Morgunblaðið - 10.09.1993, Blaðsíða 11
MORGUNBíADIÐ FÖSTttíDAftUft • í'Ó: SKFI’KMtóR 1S9Í(
Piers
Browne
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Eins og oft hefur verið minnst
á í þessum skrifum ber sumarið
árlega með sér til landsins nokk-
urn fjölda erlendra listamanna,
sem vinna hér að list sinni um
tíma, og margir þeirra bjóða
landsmönnum að sjá afrakstur-
inn á litlum einkasýningum.
Nú stendur yfir í Ásmundarsal
við Freyjugötu ein slík sýning.
Hér er á ferðinni enskur mynd-
listamaður, Piers Browne, sem
mun m.a. hafa getið sér gott orð
á heimaslóðum fyrir bókaskreyt-
ingar, litlar ætimyndir og vatns-
litamyndir. Hann dvaldi um tíma
í sumar á Suðurlandi, og hluti
sýningarinnar er af verkum frá
•þeim tíma, en meira rými fer þó
undir ætingar frá íjarlægari slóð-
um eins og norðurhéruðum Eng-
lands og Marokkó.
Það verður strax ljóst eftir
skoðun nokkurra mynda, að hér
er nokkuð góður fagmaður á
ferð, og verktæknin er í ágætu
lagi í flestum tilvikum. í því sam-
hengi má benda á verk eins og
„The Wren“ (nr. 2) og
„Windblown winter in the Lakes“
(nr. 31). Á þessu eru þó undan-
tekningar og bregður fyrir ójafnri
prentun ætimynda, sem ættu
ekki að sjást, sbr. mynd nr. 51.
Myndefnin og úrvinnsla þeirra
er í ætt við hefðbundna róman-
tíska náttúrusýn, hvort sem
hefur ekki dug í sér til að rísa upp
gegn kúguninni sem hún og allir búa
við undir ægivaldi „Drottningarinn-
ar.“
Það hentar Drottningunni að ver-
urnar í landinu hennar séu firrtar
öllu raunveruleikaskyni, hugsi ekki,
tali út og suður, forðist nánin sam-
skipti og hræðist „bara eitthvað,"
(enginn veit í rauninni hvað). Hún
stjórnar með tilskipunum og hótunum
af fullum) hroka og fyrirlitningu á
þegnum sínum. Við og við heldur hún
skemmtun til að viðhalda þeirri blekk-
ingu að allir séu ánægðir. Skemmtun-
in felst í því að allir eiga að syngja
eða segja sögur, en efniviður sagna
og söngva verður að falla að ríkjandi
valdakerfi og jafnvel lofa það.
Er það furða að unglingsstúlkan
Lísa vilji ekki verða fullorðin?
úrvinnsla leikhópsins er til fyrir-
myndar. Leikmyndin er einkar
skemmtilega unnin; skógur þar sem
mýslur hlaupa tístandi um og hand-
brúður eru notaðar sem fuglar sem
syngja í skóginum. Áhorfendur sitja
inni í leikmyndinni og hópurinn leikur
um allan sal. Krakkarnir sem taka
þátt í sýningunni eru, Alda Berglind
Egilsdóttir, Arnþrúður Ingólfsdóttir,
Björn Thors, Guðný Kr. Guðjónsdótt-
ir, Gunnar Þorri Pétursson, Viktor
Már Bjarnason, Æsa Bjarnadóttir,
Björk Álbertsdóttir, Dagbjört Jóns-
dóttir, Ingigerður Guðnadóttir, Rósa
Valdimarsdóttir og Svanhildur Þor-
valdsdóttir. Leikur þeirra var mjög
jafn og öllum tókst þeim að koma
persónum sínum mjög vel til skila.
Búningar og annað gervi var einkar
skemmtilegt fyrir augað og undir-
strikaði martraðartilfinningu Lísu.
Tónlistin er frumsamin af þeim Krist-
jáni Viðari Haraldssyni og Óla Jóni
Jónssyni og er eins og allt sem þessi
hópur gerir, metnaðarfull og áheyri-
leg.
Leikstjórnin er unnin af kost-
gæfni. María ber gott skynbragð á
nýtingu rýmis, framvindan og hrað-
inn í sýningunni eru með ágætum,
textameðferð skýr, raddbeiting og
líkamstjáning óþvinguð og leikandi.
Leikklúbburinn í Tónabæ býður því
upp á skemmtilega kvöldstund, þar
sem frumkvæði, vandvirkni, metnað-
ur og áhugi unglinganna nýtur sín út
í æsar.
Piers Browne við nokkur verka sinna.
myndefnin eru frá Englandi, ís-
landi eða Marokkó. Þessi mynd-
gerð er fyrir löngu orðin vel
þekkt og stöðluð, og því þarf
sérstakan hæfileika til að gæða
hana nýju lífi; annars verða slík
myndverk máttvana og auð-
gleymanleg. Sumir vilja jafnvel
ganga svo langt að nota heitin
stofulist eða sófalist yfir þessa
tegund myndlistar, þegar hún
er á hvað lægstum nótum.
Flestar myndirnar hér eru
smáar í sniðum, og þeim er rað-
að þétt í salnum, þar sem tæp-
lega áttatíu verk þrengja hvert
að öðru. Þessi uppröðun á mikinn
þátt í því að áhorfandinn fær
hér svipaða tilfinningu fyrir
myndunum og á markaði götu-
listamanna, þar sem öllu ægir
saman og ekkert sker sig úr.
Því miður verður þetta til þess
að nokkrar ágætar myndir ná
ekki að skerá sig nægilega frá
mergðinni, og líða fyrir hana.
Af myndunum frá Islandi má
nefna „Drangur at Drangshlíð"
(nr. 25) og „Un-named water-
fall: Hólatungufoss“ (nr. 74), en
af öðrum má benda á „Natasha
in Highgate Woods, London"
(nr. 60). I heildina nær þó meðal-
mennskan yfirhöndinni, líkt og á
markaðstorginu.
í kynningu sýningarinnar er
látið að því liggja að hér sé á
ferðinni hluti eins konar lista-
skipta íslendinga við Bretland.
Þar hafa nokkrar sýningar verið
haldnar á íslenskri myndlist und-
anfarið, og hlotið góðar viðtök-
ur, ef dæma má af fréttum. Það
verður að vona að þessi_ lista-
skipti eigi eftir að færa íslend-
ingum sýningar á framsæknari
og átakameiri breskri myndlist
en hér er á ferð. Það er nefni-
lega ekki nóg að handverkið sé
gott, ef hugurinn hefst ekki á
flug.
Sýningu Piers Browne í Ás-
mundarsal við Freyjugötu er lok-
ið.
w
Tónvakinn
Tónlistarverðlaun
Ríkisútvarpsins
PÁLL Pampichler Pálsson hljómsveitarstjóri og tónskáld hlýtur
heiðursfé Tónvakans, tónlistarverðlauna Ríkisótvarpsins, 1993.
Heimir Steinsson útvarpsstjóri, afhendir verðlaunin á sérstökum
hátíðartónleikum Ríkisútvarpsins og Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í Háskólabíói fimmtudaginn 30. september næstkomandi.
Verðlaunaupphæðin er 250 þúsund krónur. Sérstakar útvarps-
upptökur verða gerðar af tónverkum Páls P. Pálssonar á næstu
misserum.
í reglum um Tónlistarverðlaun
Ríkisútvarpsins segir að heiðursfé
skuli veitt tónlistarmanni fyrir ára-
löng og merk störf í þágu íslenskr-
ar tónmenningar. Dómnefnd Tón-
vakans í ár valdi Pál P. Pálsson
einum rómi, en hana skipuðu, auk
Guðmundar Emilssonar tónlistar-
stjóra Ríkisútvarpsins, þau Rut
Magnússon söngkennari og fram-
kvæmdastjóri Listahátíðar, Sigur-
sveinn K. Magnússon skólastjóri
og stjórnarformaður Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, John A.
Speight söngvari og formaður Tón-
skáldafélagsins, Sigurður I.
Snorrason klarinettuleikari, Þor-
gerður Ingólfsdóttir kórstjóri og
Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld.
Á hátíðartónleikunum leikur
Sifnóníuhljómsveit íslands þrjú
tónverk undir stjórn Páls P. Páls-
sonar: Concerto di Giubileo (1989)
eftir verðlaunahafann sjálfan, en
verk þetta samdi Páll í tilefni af
fjörutíu ára afmæli Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands. Þá frumflytur
hljómsveitin Strati (1993) eftir
Hauk Tómasson, en fyrir það tón-
verk hlýtur Haukur Pálslaun, sem
veitt eru í ár úr Tónskáldasjóði
Ríkisútvarpsins í tilefni aldaraf-
mæli Páls ísólfssonar. Loks leikur
Páll Pampichler Pálsson.
Þorsteinn Gauti Sigurðsson með
hljómsveitinni Píanókonsert nr. 3
eftir Rakhmanínov, en Þorsteinn
Gauti sigraði í Tónvakakeppninni
í sumar.
Sala aðgöngumiða hefst mánu-
daginn 27. september í Háskólabíó.
iR-' *
-X- v>
-lV'
c?>
A°V
<?
*
3'
Ov'
A
vV
nV
<3r (>
427
428
429
430
431
432
433
434
435
436
437
438
439
440cm
Samanburdur d lengd
nokkurra fjölskyldubtla
'Verð samkvæmt verðlistum ágústmánaðar.
Þú hefur kannski ekki gert þér grein
fyrir því að Honda Civic Sedan er
fullvaxinn fjölskyldubíll.
Með samanburði við nokkra aðra
fjölskyldublla kemur þetta skýrt í ljós.
Auk þess að vera rúmgóður og þægi-
legur er Civic Sedan vel útbúinn og
með 1500 i eða 1600 i fjölventla vél.
Vatnagörðum - Sími 689900
y ~8°ð fjárfesting