Morgunblaðið - 31.10.1999, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1999 49
BREF TIL BLAÐSINS
Rangar upplýsingar
um launamun kynjanna
Frá Davíð Gunnlaugssyni:
LAUNAKÖNNUN sem gerð var
fyrir VerslunaiTnannafélag
Reykjavíkur hefur vakið mikla at-
hygli. Einkum upplýsingar um
mun á launum kynjanna. I auglýs-
ingu frá VR er því haldið fram að
munur á launum fólks, eftir kyni,
sé 30%. Þetta er rangt.
I auglýsingunni er því haldið
fram að karlar hafí 30% hærri laun
en konur. Þá er hins vegar bara
reiknaður munurinn á heildarlaun-
um fyrir skatta og ekki tekið tillit
til þátta eins og að um mismunandi
störf sé að ræða, mismikla reynslu
og ábyrgð, að karlarnir vinni leng-
ur, vinni meiri aukavinnu og þess
að hluti kvennanna (16,3%) var í
hlutastarfi en aðeins 0,8% karl-
anna. Hér er því um blekkingar að
ræða.
Þá er látið ógert að nefna ýmsa
mikilvæga þætti varðandi fram-
kvæmd könnunarinnar. Hún var
gerð þannig að fólk átti sjálft að
skrá laun sín og gat því ráðið upp-
hæðinni! Það er þekkt atriði við
framkvæmd skoðanakannana að
konur draga frekar úr á meðan
karlar eru gjarnari á að ýkja. Ekki
var tekið tillit til slíkra þátta.
Einnig var látið ónefnt að einungis
30% þátttakenda svöruðu og að að-
eins var unnt að greina svör frá
tæpum 22% heildarúrtaks. Enn
eitt atriði sem taka hefði átt með í
reikninginn er að svarhlutfall var
lægst hjá yngsta aldursflokknum
þar sem launamunur er talinn
minnstur eða enginn.
Niðurstaðan er því frekar sú að
munurinn á launum kynjanna sé
mun minni en áður. Að beita blekk-
ingum eins og þeim sem hér voru
nefndar skaðar alvöruumræðu um
mál sem þessi.
DAVÍÐ GUNNLAUGSSON,
viðskiptafræðinemi, Þverárseli 20,
Reykjavík.
Mataróregla
Ertu með mat á heilanum?
Nýtt námskeið að hefjast fyrir ofætur. Einnig
stuðningshópur fyrir bulimíur og anorexíur.
Stuðst er við 12 spora 0-A kertið. Ef farið er eftir
sporunum má vænta bata.
Kl
%
Upplýsingar eru gefnar frá kl. 19—21 í síma 552 3132,
annars símsvari.
Inga Bjarnason.
S)
Sölusýning
á nýjum og gömlum handhnýttum, austurlenskum
gæðateppum á Grand Hótel Reykjavík
í dag, sunnudag,
frá kl. 13-19
Ný sending - glæsilegt úrval
Berið saman úrval, verð og gæði
10% staðgreiðslu-
afsiáttur
HÓTEL
REYKJAVÍK
BE
RABBREIDSLUR
sími 861 4883
inning Sal es Stral tegi es
s ölunámskeið í a lgjörum séi rfloki ki
Sölunámskeið fyrir framkvæmdastjóra, sölu- oj markaðsstjóra, kröftuga og efnilega sölumenn J
Dagur: 8. nóvember 1999 Tími: 9:15-17:00 Staöur:Grand Hótel
Krish Dhanam
fyrirlesari
er framkvæmdastjóri þróunar- og
alþjóðasviðs Zig Ziglar Corporation.
Hann er Indverji að uppruna Hann
er menntaður á sviði almannatengsla
og markaðsmála hann er nú einn af
eftirsóttustu fyrirlesurum
Bandaríkjanna. Fyrirlestrar hans eru
mjög líflegir og efnið innihaldsríkt.
Zig Ziglar Corporation er
leiðandi fyrirtæki í sölunámskeiðum í
#
Bandaríkunum. I um 30 ár hefur
fýrirtækið sérhæft sig í námskeiðahaldi
í sölu, þjónustu og persónuuppbyggingu.
Zig Ziglar sér um námskeið fyrir mörg
stærstu fýrirtæki Bandaríkjanna. Zig
Ziglar býður m.a. upp á eitt fárra
sölunámskeiða í heiminum með
ISO staðli.
Verð: kr. 27.500.-
Innifalið: Námskeiðsgögn, hádegisverður og kaffíveitingar.
Ef þú ert ekki ánægður með námskeiðið getur þú skilað námskeiðsgögnum og fengið gjaldið endurgreitt.
Ef þrír skrá sig frá sama fýrirtæki fær fjórði starfsmaður frítt. Ef sjö skrá sig frá sama fýrirtæki fá þrír frítt.
Skeifunni 7, 2.h., 108 Reykjavík, sími 5100 900, fax 5100 901, tölvupóstur: brefask@ismennt.is
i