Morgunblaðið - 23.04.1983, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1983
fHtftgtmHtifclfr
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 180 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 15 kr. eintakiö.
„Veldur hver
á heldur“
Spakur maður sagði eitt
sinn að hver þjóð fengi
það þing sem hún ætti skilið.
Þessi staðhæfing styðst við þá
staðreynd að Alþingi er þjóð-
kjörið. Þar af leiðir að líta má
á þingið sem þverskurð og
spegilmynd af þjóðinni, sem
það kýs.
í löndum lýðræðis og þing-
ræðis eru kosningar einn höf-
uðþáttur þegnréttinda. Þær
hafa tvíþættan megintilgang.
í fyrsta lagi kveða kjósendur
upp dóm yfir pólitískri stjórn-
sýslu í þjóðfélaginu liðið kjör-
tímabil — og afleiðingum
hennar. í annan stað leggja
þeir línur um framvindu mála,
bæði til næstu framtíðar og
lengri tíma.
Fólk svarar því til dæmis
með atkvæði sínu, hvern veg
Alþýðubandalagi og Fram-
sóknarflokki, sem bera stjórn-
sýslulega ábyrgð á þjóðar-
búskapnum liðið kjörtímabil,
hafi að þess dómi tekizt að
„telja niður" verðlag í landinu.
— Verðbólga var um 60% í
upphafi valdaferils þessara
flokka, en stefnir í yfir 100% í
lok hans.
Hvert er rekstraröryggi at-
vinnuvega og atvinnuöryggi
almennings, sem eru tvær
hliðar á sama fyrirbærinu, í
lok kjörtímabilsins? Undir-
stöðuatvinnuvegir eru reknir
með vaxandi tapi, ganga á
eignir og safna skuldum. Þjóð-
arframleiðsla og þjóðartekjur,
sem lífskjörum ráða, hafa
rýrnað — og atvinnubrestur
sagt til sín í fyrsta skipti um
langt árabil. Við þessar að-
stæður hafa stjórnarflokkarn-
ir hert skattheimtu, ekki sízt
verðþyngjandi gjalda, þ.e. toll-
afgreiðslugjalds, benzíngjalds,
vörugjalds og söluskatts.
Hver hefur þróunin orðið í
viðskiptajöfnuði og skulda-
stöðu erlendis? Viðskiptahall-
inn og skuldasöfnunin stefna
efnahagslegu sjálfstæði þjóð-
arinnar í hættu. Erlendar
skuldir nema um hálfri millj-
ón króna á hverja fimm
manna fjölskyldu í landinu.
Hvernig hefur verið búið að
ungum húsbyggendum? Hús-
næðislánakerfið hefur verið
svipt tekjustofnum sínum,
lánum hefur fækkað og þau
stórlega lækkað sem hlutfall
af byggingarkostnaði.
Alþýðubandalag og Fram-
sóknarflokkur hafa farið með
pólitíska stjórn í þjóðfélaginu
í rúm fjögur ár. Er afrakstur-
inn sá að ástæða sé til að
framlengja vinstri völd í land-
inu?
Kjósendur hafa aðeins tvo
raunhæfa kosti um að velja:
• Annarsvegar áframhald-
andi vinstri stjórn með þátt-
töku fimm sundraðra vinstri
flokka.
• Hinsvegar að styrkja
sterkasta stjórnmálaaflið,
Sjálfstæðisflokkinn, sem er
eina leiðin til að koma í veg
fyrir áframhaldandi vinstri
stjórn.
• Það leysir engan vanda,
eykur aðeins á glundroðann og
sundrunguna í þjóðmálum
okkar, að hasla nýjum smá-
flokkum völl á Alþingi.
Talsmenn Sjálfstæðisflokks
leggja höfuðáherzlu á að
skapa atvinnuvegunum viðun-
andi rekstrargrundvöll. Ef
tryggja á framtíðarat-
vinnuöryggi og batnandi lífs-
kjör verður að búa atvinnu-
vegunum aðstæður til vaxandi
verðmætasköpunar og þjóðar-
tekna.
Þeir gera sér grein fyrir því
að hefðbundnar atvinnugrein-
ar, sjávarútvegur og landbún-
aður, eru og verða hornsteinar
í þjóðarbúskapnum. Á þeim
vettvangi verður bæði að nýta
fullvinnslumöguleika, fiskeldi
og nýjar búgreinar.
Þeir gera sér jafnframt
grein fyrir því að setja verður
nýjar stoðir undir afkomu og
efnahagslegt sjálfstæði okkar.
Fullnýttir fiskistofnar og bú-
vöruframleiðsla á mettuðum
markaði geta ekki, ein sér,
boðið 25.000 ný störf á næstu
20 árum, sem þörf verður
fyrir. Þessvegna verðum við að
hverfa að frekari nýtingu
þriðju auðlindar okkar, orku
fallvatna og jarðvarma, m.a.
með nýjum orkuiðnaði.
Þeir leggja áherzlu á félags-
leg markmið á sviði heilbrigð-
ismála, fræðslumála, al-
mannatrygginga, öldrunar-
mála o.s.frv., — en slík mark-
mið nást fyrr og betur, ef
kostnaðarleg undirstaða er
tryggð um aukna þjóðarfram-
leiðslu og auknar þjóðartekj-
ur.
Þeir leggja og ríka áherzlu á
að tryggja öryggi og sjálfstæði
þjóðarinnar í samstarfi við
vestrænar lýðræðisþjóðir, svo
sem verið hefur. í þeim efnum
geta kjósendur treyst ófrá-
víkjanlegri stefnufestu Sjálf-
stæðisflokksins.
Það eru aðeins tveir kostir
fyrir hendi: annarsvegar fimm
vinstri framboð, hinsvegar
Sjálfstæðisflokkurinn. „Veld-
ur hver á heldur", segir mál-
tækið. í dag er valdið þitt —
en jafnframt ábyrgðin og af-
leiðingarnar.
Hvatning til íbúa
Reykjaneskjördæmis
— eftir Matthías A.
Mathiesen, alþm.
Á kjördag vil ég hvetja ykkur
kjósendur í Reykjaneskjördæmi
til að íhuga vel á hvern hátt þið
verjið atkvæði ykkar að þessu
sinni. Öllum er ljóst sem fylgst
hafa með gangi þjóðmála, að þau
vandamál, sem þjóðin á við að
glíma eur að meginhluta til komin
vegna rangrar stjórnarstefnu, svo
og vegna þess að samstaða um
lausn á efnahagsvanda þjóðarinn-
ar hefur ekki náðst milli þeirra
stjórnmálaafla, sem farið hafa
með stjórn landsins undanfarin
4Vfe ár.
Kosningabaráttan hefur enn
frekar staðfest, að vinstri stjórn-
málaflokkarnir geta ekki haft for-
ystu til lausnar á þeim miklu erf-
iðleikum sem að steðja og þeir
hafa leitt yfir þjóðina.
Við sjálfstæðismenn viljum
hvetja ykkur til að íhuga vel þann
valkost, að veita okkur styrk með
Matthías Á. Mathiescn
atkvæði ykkar til brautargengis
fyrir stefnumál Sjálfstæðisflokks-
ins. Sjálfstæðisflokkurinn er og
hefur verið sú kjölfesta í íslensk-
um stjórnmálum, sem ætíð hefur
verið kölluð til stjórnar eftir
skipbrot vinstri stefnu. Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur þá tekist á við
þau vandamál sem vinstri öflin
hafa skilið eftir sig við lok stjórn-
arsetu. Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur verið það stjórnmálaafl sem
leitt hefur þjóðina til betri lífs-
kjara og mun gera nú, ef honum
verður veitt brautargengi í kom-
andi kosningum til forustu í ís-
lenskum þjóðmálum.
Sá mikli efnahagsvandi sem nú
er fyrir hendi á flest öllum sviðum
þjóðlífsins krefst þess, að þjóðin
hafi sterka stjórnmálaforystu,
sem getur tekist á við þá erfiðleika
sem fyrir hendi eru. Eini stjórn-
máiaflokkurinn sem veitt getur
þjóðinni þá forystu sem nauðsyn-
leg er er sjálfstæðisflokkurinn en
það gerist ekki án stuðnings ykk-
ar. Því hvet ég alla íbúa Reykja-
neskjördæmis til að styðja
Sjálfstæðisflokkinn nú, þannig að
eftir kosningar verði landinu
stjórnað með hagsæld þjóðarinnar
í öndvegi.
Setjum markið hátt — 3
menn af D-lista í Norður-
landskjördæmi eystra
Eftir Gísla Jónsson,
menntaskólakennara
Eftir mesta logn, sem írienn
hafa upplifað fyrir kosningar til
alþingis, er stormurinn að skella
á. Ljóst er að Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur byr í seglin, og er það að
vonum. Æ fleiri átta sig á því, að
leiðin út úr ógöngunum er að efla
eitt sterkt stjórnmálaafl til
ábyrgðar. Spurningin er aðeins:
Hversu mikill verður byrinn á
lokasiglingunni um helgina?
Það upplausnarástand, sem
óhjákvæmilega hlýtur að fylgja
100% verðbólgu og stjórníeysi,
kemur til góða, í bili að minnsta
kosti, hinum nýju flokkum,
Bandalagi jafnaðarmanna og
Kvennasamtökunum. Ég hef þó
trú á því, að við nánari íhugun
munu margir, sem ætluðu sér að
kjósa þessa fiokka, hugsa sig um
tvisvar, áður en svo verði gert.
Menn munu átta sig á því, að
fjölgun smáflokka á alþingi eykur
glundroðann sem ekki er á bæt-
Gísli Jónsson
andi. Reynslan frá grannþjóðum
okkar kennir okkur svo.
Sjálfstæðismenn í Norður-
landskjördæmi eystra hafa sótt
kosningabaráttu sína af festu og
málefnalegum styrk. Stefna
þeirra hefur fengið góðar undir-
tektir. Eftir sundrungu við síðustu
Metal Bulletin og
bjargvættir
í SÉRRITINU Metal Bulletin sera
er gefið út til afnota fyrir þá sem
vilja fylgjast náið með framvindu
mála, til dæmis í áliðnaði, hafa að
undanfórnu birst tvær stuttar frá-
sagnir af athöfnum þeirra manna
hér á landi sem efnt hafa til auglýs-
ingaherferðar til að telja fólki trú
um að þeir vilji styrkja Alusuisse
með fjárframlögum og biðja al-
menning um að gera slíkt hið sama.
Kalla þeir þessa starfsemi sína á
ensku „Help the Alusuisse Campa-
ign“.
í Metal Bulletin dagsettu föstu-
daginn 15. apríl segir, að stjórn-
endur Alusuisse muni vafalítið
fagna því, að hinir íslensku
bjargvættir hafi safnað alls 2.400
Alusuisse
islenskum krónum um miðja þá
viku. I Metal Bulletin segir enn
fremur að enn sé unnt að gefa fé í
söfnunina og verði sjóðurinn síðan
afhentur svissneska fyrirtækinu
með formlegum hætti. Þess er
hins vegar ekki getið i frásögn
blaðsins hvar hinir íslensku
bjargvættir fái fjármagn til aug-
lýsinga í ríkisfjölmiðlum.
Morgunblaðið hefur staðfestar
heimildir fyrir því, að Elías
Davíðsson, kerfisfræðingur, hafi
hvatt menn til þátttöku f söfnun-
arnefndinni og sé sjálfur fréttarit-
ari Metal Bulletin á íslandi. Elías
Davíðsson hefur um nokkurt ára-
bil verið manna ákafastur í and-
stöðu við starfsemi álversins i
Straumsvík.
kosningar stöndum við sjálfstæð-
ismenn nú sameinaðir. Við setjum
okkur ekki aðeins það mark að
endurheimta annan mann af lista,
kjördæmakjörinn, heldur endur-
heimta þriðja sætið. Við ætlum
okkur að koma Birni Dagbjarts-
syni á þing, annaðhvort kjör-
dæmakjörnum eða sem uppbótar-
þingmanni.
Allan viðreisnartímann, 1959—
1971, fengum við þrjá þingmenn
kjörna í Norðurlandskjördæmi
eystra, þar af einn uppbótarmann.
í þeim meðbyr, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur nú, er raunhæft
að setja markið ekki lægra en þá.
Björn Dagbjartsson er runninn
upp í þessu kjördæmi. Hann ólst
upp á ágætu menningarheimili í
norðlenskri sveit. Hann er stúdent
frá Menntaskólanum á Akureyri
og vakti þar athygli fyrir dugnað,
gáfur og forystuhæfileika. Grein-
arhöfundi gleymist ekki, þegar
hann var kosinn formaður mál-
fundafélags skólans gegn samein-
uðum vinstri mönnum. Björn kann
að berjast og sigra. Eftir að hafa
farið af heimaslóðum hefur Björn
áunnið sér mikla og haldgóða
sérmenntun á sviði sjávarútvegs
og iðnaðar og starfsreynsla hans
er dýrmæt. Við skulum láta hann
njóta hæfileika sinna og kjördæm-
ið og landið allt hæfileika hans. Ef
við ætlum okkar að fjölga þing-
mönnum úr okkar kjördæmi, þeg-
ar saman eru taldir kjördæma-
kjörnir og uppbótarþingmenn, er
líka vænlegasti kosturinn að efla
Björn til þingmennsku. Alþingi
hefur gott af því að þangað komi
nýir menn sem hafa víðtæka þekk-
ingu á helstu atvinnuvegum þjóð-
arinnar. Allir viðurkenna að kosn-
ingarnar snúist fyrst og fremst
um efling atvinnulífsins. Þar er
grundvöllurinn. Bresti hann, er til
lítils að tala um framfarir í fé-
lags- og menningarmálum.
Gerum ekki einfait mál flókið.
Tryggjum Birni Dagbjartssyni
þingsæti og eflum svo Sjálfstæðis-
flokkinn til nýrrar viðreisnar.
Hann er eina aflið sem nú er fært
um að takast á við þann geigvæn-
lega vanda sem blasir hvarvetna
við, ef við lítum í kringum okkar.