Morgunblaðið - 10.09.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1993
ÍÞRÓTTIR
Ungir meistarar í golfi
Ungir sigursælir kylfingar úr A-sveit Golfklúbbs Reykjavíkur ásamt
framkvæmdasljóra GR og liðsstjóra, frá vinstri: Hildur Haraldsdótt-
ir framkvæmdastjóri Gr, Svanþór Laxdal, Guðjón Rúnar Emilsson,
Pétur Óskar Sigurðsson, Arnar Þórisson og Siguijón Arnarsson liðs-
stjóri.
Golf nýtur sívaxandi vinsælda
meðal almennings hér á landi
enda hefur íþróttin þann kost að
allir geta stundað hana og gildir
þá einu hvar í þjóðfélagsstiganum
menn eru staddir. Golfið fer ekki í
manngreiningarálit, það á sér engin
aldursmörk og er iðkað af konum
jafnt sem körlum. Sumir stunda
golf sér til heilsubótar eingöngu,
en aðrir hella sér út í íþróttina með
keppnisskapið að vopni og sumum
verður býsna vel ágegnt. Þannig
er það með A-sveit Golfklúbbs
Reykjavíkur, skipaða piltum 14 ára
og yngri, en sveitin sigraði með
yfirburðum í Sveitakeppni í sinum
aldursflokki sem fram fór í Borgar-
nesi um síðustu helgi. Keppnin hófst
á fimmtudegi, en þá var leikinn
höggleikur og var raðað í riðla eft-
ir samanlögðu skori þriggja bestu
manna hverrar sveitar, en hveija
sveit skipa fjórir leikmenn. Seinni
dagana var leikin holukeppni í fjór-
menningi og tvímenningi. Sigurveg-
ar voru sveit GR, eins og áður seg-
ir, en sveitina skipuðu Guðjón Rún-
ar Emilsson, Pétur Óskar Sigurðs-
son, Arnar Þórisson og Svanþór
Laxdal.
Ariana Richards ásamt Joseph
Mazzello, en þau leika stór hlut-
verk í kvikmyndinni „Jurassic
Park“.
KVIKMYNDIR
Óheppni við
upptökur
að gengur ekki alltaf allt eins
og í sögu þegar verið er að
taka upp þætti eða kvikmyndir þó
að áhorfendur verði sjaldnast varir
við 'mistökin. Þegar Ariana Rich-
ards, sem leikur eitt aðalhlutverk-
anna í kvikmyndinni „Jurassic
Park“, var eitt sinn sem oftar á flótta
undan risaeðlum ienti hún í eftirfar-
andi hremmingum: „Risaeðlan var á
eftir mér og elti mig inn í kæliklefa.
Ég átti að stökkva til vinstri en hún
til hægri. í staðinn rauk ég til hægri
og við skullum saman. Hrammur
hennar sem er úr stáli lenti á höfð-
inu á mér ... og þetta var meira að
segja á afmælisdaginn minn,“ sagði
Ariana og brosti þegar hún minntist
atburðarins.
HLUTVERK
Þarf bara að
líta í spegil
Bresku stórleikkonunni Emmu
Thompson, sem hlaut Ósk-
arsverðlaun fyrir hlutverk sitt í
kvikmyndinni „Howards End“ fyr-
ir tæpu hálfu ári, hefur ekki verið
boðið kvikmyndahlutverk í bíó-
borginni Hollywood síðan og hefur
mátt láta sér lynda hlutverk í
myndum sem eiginmaður hennar,
Kenneth Branagh, hefur framleitt
og leikstýrt. Emma þykir afburða-
leikkona og því hefur þessi þróun
vakið athygli í kvikmyndaheimin-
um.
„Það er bara ein skýring á þessu
og ég veit hver hún er. Ég_ þarf
einungis að horfa í spegil. Ég er
ekki fríðleikskona, engin Michelle
Pfeiffer. Kjálkabeinin eins og ljós-
ker í laginu og svo er ég í þyngri
kantinum. Sönn fegurð leynir sér
ekki, en hitt er svo annað mál,
að það er margt hægt að gera
með ósköp venjulegt útlit eins og
mitt,“ segir Emma.
Kvikmyndagagnrýnendur víða
um völlu hafa ritað að til allrar
hamingju hafi Kenneth Branagh
ekkert við útlit Emmu að athuga
og því fái bíóunnendur að njóta
hennar á hvíta tjaldinu þrátt fyrir
stífni framleiðenda í Hollywood.
Emma Tliompson
m
Auglýsing
Besti tíminn
í Kolaportinu
Haustið er besti tíminn í Kolaportinu að sögn þeirra
Kolaportsmanna og greinilega er eitthvað til í því ef
dæma má af aðsókn seljenda og gesta á markaðstorginu
síðustu helgi. Laugardag og sunnudag buðu á þriðja
hundrað seljendur upp á nánast allt milli himins og jarð-
ar og mikið var greinilega verslað þessa markaðshelgi.
Mikiðúrval
Kompudótið og matvælin eru
alltaf vinsæl verslunarvara í
Kolaportinu en síðustu helgi
var þar einnig mikið úrval fatn-
aðar, leikfanga, gjafavöru og
búsáhalda, en listinn yrði óend-
anlegur ef telja ætti upp allt
vöruúrvalið. Margt óvenjulegt
var þar innan um svo sem
ókeypis skóburstun og útsala á
sígarettum á 800 kr. kartonið.
Markaðsfélagstorg
Þó Kolaportið sé auðvitað fyrst
og fremst markaðstorg þar sem
gestir fá meira fyrir krónumar
sínar, virðist staðurinn einnig
þjóna mikilvægu félagslegu hlut-
verki í borginni. Góð vinkona
Kolaportsins, vel við aldur, hefur
t.d. komið þangað hveija helgi
þessi rúmlega fjögur ár sem það
hefur starfað: „Að einni helgi
undanskilinni þegar ég lá í
lungnabólgunni“ eins og hún
orðaði það þar sem hún sat á
kaffistofunni mitt í góðum hópi
Breiðfirðinga.
Síld og kókosbollur
Og gestirnir koma úr öllum þrep-
um þjóðfélagsins og af öllum
landshornum, ekki síður en selj-
endur. Meðal fastagesta má
nefna ráðherra, sem hefur sér-
stakt dálæti á síldinni frá Bergi
á Fáskrúðsfirði, og ekki síður á
kókósbollunum hjá Sirrý, þekkt-
ur hæstaréttarlögmaður, sem er
sem eyðilagður maður ef
Magnea hefur ekki komið með
ábresti þessa helgina og svo
mætti lengi telja.
Um hveija helgi leggja um
20.000 gestir leið sína í Kola-
portið og vinsældir markaðs-
torgsins virðast síður en svo fara
dvínandi.
Kolaportið er nú opið bæði
laugardaga og sunnudaga ld.
10-16.
• KENNSLUSTAÐIR
• Reykjavík Brautarholt 4, Ársel,
Gerðuberg, Fjörgyn
og Hólmasel.
• Mosfellsbær
• Hafnarfjörður
• Innritun í síma 91-20345 frá
kl. 15 til 22 að Brautarholti 4.
• Suðurnes Keflavík, Sandgerði
Grindavík og Garður
• Innritun í síma 92-67680 frá
kl. 21.30 til 22.30.
• KENNSLA HEFST ÞRIÐJUDAGINN 14. SEPT. Gjaldskrá óbreytt
frá liðnum vetri
Systkinaafsláttur - fyrsta barn fullt gjald,
annað barn hálft gjald, þriðja barn og þar yfir
frítt. Aukaafsláttur efforeldrar eru einnig í
dansnámi.
Afhending skírteina að
Brautarholti 4, sunnudaginn
12. september, frá kl. 15-22
• SIDASTIINNRITUNARDAGUR
í DAG, 10. SEPTEMBER
DISK0DANSAR - BUMP • J0N STEINAR, SIMBI OG K0LLA, MARGFALDIR ISLANDSMEISTARAR KENNA
|MÁ BJÓÐA ÞÉR í r I DAIUS?
V