24 stundir - 05.01.2008, Blaðsíða 24

24 stundir - 05.01.2008, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 24stundir Tveir alþingismenn kvöddu sér hljóðs í síðustu viku til þess að ræða sérstaklega um stjórn og stjórnarandstöðu. Annar er þing- maður Samfylkingarinnar og heitir Helgi Hjörvar. Hinn er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og heitir Geir H. Haarde. Annar skrifaði grein í 24 stundir, hinn lét ljós sitt skína í maraþonviðtali á Rás 2. Báðir voru þeir óskaplega ánægðir með ríkisstjórnina sína og báðir lýstu óánægju með stjórnarandstöðuna. Hvor á sinn hátt þó. Helgi og „Nýi Sjálfstæð- isflokkurinn“ Fyrst að Helga þætti Hjörvars. Helgi sagði að nú væri búið að sameina jafnaðarmenn á Íslandi innan vébanda Samfylkingar, þeir sætu víða að völdum þar á meðal í ríkisstjórn með Sjálfstæðis- flokknum, það er að segja „Nýja Sjálfstæðisflokknum“, sem Helgi kallar svo. Samfylkingin hefði átt „á brattann að sækja“ í umhverf- ismálum, en síðan hefðu menn fundið upp nýja stefnu, sem héti Fagra Ísland og horfði nú allt til betri vegar. Sú góða ríkisstjórn sem nú stjórnaði landinu hugsaði fyrst og fremst um hag aldraðra, öryrkja og barnafólks, auk að sjálfsögðu fyrirtækjanna. Aðeins eitt virtist vera aðfinnsluvert að mati Helga og það er hve léleg stjórnarandstaðan væri. Stjórnar- andstöðuflokkarnir væru alltaf að skammast innbyrðis: „Á meðan skortir ríkisstjórnina eðlilegt að- hald.“ Geir þreyttur Síðan var það Geir H. Haarde. Að hans mati tekst ríkisstjórninni bærilega vel að stýra landinu. Samstaða og eindrægni sé með ráðherrum og ef ekki væri fyrir verðhækkanir í útlöndum værum við í góðum málum. En svo er það stjórnarandstaðan. Um hana vildi Geir H. Haarde ekki alhæfa. Honum fannst hins vegar ástæða til, forsætisráðherranum okkar, að fagna því sérstaklega að tekist hefði að ná samkomulagi við „fjóra af fimm þinflokksformönn- um“ um breytt þingskapalög. Með nýjum lögum værum við vonandi laus við „hamslausan málflutning“ og „málæði ein- stakra manna“. Nýju lögin væru miklu betri og ætti Sturla Böðv- arsson, forseti Alþingis, lof skilið fyrir að keyra þau í gegnum þing- ið. Geir kvaðst hafa talað fyrir fjárlagafrumvarpi átta sinnum. Gagnrýnin hefði bara verið „stagl“ og hann trúði fréttamanni fyrir því að sér hafi þótt þetta afar „þreytandi“. Nú á að sjálfsögðu eftir að koma í ljós hversu þreytt- ur forsætisráðherrann kemur til með að verða við umræður á Al- þingi í framtíðinni en hitt verð ég að segja, að dapurlega smá í snið- um eru ummæli þessara tveggja alþingismanna. Helgi Hjörvar leyfir sér að þurrka út af hinu pólitíska landakorti drjúgan hluta þess fólks sem harðast berst fyrir náttúruvernd og jöfnuði í land- inu. Hér á ég að sjálfsögðu við Vinstrihreyfinguna – grænt fram- boð sem í sumum málum náði ágætlega saman með Samfylking- unni, jafnaðarfólki þar, og þá einkum þegar velferðarmál bar á góma. Að sjálfsögðu þykir okkur ekki uppörvandi að í fyrstu fjár- lögum Samfylkingarinnar skuli áætlað að skerða vaxtabætur og barnabætur að raungildi! Þá er ljóst að ýmsum helstu stofnunum á sviði heilbrigðismála verður gert að skera niður og skerða þjónustu sína eins og rækilega var bent á í „staglinu“ við afgreiðslu fjárlaga. Áhyggjur jafnaðarfólks Það sem félagslega þenkjandi fólk í landinu hefur áhyggjur af er að Samfylkingin skuli hafa af- hent einkavæðingarsinnuðum Sjálfstæðisflokki heilbrigðisráðu- neytið og leyfi honum nú að fara þar sínu fram, reyni síðan að skjóta sér á bak við stjórnarand- stöðu sem ekki veiti „eðlilegt að- hald“! Þetta kalla ég ábyrgðarleysi stuðningsmanns ríkisstjórnarinn- ar. Geir H. Haarde forsætisráð- herra hefur setið á þingi alllengi og verið í forystu Sjálfstæðis- flokksins allar götur frá því sá flokkur tók við stjórnartaumun- um vorið 1991, fyrst með stuðn- ingi Alþýðuflokks, þá Framsókn- arflokks og nú Samfylkingar. Á þessu tímabili hefur vissulega komið til mikilla deilna á Alþingi og Geir því þurft að hlýða á það sem hann flokkar undir „hams- lausan“ málflutning, svo sem þeg- ar deilt var um það hvort EES- samningurinn stæðist stjórnarskrá Íslands, skerðingu á barnabótum á fyrri hluta tíunda áratugarins, sjúklingagjöldin og þá stefnu að innræta sjúku fólki kostnaðarvit- und, sölu almannaeigna, einka- vinavæðingu bankanna, Kára- hnjúkavirkjun, einkarekinn gagnagrunn á heilbrigðissviði, hlutafélagavæðingu Ríkisútvarps- ins, öryrkjamálið, fjölmiðlafrum- varpið og vatnalögin. Og svo hafa fjármálaráðherrar Sjálfstæðis- flokksins náttúrlega þurft að sitja undir „stagli“ um fjárlögin þegar atvinnuleysisbætur, ellilífeyrir og framlag til velferðarþjónustunnar hafa verið til umræðu! Hunsar stærsta stjórnarand- stöðuflokkinn Í öllum þessum málum hefur VG, frá því sá flokkur varð til, og áður liðsmenn úr þeim ranni staðið í forystu á þingi til varnar lýðræði, jöfnuði og verndun landsins. Nú leyfir forsætisráð- herrann sér að fagna því að gert hafi verið samkomulag sem þessi stærsti stjórnarandstöðuflokkur á Alþingi telur hefta sig í því verk- efni sem honum er á herðar lagt samkvæmt stjórnarskránni; að veita ríkisstjórninni eðlilegt að- hald. Þetta þykir Geir H. Haarde vera sérstakt fagnaðarefni. Rík- isstjórnin kann að styðjast við stóran meirihluta á þingi. En hún sýnir jafnframt í verkum sínum og málflutningi að hún er ekki stór í sniðum. Á þann mæli- kvarða er hún smá. Agnarsmá. Höfundur formaður þingflokks VG UMRÆÐAN aÖgmundur Jónasson Að sjálfsögðu þykir okkur ekki uppörv- andi að í fyrstu fjár- lögum Sam- fylking- arinnar skuli áætlað að skerða vaxtabætur og barnabætur að raungildi! Ríkisstjórnin En hún sýnir jafnframt í verkum sínum og málflutningi að hún er ekki stór í sniðum. Stór en jafnframt smá upplysingar Kolbrun S.510 3722 Kolla@24stundir.is Kata@24stundir.is Katrin s.510 3727 Serblad 24 stunda 11.januar 2008 namskeid
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.