Morgunblaðið - 18.05.2002, Blaðsíða 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002 15
sími 462 2900
iittala
á Glerártorgi
Blómin
í bænum
Hofsbót 4
1. hæð hússins nr. 4 við Hofsbót á Akureyri er til sölu eða leigu í
einu eða tvennu lagi. Stærð 293,8 fm. Laus um mánaðamótin
júní/júlí. Húsið er reist árið 1988 og er í fyrsta flokks ástandi.
Sími 461 1500,
fax 461 2844,
netfang petur@fast.is
Allar nánari upplýsingar hjá undirrituðum.
FORDÓMUM verður blásið burtu
með sameiginlegu átaki víða um land í
dag, laugardag, og láta Akureyringar
sitt ekki eftir ligga. Þeim sem leggja
vilja átakinu lið er stefnt á Glerártorg
í dag frá kl. 15 til 16, þar sem um tvö
þúsund blöðrurverða fylltar og þeim
síðan sleppt frjálsum í loftið að lokn-
um skemmtiatriðum.
Skíðafélag Akureyrar sér um
blöðruáfyllingar og blöðrusleppingar
og nýtur við það liðsinnis KA-meist-
aranna í handbolta. Í frétt vegna
þessa atburðar segir að það væri vel
til fundið hjá frambjóðendum flokk-
anna að mæta á staðinn og veita átaki
gegn fordómum dyggan stuðning.
Þúsund
blöðrur gegn
fordómum
KEPPNI í efstu deild karla á Ís-
landsmótinu í knattspyrnu hefst á
mánudag og að þessu sinni eiga Ak-
ureyringar tvö lið á meðal þeirra 10
bestu. Þór og KA unnu sér sæti í
deildinni sl. sumar og eru bæjarbúar
farnir að bíða spenntir eftir því að
geta fylgst með stórleikjum í viku
hverri næstu mánuðina. Knatt-
spyrnuveislan fer því að hefjast en
KA fær ÍBV í heimsókn í fyrstu um-
ferð og Þór sækir Íslandsmeistara
Skagamanna heim á sama tíma.
Leikur KA og ÍBV fer fram á Ak-
ureyrarvellinum. Aðalsteinn Sigur-
geirsson forstöðumaður Akureyrar-
vallar sagði það í fyrsta skipti í sögu
vallarins að leikið væri á honum á
sama tíma og skíðasvæðið í Hlíðar-
fjalli væri opið. „Akureyrarvöllur
hefur aldrei verið opnaður svo
snemma og þá hefur heldur aldrei
verið opið fyrir almenning í fjallinu
svo lengi fram á sumarið.“
Í gegnum tíðina var yfirleitt byrj-
að að leika á Akureyrarvelli í kring-
um miðjan júní en undanfarin ár í
byrjun mánaðarins. Aldrei áður hef-
ur verið leikið á vellinum í maí svo
vitað sé, að sögn Aðalsteins.
Þrjú úrvalsdeildarlið á sama
heimavellinum
„Völlurinn er ekki alveg tilbúinn
en hann er sá besti sem við getum
boðið upp á í bænum. Völlurinn á eft-
ir að verða enn betri í sumar og sá
besti á landinu líkt og í fyrra. Það var
mikil gróska í vellinum en í kulda-
kastinu að undanförnu stöðvaðist
hún alveg.“
Aðalsteinn sagði að framundan
væri skemmtilegt knattspyrnusum-
ar á Akureyri og hann á von á að
Norðlendingar eigi eftir að flykkjast
á völlinn næstu mánuðina. „Hér á
vellinum munu þrjú úrvalsdeildarlið
leika sína heimaleiki í sumar og það
eru ekki margir sem geta státað af
slíku. Auk Þórs og KA leikur
kvennalið Þórs/KA/KS einhverja
heimaleiki sína á vellinum.“
Knattspyrnu-
veislan að hefjast
Morgunblaðið/Kristján
Aðalsteinn Sigurgeirsson, forstöðumaður Akureyrarvallar, t.v., og Páll
bróðir hans voru að setja netin í mörkin á vellinum í gær en fyrsti leikur
sumarsins fer þar fram á mánudag.
VINSTRI grænir á Akureyri bjóða
bæjarbúum upp á rútuferðir um
bæinn í dag, laugardag, og verður
lagt af stað frá KEA-horninu kl. 11
og kl. 13.
Leiðsögumenn verða þeir Árni
Steinar Jóhannsson og Bragi Guð-
mundsson. Á eftir verður boðið upp
á kaffi, kleinur og rabb við tilvon-
andi bæjarfulltrúa í Græna húsinu.
Þátttaka er ókeypis og öllum
heimil.
Síðar í dag, eða kl. 14, stendur
framboðið fyrir óvenjulegri keppni
í göngugötunni við Græna húsið.
Keppt verður í tveimur greinum:
Mjólkurfernusamanbroti, þ.e. að
brjóta saman mjólkurfernur þann-
ig að þær verði nánast ekki að
neinu. Í þessari grein er keppt í
eins manns liðum. Einnig verður
keppt í
húsbyggingum úr mjólkurfern-
um; þriggja manna keppnislið
byggja dúkkuhús eða önnur mann-
virki úr þessum efniviði.
Rútuferð og mjólk-
urfernukeppni
Vinstri grænir
ÁRLEG vorsýning Myndlista-
skólans á Akureyri verður hald-
in um hvítasunnuhelgina, dag-
ana 18. til 20. maí, í húsnæði
skólans við Kaupvangsstræti 16.
Fimm nemendur útskrifast
frá skólanum á þessu vori, einn
úr fagurlistadeild, Ingunn St.
Svavarsdóttir, og fjórir úr list-
hönnunardeild en þeir eru Anna
Sigríður Eiríksdóttir, Freydís
Eir Freysdóttir, Hafsteinn B.
Þórðarson og Nökkvi Þorsteins-
son.
Á sýningunni verða verk eftir
útskriftarnemana, auk nema
sem eru að útskrifast úr forn-
ámsdeild. Einnig eru þar verk
eftir nemendur á 1. og 2. ári í
sérnámsdeildum skólans. Í vet-
ur stunduðu 49 nemendur nám í
dagdeildum skólans.
Að þessu sinni verða á sýn-
ingunni verk eftir nemendur
sem voru á barnanámskeiðum á
vorönn og sýnishorn verka sem
gerð voru á námskeiðum í past-
elmálun, teiknimyndasögugerð,
andlitsteiknun og grafík.
Sýningin verður opin frá kl.
14 til 18 frá laugardegi til mánu-
dags.
Fimm nemendur útskrifast
frá Myndlistaskólanum á Akureyri
Morgunblaðið/Kristján
Útskriftarnemar frá Myndlistaskólanum á Akureyri í sólskins-
skapi, f.v. Nökkvi Þorsteinsson, Freydís Eir Freysdóttir, Anna Sig-
ríður Eiríksdóttir og Hafsteinn Þ. Þórðarson. Á myndina vantar
Ingunni St. Svavarsdóttur.
Vorsýning um helgina
HÖNNUNARDAGAR standa yfir í
verslun Pennans-Bókvals við Hafn-
arstræti. Þar verður m.a. kynnt ný
íslensk skrifstofulína, Flétta plús,
auk þess sem íslenskum og erlend-
um hönnuðum verða gerð skil.
Hönnunardagarnir standa yfir til 24.
maí næstkomandi.
Hönnun-
ardagar
GÁMASVÆÐI Akureyrarbæjar við
Réttarhvamm hefur verið opið al-
menningi allan sólarhringinn und-
anfarin ár. Í vikunni varð breyting
þar á, sem greinilega hefur ekki
náð til allra bæjarbúa, ef marka
má aðkomuna að svæðinu í gær-
morgun. Þar höfðu einhverjir skil-
ið eftir haug af rusli, framan við
lokað hliðið, í stað þess að fara
með það heim aftur og koma síðar.
Flestir sneru hins vegar frá með
sitt rusl í fyrrakvöld og gærmorg-
un.
Sem fyrr segir var svæðið opið
allan sólarhringinn fram til 15. maí
sl. og þar var 10 klst. vakt á dag.
Nú hefur verið tekinn upp svokall-
aður sumartími og er gámasvæðið
nú aðeins opið frá kl. 12.30–21.00
alla virka daga og um helgar frá
kl. 10–16 á tímabilinu 15. maí til
15. ágúst. Eftir þann tíma verður
svæðið aðeins opið frá kl. 12.30–
18.30. Í bæklingi, sem borinn var í
öll hús á Akureyri, var m.a. getað
um breytingar á gámasvæðinu og
einnig í auglýsingum en eitthvað
virðast upplýsingarnar hafa kom-
ist illa til skila, ef marka má að-
komuna að hliðinu í gærmorgun.
Gámasvæði bæjarins ekki lengur opið allan sólarhringinn
Ruslið
skilið eftir
við hliðið
Morgunblaðið/Kristján
Starfsmenn Akureyrarbæjar voru í hálfgerðu rusli yfir aðkomunni að
gámasvæðinu í gær en við hliðið hafði safnast upp myndarlegasti rusla-
haugur, sem þeirra beið að fjarlægja.