Morgunblaðið - 27.09.1974, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1974
Er dýrt
að vera
hestamaður?
ÍSLENZKI hesturinn hefur frá
upphafi byggðar í landinu verið
fbúum landsins samferða í lffs-
baráttunni, í fyrstu sem þarfasti
þjónninn, en nú sfðar sem einn
þáttur í frfstundaiðju lands-
manna. Það kann að ráða miklu
um þann almenna áhuga á
hestum, hversu lengi hann hefur
verið samferða þjóðinni, og sagt
hefur verið, að fáir séu þeir Is-
lendingar, sem vildu varpa frá sér
áhyggjum hins daglega amsturs
og setjast á bak íslenzkum hesti
og njóta þess að fara um íslenzka
náttúru. Það er ekki margt, sem
jafnast á við að heyra hófatak
blandast árnið og fuglasöng í
lofti.
Mbl. leitaði upplýsinga um,
hvað kostaði að byrja í hesta-
mennsku, það er að kaupa sér
hest og reiðtygi, sem hverjum
hestamanni eru nauðsynleg.
Eftir því sem næst verður
komizt er verð reiðhesta á bilinu
80.000 til 120.000 kr., en tamdir
hestar, sem ekki búa yfir sér-
stökum hæfileikum.en eru þægir,
eru seldir fyrir 60.000 til 80.000
kr.
Verð á ótömdum 4 til 6 vetra
folum, sem ekki eru sérstaklega
valdir, er 50.000 til 60.000 kr.
Ekki er vitað, hvað folaldaverð
verður á þessu hausti, en á s.l.
hausti voru óvalin folöld. seld á
15.000 til 20.000 kr.
Hér hefur aðeins verið nefnt
algengasta verð, en vitað er um
hross, sem seld hafa verið fyrir
mun hærra verð, og er þar í
flestum tilfellum um úrvalsgripi
að ræða, eða gripurinn á ætt sfna
að rekja til þekktra kynbóta-
hrossa.
Við könnun á verði reiðtygja
kom f ljós, að töluverður verð-
munur er milli verzlana. Hjá Þor-
valdi Guðjónssyni, söðlasmið,
fékk blaðið þær upplýsingar, að
íslenzkur hnakkur væri seldur
fyrir 40.000 kr. og óvíst er, hvort
það verð breytist á næstunni. Það
kom fram í samtali við Þorvald,
að mikil eftirspurn er eftir
hnökkum til útlanda. Beizli með
hringamélum og múl kosta hjá
Þorvaldi 8.500 krónur.
Nokkrar sportvöruverzlanir
hafa á síðustu árum hafið sölu á
innfluttum reiðtygjum. Blaðið
leitaði til þriggja verzlana um
verð á þessum vörum.
Hákon Jóhannsson í verzlun-
inni Sport sagði, að verzlun sín
flytti inn enska og hollenzka
spaðahnakka og væri verð þeirra
frá 25.000 upp í 30.000. Verð
beizla er á bilinu 5.000 til 6.000
krónur. Af öðrum hlutum, sem
hestamenn hafa not fyrir, má
nefna reiðstígvél á 1.500 krónur,
reiðbuxur á 5.000 til 6.000, reið-
hjálma á 1.555 krónur og keyri
500 til 700 krónur.
I verzluninni Goðaborg fást
spaðahnakkar á 20.000 til 30.000
kr. Verð beizla er 2.000 til 3.000
krónur. Að öðru fyrir hestamenn
má nefna leðurstígvél á 8.135,
reiðbuxur á 4.000 til 5.000, reið-
hjálma á 1.275 krónur og keyri á
300 til 1.000 krónur.
Hjá verzluninni Útilff varð
fyrir svörum Bjami Svein-
bjarnarson og sagði hann, að verð
hnakka hjá verzluninni væri frá
30.000 upp f 50.000 kr., en þetta
eru enskir hnakkar. Verð beizla
er mismunandi eftir gerðum,
höfuðleður með taum kostar
| 3.500, hringamél frá 1.000 upp í
2.500, stengur frá 1.400 til 2.200
og múll kostar 1.200 krónur. Verð
á reiðstígvélum er 1.200 til 2.350
og reiðbuxur kosta frá 2.990 og
upp í 6.500 kr. Af öðrum hlutum
fyrir hestamenn hjá verzluninni
má nefna járningartæki, orma-
lyfsbyssur og klórur.
En ekki er nóg að eiga hest og
reiðtygi, hesturinn þarf sitt fóður,
því Ieitaði blaðið til Bergs
Magnússonar, framkvæmdastjóra
Hestamannafélagsins Fáks og
spurði hann, hver fóðurkostnaður
við hest væri.
Bergur sagði, að skipta mætti
árinu f tvö fóðurtímabil. Hestar
væru yfirleitt hafðir á húsi
mánuðina nóvember til og með
maf, en þetta fer þó mikið eftir
tfðarfari.
Á s.l. vetri nam kostnaður við
að hafa hest í hesthúsum Fáks um
3.400 krónum á mánuði. En þessi
kostnaður skiptist þannig, að bás-
leiga fyrir veturinn var 5.400
krónur og fóður og hirðing var 80
krónur á dag. Meðalfóðurdagar á
hest voru 160 til 170. Miðað er við
að gefa hverjum hesti 5 kg af heyi
og 1 kg af graskögglum á dag og 1
kg af hesthöfrum í 2 til 3 mánuði.
Líkur er fyrir, að fóðurkostnaður
hækki nokkuð í vetur, t.d. hefur
heyverð hækkað um helming og
f óðurbætir hækkar stöðugt.
Á öðrum tíma ársins eru hestar
hafðir f haga. Beit hjá Fáki
kostaði í sumar 700 krónur á
mánuði og er þá miðað við, að
smalað sé í stórum girðingum, en
í þeim minni eru réttir, þannig að
hver og einn geti haft hönd á
hesti sínum.
Mikið hefur á undanförnum
árum verið byggt af sjálfshirð-
ingarhesthúsum og hirða hesta-
menn þar sjálfir hesta sfna og
njóta þess að umgangast þá. Því
miður liggur ekki fyrir, hvað
kosti að hafa hest í slíkum húsum,
því mjög er mismunandi, hvað
menn telja sér til kostnaðar.
Nauðsynlegur liður i hestahaldi
eru járningar, en gera má ráð
fyrir, að járna þurfi hest 4 til 5
sinnum á ári. Kostnaður við að
járna hest er 700 krónur, en
gangurinn af skeifum kostar 750
krónur.
Ekki er hér dregin saman nein
niðurstaða, þvf að möguleikarnir
eru margir, og geta menn nú lagt
saman, hver fyrir sig.
Garöhellur
Brotsteinar
Fyrirliygjandi ma Hellur 40x40, 20x40. 50x50. 25x50.
fiðnldishellur, 2 gerðir sexkanta, troppusteinar, kantstemar. brotsteinar
í vegghleðslur og brunnhleðslustemar Ennfremur 2 gerðir af 40x40
rákuðum i 1 0 cm reiti (Austurstrætishellur)
Opið virka daga 8 —19 og laugardaga 14—1 6.30 a.m.k.
Tjelluval
Hafnarbraut 1 5 ^
Kópavogi Sími42715 ■
(Yzt á Kársnesinu)
SAAB99
Árgerðir 1975 hinna ýmsu
bílategunda streyma nú til
landsins og leit undirritaður á
einn slikan nýverið. Hér er
um að ræða Saab 99. Bíllinn
kostar nú eftir hækkanir um
kr. 11 50 þúsund með teppi,
klukku, framsætum m. háu
baki og krómlistum kring um
rúður. Vissulega mikil hækk-
un en Fiat 127 kostar líka
yfir kr. 500 þúsund . . .
Saab 99 hefur ekki breytt
um útlit en ýmsar smábreyt-
ingar hafa verið gerðar til að
nýjasta árgerð hafi eitthvað
framyfir þá næstu á undan.
Vélin sem er fjögurra strokka
og drífur framhjólin hefur nú
5 hestöflum meiri kraft en
áður, semsagt 110 hestöfl
(SAE). Bíllinn vegur tómur
1200 kg. Viðbragðið er um
14 sekúndur frá 0—100
km/klst og er hámarkshrað-
inn yfir 1 60 km/klst. Bensín-
eyðslan er aðeins um 9— 1 0
1/100 km. Bensíngeymirinn
tekur 55 lítra. Fullur tankur
kostar þannig 2640 kr. (48
kr/lítrinn), og á honum má
aka næstum 600 km, sem er
ágætt.
Saab 99 hefur diska-
bremsur á öllum hjólum,
stærri diska en áður, tvöfalt
bremsukerfi og handbremsu
sem virkar á framhjólin beint
á diskana og er sjálfvirk úti-
hersla á handbremsunni.
Gæti ekki verið öruggara? —
Svo vildi hins vegar til er
undirritaður reyndi splúnku-
nýjan bílinn og hafði keyrt
nokkra stund með þessar
fínu bremsur, að bremsu-
pedalinn fór alveg mótstöðu-
laust niður í gólf. Hand-
bremsan var sem betur fer í
góðu lagi og stöðvaði bílinn
örugglega. í Ijós kom að
splitti, sem heldur pedal-
anum hafði dottið úr og í
slíku tilfelli er lítið gagn að
tvöföldu bremsukerfi. En
þetta er óvenjuleg bilun og
hverfandi líkur á endurtekn-
ingu. — Bremsurnar eru
annars mjög góðar.
Bíllinn var áður nokkuð
þungur í stýri eins og verða
vill með framdrifna bíla, en
nú hefur stýringin verið létt
til muna. Þeir, sem vilja, eiga
samt kost á vökvastýri.
Bíllinn gekk fremur óreglu-
lega meðan hann var kaldur
á handstýrðu innsoginu, en
hann hitnar fljótt og gengur
þá vel. Svisslykilinn er ekki
hægt að taka úr nema bíllinn
sé í afturábakgír og virðist
það fremur óþægilegt í
fyrstu, en venst. Þetta kemur
í stað stýrislæsingar. Sviss-
inn er niðri á milli framsæt-
anna, en ekki í mælaborðinu
eða á stýrisstöng, eins og
algengast er. Hitastrengir eru
ekki í afturrúðu, en i stað
þeirra er öflugur blástur á
rúðuna, sem er stjórnað með
Saab 99
tökkum á milli framsætanna.
Miðstöðin er góð, tveggja
hraða en með hávaðasömum
blásara. Það er merkilegt
hvað bifreiðaframleiðendum
virðist erfitt að setja hljóð-
látar miðstöðvar í bíla sína.
Að öðru leyti er Saabinn
hljóðlátur.
Krafturinn er góður og bíll-
inn er þægilegur í akstri og
liggur mjög vel; þó er hann
nokkuð hastur í miklum
holum, a.m.k. meðan hann
er nýr. Framhjóladrifið er
væntanlega mesti kostur
hans. Gírskipting er nokkuð
þung, en ekki stirð.
Sætin eru þægileg, sér-
staklega framsætin með háu
bökunum. Áklæðið er úr
einhvers konar nælon-
blöndu, sem hefur þann kost
að þola neista eða jafnvel
sígarettuglóð án þess að á
sjái. Útsýni úr Saab 99 er
mjög gott, sérlega fyrir öku-
mann, þar sem vélarhlífin
hallar fram á við og framrúð-
an er mjög stór og glugga-
póstar litlir. Bíllinn er vel
bólstraður að innan og
með öryggisstuðurum, sem
raunar hafa verið frá 1971.
Rúllubelti eru I bílnum bæði
frammí og afturí, sem að eru
mikil þægindi. Stjórntækjum
er mjög vel fyrir komið og
sést vel á þau.
Umboðið hefur Sveinn
Björnsson og Co., Skeifunni
1.
br.h.
Bremsustilling.