Morgunblaðið - 10.09.1993, Qupperneq 37
MÖRGtótéLÁD'lí) KÖSTbÐÁGt'R 10. 3EPTE.MBEk'l#3.................... .....................- 8*1
Minning
Einar Jónsson frá
Móbergi, Húsavík
Fæddur 9. febrúar 1916
Dáinn 14. ágúst 1993
Laugardaginn 14. ágúst sl. lést
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri Einar Jónsson frá Móbergi á
Húsavík, 77 ára að aldri, eftir ör-
stutta sjúkrahússlegu. Með honum
er genginn gagnmerkur fulltrúi
húsvískrar alþýðu. Einar Sören,
eins og hann hét fullu nafni, fædd-
ist á Móbergi á Húsavík 9. febrúar
1916. Hann var sá fjórði í röðinni
af alls átta systkinum. Foreldrar
Einars voru hjónin Sigurhanna Sör-
ensdóttir, Einarssonar, bónda á
Máná á Tjörnesi og Jón Gunnars-
son, sem fædist í Meðalheimi á
Svalbarðsströnd, sonur Gunnars
Bergmanns Jósepssonar. Jón og
Sigurhanna bjuggu mest allan sinn
búskap á Húsavík.
Systkini Einars, talin eftir aldri,
voru: Indiana, lést 17 ára. Elín
Málfríður sem bjó á Húsavík, gift
Gunnari Maríussyni, sem enn er á
lífi. Hún lést 1990, 79 ára að aldri.
Gunnar Bergmann, lést 17 ára.
Sverrir bílstjóri á Húsavík, ókvænt-
ur, enn á lífi. Finnbjörg Axelína,
gift Salómon Erlendssyni og hafa
þau alltaf búið á Húsavík og eru
enn á lífi. Viggó Emil, sem dó fjög-
urra ára gamall. Yngstur var svo
Jakob Hermann, verslunarmaður á
Akureyri, giftur Sigurlaugu Stef-
ánsdóttur og eru þau enn á lífi.
Jón faðir Einars var sjómaður á
Húsavík lengi framan af ævi og var
það hans aðal atvinnuvegur. Síðar
á ævinni vann hann í Sláturhúsi
Kaupfélags Þingeyinga og var hin
síðari ár sláturhússstjóri. Stundaði
þó alltaf sjóinn þegar færi gafst.
Eins og tíðkaðist í ungdæmi Ein-
ars fór hann að vinna við ýmiss
tilfallandi störf, bæði í nálægum
sveitabæjum og á Húsavík um leið
og hann gat. Má t.d. til gamans
geta þess að hann var enn innan
við fermingaraldur þegar hann var
kúskur hjá Jónasi keyrara Bjarna-
syni, en þá nafnbót fengu unglingar
sem teymdu vagnklára í vegavinnu.
En sjaldan fellur eplið langt frá
eikinni, eins og þar stendur og Ein-
ar var ekki nema 15 ára þegar
hann byrjaði að róa á árabát hjá
Kristjáni Jónssyni. Þrem árum síðar
var hann svo orðinn háseti á Njáli
hjá Helga Flóventssyni. Veturinn á
eftir fór hann til Akureyrar að læra
vélgæslu og varð nú mótoristi eins
og það var kallað. Var á ýmsum
vélbátum utan Húsavíkur fyrstu
árin, en sneri aftur heim og starf-
aði sem mótoristi á bátum frá Húsa-
vík á sumrin, en var jafnan á ver-
tíð syðra að vetrarlagi, bæði í Vest-
mannaeyjum, Njarðvíkum og
Grindavík. Hér á Húsavík var Einar
lengst á bátum Helga Kristjánsson-
ar, Víkingi og Kristjáni. Einar eign-
aðist fljótt sinn eigin bát, átti ýmist
árabát, trillu eða hlut í mótorbát
með öðrum. Hann var í „kompaníi"
með fjölmörgum öðrum, t.d. Helga
Kristjánssyni, Sigurmundi Hall-
dórssyni og Þorsteini Gunnarssyni.
En lengst mun hann hafa verið í
sameign með Sigurði Sigurðssyni
og áttu þeir m.a. trilluna Óðinn og
vélbátinn Svan. Þegar á leið keypti
Sigurður hlut Einars í Svani og
má segja að Einar hafi hætt reglu-
legri útgerð með því. Einar átti þó
áfram trillu, sem hann skrapp
gjarnan á til að fá sér í soðið og
eins stundaði hann lengi vel há-
karlaveiðar í frístundum sínum,
verkaði hann og seldi.
Einar hafði snemma byijað að
starfa hjá Kaupfélagi Þingeyinga á
sumrin. Þegar hann hvarf frá sjó-
mennskunni fór hann að starfa að
fúllu í sláturhúsi Kaupfélagsins og
með tímanum tók hann við umsjón-
ar- og afgreiðslustörfum þar og
varð frystihússtjóri. Það var ekki
að ófyrirsynju að Einar var kallaður
þar til forræðis, enda var hann
mikið snyrtimenni, öruggur starfs-
maður og stundvís. Hann lagði alúð
í starfið, sama að hverju hann gekk.
Þegar Einar var 19 ára eignaðist
hann dóttur með Önnu Frímanns-
dóttur, en ekki varð meira úr því
sambandi. Dóttir þeirra, Hlín, fædd
26. mars 1935, er húsmóðir á Húsa-
vík, gift Sigurði Sigurðssyni skip-
stjóra. Þau eiga fjögur börn, en þau
eru: Eiríkur, fæddur 4. desember
1961; Arnar, fæddur 2. ágúst 1963;
Hafdís, fædd 6. október 1968 og
Anna íris, fædd 29. september
1972. Arnar er giftur Ásdísi Jóns-
dóttur og eiga þau tvær dætur, hin
börnin eru ógift.
Árið 1941 kvæntist Einar lífs-
förunauti sínum, Guðrúnu Jóhann-
esdóttur frá Baldurshaga. Þau hófu
búskap sinn í Árnahúsi á Húsavík
og fluttu síðar í Móberg og bjuggu
þar til ársins 1950, en þá fluttu þau
í nýtt hús sem þau höfðu byggt
ásamt Alberti Jóhannessyni, sem
var mágur Einars. Þetta hús er
Laugarbrekka 5 á Húsavík og áttu
Einar og Guðrún þar heimili allt
þar til Guðrún lést í júní 1986.
Eftir andlát Guðrúnar gat Einar
ekki hugsað sér að búa lengur í
húsi þeirra og flutti til Bertu dóttur
sinnar og Guðmundar tengdasonar
síns á Héðinsbraut 15 á Húsavík.
Þar dvaldi hann þar til fyrir þrem
árum að hann fékk pláss á Dvalar-
heimilinu Hvammi á Húsavík og
þar eyddi hann síðustu æviárunum
og líkaði vel.
Einar og Guðrún eignuðust eina
dóttur, Bertu, fædda 17. september
1941, ljósmóðir að mennt, býr á
Húsavík gift Guðmundi Gunnlaugs-
syni fyrrv. lögregluþjóni frá Skóg-
um í Reykjahverfi. Þau Berta og
Guðmundur eiga þijú börn, en þau
eru: Arna Heiðmar fædd 22. apríl
1965; Harpa Heiðmar, fædd 9. maí
1966 og Rúnar Heiðmar, fæddur
11. mars 1972. Harpa býr á Akur-
eyri með sambýlismanni sínum,
Valdimar Kristjánssyni, og eiga þau
litla stúlku. Hin systkinin eru ógift.
Áður en Guðrún giftist Einari
bjó hún um þriggja ára skeið með
Jens Valdimarssyni á Akureyri og
eignuðust þau einn son, Örn að
nafni, f. 19. júní 1935. Þegar Guð-
rún og Jens skildu að skiptum flutt-
ist hún aftur í foreldrahús og tóku
foreldrar hennar Örn að sér, sem
var síðan hjá þeim og Albert móður-
bróður sínum, sem má segja að
gengið hafi honum í föðurstað. Þar
sem fjölskyldurnar bjuggu í sama
húsi, eftir að þau fluttust þar sem
nú er Laugarbrekka 5, má segja
að þetta hafi verið sem ein fjöl-
skyldá. Örn giftist Hallfríði Ragn-
arsdóttur, f. 14. október 1939 og
eignuðust þau fimm börn, en þau
eru: Albert Gunnar f. 9. maí 1959,
Kristján Ragnar f. 20. febrúar
1963, Þóra Guðbjörg f. 6. apríl
1968, Einar Örn f. 3. ágúst 1969
og Guðmundur Flosi f. 19. ágúst
1971. Örn og Hallfríður hafa alla
tíð búið að Laugarbrekku 5 og Ein-
ar gekk því börnum þeirra í afastað
og var kært með þeim.
Einar var kominn á sextugsald-
ur, þegar kunningsskapur okkar
hófst. Tildrögin voru þau, að Guð-
rún, kona Einars, átti við mikla
vanheilsu að stríða og þurfti oft á
læknishjálp að halda. Það var því
í gegnum iæknisstarfið sem ég
kynntist þeim fyrst. í þá daga voru
vitjanir í heimahús tíðari og kynni
lækna af sjúklingum sínum því nán-
ari. Og jafnframt kynntist læknir-
inn fjölskyldunni allri ef svo bar
undir. Á þennan hátt hófust kynni
okkar Einars, en það var aðeins
byijunin. Þau áttu eftir að vaxa og
sem betur fer urðu tilefnin til að
hittast oft á tíðum miklu frekar af
öðrum og ánægjulegri toga, en
koma á heimili þeirra í lækniserind-
um. Einar og Guðrún áttu mjög
smekklegt og notalegt heimili, sem
alls staðar bar með sér hve mikil
alúð var lögð í hlutina. Sú alúð fólst
ekki eingöngu í hinni ytri umgjörð
ÞESSIR krakkar héldu hlutaveltu til styrktar Rauða kross íslands
°g varð ágóðinn 626 krónur. Þau heita Markús Már Sigurðsson,
Björney Inga Björnsdóttir, Hákon Þrastar Björnsson og Kristín Eva
Bjarnadóttir.
ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Rauða kross íslands
og varð ágóðinn 3.660 krónur. Þær heita Laufey Geirsdóttir og
Helga Óskarsdóttir.
ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Rauða kross íslands
og varð ágóðinn 1.085 krónur. Þær heita Rósa Hildur Bragadóttir,
Fjóla Kristín Bragadóttir og Svana Ágústsdóttir.
ÞESSIR krakkar héldu hlutaveltu til styrktar krabbameinssjúkum
börnum og varð ágóðinn 1.420 krónur. Þau heita Dóra, Sara, Rakel
og Vilberg.
heimilisins, heldur ekki síður í við-
móti þeirra hjóna og með hverjum
hætti þau tóku á móti gestum með
heimatilbúinni matargerð í hágæða-
flokki ásamt öðrum veitingum og
viðurgjörningi, sem hvergi var til
sparað. Einar var hæglátur maður,
sem tranaði sér ekki fram. Hann
var seinteknari en Guðrún, en
greinilega vinur vina sinna og vin-
fastur. Hann var skapríkur maður,
en jafnframt' viðkvæmur, eins og
títt er um skapríka menn. Hann
kaus því oft að tjá sig ekki um við-
kvæm málefni og var dulur um
einkahagi.
Einar og Guðrún voru mjög
handgengin hvort öðru og eins og
áður kom fram gat hann ekki hugs-
að sér að búa lengur í ibúð þeirra
hjóna eftir að Guðrún féll skyndi-
lega frá. Hann flutti þá til Bertu
dóttur sinnar og var samband þeirra
mjög náið. T.d. héldu þau þeim
vana eftir að Einar flutti á Dvalar-
heimilið Hvamm að ræðast við sím-
leiðis hvern einasta dag og miklu
fleiri daga hittust þau en ekki.
Ekki er við hæfi að rekja hér
margskonar greiða og vináttuvott,
sem Einar sýndi mér og fjölskyldu
minni. En það er til marks um
trausta vináttu hans, að aldrei
gleymdust tilefnin til að sýna okkur
vináttuvott, þó að aldurinn færðist
yfir og hann yrði einstæðingur.
Og ef ég heimsótti hann í íbúð
hans á Hvammi, var ég ævinlega
aðnjótandi veitinga, við annað var
ekki komandi. Og ekki nóg með
það, heldur varð ég oftast eftir slík- ’
ar heimsóknir að flytja Katrínu
konu minni einhvem viðurgjörning
ásamt kveðju, þegar heim var snú-
ið. Þó af mörgu sé að taka, þá
fannst mér alltaf að Einar legði þó
mesta alúð í hákarlinn, sem hann
verkaði sjálfur og gekk frá í smáat-
riðum, áður en hann skenkti vinum
sínum.
Hér með læt ég lokið þessum
fátæklegu kveðjuorðum mínum til
vinar míns Einars Jónssonar. Bless-
uð sé minning hans.
Við hjónin sendum dætrum hans,
barnabörnum, tengdabörnum og
eftirlifandi systkinum innilegar
samúðarkveðjur. Sérstakar samúð-
arkveðjur til Bertu dóttur hans, sem
stóð honum næst.
Gísli G. Auðunsson.
-------------------
____________Brids_______________
Umsjón ArnórG. Ragnarsson
Síðsumarsbrids á Suðurnesjum
Einar Júlíusson og Dagur Ingimundar-
son unnu tvímenninginn sl. mánudag,
hiutu 201 stig. Þátttakan eykst jafnt
og þétt en spilað var í 14 para riðli.
Gísli Torfason og Jóhannes Sigurðs-
son urðu í öðru sæti með 192 stig og j
•'Gísli Davíðsson og Gestur Auðunsson j
þriðju með 189 stig,
Síðasta spilakvöldið í síðsum- j
arsbrids verður nk. mánudagskvöid |
en síðan hefst vetrarstarfið. Spilað er j.
í Hótel Kristínu á mánudagskvöldum
kl. 19.45.
Bridsdeild
Húnvetningafélagsins
Vetrarstarfíð hefst miðvikudaginn 15. :
septembver nk. Byijað verður á eins i
kvölds tvímenningi og eru gamlir og 1
nýir þátttakendur hvattir til að mæta. |
Spilað er í Húnabúð, Skeifunni 17, J
efstu hæð og hefst spilamennskan kl. |
19.30. s |
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Vetrarstarf Bridsféiags Hafnar-
fjarðar hefst mánudaginn 13. septem-
ber nk. með eins kvölds tvímenningi.
Spilað verður í tveimur riðlum, öðrum
ætluðum byijendum eingöngu.
Spilað er kl.19.30 í Iþróttahúsinu
v/Strandgötu. Allir spilarar eru vel-
komnir en stjórnin hvetur byijendur
til að nýta sér riðlaskiptinguna og
spila við jafningja um leið og aflað
er reynslu í keppnisbrids.
Bridsdeild Skagfirðinga
Hauststarfsemi deildarinnar hefst
næsta þriðjudag 14. september með
eins kvölds tvímenningskeppni. Spilað
er í Drangey við Stakkahlíð 17 (við
hlið nýja hússins sem er í byggingu)
og hefst spilamennska kl. 19.30.
Keppnisstjóri er Ólafur Lárusson.
Haustbarómeter hefst svo fljótlega.
Skorað er á bridsáhugafólk að vera
með frá byijun.