Morgunblaðið - 10.09.1993, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUlt 10. SEPTÉMBER 1993
19 hiúknmardeildarstjórar um bréf vegna uppsagna á Borgarspítala
Rætnar fullyrðingar um
starfsaðferðir og siðgæði
NÍTJÁN hjúkrunardeildarstjórar á Borgarspítalanum hafa sent frá
sér ályktun, þar sem þeir harma efni bréfsins, sem starfsfólk skurð-
lækningadeilda spítalans sendi heilbrigðisráðherra. Þar hafi verið
settar fram rætnar fullyrðingar um starfsaðferðir og siðgæði hjúkrun-
arstjórnar. í bréfi starfsfólks til ráðherra er krafist opinberrar rann-
sóknar á brottvikningu fjögurra deildarsljóra af deildum. Þá harmar
stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar að fjölmiðlar skuli taka til
umfjöllunar einstök ráðningarmál í stofnuninni á þann hátt sem gert
hefur verið. Jón H. Karlsson aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra sagð-
ist ekki hafa séð erindi starfsfólks skurðlækningadeildanna. Ráðherra
er erlendis en er væntanlegur á mánudag.
í ályktun hjúkrunardeildarstjór-
anna nítján segir, að í bréfi starfs-
fólksins séu settar. fram rætnar full-
yrðingar um starfsaðferðir og sið-
gæði hjúkrunarstjómar, í nafni
starfsfólks Borgarspítalans, án þess
að efni bréfsins væri borið undir aðra
en starfsfólk áðumefndra deilda.
Lýsa þær fullum stuðningi við störf
hjúkrunarstjómar spítálans.
Einn deildarstjóri
I frétt frá stjórn sjúkrastofnana
segir að nauðsynlegt sé að fram
komi að eðlilega hafi verið staðið
að ráðningu tveggja yfirmanna á
skurðlækningadeildum spítalans
þann 3. þessa mánaðar. Lengi hafi
verið stefnt að því að einn deildar-
stjóri yrði á hverri deild í stað
tveggja. Þá hafí verið búið að gera
öllum sem hlut áttu að máli ljóst
hvert stefndi og viðkomandi aðilum
var gefmn kostur á að leysa málið
sín á milli. Þá segir: „Ekki tókst að
leysa máli „innanhúss" á skurðlækn-
ingadeildum. Það var því Ijóst að
auglýsa þyrfti stöðurnar og fjalla
um málið og meðhöndla umsóknir
sem bærust á venjulegan hátt. Sjö
umsækjendur voru um 2 stöður.
Allir umsækjendur vom metnir hæf-
ir.“
Umsóknir metnar
Fram kemur, að umsóknir hafi
verið metnar í hjúkrunarstjórn og
var samdóma álit fengið. Stjórn
sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar,
sem í sitja meðal annars tveir fulltrú-
ar starfsmanna, samþykkti sam-
hljóða að ráða þá sem hjúkrunar-
stjórn mælti einróma með. Hefur
öllum fyrrverandi deildarstjórum
verið boðin vinna áfram við stofnun-
ina á óbreyttum kjömm í heilt ár.
Stjóm sjúkrastofnana lýsir fyllsta
trausti á hjúkmnarforstjóra og
hjúkmnarstjóm og telur að starfsað-
ferðir sem viðhafðar voru hafi verið
fullkomlega eðlilegar. Ákvarðanir
hafi verið teknar að undangenginni
ítarlegri kynningu og umfjöllun um
málið.
VEÐUR
VEÐURHORFURIDAG, 10. SEPTEMBER
YFIRLIT: Á vestanverðu Grænlandshafi er 998 mb. lægð sem grynnist
en 989 mb. lægð yfír Bretlandseyjum þokast norð-norðvestur. Heldur
vaxandi lægðardrag liggur milli lægðanna yfir suðvestanvert ísland.
SPÁ: Austlæg átt um mestallt landið, víðast kaldi en líklega stinning-
skaldi við suðausturströndina. Rigning víða um land, einkum þó um
sunnanvert landið þegar líður á daginn, en sums staðar norðanlands og
á Vestfjörðum gæti orðið þurrt að mestu. Hiti 8-13 stig.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Austan- og suðaustanátt. Súld eða rigning
með Suðaustur- og Austurströndinní, en skúrir f öðrum landshlutum.
Hiti 9 til 15 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Austlæg átt. Þokusúld með
austur- og suðausturströndinni en víða bjart veður um norðan- og vest-
anvert landið. Hiti á bilinu 7 til 14 stig, hlýjast vestanlands.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 18.30,
22. 30. Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
o a
Heiðskírt Léttskýjað
r r r * r *
f f *. f
r r r r * r
Rigning Siydda
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
&
Skýjað
Alskýjað
V $ $
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
y súid
= Þoka
rtig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 í gær)
Þjóðvegir landsins eru flestir í góðu ásigkomuiagi og greiðfærir. Víða
er f>ó unnið að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri sam-
kvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færir fjallabílum, Gæsavatna-
leið fær til austur frá Sprengisandi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91 -631500 og
í graenni iír
í grapnni línu 99-6315.
Vegagerðin.
I/EÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 11 8kýj8»
Reykjavík 10 rigning
Bergen 16 léttskýjað
Helslnki vantar
Kaupmarmahöfn 13 rlgning
Narssarssuaq 6 skýjað
Nuuk 3 súld á sfð. kist
Osló 16 léttskýjað
Stokkhólmur 17 téttskýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Algarve 24 léttskýjað
Amsterdam 19 skýjað
Barcelono 27 léttskýjað
Berlín 22 hélfskýjað
Chicago 14 léttskýjað
Feneyjar 21 þokumóða
Frankfurt 16 skýjað
Glasgow 16 mistur
Hamborg 17 þokumóða
London 20 skúrásið. klst.
LosAngeles 18 þokumóða
Lúxemborg 16 rigning
Madríd 23 skýjað
Malaga 27 lémkýjað
Mallorca 26 skýjað
Montreal 15 skýjað
NewYork 21 þokumóða
Orlando 23 léttskýjað
París 20 skýjað
Madelra 24 skýjað
Róm 28 skýjað
Vín 26 skýjað
Washlngton 21 þokumóða
Wlnnlpeg 11 skýjað
IDAG kl. 12.00 ,
HeimiW: Veöurstofa íslands
r\^> (ByðÖ*ó vedurspó kl. 16.15 í gær)
VaðlÖ krefst varúðar
• M«mt « t*t
• ***t «u« *W«M
* tr vélín
. FytaUt m«ð Mr”'
• KwtnJð tjitf vaðlð.
* Nðttft ðryggltlfnu.
- Ktnðtí* htýjum fðtum I áberwtdl W.
Crosslng requires cautlon
. Whero I* tb* «Kt*vf«
• Hr* %***k« 4o *4t lett ■
* youf ,nglnt bten
« U íotneBody wttcWng whlt* tou tnttl
. Prebt tht cietttoq y9W»t*t
* Ute * «nt.
. Wetr wton .4Uth»»» In í>rt«ht
-Sig.Að.
Til viðvörunar
VIÐVÖRUNARSKILTIÐ hefur
verið fjarlægt af staurnum og
þar er upphrópunarmerkið eitt
eftir. Eins og sjá má á myndinni
til hægri er minnt á gagnleg
örygK'satriði á skiltum sem
þessu.
Óprúttnir vegfar-
endur á ferðinni
Vaðbrekku, Jökuldal.
ÓPRÚTTNIR vegfarendur sem leið hafa átt um Snæfellsnesið úr
Hrafnkelsdal í Snæfell nú síðsumars hafa haft á brott með sér aðvör-
unarskilti við fremsta vað á Hölkná. Hafði nokkrum tíma verið var-
ið til þess að skrúfa skiltið niður
um sem voru hirtar líka og eftir
Eins og sjá má af myndunum eru
á skiltinu hagnýtar leiðbeiningar
um vaðið á ánni og hvernig á að
umgangast það með nokkru ör-
yggi. Getur því verið mjög bagalegt
og jafnvel hættulegt þegar skiltið
er vanþörf á að hafa þessi skilti
eins og dæmin sanna. Sá sem tekið
hefur skiltið ófrjálsri heldi hefur
kannski ekki áttað sig á því að
hann getur valdið slysum á vegfar-
því það er fest með fjórum skrúf-
standa aðeins festingarnar.
endum með framferði sínu.
Þegar fréttaritari fór að spyijast
fyrir um þetta skilti hjá hlutaðeig-
andi aðilum sem eru Slysavarnafé-
lag og Vegagerðin frétti hann að
áður hefði tveim skiltum verið stol-
ið, við Þríhymingsá á Kverkfjalla-
leið og af Öxi. Leiðir það enn frek-
ar hugann að hugsunarleysi fólks
í garð samborgara sinna.
Rannsóknaleiðaiigur Hafrannsóknastofnunar
Ýsu- og loðnuseiði
um og yfír meðallagi
FYRSTU vísbendingar um stærð 1993 árgangs ýsu benda til að
hann gæti orðið í góðu meðallagi. Niðurstöður úr seiðarannsóknaleið-
angri Hafrannsóknastofnunar í ágúst leiddu í Jjós að svokölluð seiða-
vísitala ýsu var nálægt meðaltali síðustu 10 ára og miklu hærri en
á árunum 1991-1992. Þá var seiðavísitala loðnu með því hæsta sem
sést hefur síðan 1976, en stærð seiðanna var talsvert undir meðal-
lagi. Hefur loðnuklakið því tekist vel á þessu ári að mati fiskifræð-
inga.
Karfaseiði fundust að venju á
mest öllu rannsóknasvæðinu í
Grænlandshafi en mun minna var
um karfaseiði í_ár samanborið við
árið 1992. Við ísland var einungis
vart við karfaseiði vestur af landinu.
f leiðangrinum kom í ljós að mik-
ið var um sandsíli og voru þau þétt-
ust út af Norðurlandi. Einnig var
meira um hrognkelsi en í fyrra en
mjög fá grálúðu- og blálönguseiði
fengust í leiðangrinum.
Sérfræðingar Hafrannsókna-
stofnunar könnuðu einnig ástand
sjávar. Óvenjumikill ís var við Vest-
firði, í Grænlandssundi og suður
með strönd austur Grænlands. Sjáv-
arhiti var hár á Dohmbanka og
Grænlandshafi og einkenndist
ástand sjávar fyrir sunnan land
einnig af háu hitastigi. Köld tunga
frá Austur-Grænlandsstraumnum
dró hins vegar úr flæði hlýsjávar
norður fyrir land. Austar var hita-
stigið einnig fremur lágt.
Skákþing Islands
Helgi vann Helga Áss
ANNARRI umferð á Skákþingi íslands í húsi Taflfélags Reykjavíkur
í Faxafeni 12 lauk í gær. Urðu úrslit þau, að Helgi Ólafsson vann
Helga Áss Grétarsson; Jóhann Hjartarson vann Jón Garðar Viðars-
son og Hannes Hlífar Stefánsson vann Sævar Bjamason.
Jafntefli gerðu Þröstur Þórhalls-
son og Haukur Angantýsson; Tóm-
as Bjömsson og Andri Áss Grétars-
son og Guðmundur Gíslason og
Björgvin Jónsson. Þriðja umferð
verður tefld i dag. Þá tefla saman
Haukur og Hannes Hlífar; Jóhann
og Þröstur; Helgi Ólafsson og Jón
Garðar _ Viðarsson; Björgvin og
Helgi Áss; Andri og Guðmundur
og Sævar og Tómas.