Morgunblaðið - 10.09.1993, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1993
Ráðstefna á Þingvöllum
um málefni S-Vesturlands
Bættar samg-öngnr myndu efla markaðssamvinnu
Morgunblaðið/Kristinn
Rætt um ráðstefnu
FRÁ blaðamannafundinum. F.v. Jónas Egilsson framkvæmda-
stjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Sveinn Andri
Sveinsson formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
og Trausti Valsson skipulagsfræðingur.
FJALLAÐ verður um hvernig
bættar samgöngur á Suðvestur-
landi gætu stuðlað að aukinni
markaðssamvinnu og eflt
ferðamannaþjónustu á svæðinu
á ráðstefnu í Valhöll á Þingvöll-
um laugardaginn 11. septem-
ber. Það eru Landshlutasam-
tökin á Suðvesturlandi sem
efna til ráðstefnunar og ber
hún heitið „Þingvallafundur
1993, Land sem auðlind". Ráð-
stefnan hefst kl. 10 árdegis og
lýkur kl. 17.
Að Landshlutasamtökum á
Suðversturlandi standa Samband
sveitarfélaga í Suðurlandskjör-
dæmi, Samtök sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu, Samband
sveitarfélaga á Suðurnesjum og
Samtök sveitarféjaga í Vestur-
landskjördæmi. Á blaðamanna-
fundi sem efnt var til vegna Þing-
vallafundarins kom fram að það
er skoðun þessara fjögurra lands-
hlutasamtaka að verulega vanti á
að unnt sé að tala um frambæri-
legar samgöngur á svæðinu.
Héldu landshlutasamtökin sam-
ráðsfundi sl. vetur þar sem rætt
var um samgöngumál og atvinnu-
mál á Suðvesturlandi.
Eitt markaðssvæði
Samtökin líta á svæðið sem eitt
atvinnu- og markaðssvæði sem
skipuleggja þarf í þessu tilliti sem
eina heild. Byggðasvæði Borgar-
fjarðar og Suðurlands eru ekki
talin í nægjanlega góðu vegasam-
bandi og samsvarandi samband
vantar á milli Suðurlands og
Reykjaness. Var bent á þtjú for-
gangsverkefni í þessu sambandi:
Hvalfjarðargöng, þjóðveg . um
Uxahryggi og Suðurstrandarveg,
þjóðveg milli Þorlákshafnar og
Grindavíkur.
Slíkar vegtengingar myndu
koma á aukinni markaðssamvinnu
innan fjórðungsins og opnast
myndu nýjar hringleiðir sem yrðu
vinsælar af ferðamönnum. í
tengslum við samráðsfundina var
Trausti Valsson skipulagssér7
fræðingur fenginn til að kort-
leggja helstu ferðaauðlindir og
koma fram með hugmyndir að
útvistarsvæðum, hringleiðum o.
fl.
Þingvallafundur 1993
Ráðstefnunni á Þingvöllum var
valið heitið „Landið sem auðlind“
og þar með lögð áhersla á að land-
ið búi yfir miklum auðlindum sem
bíði þess að að verða aðgengilegar
fyrir ferðamenn. Verða tvö erindi
á ráðstefnunni um mikilvægi
ferðamannaiðnaðar sem framtíð-
aratvinnugreinar.
Önnur tvö erindi verða flutt um
mikilvægi samgöngubóta til að
koma þessari þróun frekar á skrið
og formaður Náttúruverndarráðs
kemur fram með mat á umhverfis-
hlið málsins. í þriðja lið dagskrár-
innar koma heimamenn með stutt
erindi um hve mikið samgöngu-
bætur gætu stuðlað að þrónu
ýmissa atvinnugreina. Pallborðs-
umræða verður í iok ráðstefnunn-
ar.
Sætaferðir verða á ráðstefnuna
frá BSÍ kl. 8.30 á laugardag til
Þingvalla cog til Reykjavíkur að
lokinni ráðstefnunni.
McDonald’s opnar á Islandi
Morgunblaðið/Bjarni
A opnunarkvöldi
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra var meðal boðsgesta er McDon-
ald’s-staðurinn var opnaður í gærkvöldi. Á myndinni er hann ásamt
Kjartani Erni Kjartanssyni.
Áhersla á þjónustu
við fjölskylduna
McDONALD’S-veitingahúsið á
Suðurlandsbraut 56, hið fyrsta
á íslandi, verður opnað í dag.
Staðurinn leggur áherslu á
þjónustu við fjölskylduna. í
húsinu eru sæti fyrir 96 manns
auk þess sem starfsfólk við bíll-
úgu getur afgreitt um 150 bíla
á klukkustund. Opnunartími
McDonald’s er frá kl. 10 til
23.30 alla daga vikunnar.
Á blaðamannafundi sem Lyst
hf., leyfishafi McDonald’s á íslandi,
efndi til í gær sagði framkvæmda-
stjórinn, Kjartan Órn Kjartansson,
að ísland væri 67. landið þar sem
McDonald’s hæfi starfsemi sína.
Vinsældir
Hann sagði að vinsældir fram-
leiðslunnar væru svo miklar að
McDonald’s-veitingahús væru orðin
13.500 til 14.000 og hefði ekki
fengist úr því skorið númer hvað
hið íslenska væri. Kjartan sagði að
þessar vinsældir segðu sitt um
gæði framleiðslunnar. Hann sagði
að aðeins væri framleitt úr fyrsta
flokks hráefni og farið væri eftir
ströngum stöðlum McDonald’s um
hreinlæti og ferskleika.
Kjartan sagði að deila við laun-
þegafélög hefði skyggt nokkuð á
tilkomu McDonald’s á Islandi. Hann
sagði það sína skoðun að hver og
einn ætti að vera frjáls að því að
vera í félagi eða ekki en launþega-
samtökin væru greinilega á öðru
máli. Kjartan sagði að í þessu máli
hefði Lyst hf. orðið að láta í minni
pokann. Hann væri þó afar ósáttur
við að þurfa að draga af launum
starfsmanna sinna í nafni launþega-
samtaka, því þessir peningar væru
eign starfsmanna sem ættu að fá
þá í hendur. Þetta mál væri þó enn
á viðkvæmu stigi og vildi hann fara
varlega í yfirlýsingum um það.
íslenskt hráefni
McDonald’s á íslandi notar ein-
göngu sérvalið nautgripakjöt frá
Kjötbankanum hf. í Hafnarfirði og
í það fara engin aukaefni eða
krydd. í fiskréttum er eingöngu
íslenskur fiskur frá IFPL, dóttur-
fyrirtæki Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna í Grimsby, en IFPL
framleiðir á annað þúsund tonn af
fiskréttum á ári fyrir alla veitinga-
staði McDonald’s á Bretlandseyj-
um. Kjúklingarnir koma frá
Reykjagarði í Rangárvallasýslu.
Öil mjólkurvara kemur frá Mjólk-
ursamsölunni, gosið frá Vífilfelli
og grænmetið frá Ágæti. Ham-
borgarabrauðin og allar umbúðir
koma frá Bretlandi vegna þess að
viðeigandi tækjakostur er ekki fyr-
ir hendi á íslandi.
Umhverfi
Áhersla hefur verið lögð á að
allt ytra umhverfi veitingastaðarins
sé til fyrirmyndar. Húsið teiknaði
Ingimundur Sveinsson arkitekt.
Mjög öfiug loftræsting í húsinu
gerir það að verkum að engin steik-
ingarlykt á að finnast í veitingasal
eða umhverfis húsið. Sérstök leik-
aðstaða er fyrir börnin.
Fundið hefur verið að því að á
stóra útiskiltinu við veitingastaðinn
stendur á ensku „Drive thru“. For-
svarsfólk Lystar segir McDonald’s
Corp. gera þá kröfu að skiltin séu
alls staðar eins í heiminum þannig
að viðskiptavinir þeirra þekki fyrir-
tækið' hvar sem þeir eru staddir í
heiminum. Á öllum öðrum stöðum
og í auglýsingum Lystar hf. mun
hins vegar standa „beint í bílinn“.
Yfir 200þúsund gestir
í Fjölskyldugarðinn
RÚMLEGA 200 þúsund gestir hafa heimsótt Fjölskyldugarðinn í Laugar-
dal í sumar og hefur aðsóknin farið fram úr björtustu vonum, að sögn
forsvarsmanna garðsins, enda hefur viðrað með eindæmum vel til útivist-
ar sunnanlands í sumar. Ákveðið hefur verið að hafa garðinn opinn um
helgar í septémber. Öll tæki verða í notkun og veitingasala opin, en aðra
daga vikunnar verður hægt að nota Fjölskyldugarðinn sem útivistar-
svæði. Um síðustu mánaðamót breyttist opnunartími Húsdýragarðsins og
vetrardagskrá tók gildi. í vetur verður Húsdýragarðurinn opinn virka
daga frá 13-17 nema lokað miðvikudaga og um helgar er opið frá 10-18.
Samkeppnisstofnun kannar verð á myndböndum
Verðið hækkaði um 36%
að meðaltali hjá 21 leigu
39 leigur með lægra verð en 350 krónur
fyrir nýtt myndband í júlí en eru nú 16
TUTTUGU og ein myndbandaleiga hafði hækkað verð á nýj-
um myndböndum I september frá því sem það var í júlí sam-
kvæmt verðkönnun sem Samkeppnisstofnun lét framkvæma,
en kannað var verð hjá 54 myndbandaleigum. Hækkun mynd-
banda að meðaltali nam 36% á
að verðið.
I frétt frá Samkeppnisstofnun
segir að í fyrri könnun stofnunar-
innar í júlí hafi.39 myndbandaleig-
ur verið með lægra verð en 350
krónur fyrir nýtt myndband. Sam-
kvæmt könnuninni í september
voru 16 leigu’r með lægra verð en
350 krónur og aðeins ein mynd-
bandaleiga hafði lækkað verð á
nýju myndbandi frá fyrri könnun,
úr krónum 450 í 350 krónur.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar var Nesval á Seltjarnar-
nesi með lægsta verð á myndbönd-
um krónur 199. Hæsta verðið var
450 krónur á tíu myndbandaleig-
um, en meðalverðið á nýju mynd-
bandi hafði hækkað úr 307 krón-
þeim leigum sem höfðu hækk-
um í júií í 342 krónur í september.
Þá kemur fram að 24 mynd-
bandaleigur voru með lægra verð
en 300 krónur fyrir nýtt mynd-
band í júlí en hefur nú fækkað .í
átta. Þessar átta leigur eru: Ne-
sval, Melabraut 19, Seltjarnarnesi,
Svarti svanurinn, Laugavegi 118,
Reykjavík, ísmynd Þverholti 11,
Mosfellsbæ, Fjarðarvídeó, Trönu-
hrauni 10, Hafnarfirði, Söluturn-
inn, Engihjalla 8, Kópavogi, Sölut-
urninn Leirubakka 32, Reykjavík,
Videogæði Kleppsvegi 150,
Reykjavík og Videoland Gerðu-
bergi 1 Reykjavík. Tekið er fram
að í könnuninni var ekki tekið til-
lit til tilboða af ýmsu tagi.
Utivistarhelgi í Viðey
Málþing um endurreisn Viðeyjarstofu
verður haldið þann 19. september nk.
UM komandi helgi lýkur skipulagðri dagskrá, sem verið hefur í
Viðey um helgar frá því á hvítasunnu í vor. Hópum, sem fara til
Viðeyjar einhverra erinda, stendur þó að sjálfsögðu til boða leiðsögn
og fræðsla eins og verið hefur.
Á laugardag verður farin göngu-
ferð á Austureyna. Hún hefst kl.
14.15 og tekur um hálfa aðra
klukkustund.
Á sunnudag messar sr. Hjalti
Guðmundsson kl. 14, og þá verður
sérstök bátsferð með kirkjugesti kl.
13.30. Kl. 15.15 verður svo staðar-
skoðun. Hún hefst í kirkjunni og
tekur um þrjá stundarfjórðunga.
Kaffisala verður í Viðeyjarstofu frá
kl. 14 og hestaleigan er opin.
Kaffísölu verður hætt 15. 'sept-
ember, og hestaleigunni verður lok-
að nú á sunnudagskvöld. Bátsferðir
verða á klukkustundar fresti frá
kl. 13. Áætlunarferðum til Viðeyjar
verður, að venju, einnig hætt 15.
september. Veitingahúsið í Viðey-
verður áfram opið fyrir hópa, sem
þar panta sérstaklega. Einnig verða
bátsferðir eftir pöntunum eins og
verið hefur.
Málþing um endurreisn
Stofunnar
Sunnudaginn 19. september
næstkomandi verður málþing í Við-
ey í tilefni af fímm ára afmæli end-
urreisnar Stofunnar. Þorsteinn
Gunnarsson arkitekt ræðir þar um
endurreisnina, Curt V. Jessen arki-
tekt flytur erindi um N. Eigtved
höfund Viðeyjarstofu, og Pétur H.
Ármannsson arkitekt segir frá
dönskum áhrifum á íslenzka bygg-
ingarlist. Málþing þetta verður öll-
um opið, eftir því sem húsrúm leyf-
ir, og verður það nánar kynnt síðar.
(Fréttatilkynning)