Morgunblaðið - 27.09.1974, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1974
25
Mörgum fannst
langspilið
hið mesta
furðuverk
Rabbað við Önnu Þórhallsdóttur
söngkonu sem er sjötug í dag
— Þegar ég kom heim frá
Danmörku með langspilið
mitt sumarið 1961, fannst
mörgum það hið mesta
furðuverk. Þórarinn Guð-
mundsson sagði mér til
dæmis, að svona hljóðfæri
hefði hann aldrei séð fyrri og
þeir voru fleiri, sem tóku
undir það.
Þetta segir Anna Þórhalls-
dóttir söngkona, en Mbl. átti
við hana stutt samtal í tilefni
af því að hún er sjötug í dag.
Hún hefur ferðast með lang-
spilið sitt víða um landið og
leikið á það og sungið.
— Ég er fædd á Höfn í
Hornafirði, segir Anna — og
í huga mínum er ég alltaf
Hornfirðingur, þótt ég hafi
búið hér í Reykjavík í 46 ár.
Til Reykjavíkur kom ég fyrst
árið 1 91 9 og gekk á Kvenna-
skólann. En árið 1923 hélt
ég til söngnáms í Danmörku
og sótti einkatíma hjá
Kristine Hoffmann, sem var
norskur kennari og skrifaði
auk þess um tónlist.
Eftir að ég kom heim starf-
aði ég sem símstöðvarstjóri á
Höfn f Hornafirði í tvö og
hálft ár, en réðst síðan til
Bæjarsímans og síðan til
Landsímans.
Aðspurð um, hvenær hún
hefði síðan snúið sér að söng
að nýju sagði Anna:
— Ég veiktist 1945 og
fékk frí frá vinnu um hríð. Fór
þá í Juliardtónlistarskólann f
New York, frægan og mikils-
metinn skóla og var þar í 2
skólaár. Eftir að heim kom
söng ég víða á skemmt-
unum, og á samkomum og í
kirkjum. Ég söng bæði klass-
iska tónlist og kirkjulega tón-
list. Árið 1958 kom út plata
með íslenzkum sönglögum í
flutningi mínum og held ég
að mér sé óhætt að segja að
sú plata hafi víða farið. Á
næstunni er væntanleg
önnur plata, þarsem ég syng
og leik undir á langspil. Eru
34 gömul íslenzk lög á þeirri
plötu og er hún gefin út í
Mílanó.
— En hvenær kemur svo
langspilið til sögunnar?
Ég hafði heyrt um langspil-
ið, segir Anna. — Og þegar
ég var í Kaupmannahöfn
1960 benti próf. Jón Helga-
son mér á að í Musik
Historisk Museeum væru
þrjú íslenzk langspil og ég
skoðaði þau og fékk svo
smíðað eftir þeim. Þessi þrjú
höfðu varðveitzt frá árinu
1770, en áður hafði ég
kynnt mér að á Þjóðminja-
safninu hér var þá ekkert
langspil. Það tók eina fjóra
mánuði að smíða hljóðfærið
og þá átti ég eftir að læra á
það. Aftur var Jón próf. mér
hjálplegur og benti mér á að f
Konunglegu bókhlöðunni
væri að finna pésa eftir Ara
Sæmundssen, amtmanns-
skrifara á Akureyri um hvern-
Anna Þórhallsdóttir söng-
kona. Myndin tekin þegar
hún var við nám í New
York.
ig ætti að leika á það og eftir
honum lærði ég að mestu, en
þó ekki allt um stillingu hljóð-
færisins, sem er vandasöm.
Mér tókst að grafa upp lexi-
kon, þar sem sagði frá því og
tóku nú við langar og strang-
ar æfingar.
— Ég spilaði síðan opin-
berlega á langspilið í fyrsta
skipti fyrir norska útvarpið
sumarið 1961 áður en ég
kom heim. Og hér heima hef
ég víða farið og leikið á það
og sungið. Meðal annars fór
ég í ferðalag um landið árið
1966 og kom fram á
fimmtán stöðum, spilaði og
söng.
Kannski má segja ég hafi
farið með eins konar list um
landið þá — á eigin vegum
þó, segir Anna og hlær við.
Nú oft hef ég spilað og
sungið á sjúkrahúsum, á
Hrafnistu, Reykjalundi og
víðar. Sjaldnast hef ég aug-
lýst, þetta hefur verið dægra-
stytting fyrir mig og vonandi
einhver skemmtan fyrir
áheyrendur mfna og ég
vonast til að halda áfram.
— En eitt sérstaklega
hjartfólgið mál á ég núna,
segir Anna.
— Það er að koma aftur
upp gömlu tveggja strengja
fiðlunni, en hún hvarf úr ís-
lenzku þjóðlífi um 1 800, að
því er talið er. Til þess þyrfti
ég að fara til útlanda, því að
hér fengist hún vart smíðuð.
En verkefnið er sannarlega
verðugt, að mínum dómi
Geta má þess að lokum að
Anna hefur einnig sent frá
sér eina bók „Brautryðjendur
á Höfn í Hornafirði" og fjallar
bókin um ævistarf foreldra
hennar þar, uppbyggingu
Hafnar og atvinnulíf.
Anna Þórhallsdóttir dvelur
á æskuslóðum sínum í
Hornafirði á afmælisdaginn.
— Afkoma
verzlunar
Framhald af bls. 5
Runólfur Pétursson
formaður Iðju:
„Óánægðir með
að dreif a þessu
á yfirvinnu og
næturvinnu”
RUNÓLFUR Pétursson for-
maður Iðju sagði: „Ég er
óánægður með, að þessu skyldi
dreift yfir á eftirvinnu og
næturvinnu. Þetta kostar það,
að stór hópur af okkar fólki,
sem ekki hefur eftirvinnu og
því síður næturvinnu, fær
þarna minna en ef þetta hefði
aðeins komið á dagvinnuna eins
og við vildum. Og svo getur það
komið lfka, ef samdráttur
verður, að dragi úr eftirvinnu
og næturvinnu og þá höfum við
samið nokkuð mikið af okkur,
miðað við það, að hækkunin
hefði komið hrein á dagvinnu-
tekjurnar. Þetta er hlutur, sem
við Iðjumenn erum óánægðir
með, en kemur aftur á móti til
góða fyrir verkamannasam-
böndin og sveinafélögin, sem
hafa að segja má fasta eftir-
vinnu. Þau fá tiltölulega meiri
launahækkun en lægst launaða
fólkið, sem er iðnverkafólk.
Annars er lítið meira um þetta
að segja á þessu stigi, þar til
maður hefur séð og getað kynnt
sér reglugerðina".
Stjórn BSRB
mótmælir
EFTIRFARANDI tillaga var
samþykkt á fundi stjórnar
Bandalags starfsmanna rfkis og
bæja 23. sept. s.l.:
„Stjórn BSRB mótmælir þvf,
að ríkisstjórnir rjúfi gerða
samninga og svipti opinbera
starfsmenn umsaminni verð-
lagsuppbót í heilt ár, jafnfram
þvf sem þegar hafa orðið og
fyrirsjáanlegar eru verulegar
hækkanir vöru og þjónustu. Af-
leiðing þessa er einhver mesta
kjaraskerðing, sem orðið hefur
i einum áfanga.
Láglaunauppbætur þær, sem
áformaðar eru, munu hvergi
nærri nægja til að bæta kaup-
skerðingu opinberra starfs-
manna, sem alls engar bætur
fær, hefur nú þegar verið svipt-
ur með vísitöluskerðingu þeirri
20% launahækkun að meðal-
tali, sem samið var um f síðustu
kjarasamningum og fyrirsjáan-
legar eru álíka verðhækkanir,
sem launafólki er ætlað að bera
bótalaust.
Bandalagsstjórnin ákveður
að láta gera ítarlega greinar-
gerð um kjaraskerðingu opin-
berra starfsmanna og leggja
hana fyrir á formannaráð-
stefnu BSRB, sem haldin verð-
ur 9.—11. okt. n.k. og fjalla
mun um efnahagsmál."
Bankamenn mót-
mælakjara-
skerðingu
MORGUNBLAÐINU barst í
gær fréttatilkynning frá Sam-
bandi íslenzkra bankamanna,
þar sem stjórn þess mótmælir
þvf, að ríkisstjórn rjúfi gerða
kjarasamninga með lagaboði.
Fréttatilkynningin er svohljóð-
andi:
„Stjórn Sambands fsl. banka-
manna mótmælir því, að rfkis-
stjórn rjúfi gerða kjarasamn-
inga með lagaboði.
Afleiðing þess að svipta
bankastarfsmenn verðlagsbót-
um í meira en heilt ár er meiri
kjaraskerðing en þekkzt hefur,
að við það bætist, að ekki hefur
komið fram, að settar verði
hömlur á verðhækkanir og virð-
ist þvi stefnt út í óvissuna með
það, hver kaupmáttur launa
verður á næstu mánuðum.
S.I.B. telur, að grundvallar-
atriði sé að miða við lágmarks-
kaupmátt launa, þegar gerðar
eru slfkar kjaraskerðingarráð-
stafanir.
Láglaunauppbætur þær, sem
fyrirhugaðar eru, munu hvergi
nægja til að mæta umræddri
sviptingu verðlagsuppbóta.
Þá verður S.I.B. að benda á,
að á öllum tímum hafa dýrtíðar-
ráðstafanir stjórnvalda bitnað
fyrst og fremst á fastlauna-
mönnum og verður að leggja á
það áherzlu, að stefnubreyting
verði þar á.
Stjórn S.I.B. telur, að kjör
fastlaunamanna séu ekki sú
meinsemd, sem gerir kjara-
skerðingarráðstafanir nauðsyn-
legar, því til staðfestingar má
benda á síðustu kjarasamninga
S.I.B. og bankanna.
Stjórn S.I.B. hefur ákveðið
að láta fara fram könnun á
þeirri kjaraskerðingu, sem
orðin er og verða mun í næstu
framtið, og verður niðurstaða
þeirrar könnunar send fjöl-
miðlum.“
þeim f jölgar
sem fara i
sólarfri
i skammdeginu
■ -;i
JL -• .. '*■ "S’ ^
ÉSI&ÍÍfií
31.400. V?
ifslátt. sé
um
Vegna slfellt aukinna viðskipta
og langrar reynslu okkar á
Kanaríeyjum getum við boðið
ferðir þangað á besta fáanlega
verði. Þannig kostar 2ja vikna
ferð nú frá krónum 28.800 og
3ja vikna ferð kostar frá krón-
einmg
hópafslátt, senp Tfimur 2.500
krónum á manrr ef um er að
ræða 30 manna félagshóp eða
stærri.
Þetta hagstæða verð gildir jafnt
fyrir alla okkar viðskiptavini.
Upplýsingar um Kanaríeyjaferðir hjá skrifstofum
flugféíaganna og umboðsmönnum þeirra
FLUCFÉLAG LOFTLEIDIR
ÍSLANDS