24 stundir - 05.01.2008, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 31ATVINNAstundir
Við erum að leita að starfsfólki
…sem býr yfir framúrskarandi þjónustulund, er
jákvætt, sýnir frumkvæði, tekur ábyrgð á starfi sínu
og leitar bestu lausna fyrir viðskiptavini!
Óskar eftir starfsmönnum í ræstingu í stöðvar okkar
í Laugum, Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ!
Um er að ræða fullt starf – vaktavinnu og óskað
er eftir því að starfsmaður geti byrjað fljótlega.
Umsjón með ráðningu hefur Hólmfríður Ósk
Guðbjörnsdóttir holly@worldclass.is
We are looking for people in our
cleaning-department in Laugar, Seltjarnarnes
and Mosfellsbær.
The job offers only shift-work and it would be great
if applicants could start working soon.
For further information please contact
Hólmfríður Ósk Guðbjörnsdóttir holly@worldclass.is
Meiraprófsbílstjóri óskast
Vegna aukinna verkefna leitar Atlantsolía
að traustum og áreiðanlegum bílstjóra til
framtíðarstarfa. ADR réttindi eru ekki skilyrði en
námskeið yrði greitt af Atlantsolíu.
Starfið stendur báðum kynjum jafnt til boða.
Starfið felur í sér:
Áfyllingu á bensínstöðvar og dreifingu olíu til
verktaka, bænda og sjávarútvegs.
Æskilegir eiginleikar:
Fyrirtækið leitar að kröftugum, þjónustulunduðum
bílstjóra sem er reiðubúinn að taka þátt í
uppbyggingu ört vaxandi fyrirtækis.
Atlantsolía hóf að selja bensín til almennings 8.
janúar 2004 en fyrirtækið rekur nú 12
bensínstöðvar. Hjá fyrirtækinu starfa 23 manns.
Atlantsolía hefur verið í fararbroddi með nýjungar
hér á landi með innleiðingu Dælulykla.
Áhugasamir hafi samband við Albert Þór Magnússon,
framkvæmdastjóra, í síma 825-3133 eða sendi póst á
albert@atlantsolia.is fyrir 15. janúar.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
72
60
2
RAMMAGERÐIN óskar eftir að ráða
öflugan og glaðlegan starfsmann í verslun
Rammagerðarinnar í Hafnarstræti.
Hæfniskröfur:
• Góð enskukunnátta er skilyrði, viðbótar tungumál kostur
• Afburða þjónustulund og glaðleg framkoma
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Samviskusemi
• Sölutækni
• Stundvísi
Nánari upplýsingar veitir Bryndís Sigurðardóttir, verslunar-
stjóri í síma 551 1122 eða á rammagerdin@rammagerdin.is
Umsóknarfrestur er til og með 14. janúar. Umsóknir með
starfsferilsskrá sendist á rammagerdin@rammagerdin.is
eða til 66°Norður, Miðhrauni 11, 210 Garðabæ.
Verslunarstarf
Á S L Ó Ð U M F E R Ð A M A N N A
Viljum ráða Framreiðslumenn eða vant fólk í
vaktstjórastöður sem allra fyrst á nýja
veitingastaðinn "Gullfoss restaurant & lounge"
sem hefur opnað á Radisson SAS 1919 hótel
Einnig viljum við ráða vana þjóna og barþjóna í
fullt starf og aukavinnu á kvöldin og um helgar
Upplýsingar í síma 89 28583
eða á apotek@veitingar.is
Framreiðslumenn
Þjónar
Vaktstjórar
Hjúkrunarheimilið Skjól leitar að góðum starfskrafti til
þess að sjá um býtibúr og ræstingu í Laugaskjól sem
er sambýli fyrir níu aldraða minnissjúka.
Vinnutími er frá 8:00 til 16:00 virka daga.
Nánari upplýsingar veita Aðalheiður hjúkrunarforstjóri
alla@skjol.is eða
Vilborg starfsmannastjóri vilborg@skjol.is.
Einnig í síma: 522-5600 milli 8 og 16.
SJÚKRALIÐAR
FÉLAGSLIÐAR
Heilbrigðisstofnun Austurlands / Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað
Deildarstjóri heilsugæslu HSA/FSN
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) auglýsir lausa til umsóknar stöðu deildarstjóra- hjúkrunar við heilsugæslu
Fjórðungssjúkrahúsins í Neskaupstað (FSN).
Um er að ræða fullt starf (100%) í dagvinnu við stjórnun og almenna hjúkrun á heilsugæslusviði FSN, auk skipulagningar
sérfræðimóttöku, heimahjúkrunar og önnur þau störf sem fram fer á heilsugæslunni. Staðan getur verið laus nú þegar, eða eftir
nánara samkomulagi. Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi frá 28.02.05. og stofnanasamningi FÍH og HSA, ásamt húsnæði á
viðráðanlegu verði aðstoð við flutning á svæðið ef með þarf og fl.þ.h. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í stjórnun, og þekki
til og hafi áhuga á starfsemi heilsugæslu.
Hjúkrunarfræðingur á heilsugæslu FSN
Um er að ræða dagvinnu á heilsugæsludeild FSN, við heimahjúkrun og fleiri störf er falla undir svið heilsugæslu. Starfshlutfall er
80 -100% og ráðning getur verið strax eða eftir nánara samkomulagi aðila. Einnig væru mögulegar vaktir á sjúkradeild FSN.
Hjúkrunarfræðingar á sjúkradeild FSN
Um er að ræða dag- kvöld- og næturvaktir við almenna hjúkrun en á FSN eru m.a. lyflæknis- og handlæknisdeild auk fæðingar-
deildar, skurðstofu og bráðamóttöku, auk hjúkrunardeildar ofl. þ.h. Stöðurnar eru lausar nú þegar, eða eftir nánara samkomu-
lagi og starfshlutfall frá 50 -100 %. Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi frá 28.02.´05., og stofnanasamningi FÍH og HSA.,
ásamt húsnæði á góðu verði og flutningsaðstoð.
Allar frekari upplýsingar um störfin gefa: Friðný Helga Þorláksdóttir, hjúkrunarstjóri FSN, S- 470 1450, fridny@hsa.is
og Valdimar O. Hermannsson fulltrúi framkvæmdastjóra HSA/FSN, S- 860 6770, valdimarh@hsa.is .
Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2007 og skulu umsóknir, er greina frá m.a. reynslu og fyrri störfum, sendast til:
HSA/FSN, Mýrargötu 20, 740 Fjarðabyggð, eða á ofanritaða. Sjá einnig til uppl., www.hsa.is v/FSN og
www.fjardabyggd.is
Til frekari upplýsinga,
Neskaupstaður í Norðfirði er byggðakjarni innan Fjarðabyggðar sem er stærsta sveitarfélag á Austurlandi, með um 6.000 íbúa.
Upptökusvæði HSA/FSN, er allt Austurland en þar búa nú u.þ.b., 14.000 manns og fer ört fjölgandi. Í Fjarðabyggð er rekin öflug
þjónusta, og í Neskaupstað er starfræktur grunnskóli, tónskóli og leikskóli ásamt Verkmenntaskóla Austurlands, en einnig er góð
aðstaða til íþróttaiðkunnar. Sundlaug, íþróttahús, íþróttavöllur og golfvöllur eru á svæðinu sem og fínasta skíðasvæði í Oddskarði.
Náttúrufegurð er mikil á svæðinu enda eru mörg skemmtilegustu göngu- og útivistarsvæði landsins á Austurlandi.