Morgunblaðið - 10.09.1993, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ-FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1993
Fulltrúaráð foreldrafélaga í grunnskólum
OPNUNARTÍMI félagsmiðstöðva á Akureyri var ræddur á fundi
bæjarstjórnar Akureyrar í fyrradag, en tilefnið var bréf frá
Fulltrúaráði foreldrafélaga í grunnskólum bæjarins til íþrótta-
og tómstundaráðs, þar sem m.a. var farið fram á að félagsmið-
stöðvum verði lokað hálftíma fyrr en venja hefur verið til, eða
kl. 22 í stað 22.30. íþrótta- og tómstundaráð sá ekki ástæðu til
að breyta lokunartíma félagsmiðstöðvanna.
Fulltrúaráð foreldrafélaganna
hefur beint þeim tilmælum til
stjórna foreldrafélaga í bænum
að á komandi vetri verði útivistar-
tími unglinga í bænum samræmd-
ur, þannig að þegar skóli er að
morgni verði útivistartími til kl.
22 hjá nemendum í 8., 9. og 10.
bekkjum og um helgar ljúki úti-
vistartíma kl. 23.30 hjá nemend-
um í 8. bekk, kl. 24.00 hjá nem-
endum í 9. bekk og kl. 00.30 hjá
nemendum í 10. bekk.
íþrótta- og tómstundaráð sá
ekki ástæðu til að breyta lokunar-
tíma félagsmiðstöðvanna, sem er
kl. 22.30 á kvöldin. Samþykkt var
á fundi ráðsins að láta gera könn-
un á því hvernig unglingar á
Akureyri veiji frí- og hvíldartíma
sínum og mun það beita sér fyrir
því máli á næstunni.
Undrandi og ósátt
Sigrlður Stefánsdóttir formað-
ur bæjarráðs sagðist undrandi
yfir svörum ráðsins. Valgerður
Hrólfsdóttir (D) sagði foreldra
vilja halda uppi ákveðnum reglum
varðandi útivistartíma og það
væri forkastanlegt að koma ekki
til móts við þá. Björn Jósef Arn-
viðarson (D) benti á að sparnaður
yrði í rekstri félagsmiðstöðvanna
yrði þeim lokað hálftíma fyrr.
Bæjarstjórn samþykkti að vísa
erindinu aftur til íþrótta- og tóm-
stundaráðs.
Jaðarsvöllur
Coca Cola-mót
um heigina
OPNA Coca Cola-mótið í golfi
verður haldið á Jaðarsvelli við
Akureyri um helgina, dagana 11.
og 12. september næstkomandi.
Keppt verður í karla-, kvennar
og unglingaflokkum. Margvísleg
verðlaun eru í boði, t.d. bretti af
Coca Cola fyrir að fara holu í Ijöggi
og eins verða aukaverðlaun 1 éllum
par þijú holunum. j • /
Þórhallur Pálsson móráfetjóri
sagði að von væru á yfir huádrað
þátttakendum alls staðar af land-
inu. Hann sagði mót þetta öflugt,
enda væri þetta elsta Coca Cola-
mótið á landinu.
Einar Helga-
son sýnir
í Deiglunni
EINAR Helgason opnar sýningu á
olíu- og vatnslitamyndum í Deigl-
unni á morgun, laugardaginn 11.
september.
Einar Helgason hefur haldið fjöl-
margar málverkasýningar víða um
land, en hann sýndi fyrst á Akureyri
árið 1976, en sú síðasta í heimabæ
hans, Eskifirði var fyrir 7 árum. Ein-
ar sýndi myndir sínar síðast á Akur-
eyri fyrir 13 árum.
Einar lét af störfum við Gagn-
fræðaskólann á Akureyri síðasta vor,
en þá hafði hann kennt myndlist í
nákvæmlega 40 ár.
Ekki verða send út boðskort en
allir Akureyringar og aðkomumenn
eru boðnir jafn velkomnir.
Sýning Einars í Deiglunni stendur
frá 11. til 19. september og er opin
alla daga frá ki. 14 til 22.
Haustuppskera
Morgunblaðið/Golli
Félagarnir Maggi og Siggi vinna hjá Öngli í Eyjafjarðarsveit við að taka upp kartöflur. Þeir hjá Öngli
hafa verið að taka upp smá slatta á hveijum degi síðustu þijár vikur, en byija af fullum krafti við upptökuna
í næstu viku.
Bæjarstjórn Akureyrar um sameiningarmálin
Akureyri verði meðal
reynslusveitarfélaga
BÆJARSTJÓRN Akureyrar samþykkti á fundi í gær að sækja um
að Akureyri verði eitt af fimm svokölluðum reynslusveitarfélög-
um. Sækja þarf um fyrir 1. október næstkomandi. Lögð hefur
verið fram tillaga um að öll sveitarfélög í Eyjafirði verði að einu.
Sigríður Stefánsdóttir formaður tillögunni þyrfti að kynna málið
bæjarráðs sagði að í framhaldi af vel og bæjarstjórn yrði að stuðla
Fagleg umfjöHtm um skólamál
að umræðum um það meðal bæj-
arbúa. Hún sagði sameiningarmál-
ið vissulega umdeilanlegt, það
hefði sína kosti og galla, en hún
væri sannfærð um að um væri að
ræða fágætt tækifæri til að gera
breytingar á sveitarstjórnarstig-
mu.
Stórt skref
Á AÐALFUNDI Bandalags kenn-
ara á Norðurlandi eystra sem
haldinn var að Laugum í Suður-
Þingeyjarsýslu nýlega var sam-
þykkt ályktun þar sem skorað
var á sveitarstjórnamenn að.
tryggja faglega umfjöllun um
skólamál, þegar sameiningarmál
sveitarfélaga verða tekin til af-
greiðslu.
Fundurinn heitir á íbúa dreifbýlla
byggðarlaga að tryggja umþóttun-
artíma við sameiningu sveitarfélaga
og skóla og telur að fagleg rök
skorti til tafarlauss flutnings
grunnskólarekstrar til sveitarfé-
laga, segir í ályktun fundarins.
Þá lýsti fundurinn einnig yfir
megnri óánægju með launamál
kennara og skorar á ráðamenn
þjóðarinnar að ganga strax til
samninga við kennara um mann-
sæmandi laun.
Jakob Björnsson (B) sagði að
mikil ábyrgð hvíldi á herðum sveit-
arstjórnarmanna og þeim sem
stæðu að kynningu tillagna um
sameiningu sveitarfélaga. Það
togaðist á í mörgum hvort stíga
ætti svo stórt skref og því væri
afar mikilvægt að kynning málsins
tækist vel svo fólk vissi, um hvað
málið snerist.
Opnimartíma félags-
miðstöðva verði breytt
ENN fregnast af góðri veiði
víðast hvar og fer nú hver að
verða síðastur til að skreppa
út úr bænum og næla sér í lax.
Þá eru þeir stóru farnir að
gefa sig í ríkari mæli, t.d. í
Stóru Laxá þar sem veiði hefur
glæðst verulega að undan-
förnu.
Stefnir í met í Svartá...
Enn er allt við það sama í Svartá,
tveggja daga hollin eru að fá 15
til 25 laxa á þijár stangir og heild-
arveiðin er komin í um 460 laxa
og er talsvert af vænum laxi í
bland við góðan smálax. Fyrir
skömmu slapp sá stóri, sleit hjá
veiðimanni eftir hart nær fimm
stunda glímu. Þar fór heil vakt
og lá laxinn mikinn hluta hennar
og hreyfði sig lítt. En er menn
tóku að ókyrrast í rökkurbyijun
og köstuðu grjóti að höfðingjan-
um, var honum svo gróflega mis-
boðið, að hann skók hausinn til
og sleit!. Enn skal veitt, eða til
19. september og er ljóst að veið-
in fer á sjötta hundrað laxa.
Stóra Laxá gíæðist...
Stóra Laxá í Hreppum hefur tek-
ið vel við sér að undanförnu. Þar
var góð veiði framan af sumri,
en dofnaði er á leið. Nú hefur hún
tekið við sér og veiði hefur verið
nokkuð góð, sérstaklega neðri
svæðin og hafa verið að fást upp
í 16 laxar á dag. Fyrir skömmu
kom sá stærsti á land, 21 punda
hængur sem Sigurður Jensson
veiddi. Eru komnir hátt í 400 lax-
ar úr ánni sem er afburðagott
miðað við það sem gengur og
gerist í þessari verstöð.
Mikil veiði á Iðunni
Mikil veiði hefur verið á Iðunni
að undanförnu og hæst bar er það
komu tæplega 40 laxar á land
einn daginn, en þar af fregnaðist
að fluguhnýtarinn kunni Kristján
Gíslason hefði veitt um 20 stykki
og marga stóra. Þennan dag
veiddust nokkrir um og yfir 20
pund og margir 14 til 18 pund.
Verður Hofsá efst?
Hofsá er komin með um 1820
laxa og er veitt til 20. september.
Mikill lax er í ánni og hefur geng-
ið mjög vel að undanförnu. Nú
eru uppi vangaveltur um að áin
gæti hugsanlega náð Norðurá,
sem er komin með um 2.100 laxa,
að vísu með hjálp 10 daga fram-
lengingar sem lýkur 15. septem-
ber. Fyrir stuttu veiddist 20 punda
lax í Hofsá, sá annar á sumrinu.
Eyþór Sigmundsson með fal-
legan boltalax úr Miðfjarðará
fyrir nokkru.
Vegagerð í Eyjum
Lægsta til-
boðið 60%
af kostnað-
aráætlun
Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða átti langlægsta tilboðið í
endurbyggingu þjóðbrauta í Vest-
mannaeyjum. Ræktunarsamband-
ið bauð 21 milljón króna í verkið,
sem er 60% af kostnaðaráætlun
Vegagerðar ríkisins.
Um er að ræða endurbyggingu
Stórhöfðavegar og Eldfellsvegar og
slitlag á vegina, alls 7,5 kílómetra,
og á verkinu að vera lokið um miðjan
júlí á næsta ári.
Alls bárust 13 tilboð og var það
hæsta upp á tæpar 49 milljónir en
það lægsta var 21 milljón eins og
áður sagði. Næstlægsta tilboðið átti
Vikur hf., 29,7 milljónir, og Borgar-
verk hf. bauð 30,8 milljónir. Kostnað-
aráætlun var 35 milljónir króna.
h
»
j
I
I
I
Í
i
Í
>
i
i
i
h