Morgunblaðið - 10.09.1993, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1993
Samkomulag um tilhögun afurðaiána í sauðfjárframleiðslu
Styttri greiðslufrestir o g
greiðslur inn á reikninga
Sláturleyfíshafar mótmæla ákveðnum atriðum í samkomulaginu
BANKAR og afurðastöðvar hafa náð samkomulagi um tilhögun af-
urðalána út á sauðfjárframleiðsluna. í höfuðatriðum felst samkomu-
Iagið í að bankarnir selja þau skilyrði að afurðastöðvar stytti veru-
lega greiðslufresti gagnvart verslunum og kjötvinnslum og þessi
fyrirtæki greiði þann hluta afurðaverðsins sem nemur afurðalánun-
um inn á bundna reikninga í bönkunum en ekki til afurðastöðvanna
sjálfra. Sláturleyfishafar mótmæla þessum atriðum í samkomulaginu
og telja að þau geti haft neikvæð áhrif á sölu lambakjöts.
Samkomulagið sem undirritað
hefur verið er í sjö liðum. Liðir tvö
og þijú eru tilefni mótmæla slátur-
leyfíshafa en Guðmundur Sigþórs-
son ráðuneytisstjóri í landbúnaðar-
ráðuneytinu segir að þeir hafi verið
nauðsynlegir til að tryggja fram-
gang málsins.
Liður tvö er svohljóðandi: „Við
sölu á veðsettu kjöti til þriðja aðila,
sé ekki um staðgreiðsluviðskipti að
ræða, skulu reikningar bera þess
glöggt merki að kaupandi greiði
andvirðið inn á tiltekinn bundinn
reikning í viðskiptabanka söluaðil-
ans 25. dag næsta mánaðar eftir
úttektarmánuð. Bankinn ráðstafar
fé af bundna reikningnum á grund-
velli birgðaskýrslna inn á afurðalán
og viðskiptareikning söluaðilans
jafnóðum og greiðslur berast."
Liður þrjú hljóðar svo: „Taki slát-
urleyfíshafí kaupanda dilkakjöts í
lánsviðskipti með veðsettar afurðir
skal það gert gegn hæfilegri banka-
tryggingu nema viðskiptabanki
sláturhafans samþykki annað að
fengnum upplýsingum frá slátur-
leyfíshafa um áætlað umfang við-
skiptanna. Dilkakjöt má ekki af-
greiða úr kjötgeymslum fyrr en slík
ákvörðun hefur farið fram. Slátur-
leyfíshafí sem tekur kjöt úr eigin
geymslu til vinnslu eða sölu í eigin
verslun fari eftir sömu reglum um
tryggingar og setji tryggingu fyrir
greiðslu kjötsins krefjist viðskipta-
banki hans þess.“
Veðsett kjöt aðgreint
Að öðru leyti felur samkomulagið
m.a. í sér að afurðalán út á sauð-
fjárslátrun í haust verða ekki greidd
að fullu fýrr en afurðalán vegna
fyrra framleiðsluárs hafa verið
greidd. Veðsett kindakjöt skuli
greinilega aðgreint í frystigeymsl-
um þannig að veðhafi geti séð og
talið birgðir og sláturleyfíshafar og
söluaðilar komi upplýsingum á
framfæri ef lokað hefur verið á við-
skiptamann vegna vanskila og þá
verði öðrum óheimilt að selja þeim
gegn gjaldfresti.
Mótmæli sláturleyfishafa
Vegna samkomulagsins hafa
fulltrúar sláturleyfishafa í afurða-
lánanefnd sent frá sér greinargerð
þar sem þeir segjast hafna lið 2 og
3 vegna kostnaðar og markaðsað-
stæðna. í greinargerð þeirra segir
m.a.: „Að stytta greiðslufresti eins
og skilyrði 2 kveður á um og krefj-
ast sérstakra bankatrygginga af
smásöluaðilum og kjötvinnslum við
sölu á kindakjöti eins og skilyrði 3
kveður á um, leiðir til þess að smá-
söluaðilar leggi meiri áherslu á sölu
annarra kjöttegunda enda liggja
ekki fyrir sérstök skilyrði um sölu
þeirra. Því mun draga verulega úr
sölu á kindakjöti með þeim afleið-
ingum að færa verður enn frekar
niður greiðslumark ... Skilyrði 2 og
3 valda því að viðskipti með kinda-
kjöt verða afbrigðileg frá verslun
með aðrar kjöttegundir. Afleiðingar
verða þær að kindakjötssalan
dregst enn frekar saman þannig
að afkomu framleiðenda og slátur-
leyfíshafa er stefnt í voða.“
HAFRAGRÍN
„Pabbi segir að AXA haframjölið
sé algjört hafragrín.
Þegar hann var búinn að sannfœrast
utn gœðin gerði hann nefnilega
verðsamanburð og þótti
verðið á AXA haframjölinu
svo hlœgilega lágt.
Hollur matur þarf greinilega
ekki að vera dýr, _
segir hann glaður í bragði og fœr sér
aftur í skálina. “ «
HAFRAMJÖL
Meiri kraftur - minna verð!
Réttarstemmning
Á laugardaginn verður réttarhátíð í Hafnarfirði og væntanlega mik-
il réttarstemmning.
Réttarstemmning
í Hafnarfirði
FERÐAMÁLANEFND Hafnarfjarðarbæjar og Ferðaskrifstofan
Ferðabær gangast fyrir „Réttarstemmningu í Hafnarfirði" á laugar-
daginn 11. september. Hátíðin hefst klukkan 14 með því að hesta-
menn og hundar reka undir sljórn fjallkóngs, fjárhóp frá Engidal,
niður Reykjavíkurveg og Hraunbrún inn á Víðistaðatún. Þar hefst
síðan fjölbreytt dagskrá sem stendur til klukkan 17. Dagskrársljóri
verður dýralæknirinn og þingmaðurinn Árni M. Mathiesen.
Meðal efnis á hátíðinni verður
fjárdráttur, liflambaval og hrúta-
sýning. Börn af leikskólanum
Garðavöllum syngja sveitasöngva
og félagar úr Nýja dansskólanum
sýna gamla dansa. Þá verður hesta-
og glímusýning, nikka verður þanin
við réttarvegginn og börnum verður
boðið bæði á hestbak og í hesta-
kerruferðir. Á túninu verður sölu-
tjald þar sem Félag eldri borgara
sér um veitingar að gömlum sið.
Um kvöldið heldur gleðin áfram,
veitingahús í Hafnarfirði verða með
sértilboð í gangi, sigling verður um
höfnina með „flóabátnum" og
klukkan 21 leggja félagar úr Hesta-
mannafélaginu Sörla upp í blysför
frá Víðistaðatúni. Riðið verður
Vesturgötu og Strandgötu að Kæn-
unni við Smábátahöfnina með við-
komu í veitingahúsi á leiðinni. Á
Kænunni og í Firðinum verða síðan
réttarböll þar sem tónlist verður
leikin og dans stigin fram á nótt.
Markaður og kaffi-
sala fyrir krístniboð
GRÆNMETISMARKAÐUR verður haldinn í húsi KFUM og KFUK
við Holtaveg á laugardag. Markaðurinn hefst kl. 14 og rennur ágóð-
inn til kristiboðsstarfsins í Eþíópíu og Kenýa.
Það eru nokkrar konur í hópi
kristniboðsvina sem standa fyrir
markaðinum. Þarna verður seldur
ýmiss konar jarðargróði, eftir því
hvað konunum tekst að útvega á
söluborðin, en þær eru háðar því
hversu kristniboðsvinir og aðrir vel-
unnarar vilja gefa af uppskeru sum-
arsins. Kartöflur eru vel þegnar,
ennfremur kál, ber, ávextir o.s.frv.
og einnig blóm. Tekið er á móti
því, sem fólk vill leggja fram, í
KFUM-húsinu við Holtaveg í dag,
föstudag, frá kl. 5 síðdegis.
Þá efnir Kristniboðsfélag karla
til kaffísölu nk. sunnudag í Kristni-
boðssalnum, Háaleitisbraut 58,
efstu hæð. Þeir sem vildu gefa þeim
kökur eru beðnir að koma með þær
í Kristniboðssalinn eftir kl. 11 á
sunnudag. Kaffísalan verður opin
kl. 14.30 til 18. Ágóðinn rennur til
kristniboðsstarfsins.
Um þessar mundir eru ellefu
manns að störfum á vegum Kristni-
boðssambandsins í Afríku. Verkefn-
Tugir þúsunda barna í Afríku
njóta góðs af starfi kristniboð-
anna.
in eru óteljandi enda ríkir víða mik-
il neyð. Áætlað er að starf Kristni-
boðssambandsins heima og ytra á
þessu ári kosti um 17 milljónir
króna, segir í fréttatilkynningu.
Með tilkomu vetraráætlunar Almermingsvagna
hefst á ný akstur hraðleiðar 141
Hafnarfjörður, Reykjavík, Grensás, Hlemmur.
Um leið og Almenningsvagnar óska öllum
landsmönnum góðs vetrar heldur fyrirtækið
áfram að bæta þjónustu sína við farþega
svo þeir megi komast hratt og örugglega
á ákvörðunarstað.