Morgunblaðið - 18.05.2002, Blaðsíða 28
ÚR VESTURHEIMI
28 LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
hafa náð samningum við heima-
menn um samstarf vegna verkefn-
isins og gerir ráð fyrir að taka þar
sýni úr um 120 fulltrúum þessara
Kopar-Inúíta. „Við hittum öldung-
aráð þeirra í Cambridgeflóa, en
öldungarnir ráða þar miklu,“ segir
Gísli. „Þeir greiddu atkvæði um
hvort leyfa ætti þessa sýnatöku og
í kjölfarið var fundur með bæj-
arstjórninni, sem samþykkti einn-
ig rannsóknina í atkvæða-
greiðslu.“
Vísindasiðanefndin hér á landi
hefur samþykkt verkefnið fyrir
sitt leyti og greina Agnar og Gísli
frá undirbúningi þess og mark-
miðum á ráðstefnu við Háskólann
á Akureyri 24. maí, en verkefnið
er styrkt af Rannsóknasjóði Há-
skóla Íslands og Grænlandssjóði.
Meðal samstarfsaðila eru Háskól-
inn á Grænlandi og Stofnun Vil-
hjálms Stefánssonar. Greining á
erfðaefni fer fram hjá Íslenskri
erfðagreiningu.
GÍSLI Pálsson, prófessor í mann-
fræði við Háskóla Íslands, og dr.
Agnar Helgason, mannfræðingur
hjá Íslenskri erfðagreiningu, hafa
fengið leyfi til að safna erfðasýn-
um í Grænlandi og meðal frum-
byggja í Nunavut í Kanada í þeim
tilgangi að að bera þau saman við
erfðaupplýsingar um Íslendinga,
Dani og Norðmenn.
Verkefnið snýst um það að
kanna erfðasögu Inúíta og hvort
íbúar norrænu nýlendunnar á
Grænlandi hafi blandast Inúítum.
Það hefur verið í undirbúningi í
tvö ár og hefur meðal annars þurft
að fá leyfi til að safna erfðasýnum
á Grænlandi og meðal frumbyggja
í Nunavut, sjálfstjórnarsvæði
Inúíta í Kanada.
Fyrir skömmu fóru Gísli Páls-
son, Ari Trausti Guðmundsson,
jarðeðlisfræðingur, Ragnar Th.
Sigurðsson, ljósmyndari, og Valdi-
mar Leifsson, kvikmyndagerð-
armaður, til Kanada til að afla þar
nauðsynlegra leyfa, en Ari Trausti
og Valdimar ætla að gera heimild-
armynd um verkefnið frá byrjun
til loka og verður hún væntanlega
sýnd í Sjónvarpinu í lok ársins eða
fljótlega á næstu ári. Fjórmenn-
ingarnir fóru m.a. til Viktoríaeyju,
en einn liður í rannsókninni bygg-
ist á því að sannreyna tilgátu Vil-
hjálms Stefánssonar um að Kopar-
Inúítar séu að hluta til komnir af
íbúum upprunalegu nýlendu nor-
rænna manna frá Grænlandi, sem
lagðist af um 1450 eftir um 400 ára
byggð. „Vilhjálmur er talinn vera
fyrsti hvíti maðurinn sem hitti
þessa Kopar-Inúíta og rannsakaði
samfélag þeirra. Hann kallaði þá
reyndar Blond Eskimos eða „blá-
eyga eða ljóshærða Eskimóa“ og
taldi vera afkomendur norrænna
manna á Grænlandi,“ segir Gísli.
Félagarnir voru í eina viku í
Nunavut, m.a. í Cambridge-flóa á
Viktoríaeyju og þar verða sýnin
tekin, að sögn Gísla. Hann segist
Verkefnið erfðasaga Inúíta og afdrif norrænu nýlendunnar á Grænlandi
Þrjár konur á fundi öldungaráðsins í Cambridge-flóa, en öldungarnir greiddu atkvæði um sýnatökuna.
Sýni verða tekin í Cambridge-flóa á Viktoríaeyju í Nunavut, þar sem
drengurinn og hundarnir una glaðir við sitt.
Ljósmynd/Ragnar Th.Sigurðsson
Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, hélt fyrir-
lestra um kenningar Vilhjálms Stefánssonar varðandi Kopar-Inúíta og
sýndi myndir frá 3. leiðangri hans 1913 til 1918.
Öll tilskilin leyfi
fengin í Nunavut
OPIN HÚS Í DAG
www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Allar upplýsingar veittar
á skrifstofu í símum
588 4477
Boðagrandi 1 - laus fljótl.
Gullfalleg og björt 3ja herb. íb. á 2
hæð í litlu fjölbýli. Íb. er sérl. vel-
skipul. m. fallegum innréttingum.
Nýl. parket. Góð stofa og gott út-
sýni. Gott flísal. baðherb. m.
glugga. 2 svefnherb. Stórar svalir.
Íbúðin er laus nær strax. Frábær
staðsetn. Stutt í skólann og útsýni á KR-völlinn.
Verð aðeins 10,9 milj.
Guðný sýnir íbúðina í dag kl. 14 - 17. Allir velkomnir.
Rjúpufell 33 - 4ra herb. Í þessu
vandaða fjölbýlishúsi er til sýnis í
dag, 111 fm, 4ra herb. íb. á 2
hæð. Íb. er með nýju fallegu eld-
húsi og tækjum. Svalir eru yfir-
byggðar. Húsið er allt nýklætt að
utan og gluggar allir nýjir úr áli.
Húsið er óvenjuglæsilegt og í sérfl. Verð aðeins kr. 10,8 milj.
Guðný sýnir íbúðina í dag kl. 14 - 17. Allir velkomnir.
Frábært verð.
Nánari upplýsingar veitir Bárður í 896-5221
FYRIRHUGAÐ er að Davíð Jóhann-
esson, silfursmiður á Egilsstöðum,
haldi námskeið í gerð íslensks víra-
virkis í Vesturheimi á næsta ári, en
hann hefur sýnt handverkið vestra í
fjórgang á rúmu ári, síðast á ársþingi
Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vest-
urheimi, sem haldið var í Minneapolis
í Bandaríkjunum fyrir skömmu.
Davíð sýndi réttu handtökin á
þinginu í Vancouver í Kanada fyrir
rúmu ári og í Safni íslenskrar arfleifð-
ar í Kanada í Gimli á Íslendingadeg-
inum í fyrrasumar auk þess sem hann
sýndi á Norsku haustsýningunni í
Minot í Norður-Dakóta í fyrrahaust,
þar sem hann vann til gullverðlauna. Í
kjölfarið var hann beðinn um að koma
til Minneapolis og þar kom fram
áhugi á því að fá hann til að halda
námskeið í Bandaríkjunum og Kan-
ada innan skamms.
Davíð segir að mikil skiplagsvinna
sé framundan ytra og verið sé að
kanna hvort grundvöllur sé fyrir því
að halda tvö námskeið á hverjum stað,
byrjendanámskeið og framhaldsnám-
skeið, og fara síðan frá einum stað til
annars á einhverju ákveðnu tímabili.
Í orðabók Menningarsjóðs er víra-
virki skilgreint sem „skraut, myndað
af vírþráðum, sem er brugðið marg-
víslega saman“. Davíð hefur kennt
þessa list á 10 kennslustunda helgar-
námskeiðum um allt land undanfarin
tvö ár og er venjulega með átta nem-
endur hverju sinni. Hann segir fyr-
irhugað að halda sams konar nám-
skeið vestra og kenna gömlu
aðferðina, þ.e. handsmíðaaðferðina,
við að búa til víravirki. „Fólk fær að
spreyta sig á þessu og hvert námskeið
endar með því að fólkið lýkur við ein-
hvern grip og fer heim með hann.“
Davíð segir að hann hafi lagt
áherslu á að viðhalda þessari iðn inn-
anlands og ánægjulegt sé að hafa líka
getað kynnt víravirkisgerðina erlend-
is. „Skemmtilegast er að hafa fengið
tækifæri til að kynna íslenska víra-
virkið á meðal afkomenda Íslendinga
í Vesturheimi. Grínistarnir kalla mig
víravirkistrúboðann, en hvað sem því
líður þá er þessi kynning mikill sigur
fyrir víravirkið, vegna þess að þetta
er arfleifðin okkar.“
Víravirkið kynnt vestra
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Davíð Jóhannesson, silfursmið-
ur á Egilsstöðum, sýnir gerð ís-
lensks víravirkis á þjóðræknis-
þinginu í Minneapolis.