Morgunblaðið - 18.05.2002, Blaðsíða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002 25
FÖÐURLANDSÁST
hefur verið svo sterk
í Bandaríkjunum síð-
an hryðjuverkin
voru framin 11. sept-
ember í fyrra, að
þarlendir fréttamenn
hafa stundum ekki
getað spurt erfiðra
spurninga um herför
Bandaríkjanna gegn
hryðjuverkum, sagði
Dan Rather, aðal-
fréttaþulur hjá
bandarísku sjón-
varpsstöðinni CBS, í
viðtali við breska
ríkissjónvarpið,
BBC, sl. fimmtudags-
kvöld.
„Það sem hér er
um að ræða – hvort sem maður
vill kannast við það eða ekki eða
nefna það sínu rétta nafni – er
einskonar sjálfsritskoðun,“ sagði
Rather. „Þetta byrjar með því að
maður verður var við föðurlands-
ástina í eigin brjósti. Síðan verður
maður þess fullviss að landsmenn
allir – með fullum rétti – finni föð-
urlandsástina blossa upp hjá sjálf-
um sér. Svo stendur maður sig að
því að segja sem svo: Ég veit hvað
væri rétt að spyrja um, en veistu
hvað? Þetta er ekki alveg rétti
tíminn til að bera þá spurningu
upp.“
Í viðtalinu bar Rather þann
vanda sem bandarískir frétta-
menn standa stundum frammi fyr-
ir vegna föðurlandsástarinnar
saman við það sem andófsmenn
máttu þola í Suður-Afríku á tím-
um aðskilnaðarstjórnarinnar.
„Þetta er svívirðilegur sam-
anburður. Ég er ekki viss um að
ég kunni við hann. En eins og þú
veist var það einu sinni svo í Suð-
ur-Afríku að menn settu logandi
hjólbarða um hálsinn á þeim sem
sýndu andóf. Og að sumu leyti ótt-
ast maður að verða hankaður, að
fá um hálsinn eins konar logandi
hjólbarða fyrir skort á föðurlands-
ást. Það er þessi ótti sem kemur í
veg fyrir að fréttamenn spyrji
allra erfiðustu spurninganna. Og
ég fyrirverð mig fyrir það, en
þessari gagnrýni beini ég líka að
sjálfum mér.“
Erfitt að veita nauðsynlegar
upplýsingar
Rather sagði að „tryllt föð-
urlandsást“ gerði fréttamönnum
erfitt um vik að veita Bandaríkja-
mönnum allar þær upplýsingar
sem þeir þyrftu að fá um stríðs-
reksturinn í Afganistan og að
krefja ríkisstjórnina svara. „Það
er ekki til marks um föðurlands-
ást að horfast ekki í augu við þá
og spyrja spurninganna sem þeir
vilja ekki heyra – þá menn sem
bera ábyrgðina, raunverulega
bera ábyrgðina í samfélagi eins og
okkar, á því að senda syni okkar
og dætur, eiginmenn og konur ...
til að horfast í augu við dauðann.“
Rather ásakaði ennfremur
Bandaríkjastjórn um að hafa ekki
veitt fréttamönnum óheftan að-
gang að átakasvæðunum og öllum
þeim upplýsingum sem hún hafi
um stríðið. „Bandaríkin hafa aldr-
ei háð stríð þar sem aðgangur
hefur verið jafn takmarkaður og í
þessu,“ sagði Rather, og bætti við
að sér þætti miður að bandarískur
almenningur hefði sætt sig við
þessar takmarkanir.
„Tryllt föður-
landsást“
London. AP.
AP
Dan Rather
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
Vordagar
Laugardagur
í Skútuvogi 16
Opið 10 -16
Ráðgjafar á staðnum
leiðbeina um val
á húsum og gefa góð
ráð um uppsetningu.
barnahús
garðhús
gestahús
Garðhús, ósamsett: 64.500 kr.
Barnahús, ósamsett: 59.885 kr.
Gestahús, ósamsett: 214.900 kr..
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
17
83
6
05
/2
00
2
Pallaolía 1.450 kr.
B: 164 L: 164 + verönd. Þakefni ekki innifalið.
B: 330 L:300 + verönd. Þakefni ekki innifalið.
B: 330 L:300 + verönd.
Þakefni ekki innifalið.