Morgunblaðið - 10.09.1993, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1993
Kútsjma
segir af sér
FORSÆTISRÁÐHERRA
Úkraínu, Leoníd Kútsjma,
sagði af sér í gær og bar því
við að andóf stjómarandstæð-
inga gerði honum ókleift að
koma á umbótum í átt til mark-
aðsbúskapar. Togstreita í
stjómmálum landsins hefur
valdið þrátefli síðustu mánuð-
ina og segir Kútsjma að geri
verði verði róttækar breytingar
á stjórnkerfinu ef ná eigi fram
umbótum, spáir því að ella
muni landið geta glatað ný-
fengnu sjálfstæði.
Fordæma
ofbeldi
VOPNAÐIR menn létu kúlum
rigna yfir bíla í grennd við
blökkumannaúthverfið Katle-
hong við Jóhannesarborg í Suð-
ur-Afríku í gær og myrtu
a.m.k. kosti tvo menn. Alls féllu
25 manns í ýmiss konar ofbeld-
isaðgerðum í landinu. F.W. de
Klerk, forseti minnihlutastjórn-
ar hvítra, taldi að liðsmenn
Afríska þjóðarráðsins, ANC, og
Inkatha-hreyfingar zúlumanna
hefðu tekið þátt í ódæðisverk-
unum. Hann fordæmdi ofbeldið
í landinu og sama gerði Nelson
Mandela, formaður ANC.
Zorkín sviptur
sumarhúsi
ÖRY GGIS VERÐIR Borísar
Jeltsíns Rússlandforseta tóku
yfir sumarhús.Valerís Zorkíns,
forseta stjómlagadómstóls
Rússlands, í gær. Verður hon-
um framvegis meinað að nota
bústaðinn. Dómstóllinn fjallar
nú um þá ákvörðun Jeltsíns að
víkja Alexander Rútskoj vara-
forseta tímabundið úr embætti
og er talið koma til greina að
ákvörðunin verði úrskurðuð
brot á stjórnarskránni.
Campbell
eykur fylgið
NÝ skoðanakönnun í Kanada
gefur íhaldsflokki Kim Camp-
bells forsætisráðherra 34%
fylgi, ívið meira en Fijálslynda
flokknum, helsta keppinaut
stjómarflokksins. Þetta er í
fyrsta skipti sem íhaldsmenn
eru í forystu síðan Campbell tók
við fyrr á árinu en hún hefur
boðað kosningar 23. október.
Bandaríkjaþing
ræðir Sómalíu
ÖLDUNGADEILD bandaríska
þingsins hóf í gær umræður
um tillögu þess efnis að banda-
ríska herliðið í Sómalíu verði
kvatt heim fyrir 31. október
nema búið verði að skilgreina
betur markmið friðargæsluliðs-
ins í Iandinu. Demókratinn
Robert Byrd bar upp tillöguna
og sagði að Bandaríkjamenn
hefðu engra hagsmuna að gæta
í Sómalíu.
Clarke viðrar
skattahækkanir
KENNETH Clarke, fjármála-
ráðherra Bretlands, olli miklu
írafári í íhaldsflokknum í gær
er hann gaf í skyn að ef til
vill yrði að hækka skatta og
hætta við niðurskurð ríkisút-
gjalda_ i næsta fjárlagafrum-
varpi. í blaðagrein sagði Clarke
að búið væri að ganga eins
langt í opinberum spamaði og
hægt væri.
Reuter
100 ára afmæli Maos
UM þúsund liðsmenn kommúnistaflokksins í Bangladesh gengu um götur höfuðborgarinnar Dhaka í gær
og minntust þess að 100 ár vom þá liðin frá fæðingu kínverska kommúnistaleiðtogans Maos Tse Tungs.
Þeir héldu á myndum af honum og öðrum foringjum sem nú geta talist fallnir í margvíslegum skilningi
orðsins, þeim Lenín, Stalín og Engels og vafalaust einnig Marx þótt hann sjáist ekki á myndinni. Félögum
í flokknum hefur fækkað mjög síðustu árin.
Vopnabúr Israela
Eiga 200
lgamaodda
Washington. Reuter.
ISRAELAR hafa komið sér upp
forða um 200 kjarnorkuvopna og
er samanlagður sprengikraftur
þeirra ef til vill meiri en kjarna-
vopna Breta, að sögn bandarísku
sjónvarpsstöðvarinnar NBC á
miðvikudag. ísraelar vilja hvorki
játa né neita að þeir eigi kjarna-
vopn en heita því að beita þeim
aldrei að fyrrabragði.
Sjónvarpsstöðin segir að allt að
eitt hundrað eldflaugar af gerðinni
Jeríkó I og Jeríkó II séu í leynilegum
neðanjarðarbyrgjum í hæðum Júdeu
og í Galíleu. Flaugarnar draga sum-
ar allt að 1.770 kílómetra og NBC
segir að verið sé að prófa enn lang-
drægari flaugar. Flestar kjarna-
sprengjurnar eða 70 séu geymdar í
herstöðinni Tel Nof í suðurhluta
landsins.
Fréttamenn sjónvarpsstöðvarinn-
ar fullyrða að búið sé að grafa holur
á Gólanhæðum þar sem hægt sé að
koma fyrir kjarnorkujarðsprengjum
sem myndu stöðva sérhvert áhlaup
sýrlenskra skriðdreka yrði það reynt.
Gríska stjórnin fallin og forsætisráðherrann Mitsotakis rýfur þing
Papandreou líklegur sigur-
vegari í næstu kosningum
Aþenu. Reuter.
KONSTANTÍN Mitsotakis, forsætisráðherra Grikklands, boðaði í gær
til nýrra kosninga eftir að ríkisstjórn hans missti meirihluta á þingi.
Að sögn talsmanna stjórnvalda er líklegt að kosið verði í október
og samkvæmt könnunum er sósíalistaflokkur Andreas Papandreous
Iíklegur til að sigra.
Konstantín Karamanlis forseti
samþykkti þegar ósk Mitsotakis um
þingrof og nýjar kosningar. Einn
af þingmönnum íhaldsflokks Mitso-
takis, George Symbilidis, ákvað að
gerast óháður þingmaður í gær og
hefur stjórnin því aðeins 150 sæti
af 300 sem nægir ekki til að koma
fjárlögum í gegn. Symbilidis sagði
stjórnina vera að draga þjóðina út
í kviksyndi með stefnu sinni.
Stjórnarkreppan hófst í reynd á
mánudag er fyrrverandi utanríkis-
ráðherra Mitsotakis, Antonis Sama-
ras, hvatti þingmenn íhaldsflokks-
ins til að taka skýra afstöðu í hörð-
um deilum hans við Mitsotakis sem
rak Samaras úr embætti í fyrra.
Forsætisráðherrann sakaði Sama-
ras um að óhlýðnast skipunum og
jafnframt um að reka óbilgjarna
þjóðernisstefnu. Grikkir mótmæltu
árum saman af mikilli hörku stofn-
un sjálfstæðs ríkis Makedóníu á
norðurlandamærunum, sögðust
eiga hefðbundinn rétt á nafninu
enda ber eitt af héruðum landsins
sama nafn.
Papandreou til alls vís
Samaras stofnaði nýjan, mjög
þjóðernissinnaðan flokk í júlí sl. og
hefur ekki farið í launkofa með
hefndarþorsta sinn gagnvart hinum
74 ára gamla Mitsotakis. Samaras
er aðeins 42 ára gamall, velmennt-
aður og glæsilegur, hann var nær
óþekktur er Mitsotakis gerði hann
að ráðherra 1989. Sagt er að sam-
band þeirra tveggja minni á sam-
skipti föður og sonar sem hafi
sinnast heiftarlega. Samaras fær
um 13% fylgi í skoðanakönnunum
sem dugar til að fella Mitsotakis
úr sessi en öllu óvæntara er að
PASOK, sósíalistaflokkur Andreas
Papandreou, þykir líklegastur til að
verða stærsti flokkurinn og þar með
fá stjómarforystu.
Samkvæmt kosningareglum sem
Mitsotakis barði í gegn á sínum
tíma má gera því skóna að stærsti
þingflokkurinn myndi ríkisstjórn.
Papandreou, sem er 74 ára gamall,
var sýknaður af spillingarákæram
sem urðu honum að falli 1989.
Heilsa hans hefur að sögn heimild-
armanna lagast verulega eftir
hjartaaðgerð og hann er nú kvænt-
ur föngulegri flugfreyju á fertugs-
aldri. Papandreou skildi við eigin-
konu sína til margra áratuga er
sambandið við flugfreyjuna var orð-
ið opinbert en framhjáhald Pap-
andreou vakti mikla athygli og
umtal þótt enn sé deilt um það
hvort hann hafi beinlínis tapað fylgi
vegna einkalífsmálanna. Margir
grískir karlar töldu framhjáhaldið
hreystimerki hjá stjórnmálaleiðtog-
anum.
Danir í sérkennilegn deilu um hveijir eigi að fá læknismeðferð
Umdeild stytting sjúkrabiðlista
Kajipmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgrinblaðsins.
TVO dönsk bæjarfélög hafa farið sínar eigin leiðir til að
stytta biðlista á sjúkrahúsum. Annað hefur hefur boðið
borgurum að fara fram fyrir I biðröðinni gegn því að greiða
sjálfir fyrir aðgerðir og hitt hefur veitt borgurum fjárstuðn-
ing til að fara í aðgerðir á einkaspítölum. Torben Lund
heilbrigðisráðherra hefur gagnrýnt bæjarfélögin harðlega
fyrir að grafa undan velferðarkerfinu, sem byggist á jöfn-
um aðgangi borgaranna að félagslegri þjónustu. Hann hef-
ur sett fram áætlun um að fyrir árslok 1995 verði í mesta
lagi þriggja mánaða bið eftir aðgerðum, en nú er allt að
sex mánaða bið.
Sjúkrahúsið í Aabenraa á Suð-
ur-Jótlandi hefur tilkynnt að síðar
á árinu verði sjúklingum, sem
þess óska gefinn kostur á að kom-
ast fram fyrir biðlista gegn því
að greiða fyrir aðgerðir. Af hálfu
amtsins er bent á að það hafí lengi
verið heimild fyrir því að taka á
móti erlendum sjúklingum og
sjúklingum utan amtsins gegn
greiðslu og því sjái meirihluti
stjómar amtsins ekkert á móti
því að gefa nú íbúum þess kost
á því sama. Vinstriflokkurinn er
í meirihluta í amtsstjóminni og
Kresten Philipsen amtsborgar-
stóri segist ekki skilja mótmæli
ráðherra. Torben Lund heilbrigð-
isráðherra segist hins vegar vilja
athuga hvort hér sé ekki um lög-
brot að ræða, en alla vega sé
þetta bfot á danskri venju um að
Danir fái læknismeðferð sér að
kostnaðarlausu. Amtsráðið er til-
búið til að fara í mál við ráðuneyt-
ið til að fá úr því skorið hvort
tilboð þeirra standist að lögum,
en ráðherra hefur einnig sagt að
ef með þurfi sé hann tilbúinn til
að breyta lögunum til að koma í
veg fyrir tilboð sjúkrahússins í
Aaþenraa.
I Holmegaard á Suður-Sjálandi
hefur bæjarfélagið í einstökum
tilfellum veitt sjúklingum fjár
stuðning til að leita sér lækninga
á einkasjúkrahúsum. Ove Larsen
borgarstjóri, sem er jafnaðarmað-
ur eins og heilbrigðisráðherra seg-
ir að á þennan hátt spari bæjarfé-
lagið sér sjúkradagpeninga til
sjúklinga, sem ekki geta unnið
meðan þeir bíða aðgerðar á opin-
berum sjúkrahúsum. Hann álítur
að meira en helmingur allra bæj-
arfélaga hafi farið eins að, sparað
sér sjúkradagpeninga og stytt bið-
lista með því að veita einstökum
sjúklingum aðstoð til að leita sér
lækninga utan opinbera kerfisins.
Torben Lund segist ekki í vafa
um að þessi tilhögun sé ólögleg,
en segist bíða úrskurðar réttra
aðila, sem eru nú að athuga mál-
ið. Innan dönsku stjórnarinnar eru
það aðeins jafnaðarmenn, sem eru
á móti því að styrkja borgara til
aðgerða á einkasjúkrahúsum.
Stuðningur til aðgerða
fyrir vinnandi fólk
Ljóst er að báðar þessar leiðir til
að stytta biðlista ganga þvert á
viðteknar venjur í danska heil-
brigðiskerfinu, þar sem læknar
hafa hingað til skorið úr um hveij-
ir hljóti meðferð og hvenær og
þá eingöngu á heilsufarslegum
forsendum. í báðum ofangreind-
um tilvikum eru það hins vegar
bæjaryfirvöld, sem ákveða hveijir
fái meðferð og á hvaða forsend-
um. Þegar borgurum er veittur
stuðningur til aðgerða á einka-
sjúkrahúsum eru þeir valdir úr,
sem eru í vinnu, meðan atvinnu-
lausir koma til dæmis ekki til
greina. Ove Larsen segist vona
að þessar umræður verði til að
vekja athygli á þeim hrikalega
vanda sem biðlistar sjúkrahús-
anna séu og hvernig hann verði
leystur. Torbern Lund hefur í
samvinnu við amtsráðin sett fram
áætlun svo að í árslok 1995 þurfi
sjúklingar í mesta lagi að bíða
aðgerða í þijá mánuði. Veitt verð-
ur sem samsvarar rúmum fimm
milljörðum íslenskra króna auka-
lega í heilbrigðiskerfið á næsta
ári í þessum tilgangi. Á þessu ári
hafa sjúkrahús farið um sex millj-
arða fram úr fjárveitingum, svo
efi leikur á að aukaíjárveitingar
vegna biðlista dugi til.