Morgunblaðið - 10.09.1993, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLABIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1993
Bogomil Font og Milljónamæringarnir/Ekki þessi leiðindi
Taktvænir o g töfrandi
Bogomil Font og Milljónamæringarnir.
Hljómplötur
Sveinn Guðjónsson
Það tíðkast nú mjög að tala
um „spútnikka" á hinum ýmsu
sviðum athafnalífsins og ef hægt
er að nota það hugtak um ein-
hvem einn einstakling í íslensku
dægurtónlistarlífi á þessu sumri
þá er það Sigtryggur Baldurs-
son, sem hefur lagt landslýð að
fótum sér undir nafninu Bogom-
il Font. Það merkilegasta er þó
að hann er ekki nema svona rétt
miðlungsgóður raulari ef tekið
er mið af viðurkenndum, „fag-
legum“ mælistikum sönglistar-
innar. I tilviki Bogomils Fonts
hefur það sem sé komið berlega
í ljós að röddin sem slík skiptir
ekki höfuðmáli ef menn vilja ná
hjörtum fólks, heldur miklu
fremur hvernig henni er beitt og
ef til vill ekki síður hvernig um-
gjörð henni er búin. Þessi fyrrum
trommari Sykurmolanna hitti
nefnilega naglann á höfuðið þeg-
ar hann setti saman hljómsveit
sína, „Milljónamæringana", sem
er einhver skemmtilegasta og
„taktvænasta" danssveit er stig-
ið hefur á svið hér á landi á seinni
árum. Þar má segja að valinn
maður sé í hverju rúmi: Sigurður
„Perez“ Jónsson á sax, Stein-
grímur Guðmundsson á tromm-
ur, Ástvaldur Traustason á píanó
og Gunnlaugur Guðmundsson á
kontrabassa. Sá sem þetta ritar
átti þess kost að fylgjast með
hljómsveitinni á nokkrum dans-
leikjum í sumar og getur stað-
fest að það var töfrum líkast
hversu góðum tökum þeir félag-
ar náðu á samkomugestum með
hinni ólgandi, suðrænu mambó-
sveiflu sinni. Greinilegt er að líka
var veðjað á réttan hest þegar
efnisval sveitarinnar var ákveðið
því það hefur sýnt sig að þar var
fyllt upp í eyðu í íslenskri dans-
tónlistarflóru, sem líklega verður
aldrei söm eftir. Og mambó-
þyrstur landinn þakkaði fyrir sig
með því að troðfylla á dansleiki
hljómsveitarinnar.
Um það er heldur ekki deilt,
að styrkur Bogomils Fonts og
Milljónamæringanna liggur fyrst
og fremst í lifandi tónlist þar sem
iðandi dansgólfið og ritmískur
flutningur hljómsveitarinnar
renna saman í eitt og smita út
frá sér í báðar áttir. Þess vegna
var það hárrétt ákvörðun að taka
hljómplötuna „Ekki þessi leið-
indi“ upp á dansleik í Hlégarði,
í stað þess að fara í hljóðver.
Þar með er að vísu þeirri hættu
boðið heim að með slæðist takt-
sveiflur og hliðarspor sem oft
vilja fylgja í hita leiksins, en
mistökin í þessu tilviki eru svo
smávægileg að varla tekur að
minnast á þau. Ég hygg að miklu
erfiðara hefði verið að fara með
þessa hljómsveit í hljóðver og fá
út úr því sannfærandi samhljóm.
Vísast hefur það litla þýðingu
að fara nákvæmlega í saumana
á hveiju lagi á þessari plötu,
þau eru keimlík enda flest af
sama latneska meiðinum. Bo-
gomil raular þau áreynslulaust
og tekur virkan þátt í ritmískum
áslættinum ásamt þeim feðgum
Steingrími og Guðmundi „papa
jass“ Steingrímssyni við lipran
bassaleik Gunnlaugs. Við blást-
urinn nýtur Siggi Perez aðstoð-
ar tveggja ágætra spilara, en
að mínu mati kemur Sigurður
einna sterkastur út í hljóðfæra-
leiknum þegar litið er á plötuna
í heild og Ástvaldur á einnig
afbragðsgóða spretti á píanóið.
En þeir standa sig allir vel strák-
arnir og verður spennandi að
fylgjast með þeim í vetur þegar
andlit Bogomils er horfið á
braut. Ég spái því að þeir eigi
eftir að spjara sig.
ÆófSsÁó/á, &ófujgý/e*fí
Æfingar Kvennakórs Reykjavíkur
hefjast miðvikudaginn 15. september
kl. 20:30 í Aðventkirkjunni við
Ingólfsstræti. Inntökupróf fyrir nýja
félaga verður á sama stað
þriðjudaginn 14. septemberkl. 19-22.
Stjórnandi kórsins er sem fyrr Margrét
J. Pálmadóttir.
Ákveðið hefur verið, að starfrækja
Kórskóla Kvennakórs Reykjavíkur.
Skólinn er ætlaður fyrir áhugasamar
konur, sem hafa litla eða enga reynslu
í söngstarfi. Kennsla í kórskólanum
hefst þriðjudaginn 21. september kl.
20 í Aðventkirkjunni. Kennd verður
raddbeiting, tónfræði og samsöngur.
Kennari: Margrét J. Pálmadóttir.
Frekari upplýsingar og skráning í
inntökupróf og kórskóla er á
morgnana í símum 15263 og 10676.
KVENNAKÓR REYKJAVÍKUR
Morgunblaðið/Sverrir
Norræn börn í listasmiðju
FJÖRUTÍU börn og unglingar frá Norðurlöndum tóku þátt í Lista-
smiðju í Kópavogi. Smiðjan var starfrækt í tengslum við vinabæja-
mót með þátttöku fulltrúa frá átta norrænum borgum og bæjum,
það er Kópavogi, Angmassalik á Grænlandi, Mariehamn á Alandseyj-
um, Klakksvík í Færegjum, Norrköping í Svíþjóð, Odense í Dan-
mörku, Þrándheimi í Noregi og Tampere í Finnlandi. Mótið stóð í
eina viku og endaði með sýningu á listaverkunum í Listasafni Gerð-
ar Helgadóttur.
Meiriháttar
STOK-ITS.UA
Bjóðum ný HANKOOK sumardekk
fyrir fólksbíla með 40% afslætti.
Frábærir hjólbarðar - einstakt tækifæri
155R12 J(L'355Tr Kr. 2130 175R14 Kr^4?60 Kr. 2970
145R13 Kr. 1990 185/70R14 JCfr'5400 Kr. 2990
155R13 u-3770 Kr. 2260 185/65R15 KfrH5290 Kr. 3770
165R13 Ktr-39 50 Kr. 2370 195/65R15 Kfr-6730 Kr. 3990
175/70R13 Kr. 2570 205/60R15 Kfr-7-290 Kr. 4370
185/70R13 Kfr-4680 Kr. 2790 165R15 Kfr^690 Kr. 2690
185/60R13 Kr,5650 Kr. 3440 205/60R13 JCfr'ÓÁOÖ Kr. 3840
Fjölmargar aðrar stærðir
Barðinn hf.
Skútuvogi 2 - sími 683080
28. starfsár
Laugagerðis-
skóla hafið
Borg í Miklaholtshreppi.
SKÓLAHALD hófst í Laugagerð-
isskóla síðastliðinn mánudag. Þar
með hefst 28. starfsár skólans. í
skólanum eru 63 nemendur.
Kennarar eru átta, auk skóla-
stjóra, Höskuldar Goða Karlsson-
ar.
Fjórir kennarar létu þar af störf-
um á síðastliðnu vori, en þrír kenn-
arar hafa verið ráðnir að skólanum
á ný. Þrjár konur vinna í eldhúsi og
við ræstingar og auk þess er hús-
vörður. Þetta er þriðja árið sem eng-
in heimavist er í skólanum. Öllum
nemendum er ekið að og frá skóla
daglega. Umtalsverðar vegabætur
hafa farið fram á þeirri leið. Nú er
komið bundið slitlag á afleggjarann
af aðalvegi í skólann og dýr kafli
hjá Hólslandi var, kláraður og þar
er komið bundið slitlag. Þá eru
nokkrir nemendur úr Hraunhreppi í
skólanum eins og síðastliðinn vetur.
Páll
------» ♦ 4----
■ HLJÓMSVEITIN Cuba
Libre verður með tónleika á
Blúsbarnum við Laugaveg í
kvöld og annað kvöld. Hefjast
þeir klukkan 23 í kvöld.