Morgunblaðið - 27.09.1974, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1974
| ÍÞRIÍTTAFRHIIR MORCmHflSIIIS
Einar Einarsson, Fylkismaður, reynir þarna skot að marki tR-inga.
Auðveldir
r_
sigrar IR
og Víkings
Gunnlaugur Hjálmarsson — aldursforseti leikmannanna f Reykjavfk mundar þarna knöttinn fyrir
framan Fylkisvörnina f leiknum f fyrrakvöld.
TVEIR leikir fóru fram f Reykja-
vfkurmeistaramótinu f hand-
knattleik í fyrrakvöld. Fyrst léku
ÍR og Fylkir, en sfðan Vfkingur
og Ármann. Báðir voru leikir
þessir fremur tilþrifalitlir og
buðu heldur ekki upp á neina
spennu, þar sem tR-ingar unnu
Fylki með yfirburðum og Víking-
ur vann sfðan Ármann næsta auð-
veldlega.
ÍR-ingar voru engan veginn
eins frískir i leiknum við Fylki og
þeir voru gegn Þrótti á dögunum.
Þó verður að segjast eins og er, að
Fylkisliðið kom á óvart — það
barðist af dugnaði í þessum leik
og gerði marga hluti laglega. Má
vera, að það verði betra í vetur en
verið hefur að undanförnu.
Lengi vel mátti ekki á milli sjá í
leiknum. ÍR-ingar höfðu þó jafn-
an forystuna, en hafa ugglaust
talið sér öruggan sigur í leiknum
fyrirfram og bentu margar gerðir
þeirra til þess að svo væri. Voru
þeir t.d. stundum ekki fyrr komn-
ir að varnarvegg Fylkis en þeir
skutu, og með misjöfnum árangri.
Staðan í hálfleik var 13:9 fyrir
IR, en í seinni hálfleik dró svo
heldur f sundur og sigruðu iR-ing-
ar í leiknum með 25 mörkum
gegn 17. Langbezti maður ÍR-Iiðs-
ins í þessum leik var Brynjólfur
Markússon, en einnig stóðu þeir
Bjarni og Vilhjálmur sig allvel.
Bezti maður Fylkis var Einar Ein-
arsson.
Tennismeistari
í tugthús
TOMAS Lejus, fyrrverandi sov-
ézkur meistari f tennis og einn
fremsti fþróttamaður heims f
þeirri grein, hefur verið dæmdur
f átta ára fangelsi, en Lejus réð
konu sinni bana, er hann komst
að þvf, að hún notaði tækifærið,
þegar hann var f keppnisferðum,
og átti vingott við kvikmyndaleik-
stjóra f Moskvu.
Seinni leikur kvöldsins milli
Ármanns og Víkings var keimlík-
ur þeim fyrri. Ármenningar
héldu vel í við Víkinga til að byrja
með og var munurinn ekki nema
3 mörk í hálfleik, 12:9. Var það
einkum vörn Armannsliðsins sem
barðist vel í fyrri hálfleiknum, en
þegar hún fór að slappast, náðu
Víkingar öllum tökum á leiknum
og sigruðu með 25 mörkum gegn
18.
Staðan í riðlunum er nú þessi:
A-riðill:
Víkingur 2 2 0 0 47-38 4
Fram 110 0 22-14 2
KR 10 0 1 20-22 0
Armann 2 0 0 2 32-47 0
B-riðill:
IR 2 2 0 0 54-59 4
Valur 110 0 27-14 2
Þróttur 10 0 1 12-29 0
Fylkir 2 0 0 2 29-52 0
Tveir leikir fóru svo fram í mót-
inu í gærkvöldi og léku þá Fram
og KR og Valur og Þróttur.
Finnar hafa forystu
í keppninni við Breta
FINNAR höfðu forystu bæði í
karla og kvennagreinum eftir
fyrri dag landskeppni þeirra og
Breta, sem hófst á Crystal Palace-
leikvanginum f London f fvrra-
kvöld. Eftir fyrri keppnisdaginn
höfðu þeir 55 gegn 48 stigum í
karlaflokki og 35 ,gegn 27 f
kvennaflokki.
I fyrrakvöld voru það einkum
tvær greinar, sem athyglin beind-
ist að: 5000 metra hlaupið og 400
metra hlaup kvenna, en búizt var
við mjög jafnri og harðri keppni í
þessum greinum. I 5000 metra
hlaupinu fóru hlaupararnir þétt
saman og hlupu rólega, unz einn
hringur var eftir, en þá tóku þeir
að auka hraðann svo um munaði.
Lasse Viren, Olympíumeistarinn í
greininni hafði þá forystu og
beindist athygli brezku hlaupar-
anna að honum, en þegar Viren
þótti tími til kominn hljóp hann
út á brautina og sleppti landa
sínum Paivarinta fram úr sér.
Áttuðu Bretamir sig ekki á þessu
bragði fyrr en um seinan —
Paivarinta var búinn að ná því
forskoti sem dugði honum til
sigurs, en Viren mátti hins vegar
hafa sig allan við til þess að halda
öðru sætinu.
I 400 metra hlaupinu mætti
Evrópumeistarinn, Rita Salin,
brezka methafanum Donnu
Murray. Til að byrja með virtust
þær mjög jafnar, en þegar út á
beinu brautina kom, sást, að
finnska stúlkan var orðin vel á
undan og hljóp hún seinni hluta
hlaupsins stórglæsilega og var
tími hennar eftir því: 51,5 sek.
Urslit i einstökum greinum í
fyrrakvöld urðu þessi:
HASTÖKK:
H. Sundell, Finnl. 2,10
A. Personen, Finnl. 2,06
C. Boreham, Bretl. 1,85
400MFTRA HLAUP: D. Jenkins, Bretl. 46,2
P. Karttunen, Finnl. 47,0
R. Jenkins, Bretl. 47,4
S. Lonnquist, Finnl. 48,5
LANGSTÖKK KVENNA: P. Helenius, Finnl. 6,16
R. Martin-Jones, Bretl. 6,09
T. Rautanen, Finnl. 5,88
A. Wilson, Bretl. 5,80
400 METRA HLALP KVENNA:
R. Salin, Finnl. 51,5
D. Murray, Bretl. 52,0
R. Kennedy, Bretl. 53,5
P. Wilmi, Finnl. 53,8
1500 METRA HLAUP KVENNA:
S. Tyynela, Finnl. 4:21,0
P. Yoeman, Bretl. 4:23,3
R. Wright, Bretl. 4:24,7
A. W'irkberg, Finnl. 4:33,9
100METRA HLAUP:
R. Roberts, Bretl. 10,7
R. Vilen, Finnl. 10,7
B. Green, Bretl. 10,9
R. Raty, Finnl. 10,9
KRINGLUKAST:
P. Kahma, Finnl. 59.90
J. Rinne, Finnl. 58,24
B. Tancred, Bretl. 56,84
J. Hillier, Bretl. 54,68
400 METRA GRINDAHEAUP:
B. Hartley, Bretl. 50,9
S. Black, Bretl. 51,8
R. Koiyu, Finnl. 52,0
R. Alanen, Finnl. 55,1
100 METRA HLAUP KVENNA:
M. Pursiainen, Finnl. 11,5
S. Lannaman, Bretl. 11,5
H. Golden, Bretl. 11,9
U. Lax, Finnl. 12,4
Kúluvarp kvenna: C. Barck, Finnl. 15,84
R. Metso, Finnl. 15,71
B. Bedford, Bretl. 15,09
J. Kerr, Bretl. 14,87
5.000 METRA HLAUP:
P. Taivarinta, Finnl. 13:43,4
L. Viren, Finnl. 13:53,4
C. Stewart, Bretl. 13:53,4
T. Simmons, Bretl. 14:14,2
3000 METRA HINDRUNARHLAUP:
T. Kantanen, Finnl. 8:34,4
J. Bicourt, Bretl. 8:41,2
J. Davis, Bretl. 8:53,4
I. Pukkinen, Finnl. 8:59,2
4X100 METRA BOÐHLAUP KVENNA:
Sveit Bretlands 45,0 sek.
Sveit Finnlands 46,1 -
ÞRlSTÖKK:
P. Kuukasjaivi, Finnl. 15,84
D. Johnson, Bretl. 15,52
A. Moore, Bretl. 15,21
J. Marki Maunus, Finnl. 15,17
4X100 METRA BOÐHLAUP KARLA:
Sveit Bretlands 41,3
Sveit Finnlands ógilt
SPJÓTKAST:
H. Siitonen, Finnl. 84,56
S. Hovinen, Finnl. 82,86
D. Davis, Bretl. 79,02
K. Sheppard, Bretl. 76,68
Veiðimenn
spreyta sig
í köstum
LANDSSAMBAND ís-
lenzkra stangaveiði-
manna hefur ákveðið að
halda kastmót n.k. laug-
ardag, 28. september, og
hefst það á grasvellinum
í Innri-Njarðvík kl. 14.00.
Allir áhugamenn um
veiði eru velkomnir til
móts þessa, en keppt
verður í eldri og yngri
deild í eftirtöldum grein-
um:
1. Flugulengdarköst-
um, og þá bæði með heilli
línu og skotlínu. Mesta
þyngd línu er nr. 10.
2. Beitulengdarköst-
um, 10 gr. 1. handar
stöng.
3. Beitulengdarköst-
um, 18. gr. 2. handa stöng
Stengur verða á staðn-
um fyrir þá er það vilja.
Ef áhugi reynist fyrir
slíkum mótum, ætlar
Landssambandið að
gangast fyrir kastmótum
árlega og þá á ýmsum
stöðum á landinu, Á s.l.
hausti var mótið haldið í
Hafnarfirði.