24 stundir - 05.01.2008, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 24stundir
einhvers konar kratisma. Mig
minnir að ég hafi gengið í Alþýðu-
flokkinn sáluga á sínum tíma og
hann er nú dáinn. Ég var skráð í
Samfylkinguna í Reykjavík á ein-
hverjum tímapunkti, en hef ekki
starfað í pólitík síðan á fyrstu
námsárum mínum. Ég hef til
dæmis aldrei starfað fyrir stjórn-
málaflokk því ég fæ alltaf efasemdir
og vil ekki útiloka möguleika á að
geta rifist og verið ósammála ef
mér sýnist svo. Ég er sennilega eins
langt frá því að vera dæmigerður
flokkshestur og hægt er að vera.“
Ertu dálítið fyrirferðarmikil?
„Já, mér er sagt það, en sjálfri
finnst mér ég auðvitað vera ósköp
ljúf. Ég er allavega mjög jákvæð.
Mér finnst mikilvægt að horfa já-
kvæðum augum á tilveruna og
samferðamenn mína, sem er þó
alls ekki það sama og að vera
ógagnrýnin. Já, ég er orkumikil og
finnst gaman að hafa nóg að gera.“
Einstakt barn
Þú og maðurinn þinn, Jón Magn-
ús Einarsson líffræðingur, eigið ætt-
leidda dóttur sem þið sóttuð til Kína.
Hvernig dafnar dóttirin?
„Við hjónin áttum í erfiðleikum
með að eignast barn og ákváðum
að ættleiða. Þótt segja megi að ég
trúi frekar á stokka og steina en
sérstaka æðri forsjá af himnum þá
trúi ég því að mér hafi verið ætluð
þessi stúlka og hafði þá tilfinningu
frá upphafi. Nú er hún Ingibjörg
Embla Min fimm ára en hún var
sextán mánaða þegar við fengum
hana. Hún varð samstundis barnið
okkar. Hún tók okkur afskaplega
vel en vildi reyndar í byrjun alveg
eins eiga heima hjá konunni í
sjoppunni sem mér fannst dálítið
erfitt, en það er algengt að ættleidd
börn taki smá tíma í að átta sig á
nánustu tengslum. Við hjónin tók-
um okkur tíma til að vera með
henni í friði og einbeita okkur að
samskiptum við hana. Við erum
stórkostlega heppin með þetta ein-
staka barn. Henni hafa ekki fylgt
neinir erfiðleikar, einungis gleði.
Hún er einstök. Mér finnst gott að
geta montað mig af henni án þess
að hafa áhyggjur af því að vera að
sýna ættarhroka – það eru engin
blóðtengsl milli okkar og ég er því
ekki að hrósa sjálfri mér og segja að
hún hafi fengið eiginleika frá mér.
Reyndar komum við hjónin fljót-
lega auga á alls kyns takta sem hún
plokkaði upp eftir okkur. Svo
fannst okkur við þekkja einhver
svipbrigði og andlitsfall og sögðum
hvort um sig: Þetta er bara alveg
eins og úr minni ætt! En hún er
einstakt barn og býr yfir frábærum
eiginleikum. Hún er sérstaklega
umhyggjusöm gagnvart öðru fólki,
glaðlynd, blíð og stálgreind.“
Heldurðu að börn fæðist með
ákveðinn karakter?
„Ég veit það ekki en persónuleiki
einstaklinga mótast mjög mikið á
fyrsta ári og það hlýtur að hafa
áhrif að alast upp á munaðarleys-
ingjaheimili. Það er harður heimur
og persónuleiki krakkanna þrosk-
ast þar með mjög sérstökum hætti.
Við hjónin sáum einu sinni mynd-
band sem var tekið upp á slíku
heimili. Það var mjög áhugavert að
sjá hversu misjöfn börnin voru.
Sum voru mjög klók, búin að átta
sig á því hvernig þau gætu vakið at-
hygli á sér, einhver kusu að príla yf-
ir rúmið, önnur hentu hlutum á
gólfið og enn önnur höfðu valið þá
leið að sitja á gólfinu og vera sæt.
Svo voru líka börn sem sýndust
hafa dregið sig inn í skel og gefist
upp.
Það var sérstakt að dóttir okkar
grét aldrei eftir að hún kom til okk-
ar, sama á hverju gekk. Það var eins
og hún hefði komist að því að það
væri bara óþarfa orkueyðsla. Hún
hafði verið nánast frá fæðingu á
munaðarleysingjaheimilinu og þar
dugar ekki að grenja. Það verður að
finna einhverja aðra leið.“
Hún kemur úr öðrum menning-
arheimi með annað útlit. Hafa fylgt
því einhver vandræði?
„Það hafa ekki verið nein vand-
ræði. Hér á landi er sem betur fer
upplýst og jákvætt viðhorf til ætt-
leiðinga. Þegar við hjónin ættleidd-
um dóttur okkar þurftum við að
bera allan kostnað af því sjálf utan
styrkja frá stéttarfélögum, sem
raunar hjálpuðu mikið. Nú hefur
fólk aðgang að styrkjum sem er af-
skaplega jákvæð breyting. Ég veit
hvað það getur verið sársaukafullt
að fara í tæknifrjóvgun sem tekst
ekki. Það reyndi ég sjálf. Þegar fólk
fær styrk til ættleiðingar getur það
orðið til þess að það velur frekar þá
leið en tæknifrjóvgun áður en sárs-
aukinn verður of mikill. Það er
bara gott.“
Horfi á heildarmyndina
Hvað ætlarðu þér að gera sem
ferðamálastjóri?
„Markaðsstarfið erlendis hefur
kannski verið mest áberandi og það
er í ágætum höndum hjá starfsfólki
Ferðamálastofu. En stofan gegnir
þríþættu hlutverki og hin tvö eru
ekki síður mikilvæg. Þetta er ann-
ars vegar hlutverk á sviði uppbygg-
ingar, skipulagningar og gæðaeft-
irlits hér innanlands. Þar er mikil
vinna framundan því ferðamönn-
um fjölgar gríðarmikið og hingað
koma stórir hópar frá nýjum lönd-
um. Það má heldur ekki gleyma því
að ferðamál eru landsbyggðarmál,
það er hugur í fólki úti á landi sem
horfir til þessa atvinnuvegar með
mikilli von. Það er mjög mikilvægt
að Ferðamálastofa komi sterk inn í
þá umræðu og efli stuðning sinn.
Þriðja meginhlutverkið snýr svo að
leyfisveitingum til ferðaþjónustu-
aðila. Þar gegnir stofnunin hlut-
verki sem stjórnvald og verður því
vitanlega að starfa í anda góðra
stjórnsýsluhátta, þar sem tryggt er
að reglur stjórnsýslunnar séu virt-
ar.
Annars vil ég ekki vera með
miklar yfirlýsingar, nýtekin við
starfinu. Það væri kjánalegt að
koma hingað til starfa og segja við
fólk sem vinnur hér: Núna gerum
við svona! Ég ætla að soga inn í mig
þá þekkingu sem starfsmenn hér
hafa og gefa mér tíma til að melta
hana.“
Hvernig yfirmaður heldurðu að
þú verðir?
„Á vinnustað á fólk á að fá að
nýta hæfileika sína og blómstra.
Það segir sig sjálft að starfsfólk sem
fær að njóta sín er ánægðara en
aðrir en um leið þarf að vera festa á
hlutunum. Ég held að það hangi
mjög saman að um leið og fólki er
gefið tækifæri til að blómstra í
starfi þá verður til festa. Losara-
gangur skapast þegar fólk sér ekki
tilgang með vinnu sinni, skilur ekki
af hverju það er að gera hlutina og
fær ekki tækifæri til að eflast í
starfi. Ég lít svo á að mitt sé að
horfa á heildarmyndina. Ég vil vera
virkur stjórnandi á þessu yfirsviði
en síður með puttana í því hvernig
fólk gerir hlutina. Ég trúi frekar á
það að leiða en að toga.“
Hrifnæmi Ég vil ekki
hljóma eins og mjúkmáll
rómantíker – því það er
ég ekki – en ég er mjög
hrifnæm manneskja og
get gleymt mér í því sem
ég hrífst af.
a
Það var sérstakt
að dóttir okkar
grét aldrei eftir
að hún kom til okkar,
sama á hverju gekk. Það
var eins og hún hefði
komist að því að það væri
bara óþarfa orkueyðsla.
Hún hafði verið nánast
frá fæðingu á mun-
aðarleysingjaheimilinu
og þar dugar ekki að
grenja. Það verður að
finna einhverja aðra leið.
a
Ég tel ekki að
við Íslendingar
eigum að leggja
okkur eftir að vera í sam-
keppni við þróunarlönd
um stóriðju. Það felst
engin reisn í því.
Original Arctic Root
Ein vinsælasta lækningajurt heims
Original Arctic Root öðru nafni Burnirót er ein vinsælasta
lækningajurtin í heiminum í dag. Klínískar rannsóknir hafa leitt í
ljós að hún eflir einbeitingu, úthald og vinnur gegn streitu og álagi.
Náttúrulegt Viagra
Original Arctic Root er fljótverkandi og þeir sem nota hana finna
jákvæða breytingu á einbeitingu og úthaldi á skömmum tíma.
Original Arctic Root hefur svo sannarlega slegið í gegn á Íslandi
þar sem hún nýtur nú þegar mikilla vinsælda.
Fæst í apótekum og heilsubúðum.
Heilsuvara ársins
í Svíþjóð
2003, 2004 og 2005
K
R
A
F
T
A
V
E
R
K