komst þá að því sem hér segir:
Tækið er notað 5 daga í viku og
er hægt að rannsaka 6-8 sjúklinga
á dag. Þeir hafa þvi verið nokkur
hundruð sjúklingarnir sem biðu eft-
ir skoðun þegar ég lagði inn mína
skoðunarbeiðni.
Ekki veit ég hve mikið þetta
áður umtalaða tæki kostaði, en
sennilegt þykir mér að það hafi
verið nokkrar milljónir. Tækið er
staðsett í rúmgóðu herbergi á
neðstu hæð Landspítalans. Eitthvað
hefur sú aðstaða kostað.
Og nú er mér spurn: Hverskonar
nýting á fjármunum er það að hafa
tækið ekki í notkun nema aðeins 5
daga vikunnar og aðeins í u.þ.b. 8
tíma á dag þegar hundruð manna
bíða eftir skoðun? Mér er ómögu-
legt að koma því inn í minn ferkant-
aða haus að það sé hægt að flokka
það undir „sparnað í heilbrigðis-
kerfínu". Frekar mætti kalla þetta
„sóun í heilbrigðiskerfínu".
ÞORSTEINN HANNESSON,
Þverbrekku 4, Kópavogi
Pennavinir
ÞRETTÁN ára pólskur piltur sem
safnar póstkortum, frímerkjum,
mynt og ferðamannabæklingum.
Getur skrifað á esperanto auk
ensku:
Przemek Myszakowski,
P.O. Box 26,
PL 56-400 Olesnica,
Poland.
FIMMTÁN ára japönsk stúlka með
áhuga á kvikmyndum, tónlist, bóka-
lestri o.fl.:
Fumiko Yanagi,
7161 Genna Nishinoomote-shi,
Kagoshima-ken,
891-31 Japan.
LffTt
Vinn ngstöiur r------------
miðvikudaginn: 8- sept. 1993
Aöaltölur:
3)(s)&8'
29)(38)(40
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
[1 6af6 1/0á ísl. 37.900.000,-
CV 5 af 6 LaJ+bónus 0 446.743,-
5 af 6 4 87.753,-
| 4 af 6 303 1.843,-
jna 3 a< 6 lEUS+bórtus 1.117 217,-
BÓNUSTÖLUR
26 32 36
Heildampphæb þessa viku:
39.498.573,-
áíst: 1-598.573,-
UPPLÝSINGAR, SÍMSVARI61- 68 15 11
LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEO FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Frábærír skór á fínu verði. Dömu og herrastærðir.
5% staðgreiðsluafsláttur,
einnig af póstkröfum greiddum innan 7 daga.
iiiianhnsskór
Hffl UTILIFP E0ES
GLÆSIBÆ. SÍMI 812922
Aujnfarðahieinsun með Nivea!
Mildogfrískandihreinsun
Nlvea augfarðahreinsigel: Fjarlægir mjúklega allan augnfarða,
jafnvel þann sem er vatnsþolinn. Gelið er bætt með vítamíninu B5.
Áferðin er létt og fitusnauð og notkun þess veldur svalandi
tilfinningu.
NIVEA
J. S. Helgason hf Draghálsi 4 sími 91- 68 51 52