Morgunblaðið - 18.05.2002, Blaðsíða 70
UNDANFARNAR vikur hefur fólk
víða um land orðið vart við lífsglaða
verðandi stúdenta uppáklædda sem
hinar ýmsu fígúrur. Þessi áralanga
hefð gefur nemendum tækifæri á
að sletta rækilega úr klaufunum áð-
ur en próflestur tekur við.
Útskriftarárgangur Iðnskólans í
Hafnarfirði gerði að sjálfsögðu
enga undantekningu þarna á og
klæddi sig upp í tilefni dagsins.
Dagurinn var að þeirra sögn hinn
skemmtilegasti og að vanda segja
myndirnar meira en mörg orð.
Nemendur af út-
stillingabraut
Iðnskólans í
Hafnarfirði stilla
sér upp.
Útskrifarnem-
endur af hár-
snyrtibraut
grímuklæddir í
tilefni dagsins.
Hafnfirðingar
dimmitera
Til minningar um
fórnarlömb stríðs
ÞEIM SEM leggja leið sína í Frí-
kirkjuna í kvöld um klukkan 21 gefst
sjafdgæft tækifæri á að hlýða á
strengjakvartett fluttan af Áróra
kvartettinum og hljómsveitinni múm
ásamt Graduale Nobili.
Kvartettinn, sem er númer 8, er
eftir rússneska tónskáldið Dmítrí
Sjostakovitsj og er hann fluttur til
minningar um öll fórnarlömb stríðs í
heiminum, eða eins og Sjostakovitsj
komst sjálfur að orði:
„Of margir hafa dáið og verið
grafnir á óþekktum stöðum. Þetta
kom fyrir marga af vinum mínum.
Hvar á að reisa legsteinana? Aðeins
tónlistin getur séð um það. Ég er
reiðubúinn að skrifa tónverk fyrir
hvert og eitt einasta fórnarlamb en
það er ógjörningur, þess vegna til-
einka ég tónlist mína þeim öllum.“
Aðgangur er ókeypis en frjáls
framlög verða vel þegin. Allur ágóði
af tónleikunum mun renna óskertur
til fórnarlamba stríðsátaka í Palest-
ínu.
Að sögn Gyðu Valtýsdóttur, eins
liðsmanna múm, eru tónleikarnir
einnig síðasta tækifæri landsmanna
að sjá hljómsveitina múm koma fram
hérlendis áður en þau leggja upp í
tónleikaferð um heimin.
„Við verðum að spila í öllum helstu
stórborgum Evrópu í sumar auk tón-
leika í Japan og Bandaríkjunum,“
sagði Gyða og sagðist að sjálfsögðu
hvetja alla til að koma í Fríkirkjuna í
kvöld og styðja verðugt málefni.
múm
Síðustu tónleikar múm á Íslandi í sumar
FÓLK Í FRÉTTUM
70 LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
sumar
Nú eru komnar spennandi vörur fyrir sumarið í Mogga-
búðina, kjörið tækifæri fyrir fríska ferðalanga. Þú getur
keypt boli, sundpoka, töskur, golfvörur, geisladiskahulstur,
klukkur, reiknivél o.fl. á einstöku verði beint af Netinu með
öruggum hætti. Þú skoðar vörurnar og pantar á mbl.is og
færð þær sendar heim til þín eða á vinnustað.
Líttu inn hjá okkur
fyrir ferðalagið!
Hvítur bolur,
nú 500 kr.
Brúnn bolur,
nú 500 kr.
Armbandsúr,
nú 750 kr.
Þú getur líka komið við hjá okkur í Morgunblaðshúsinu,
Kringlunni 1, og skoðað vörurnar þar.
EINFALT OG ÞÆGILEGT!
sumartilboð
50% afsláttur!
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.
Derhúfa, aðeins 800 kr.
Síðermabolir, aðeins 1.300 kr.
Sundpoki, aðeins 1.000 kr.
Reiknivél, aðeins 950 kr.
Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr.
Músarmotta, aðeins 450 kr.
Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.
í Moggabú›inni