Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1983, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1983, Blaðsíða 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. JtJLl 1983. 31 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Svíasvínarí Metnaðargjamir iðkendur skáklistarinnar hér á landi munu ná heldur sárlr út i stjóra skáksambandsins vegna vals á fulltrúum ts- lands á Skákþing Norðnr- landa. Annar fulltrúa islands er nefnilega Dan Hanson sem er Svíl. Það athyglisverða við þetta er að Dan þessum var heimilað að taka þátt í Meist- aramóti tslands í skákiþrótt- innl, með því skilyrði þó, að jafnvel þótt hann ynni, g*ti hann ekki orðlð tslandsmeist- ari af því að hann væri út- lendlngur! Er nema von að menn svíi undan svonaiöguðu? (þróttagarpurinn Það er almennt skoðun Reykvikinga að landbúnaðar- ráðherrar séu slæmir. En þó er þeim ekki alls varaað. Pálmi Jónsson frá Akri, til Pálmi Jónsson: frækinn íþróttamaður. dæmis, hefur verið mikill af- reksmaður í iþróttum á sín- um yngrl árum. Hann mun enn eiga héraðsmet i A-Húna- vatnssýslu i flmm greinum frjálsra íþrótta, þ.e. 400, 800 og 1500 metra hlaupum, iang- stökki og þristökkl. Þetta munu vera með eldri glldandi metum i frjálsum iþróttum! Dýr þingheimur Nú hefur, eins og aillr vita, verið koslð nýtt þlng, (þó að rfklsstjórain vilji sem mlnnst af því vita). Þar er nokkur hópur nýrra þingmanna, og þar með auðvitað er nokkur hópur fyrrum þingmanna sem féllu út. En þeir þlggja þó allir laun enn. Þvi fallnir þingmenn fá blðlaun i þrjá mánuði eftir að þlngsetu lýk- ur og þeir, sem hafa setið fleiri en tiu þing, fá biðlaun í sex mánuði. Nú munu aUs sjötiu og tveir þiggja þing- mannslaun, eða tólf umfram fjölda þlngmanna. Það er greinUega dýrt fyrir kjósend- ur að feUa þlngmenn! Þjóðaratkvæði Nú hafa bindindismenn á SeUossi kært atkvæða- greiðslu um opnun áfengisút- sölu þar i bæ, en SeUyssingar Baldur MöUer: eftlrUt með þjóðaratkvæðagreiðslu Sel- fysslnga. samþykktu tUlögu þess efnis i atkvæðagreiðslu sem fór fram um leiö og koslð var tU þings. I vlðtali við Baldur MöUer ráðuneytisstjóra um þetta mál, sem blrtist í Tím- anum, segir Baldur að hlut- verk ráðuneytisins sé að „hafa eftlrUt með svona þjóð- aratkvæðagrelðslu.. Ekki vissum viö fyrr að Sel- fyssingar litu svo stórt á sig. Ótrúlegt, en satt! „Aftaka morðingja er ekki Ufsnauðsyn’’ Svo seglr að minnsta kosti i mUlifyrirsögn í Helgarblaði Tímans. Ekki útlitsins vegna Meðal fjölda útvarpsleik- rita sem fyrirhugað er að ylji eyrum landsmanna á næst- unni mun vera leikritið „Flóðhestarair”, eftir hinn rúmenska absúrdista Iones- co. Það seglr ekki fagra sögu af samheldni eður stéttarvit- und meðal lelkara að þegar velþekktur lelkari hér í bæ frétti af því að tUteklnn sam- borgarl hans hefði fengið hlutverk í því ieikrlti sagði | Ionesco sá, sem skrUaði „Flóðhestana”. hann: „Þetta er mér óskUjan- legt! Þetta er útvarpsupp- færsla, svo ekki hefur það verið útlitsins vegna! ” Kvikmyndir Kviklnyndir Utt spennandi leikfang — Richard Pryor bjargar þó miklu Leikfangið (Tha Toy). Leikstjóri: Richard Donner. Aðalhlutverk: Richard Pryor, Jackie Gleason, Scott Schwarz, Ned Beatty, Teresa Ganzel o.fl. Tónllst: Patrick Williama. Handrit: Caroi Sobieakl. Myndataka: Laszlo Kovacs. Bandarísk, frá 1982. Hér er komin ein þessara „afar skemmtilegu, bandarísku gaman- mynda”, sem er þó ekki skemmti- legri en svo aö á þeirri sýningu sem undirritaður sá var hláturinn eins og kreistur fram i þau fáu skipti sem færi gafst. Það var þá Richard Pryor sem hann vakti. Hér segir af Jack nokkrum Brown, sem í upphafi er atvinnulaus blaðamaður i ónefndum amerískum bæ, og ó hann í miklum fjórhags- kröggum. Hann verður sér úti um þvottakonu- og þjónustustarf hjá vellríkum forstjóra, UJS. Bates, sem á nær aHt í bænum. Karlinn er tvífrá- skilinn, en nú kvæntur í þriðja sinn. Einn son á hann, Eric. Strákgreyið á öll heimsins leikföng en er mjög ónógur sjálfum sér. Eitt sinn fær Eric að velja sér leik- fang úr magasini fööur síns og dettur þá niður á þvottakonu með yfir- skegg, Jack Brown. Hann verður síöan „leikfang” stráksins. Meö tímanum þróast með þeim mikil vin- átta þó Brown sé lengstum afar ósáttur við þetta nýja starf sitt. Með ærinni fyrirhöfn tekst Brown að sannfæra karlinn UB. um gildi vin- óttu og kærleika og aö hamingjan verði ekki keypt fyrir peninga. Brown fær að endingu umbun erfiðis síns: blaðamannsstarf hjó bæjar- blaðinu sem er í eigu U S. Bates. Leikfangiö er kvikmynd sem ugg- laust ó eftir að njóta vinsælda hér en að mínum dómi hefur aðstandendum mistekist hrapallega að gera almennilega gamanmynd. öll upp- bygging myndarinnar er með þeim hætti að atriöi sem hefðu getaö orðið fyndin forklúörast í höndum leik- stjórans og eru allt of löng. Richard Pryor, sá ágæti leikari, bjargar þó því sem bjargaö verður og ó oft ágæta spretti með hinum unga leik- araScottSchwarz. Á köflum er myndin langdregin (sem gamanmynd á aldrei að þurfa að vera) og væmin (hvenær sleppa amerískar myndir svo sem við það?). Jackie Gleason, sem kunnur hefur verið sem gamanleikari vestra, er hér í átakalitlu hlutverki og olli hann mér vonbrigðum. Myndataka Laszlo Kovacs (hann tók t.d. Easy Rider og Five Easy Pieces) megnar þvi miður ekki aö gleðja augað. Leikfangiö er í stuttu móli mynd sem engan veginn er hægt að mæla með, nema menn séu þeim mun meiri aðdóendur Richards Pryor. Pétur Ástvaldsson. Stjörnubíó — Leikfangið: Kvikmyndir Kvikmyndir FÍB FÉLAGAR ATHUGIÐ Félag íslenskra bifreiðaeigenda efnir til fulltrúakjörfundar fyrir umdæmi 1, höfuðborgarsvæði, þriðjudaginn 12. júlí nk., á skrifstofu félagsins að Borgartúni 33, Reykjavík, kl. 20.30. Dagskrá fundarins: Kjör fulltrúa til fulltrúaþings FlB. Atkvæðisrétt hafa allir fullgildir félagsmenn FlB sem greitt hafa árgjaldið 1983 og framvísa félagsskírteini við inngang- inn. Stjórn Félags íslenskra bifreiðaeigenda. hina frábæru mynd frumsýnir B. Baker (KENNY ROGERS) var svo til úrbræddur kapp- akstursbflstjóri og framtíðin virtist ansi dökk, en þá komst hann í kynni við „Sex-pakkann” og allt breyttist á svipstimdu. Framúrskarandi skemmtileg og spennandi ný bandarísk gamanmynd með „kántrí”-söngvaranum fræga Kenny ROGERS ásamt DIANE LANE og „SEX—PAKKANUM”. Mynd fyrir alla f jölskvlduna. Sýndkl. 5,7,9 og 11.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.