Morgunblaðið - 18.05.2002, Blaðsíða 59
MESSUR Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002 59
upsmessa kl. 10.30. Söfnun fyrir landið
helga. Mánudaginn 20. maí: Annar í hvíta-
sunnu – Messa kl. 10.30 (engin messa
kl. 18!)
Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga:
Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga:
Messa kl. 18.30. Sunnudaginn 19. maí
kl. 15: Messa á pólsku.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16.
Miðvikudaga: Messa kl. 20.
Hafnarfjörður – Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Miðvikudaga: Skriftir kl.
17.30. Messa kl. 18.30. Laugardaga í
maí: Messa kl. 18.30. Maímánuður er
settur sérstaklega undir vernd heilagrar
Maríu meyjar og tileinkaður henni. Haldin
verður bænastund á hverjum miðvikudegi
og laugardegi fyrir kvöldmessu kl. 18.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8.
Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14.
Fimmtudaga: skriftir kl. 19.30. Bæna-
stund kl. 20.
Akranes, spítali: Hvítasunnudaginn
messa kl. 15.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.
Grundarfjörður og Ólafsvík: Nánari upp-
lýsingar hjá Fransiskussystrum í Stykkis-
hólmi (438 1070).
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 16 á
ensku og kl. 18 á pólsku.
Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa
kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11.
FÆREYSKA sjómannaheimilið: Sam-
koma á morgun kl. 16. Góðir gestir frá
Færeyjum tala og syngja.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl.
14. Fermingarmessa. Sjá nöfn ferming-
arbarnanna á öðrum stað í blaðinu. Allir
eru hjartanlega velkomnir í þessa sameig-
inlegu messu safnaðarins. Kl. 16. List-
vinafélag Vestmannaeyja stendur fyrir
tónleikum Gunnars Gunnarssonar og Sig-
urðar Flosasonar í Landakirkju. Djössuð
sálmalög. Tónleikarnir eru helgaðir minn-
ingu Eyjólfs Pálssonar, sem hefði orðið
70 ára nú annan í hvítasunnu. Annar í
hvítasunnu, mánud. 20. maí: Kl. 20.30.
Poppmessa með hljómsveitinni „Kristni-
boðarnir í Kína“ (Made in China). Ný og
gömul poppmessulög. Leiðtogar í Æsku-
lýðsfélagi Landakirkju – KFUM&K lesa úr
ritningunni og sr. Kristján Björnsson legg-
ur út af guðsorðinu í spjallræðu kvölds-
ins. Kaffi og appelsínudjús á eftir. Allir
hjartanlega velkomnir.
BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi:
Hátíðarmessa kl. 11. Gunnar Kristjáns-
son sóknarprestur.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós: Hátíðar-
messa kl. 14. Gunnar Kristjánsson sókn-
arprestur.
LÁGAFELLSKIRKJA: Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 11. Fiðluleikur: Jónas Þórir Dag-
bjartsson. Kirkjukór Lágafellssóknar, org-
anisti Jónas Þórir. Kirkjukaffi í
skrúðhússalnum. Jón Þorsteinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Þórhildur Ólafs. Org-
anisti Natalía Chow. Félagar úr kór Hafn-
arfjarðarkirkju leiða söng.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Hátíðarguðsþjónusta
á hvítasunnudag kl. 11. Kirkjukór Víð-
istaðasóknar syngur undir stjórn Úlriks
Ólasonar. Einsöngur Sigurður Skagfjörð.
Allir velkomnir. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Hátíðar- og
fermingarguðsþjónusta kl.11. Í guðsþjón-
ustunni verða fermd fjórtán ungmenni.
Organisti er Þóra Guðmundsdóttir og kór-
stjóri Örn Arnarson. Prestar Einar Eyjólfs-
son og Sigríður Kristín Helgadóttir.
VÍDALÍNSKIRKJA: Messa með altaris-
göngu í Vídalínskirkju kl. 11 á hvítasunnu-
dag. Sameinaðir kórar Garða- og Bessa-
staðasóknar (Kór Vídalínskirkju og
Álftaneskórinn) leiða almennan safnaðar-
söng og syngja saman messukafla úr
Missa brevis eftir W.A. Mozart. Stjórnend-
ur kóranna og organistar eru Jóhann Bald-
vinsson og Hrönn Helgadóttir. Við mess-
una þjóna báðir prestarnir, sr. Hans
Markús Hafsteinsson og sr. Friðik J. Hjart-
ar. Eftir messuna verður boðið upp á veit-
ingar í safnaðarheimilinu og þar mun kór
Vídalínskirkju syngja létta vor- og sum-
arefnisskrá, m.a. þjóðlög frá öllum Norð-
urlöndunum og íslensk og erlend kórlög.
Allir eru velkomnir í messuna kl. 11, svo
og í veitingar og á tónleika á eftir. Eru
Garðbæingar og aðrir hvattir til að koma.
Rúta frá Hleinum kl. 10.30.Vakin er at-
hygli á sýningu Leifs Breiðfjörð í Vídal-
ínskirkju ,,Sigur lífsins“, sem opnuð var
16. maí síðastliðinn. Hér er um að ræða
fimm ný verk frá þessu ári, unnin með
vatnslitum og pastellitum. Sýningin mun
standa út júní og er opin alla daga kl. 10–
20. Sýningin er öllum opin og ókeypis.
Prestarnir.
BESSASTAÐASÓKN: Hvítasunnudagur
19. maí: Munið sameiginlega guðsþjón-
ustu Garðasóknar og Bessastaðasóknar í
Vídalínskirkju á hvítasunnudag 19. maí
kl. 11. Kaffi og söngskemmtun á eftir.
(Sjá auglýsingu frá Garðasókn.) Rúta ekur
hringinn um kl. 10.30. Prestarnir.
KÁLFATJARNARSÓKN: Hátíðarmessa í
Kálfatjarnarkirkju kl. 14 á hvítasunnudag.
Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðar-
söng undir stjórn organistans Franks Her-
lufsen. Við athöfnina verða fermd tvö
börn: Kristbjörn Hilmir Kjartansson, Ara-
gerði 9, Vogum og Ásthildur Ýr Gísladóttir,
Vogagerði 1, Vogum. Við athöfnina þjóna
sr. Friðrik J. Hjartar og sr. Hans Markús
Hafsteinsson. Prestarnir.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Grindavíkurkirkja.
Hátíðarguðsþjónusta hvítasunnudag 19.
maí kl. 11. Prestur sr. Hjörtur Hjartarson.
Organisti Örn Falkner. Kór Grindavíkur-
kirkju leiðir safnaðarsöng. Minningartón-
leikar um Siguróla Geirsson, organista,
kl. 20 í kirkjunni. Sóknarnefnd.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Hvítasunnudagur. Há-
tíðarguðsþjónusta kl. 11. Organisti: Pál-
ína Fanney Skúladóttir. Kór Útskálakirkju
syngur. Garðvangur, helgistund kl. 15.30.
Sóknarprestur Björn Sveinn Björnsson.
HVALSNESKIRKJA: Hvítasunnudagur. Há-
tíðarguðsþjónusta kl. 14. Organisti: Pál-
ína Fanney Skúladóttir. Kór Hvalsnes-
kirkju syngur. Sóknarprestur Björn Sveinn
Björnsson.
NJARÐVÍKURKIRKJA: (Innri-Njarðvík.)
Guðsþjónusta sunnudaginn 19. maí kl.
14.30. Hvítasunnudagur. Kór kirkjunnar
ina. Bergþór Pálsson, Anna Sigríð-
ur Helgadóttir, Birgir og Hörður
Bragasynir sjá um fjölbreytta tón-
list.
Sr. Hjálmar Jónsson prédikar, sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson leiðir og
sr. Karl V. Matthíasson leiðir.
Tónleikar og
poppmessa í
Landakirkju
TVENNIR tónleikar verða í Landa-
kirkju um hvítasunnuna, sígild ein-
söngslög og flautuleikur á laug-
ardeginum og djössuð sálmalög á
hvítasunnudag. Þá verður haldin
poppmessa að kvöldi annars í hvíta-
sunnu.
Fyrst halda þær Anna Alexandra
Cwalinska, sópransöngkona, og
Védís Guðmundsdóttir, flautuleik-
ari, sígilda tónleika ásamt Guð-
mundi H. Guðjónssyni, organista
Landakirkju, sem leikur á píanó.
Þessir tónleikar eru í Safn-
aðarheimilinu laugardaginn 18.
maí kl. 16. Á efnisskrá eru verk eft-
ir meistarana Händel, Mozart,
Grieg, Lehár, Rossini, Chopin,
Theodorakis o.fl.
Hvítasunnudag kl. 16 stendur
Listvinafélag Vestmannaeyja fyrir
tónleikum í Landakirkju sem
haldnir eru til minningar um Eyjólf
Pálsson, sem hefði orðið sjötugur
annan í hvítasunnu, 20. maí. Gunn-
ar Gunnarsson leikur á orgel kirkj-
unnar og Sigurður Flosason á saxó-
fón. Þeir flytja einstakar djassaðar
útsetningar á þekktum sálmalögum
eins og þeir hafa gert víða í
kirkjum landsins og hvarvetna
fengið lof fyrir.
Að kvöldi 2. í hvítasunnu verður
poppmessa í kirkjunni með ung-
lingahljómsveitinni „Kristniboð-
arnir í Kína“ (Made in China) og
hefjast þeir kl. 20.30. Sungin verða
ný og gömul poppmessulög sem oft
hafa hljómað í kirkjunni og margir
kunna vel. Leiðtogar í Æskulýðs-
félagi Landakirkju – KFUM & K
lesa úr Ritningunni og sr. Kristján
Björnsson leggur út af guðsorðinu í
spjallræðu kvöldsins.