Morgunblaðið - 18.05.2002, Blaðsíða 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002 23
MIKE Tomlinson, sem er fyrrver-
andi yfirmaður Ofsted, eftirlits með
grunnskólum í Bretlandi, segir að
verið sé að grafa undan ýmsum
námsgreinum með ofuráherslu á
grunnfögin lestur, skrift og stærð-
fræði. Í frétt BBC er haft eftir hon-
um að þessi ofuráhersla væri að
grafa undan kostunum sem fylgt
hefðu því að taka upp samræmda
námskrá fyrir um áratug. Hann seg-
ir að einkum hafi greinar eins og
landafræði, saga, listagreinar og
kennsla í hönnun og tækni látið und-
an síga.
Skólarnir séu einnig hvattir til að
leggja meiri áherslu á verknám en
áður og þegar upp sé staðið eigi sér
stað hljóðlát bylting þar sem hlutar
af námskránni séu smám saman
þurrkaðir út. Hann segist vissulega
meta gildi verknáms fyrir marga
nemendur en hættan sé að nemend-
ur missi af verðmætum sem gefi til-
veru þeirra aukið gildi um alla fram-
tíð. „Enginn getur efast um að
listgreinar, tónlist, leiklist og bók-
menntir eru námsgreinar sem hafa
ákaflega mikil áhrif á það hvernig við
verjum lífi okkar.“
Tomlinson segir að með þessari
slæmu þróun sé verið að þrengja
mjög sviðið og framhaldsskólarnir
noti auk þess margir nýfengið frelsi
og sjálfstæði til að einfalda náms-
framboðið.
„Ég hef áhyggjur af því sem verið
er að ýta út af borðinu og það er
hryggilegt að margar af þessum
greinum eru þær sem algengast var
að ekki stæðu til boða áður en sam-
ræmdu námskránni var komið á,“
sagði hann.
BBC ræðir einnig við kennara
sem deila áhyggjum Tomlinsons.
Einn þeirra, Sue Matthew, sem
kennir við St Ebbe’s grunnskólann í
Oxford, segir að áherslan á lestur og
stærðfræði þrengi að öðrum grein-
um. Hún segir kennara stundum fá
sektarkennd.
„Tíminn er alltaf of lítill og manni
finnst að huga þurfi betur að stærð-
fræðinni og lestrinum svo að þegar
farið er inn á yndisleg svið sköpunar-
máttarins er innra með manni nag-
andi tilfinning, „Drottinn minn, er ég
búinn að klára lestrartímann?“ og
þrýst er á um að ljúka við námsefn-
ið.“
Breskir grunnskólar sagðir
hunsa æ meira skapandi greinar
Lestur, skrift
og stærðfræði
ofar öllu
TAMAE Watanabe (t.h.) er 63 ára
gömul kona frá Japan, hún var
meðal þeirra mörgu sem klifu
hæsta fjall jarðar, Everest, á
fimmtudag. Watnabe mun vera
elsta kona sem komist hefur á tind
Everest sem á máli Nepalmanna
heitir Sagarmatha. Með henni á
myndinni er ljósmyndarinn Nor-
iyuki Muraguchi en myndin var
tekin í grunnbúðum áður en lagt
var í tindinn. Alls klifu 54 Everest á
fimmtudag, að sögn AP-fréttastof-
unnar og meðal þeirra var Tashi
Wangchuk Tenzing. Hann er
barnabarn Tenzing Norgay, sér-
pans sem var í för með Edmund
Hillary þegar Everest var klifið í
fyrsta sinn 1953. Hjónin Phil og
Susan Ershler komust á tindinn á
fimmtudag og urðu að sögn Aften-
posten fyrst allra hjóna til að klífa
saman hæstu tinda allra heimsálf-
anna sjö.
AP
Allt er sextugum fært