Morgunblaðið - 10.09.1993, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1993
31
trjij^ dijv'jMtíiríi
iMiui
Starf hafið í sex grunn-
skólum í Strandasýslu
Laugarhóli.
VIKUNA frá 30. ágúst til 3. september hófst starf í sex grunnskólum
í Strandasýslu, en þeir eru Borðeyrarskóli, Broddanesskóli, Grunn-
skóli Hólmavíkur, Klúkuskóli, Grunnskólinn á Drangsnesi og Finn-
borgarstaðaskóli. í þessum grunnskólum eru 174 nemendur við nám
í vetur, en auk þeirra eru nokkrir nemendur í efstu bekkjum grunn-
skólans við nám annars staðar á landinu. Fyrstu skólarnir hófu vetr-
arstarfið 30. ágúst, en starf í öllum skólunum var komið í gang í
lok vikunnar. Þá hefst sundnámskeið fyrir böm í Kaldrananeshreppi
í Gvendarlaug hins góða við Klúkuskóla, þann 6. september.
Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson
Aftur í skólanum
ÞAÐ er oft mikið buslað í Gvendarlaug við Klúkuskóla. Svo verður
víst enn á þessum haustdögum.
Allir skólarnir, nema Grunnskól-
inn á Hólmavík, heyra til þeirri
skólagerð sem kölluð er „Fámennir
skóiar". Grunnskólinn á Hólmavík
Persónuskil-
ríki fyrir fólk
með flogaveiki
LANDSSAMTÖK áhugafólks um
flogaveiki (LAUF) gáfu nýverið
út persónuskilríki fyrir fólk með
flogaveiki á íslandi sem ætluð
era þeim félagsmönnum LAUF
sem eru með flogaveiki.
í skilríkinu koma fram ýsmar
upplýsingar s.s. nafn, heimilisfang
svo og nafn nánasta aðstandenda
eða þess aðila sem nauðsynlegt er
að hafa samband við ef um alvar-
legt krampaflog er að ræða. Einnig
er gert ráð fyrir að þeir sem bera
skilríkin munu tilgreina hvaða lyf
þeir taka hveiju sinni svo og þau
viðbrögð sem flogaveiki þeirra út-
heimtir. Almenn viðbrögð við
krampaflogum eru síðan tilgreind á
baksíðu.
Ef óskað er eftir frekari upplýs-
ingum um persónuskilríki þá er fólki
bent á að hafa samband við skrif-
stofu LAUF, Ármúla 5,108 Reykja-
vík.
A
IAUF
PERSÓNUSKILRÍKI
fyrir fólk með
FLOGAVEIKI
á
ÍSLANDI
Skemmti-
kvöld í
Súlnasal
SÉRSTAKT skemmtikvöld verð-
ur á Hótel Sögu í kvöld í tilefni
af ári aldraðra. Dans og
skemmtidagskrá verður frá
klukkan 20-01 og er aðgangseyr-
ir 600 krónur.
Hljómsveitin Gleðigjafar leikur
fyrir dansi, en í henni eru Carl
Möller, Þórir Baldursson, Árni
Scheving, Jón Björgvinsson, André
Bachmann og Ellý Vilhjálms. Flosi
Olafsson kemur í heimsókn og verð-
ur með hugvekju „eins og honum
einum er lagið“. Kór eldri borgara
í Reykjavík og Kvennakór Kópa-
vogs taka lagið undir stjórn Kristín-
ar Pétursdóttuh Eldri borgarar
verða með tískusýningu. Ferða-
skrifstofah Úrval-Útsýn kynnir
ferðir og happdrætti þar sem fyrsti
vinningur er ferð til Álgarve í Port-
úgal að verðmæti 50 þúsund krón-
ur. Næstu tveir vinningar eru kvöld-
verður og sýningin „Er það satt sem
þeir segja um landann“.
Kynnir á skemmtikvöldinu í
kvöld verður Rósa Ingólfsdóttir.
er langfjölmennastur þessara skóla
með 113 nemendur. Þar er nú í
fyrsta skipti samfelldur skóladagur
fyrir alla nemendur og einsetinn
skóli. Þá hefir nú sá hluti Félags-
heimilisins á Hólmavík, sem nota á
til leikfimikennslu, verið tekinn í
notkun og fellur því öll leikfimi-
kennsla eðlilega inn í stundaskrá
nemenda. Töldu þeir Skarphéðinn
Jónsson skólatjóri og Victor Örn
Victorsson yfirkennari að hér væri
um mikla framför að ræða, er
fréttamaður ræddi við þá í vikunni.
Nú væri allt húsrými bæði í skóla-
byggingunni og Félagsheimilinu, er
notað yrði til kennslu, komið í gagn-
ið.
í Borðeyrarskóla eru í vetur 9
nemendur. Þar er Matthías Krist-
insson skólastjóri. í Broddanesskóla
eru eru 6 nemendur í vetur en skóla-
stjóri þar er Erlingur E. Halldórs-
son. í Klúkuskóla eru 4 nemendur,
en skólastjóri þar er Sigurður H.
Þorsteinsson. I Grunnskólanum á
Drangsnesi eru 28 nemendur, en
skólastjóri þar er Einar Ólafsson. í
Finnbogastaðaskóla eru svo 14
nemendur, en skólastjóri þar er í
forföllum, Vilmundur Hansen, en
Ragnhildur Birgisdóttir tekur aftur
við störfum nokkru eftir áramót.
- S.H.Þ.
Verkamannafélagið Hlíf
ASÍ og BSRB
taki upp ná-
ið samstarf
Verkamannafélagið Hlíf hefur
samþykkt ályktun þar sem skor-
að er á miðstjórn Alþýðusam-
bands íslands að beita sér fyrir
nánu samstarfi við Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja um
leiðir til að bæta hag launafólks
í landinu.
í ályktuninni segir að þessi tvö
stærstu samtök launafólks verði að
stilla betur saman strengi sína en
hingað til hafi verið gert, ef nokkur
von eigi að vera til þess að árangur
náist. Ekkert annað en einhuga
samstaða þessara aðila megni að
bijóta á bak aftur blindu fijáls-
hyggjustefnu sem nú ríði húsum í
landinu.
„Stjórn Hlífar álítur að strax í
haust verði að hefja þessa baráttu
ella muni stjórnvöld nota tækifærið
og ganga enn lengra á réttindi lág-
launafólks en nú þegar hefur verið
gert, og er þá langt til jafnað,"
segir að lokum í ályktuninni.
Vorgrm Þjoöleikhussms!
V
J 1
’ HYÐINf. orsiw
I r:■ I IKM Jfc h'lUN
'HŒÍll tóRLSÍOJi ' LRIKWlffi
ilijí WÓÐLEIKHIÍSIÐI