Morgunblaðið - 10.09.1993, Page 1
88 SIÐURB/C
i
11
STOFNAÐ 1913
204. tbl. 81. árg.
FOSTUDAGUR10. SEPTEMBER1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sögiileg’ar sættir með ísra-
elum og Palestínumönnum
Gagnkvæm viðurkenning PLO og ísra-
ela í dag og samningur um sjálfstjórn
Palestínumanna undirritaður á mánudag
Túnis, Jerúsalem, Washington.
ISRAELAR og PLO, Frelsissamtök Palestínumanna, munu skiptast
á gagnkvæmri viðurkenningu í dag og á mánudag verður undirritað-
ur I Washington samningur þeirra um sjálfstjórn Palestínumanna á
Gaza-svæðinu og í Jeríkó á Vesturbakkanum. Þar með hillir undir
sögulegar sættir með gyðingum og aröbum, sem í heila öld hafa
tekist á um Landið helga og oft háð um það grimmilegar styijaldir.
„Samningurinn er til vitnis um hugrekki þeirra, sem að honum
standa,“ sagði Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, í gær og til-
kynnti, að samskipti Bandaríkjastjórnar og PLO yrðu endurskoðuð.
Svo virðist sem stuðningur Palestinumanna á Gaza við samninginn
fari vaxandi.
Johan Jörgen Holst, utanríkis-
ráðherra Noregs, sem haft hefur
milligöngu um sættimar, sagði í
Túnis í gær, að tilkynningin um
gangkvæma viðurkenningu PLO og
Israela yrði lesin upp samtímis í
dag en ísraelska stjórnin samþykkti
á fundi sínum í gærdag að gefa
Yitzhak Rabin forsætisráðherra
umboð til undirrita hana. Yasser
Arafat, leiðtogi PLO, ætlaði að
undirrita hana í gærkvöld en í ísra-
el var tilkynnt, að Rabin myndi
gera það í dag.
„Get horfst í augu við börnin“
Shimon Peres, utanríkisráðherra
ísraels og helsti höfundur sam-
komulagsins, var spurður í gær
hvað honum félli sjálfum í skaut,
einkum ef Rabin en ekki hann fengi
jafnvel friðarverðlaun Nóbels fyrir
sáttargerðina:
„Nú get ég horfst í augu við
Jafntefli
í skákein-
vígjunum
London. Frá Margeiri Péturssyni.
ANNARRI skákinni í heims-
meistaraeinvígi þeirra Garrís
Kasparovs og Nigels Shorts
lauk með jafntefli í 51 leik
eftir harðar sviptingar í
London í gærkvöldi og i
FIDE-heimsmeistaraeinviginu
fór á sömu leið milli þeirra
Anatólís Karpovs og Jans
Timmans.
Short, sem hafði hvítt, fékk
góða stöðu út úr byijuninni en
lék gróflega af sér í 24. leik og
Kasparov náði yfirhöndinni.
Honum tókst þó ekki að fylgja
stöðuyfírburðunum eftir, en hef-
ur samt forystuna í einvíginu.
Heimsmeistarinn hefur hlotið
einn og hálfan vinning gegn
hálfum vinningi Shorts.
Þriðja skákin í FIDE-heims-
meistaraeinvíginu í Hollandi var
tefld í gær og lauk henni með
jafntefli. Staðan þar er jöfn,
Karpov og Timman hafa báðir
hlotið einn og hálfan vinning.
börnin mín og barnabörn og sagt:
Ég reyndi. Ég hikaði ekki. Ég gerði
það, sem ég gat,“ svaraði Peres.
Clinton, forseti Bandaríkjanna,
sagði í gær, að Bandaríkjamenn
myndu leggja sitt af mörkum við
efnahagslega endurreisn á fyrir-
huguðu sjálfstjórnarsvæði Palest-
ínumanna og aðspurður sagði hann,
að gengi allt eftir með gagnkvæma
viðurkenningu PLO og ísraela
myndi stjórn sín taka upp beinar
viðræður við PLO.
Arafat vill til Washington
Yasser Arafat, leiðtogi PLO,
sagði í gær í viðtali við franska rík-
issjónvarpið, að hann vildi gjarna
vera viðstaddur undirritun sjálf-
stjórnarsamningsins í Washington
á mánudag. „Það mun hins vegar
koma í ljós þegar okkur berast boð-
in frá Hvíta húsinu,“ sagði hann.
Ahmed Jibril, leiðtogi róttækra
samtaka Palestínumanna, sem and-
víg eru friði við ísraela, sagði í
Damaskus í gær, að samtök sín og
önnur ætluðu að gera allt til að
spilla samkomulaginu en stuðning-
ur Palestínumanna við friðargerð-
ina við ísraela virðist þó vaxa með
degi hveijum. í gær var efnt til
útifunda til að fagna henni, jafnt á
Gaza-svæðinu sem á Vesturbakk-
anum, og vakti sérstaka athygli
fjölmennur fundur í Hebron á Vest-
urbakkanum en þar hefur verið eitt
helsta vígi Hamas-hreyfingarinnar
en hún hefur snúist öndverð gegn
samkomulaginu.
Reuter.
Fyrir friðinn og nýja framtíð
MOSHI Hiresh rabbíni, forseti Natouri Karta-hreyfingarinnar í ísrael, fór í gær til Túnis þar sem hann
gekk á fund Yassers Arafats, leiðtoga PLO. Var erindið að fjá Arafat þakklæti sitt og hreyfingarinnar
og lýsa yfir stuðningi við frið og nýja framtíð gyðinga og araba.
Gro Harlem Brundtland líklega áfram forsætisráðherra Noregs
Verkamannaflokk-
iirinii í mikilli sókn
Þýski seðlabankinn lækkar vextina
Ryður hagvexti braut
Frankfurt. Rcutcr,
ÞÝSKI seðlabankinn tilkynnti um verulega vaxtalækkun í gær og
er hún talin geta rutt auknum hagvexti brautina í Evrópu. í kjölfar-
ið voru vextir lækkaðir í Austurríki og lítils háttar í Frakklandi og
búist var við vaxtalækkun víðar.
Þýski seðlabankinn lækkaði al-
menna forvexti úr 6,75% í 6,25%
og Lombard- eða millibankavexti
úr 7,75% í 7,25%. Sagði í tilkynn-
ingu hans, að vaxtalækkunin væri
eðlileg með tilliti til aukins styrks
marksins og vísbendinga um, að
verðbólguþrýstingur væri minni.
Atvinnulífíð varar þó við of mik-
Ósló. Reuter.
FYLGI Verkamannaflokksins norska hefur aukist snögglega á síð-
ustu dögum ef marka má skoðanakönnun sem dagblaðið Aftenpost-
en birti í gær. Þingkosningar fara fram í Noregi á mánudag og
mun Verkamannaflokkur Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra
verða áfram við völd reynist niðurstöður skoðanakannana réttar.
1.000 manns tóku þátt í könnun
Aftenposten sem gerð var á mánu-
dag og þriðjudag. Kváðust 37,4%
þeirra sem þátt tóku ætla að kjósa
norska Verkamannaflokkinn og
hafði fylgi flokksins aukist um heil
fjögur prósent borið saman við sams
konar könnun sem birt var þann
fyrsta þessa mánaðar. „Vera kann
að þarna sé komin staðfesting á
því að almenningur í þessu landi
hafi meðtekið þann boðskap okkar
að staðfesta sé nauðsynleg eigi að
takast að draga úr atvinnuleysi,"
sagði Gro Harlem Brundtland í við-
tali við norska útvarpið.
illi lækkun af ótta við verðbólgu
og þeir benda á, að langtímavextir,
sem skipta mestu í fjárfestingum,
séu nú lágir. Hagfræðingar segja
hins vegar, að lækkunin muni örva
neyslu og hjálpa efnahagslífinu í
öðrum Evrópuríkjum. Það gagnist
Þjóðveijum ekki síður.
Atvinnuleysi í Noregi mælist nú
um sex prósent. Efnahags- og at-
vinnumálin hafa verið efst á baugi
í kosningabaráttunni og svo virðist
sem Gro Harlem Brundtland hafi
náð að sannfæra þorra óákveðinna
kjósenda um ágæti þeirrar stefnu
sem minnihlutastjórn hennar hefur
markað. I síðustu þingkosningum
árið 1989 fékk Verkamannaflokk-
urinn 34,3% greiddra atkvæða. Al-
gjört fylgishrun var talið vofa yfir
flokknum. Þannig var fylgið innan
við 30% fyrr í ár og hafði ekki ver-
ið minna frá þriðja áratugnum.
Samkvæmt könnun Aftenposten
hafði fýlgi Hægri flokksins minnkað
um 0,6% frá því í könnuninni 1.
september og mældist það nú
19,4%. Miðflokkurinn, sem einkum
hefur freistað þess að höfða til
þeirra kjósenda sem andvígir eru
aðild Noregs að Evrópubandalaginu
(EB), reyndist njóta hylli 11,7%
kjósenda og hafði fylgið aukist um
1,1% frá því í síðustu könnun. Sós-
íalíski vinstriflokkurinn, sem einnig
er andvígur EB-aðild, reyndist eiga
stuðning 10,3% kjósenda og hafði
fylgið minnkað um 2,5% á viku.