Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2016, Page 19
anna. Þannig eru veðurfarssagnir með nafnlið í nefnifalli einkum na-sagnir
(hlána, hlýna, kólna og þiðna), en auk þess kemur nefnifall fyrir með blása
og drífa; sjá dæmin í (25) og (26). Með síðarnefndu sögnunum finnst
einnig þolfall (sjá nánar um aukafallshneigð í kafla 4.2).
(25) Á sama augnabliki var eins og vindurinn kólnaði.
(Fálkinn 1948 (22):12)
(26) Þegar úti blæs vindur og snjónum kyngir niður.
(Sótt á netið, yfirfarið 04.10.2016)
Sagnir með nafnlið í þolfalli eru til dæmis hvessa, lægja og birta, sem
sýndar eru í (27). Með þessum sögnum kemur nefnifall oft í stað þolfalls
í nútímamáli, eins og dæmið í (28) ber vott um (sjá nánar um nefnifalls-
hneigð í kafla 4.2).
(27)a. … og brimið vex og vindinn hvessir. (Fjallkonan 1898(41):162)
d. Strax á föstudaginn batnar veðrið því þá lægir vindinn og það
styttir upp. (Sótt á netið, yfirfarið 04.10.2016)
e. Endilega kíkið í kaffi í sumarskapi nú þegar daginn birtir …
(Sótt á netið, yfirfarið 04.10.2016)
(28) svo nú er bara að bíða eftir að vindur lægir.
(2008. Sótt á netið, yfirfarið 04.10.2016)
Hér er rétt að taka fram að með mörgum sagnanna virðist enginn merk-
ingarmunur vera á notkun þeim með eða án nafnliðar; t.d. er ekki að sjá
að vindinn hvessir merki annað en það hvessir. Þá er ekki heldur neinn
sjáanlegur merkingarmunur þegar fallabreyting á sér stað, eins og þegar
vindinn lægir verður vindurinn lægir.
Í nútímamáli koma þágufallsnafnorð fyrir með sögnunum rigna og
snjóa (29). Alla jafna tákna þessi nafnorð ekki eiginlega úrkomu (engin
dæmi fundust í leit á netinu) og einnig er sjaldgæft að þau eigi við um
vökva, t.d. vatn eða blóð; það ber þó við, eins og dæmið í (29a) sýnir.
(29)a. Yfirborð jarðar kólnar hratt og sum rjúkandi efnin þéttast, og vatni
rignir til jarðar til að mynda höfin.
(Sótt á netið, yfirfarið 04.10.2016)
b. Það snjóaði fallegum stórum, hvítum flygsum sem urðu að engu
þegar þær lentu á ljóskösturunum.
(Sótt á netið, yfirfarið 04.10.2016)
Þegar veðrið kólnar og vindinn hvessir — þá snjóar hann 19