Morgunblaðið - 31.10.1999, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
íslenski hesturinn sjónvarps-.
..... oj/ , öá
\|/, 'V/
tQf^Au
Mcð 3 x zoom • 2,1 milljón punkta upplausn
(1600 x 1200 ) • Með tengi fyrir utanáliggjandi
flass • Hægt að tengja við sjónvarp • Hægt að
vista sem tiff og jpeg • Fjarstýring fylgir • Tekur
32mb smartmedia kort ( 8mb fylgir mcð) • Getur
tekið 45 myndir i röð, 2 á sekúndu • Hægt að
fá aukalinsur
Alþýðubandalagsfélög
í Reykjavík
Gengið frá
sameiningu
Á FRAMHALDSAÐALFUNDI
Alþýðubandalagsfélags Reykjavík-
ur var gengið frá sameiningu Al-
þýðubandalagsfélaganna ABR og
Birtingar-Framsýnar en á aðal-
fundi Birtingar-Framsýnar sl. mið-
vikudag var samþykkt að félagið
yrði lagt niður sem stjórnmálafélag
en sækti þess í stað um aðild að
ABR.
Á aðalfundi ABR var kjörin ný
stjóm og skipti hún með sér verk-
um strax að loknum framhaldsað-
alfundinum. Stjómina skipa:
Heimir Már Pétursson formaður,
Kristinn Karlsson varaformaður,
Herbert Hjelm gjaldkeri og Nanna
Rögnvaldardóttir ritari. Með-
stjórnendur em Helgi Hjörvar,
Sjöfn Kristjánsdóttir og Guðrún
Sigurjónsdóttir.
Ný stjóm ABR mun vinna eftir
samþykkt félagsins um þátttöku í
stofnun samfylkingarfélags í
Reykjavík og er sú vinna hafin.
Sófar* stólar
Sófi Alma Clara 150.000,- kr.
Stóll Óskar 28.000,- kr.
höfðatúni 12 105 reykjavík
sími 552 6200 552 5757
ser
Ffus
Igögn
Dagskrá um Jóhannes úr Kötlum
Hundrað ár
frá fæðingu
skáldsins
HINN 4. nóvember
nk. eru 100 ár síð-
an Jóhannes úr
Kötlum fæddist. Það
fimmtudagskvöld gang-
ast Félag íslenskra
fræða, Landsbókasafnið
- Háskólabókasafn og
Þjóðminjasafnið fyrir
dagskrá um skáldið og
verk hans í Þjóðarbók-
hlöðu og þefst hún klukk-
an 20. Armann Jakobs-
son er formaður Félags
íslenskra fræða, hann var
spurður nánar um efni
þessarar dagskrár.
Hún er mjög marg-
þætt, bæði mun Baldvin
Halldórsson lesa ljóð eft-
ir skáldið, Háskólakórinn
undir stjórn Egils Gunn-
arssonar mun flytja
nokkur lög við ljóð eftir
Jóhannes og Eysteinn
Þorvaldsson bókmenntafræðing-
ur mun halda erindi um skáldið
og verk hans. Þá mun fjölskylda
Jóhannesar úr Kötlum afhenda
gögn um skáldið, svo sem hand-
rit hans, myndir og fleira. Árni
Björnsson verður kynnir á þess-
ari dagskrá. Um leið verður opn-
uð sýning um Jóhannes og verk
hans í anddyri Þjóðarbókhlöðu.
Á þessari sýningu verða alls
kyns hlutir úr eigu hans, myndir
og munir, handrit og fleira sem
ekki hefur komið fyrir augu al-
mennings áður.
- Hver er staða Ijóðskáldsins
Jóhannesar úr Kötlum í íslensk-
um bókmenntum?
Hún er dálítið þversagnar-
kennd. Jóhannes hefur notið
mikilla vinsælda og ýmis ljóð
hans verið mikið lesin upp og
sungin, tónlistarfólk hefur sóst
eftir að gera lög við ljóð hans - í
bókmenntaheiminum hefur hann
hins vegar notið mikillar virðing-
ar en lítiilar athygli síðasta ára-
tug. Mikilvægustu bókmennta-
rannsóknir á verkum hans eru
frá áttunda áratugnum. Það sem
löngum hefur gert hann athyglis-
vert rannsóknarefni er hversu
margbrotinn ferill hans var. I
fyrstu ljóðabókum sínum var
hann nýrómantískt skáld, síðan
varð skáldskapur hans opinn og
útleitinn, Jóhannes varð þylting-
arskáld. Þegar módernisminn
kom til Islands urðu hins vegar
hvörf á skáldskaparferli hans og
hann skipaði sér í flokk með hin-
um ungu skáldum þó að sjálfur
væri hann mun eldri. Eg tel vert
að gefa verkum hans meiri gaum
á ný og þá í ljósi ýmissa nýrra
strauma í fræðunum. Fyrir
nokkru benti Sveinn Skorri
Höskuldsson á það að Jóhannes
hefði ekki einvörðungu tekið upp
módernisma sem form heldur
mætti einnig sjá drungalega
heimssýn atómskáld- __________
anna í ljóðum hans.
Þess má og geta að í
nýjasta hefti Mímis,
tímarits stúdenta í ís- _____
lenskum fræðum, ~~~
minnist ég Jóhannesar og vek at-
hygli á því að hann er mun meiri
brautryðjandi í módemískri
ljóðagerð en oft er talið, þar sem
fyrstu módemísku ljóð hans
koma á prent þegar árið 1945 þó
að fyrsta módemíska Ijóðabók
hans komi ekki út fyrr en 1955.
Þá er athyglisverð hvaða aðferð
Jóhannes beitti í þessari kúvend-
ingu í skáldskap sínum því hann
íklæddist dulargervi og var um
Ármann Jakobsson
►Ármann Jakobsson fæddist í
Reykjavík 1970. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskóian-
um við Sund árið 1990, BA-prófi
í íslensku sumarið 1993 frá Há-
skóla íslands og MA-prófi í ís-
lenskum bókmenntum haustið
1996 frá sama skóla. Hann hef-
ur verið stundakennari við há-
skólann og gagnrýnandi hjá DV
síðari ár. Hann er formaður Fé-
lags íslenskra fræða.
tíma módernískt skáld undir dul-
nefni (anonymus) og hefðbundið
skáld undir skáldanafni sínu.
Þannig má segja að Jóhannes
hafi beinlínis haft hamskipti.
Þess má geta að í könnun um við-
horf stúdenta í íslensku til bók-
mennta 20. aldar, sem birt er í
sama hefti Mímis, kemur í ljós að
Jóhannes er mjög að sækja í sig
veðrið meðal stúdenta í íslensku
og er næst vinsælasta skáld aid-
arinnar á eftir Steini Steinarr.
- Stendur fyrir dyrum ný út-
gáfa á verkum Jóhannesar úr
Kötlum?
Ekki svo ég viti. Ljóð skálds-
ins voru gefin út í ellefu binda
heildarútgáfu á áttunda áratugn-
um og munu sum bindin nú upp-
seld þannig að kannski er kom-
inn tími til þess að fara að huga
aftur að útgáfu verka hans. Þess
má raunar geta að Mál og menn-
ing gaf út Stórbók með úrvali úr
verkum Jóhannesar fyrir nokkr-
um árum.
- Eru Ijóð Jóhannesar úr
Kötlum óvenjulega „söngvæn"?
Tilfinning hans fyrir hljómi
málsins virðist hafa verið óvenju
sterk. Það er engu líkara en sum
ljóð hans kalli á tónlist. Með
þessu móti tekst Jóhannesi ein-
hvern veginn að brjóta hömlur
listgreinar sinnar og vera líka
------------------- hluti af tónlistarlífi
Jóhannes hef- landsmanna. Um leið
ur notið mik- held að hann standi
illa vinsælda nær alþýðu
morg onnur Ijoðskald.
- Er Sóleyjarkvæði
Jóhannesar ekki talsvert óvenju-
legt verk í íslenskum bókmennt-
um?
Jú, það er það og margir unn-
endur Jóhannesar segja mér að
það sæki æ meira á eftir því sem
það er lesið oftar, ég yrði ekki
hissa þó að athygli bókmennta-
fræðinga ætti eftir að beinast að
því i ríkari mæli á næstu árum og
það jafnvel talið eitt helsta stór-
virki hans.