Morgunblaðið - 31.10.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
í 1
m
dóm, Hrafnkell minn, eins og þú
veist. Maður verður að taka því, sem
að höndum ber, en ég er í læknis-
meðferð.“ Við gengum inn í skrif-
stofu hans í búðinni og tókum tal
saman. Mér gekk erfiðlega að finna
umræðuefni við þessar aðstæður. Sá
tvær stórar myndir uppi á vegg af
gömlu fólki og spurði, hver þau
væru. Hann sagði þetta vera föður-
foreldra sína og bætti við: Amma
mín var einnig amma hans Sigga
Jónu. Það kom einhver inn í búðina,
Ingþór staulaðist með erfiðismunum
að verslunarborðinu og afgreiddi
viðkomandi með þeim þægilegheit-
um sem honum var lagið. Eftir það
kvaddi ég Ingþór. Þetta var síðasta
skiptið, sem ég hitti hann. Við hjónin
ætluðum að heimsækja hann fyrir 10
dögum síðan, ég talaði við hann í
síma, en hann bað okkur að koma
síðar, hann væri svo veikur. Það er
varla meira en svo, að ég átti mig á
því, að þessi sterki og þrekmikli
maður skuli vera horfinn okkur.
Það var bæði hafnfirskt og kaup-
mannsblóð í æðum Ingþórs. Faðir
hans Haraldur Sveinbjarnarson var
lengi umboðsmaður Citroén verk-
smiðjanna í Frakklandi, á Islandi.
Systir Haraldar, Jóna, bjó í Hafnar-
firði. Svo er einnig með son hennar,
Sigurð Sigurgeirsson, eða Sigga
Jónu, sem var mikill félagi Ingþórs.
Móðir Ingþórs, Halldóra Sigurjóns-
dóttir, var dóttir Jónfríðar Halldórs-
dóttur og Sigurjóns Gunnarssonar,
sem bjuggu við Hverfisgötuna í
Hafnarfirði. Halldóra var af Gunn-
arsbæjarætt. Var mikið listfengi í
þeirri ætt, til dæmis voru tveir bræð-
ur Halldóru listmálarar í aukastai'fi,
annar þeirra einnig kaupmaður, og
Halldóra sjálf bjó til ýmis listaverk.
Ingþór erfði þessa hæfileika.
Ingþór hafði mikið og gott tónlist-
areyra. Eg man fyrst eftir honum, er
hann á skemmtun lék á munnhörpu
á sviði Bæjarbíós. Þar lék enginn
vafi á, að listamaður væri á ferð.
Eg kynntist síðan Ingþóri Har-
aldssyni fyrir tæpum þremur ára-
tugum, þegar eiginkona mín, Oddný
M. Ragnarsdóttir, og kona Ingþórs,
Þorbjörg Daníelsdóttir, kaupkona,
ættuð frá Þórshöfn á Langanesi,
hófu saman nám í öldungadeild
Hamrahlíðarskólans, en það var við
upphaf þeirrar kennslu í skólanum.
Frá þeim tíma hefur verið mikill
vinskapur með fjölskyldum okkar.
Þær eru ófáar ferðirnar, sem við fór-
um saman, bæði þegar börnin í báð-
um fjölskyldum voru ung og síðai'.
Eitt skiptið fórum við saman á
tveimur bílum umhverfis landið og
höfðum aðsetur á Egilsstöðum í
vikutíma í boði héraðshöfðingjans
Erlings Garðars Jónassonar. I það
skipti skoðuðum við Austfirðina vel; í
önnur skipti fóru fjölskyldurnar
saman í veiði og lágum við þá gjarn-
an í tjöldum. Ég sá fljótt, að maður-
inn var með afbrigðum veiðinn og
þýddi ekkert fyrir mig að etja kapp
við hann á því sviði.
Félagsmálahlið Ingþórs kynntist
ég í Lionshreyfingunni. Ingþór var
þar til margra ára unglingaskipta-
stjóri á landsvísu. Hann tók á móti
unglingum frá útlöndum og skipu-
lagði dvöl þeirra hér. Leysti hann
byrjun fimmta áratugarins er flestum
ljóst að aðgengi að endurgjaldslausri
lögfræðiþjónustu var hvergi að fá.
Þörfin íýrir samfélagslega þjónustu
sem þessa var mjög brýn. Auður var
fyrsti lögfræðingur nefndarinnar og
þróaði hún starfið á þann veg að í
anda hennar hélt starfsemin áfram
þai' til fyrir tæpum tveimur árum er
breyting varð á, enda þjóðfélagsgerð-
in önnur en hún var á fimmta ára-
tugnum.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
var stofnuð árið 1928 í kjölfar hræði-
legs sjóslyss þegar togarinn Jón for-
seti strandaði út af Stafnesi. Fimm-
tán skipverjar drukknuðu en tíu
komust af. Voru þá hugir almennings
opnir fyi'ir því að koma ekkjum og
mörgum _ föðurlausum börnum til
hjálpar. A þessum tíma áttu ekkjur
og fráskildar konur engan rétt á
hjálp af opinberu fé nema sveitar-
styi'k. Réttarstaða þessara hópa var
alla tíð hjartans mál Auðar Auðuns.
Það sýnir best hversu framsýnar þær
konur voru með stofnun Mæðra-
styrksnefndar Reykjavíkur. í dag er
mikil þörf á nefndinni þó á annan
þetta verk með afbrigðum vel. Þótt
Ingþór væri ekki langskólagenginn
talaði hann reiprennandi ensku,
norðurlandamál og þýsku. Eitt skipti
varð ein þýsk stúlka „afgangs“. Eitt-
hvað hafði gerst hjá þeim Lions-
manni, sem ætlaði að taka á móti
stúlkunni. Við hjónin tókum hana að
okkur og ferðuðumst m.a. með hana
ásamt Þorbjörgu og Ingþóri.
Hvenær sem ég hefi heyrt í
stúlkunni síðan hefur hún spurt
frétta af Kaufmann Haraldsson.
Segir það sína sögu.
Ingþór eignaðist eftir föður sinn
meginhluta jarðarinnar Vatnsholt
við Apavatn. Hann byggði sér þar
fallegt, tvílyft hús á vatnsbakkanum.
Það var unun að horfa á hann þar
fyrir austan við iðnaðarvinnu, hvort
sem hann var með hamar eða
skrúflykil í hendi, öll slík vinna lék í
höndum hans. Síðustu árin eyddi
hann megninu af frítíma sínum þar
fyrir austan. Hann var þai' sívinn-
andi við framkvæmdir, oft á tíðum
var frændi hans Siggi Jónu, tré-
smíðameistari, sem einnig á sumar-
hús þai-na fyrir austan, að hjálpa
honum. Hvenær sem við hjónin kom-
um í Vatnsholt var fagnandi tekið á
móti okkur með mikilli rausn, hvort
sem okkur hafði verið sérstaklega
boðið eða við „droppuðum inn“.
í minningu minni lifir Ingþór sem
góður og hjálplegur félagi.
Við hjónin vottum Þorbjörgu og
börnum þeirra, tengdabörnum og
barnabörnum okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Bæði voru þau
hjónin mjög trúuð og veit ég að það
mun hjálpa þeim, sem eftir lifa, að
takast á við sorgina, því að minning-
in um góðan dreng mun lifa.
Hrafnkell Ásgeirsson.
Kveðja frá félögmm í
Lionsklúbbnum Frey
Fyrrum félagi okkar Ingþór Har-
aldsson í Lionsklúbbnum Frey er
fallinn frá. Þar er genginn góður fé-
lagi sem Lionshreyfingin á Islandi á
margt að þakka. Ingþór gegndi
mörgum ábyrgðarstöðum innan
hreyfingarinnar á þeim árum sem
hann starfaði.
Hann var félagi í Frey frá ái'inu
1972. Hann gegndi embætti ung-
lingaskiptastjóra í tíu ár samfleytt
1981 til 1990 eða lengur en nokkur
annar. I unglingaskiptunum naut
hann dyggrar aðstoðar eiginkonu
sinnar Þorbjargar Daníelsdóttur.
Arið 1990 var hann sæmdur Mel-
vyn Jones orðunni sem er æðsta við-
urkenning sem klúbbur getur veitt
félaga sínum fyrir störf.
Á Lionsþingi 1991 var hann
sæmdur æðstu viðurkenningu al-
þjóðahreyfingarinnar sem alþjóða-
forseti Lions veitir. Ingþór sat í und-
irbúningsnefnd vegna Lionsþings
1975 til 1976, umdæmisritari 1978 til
1979 og fulltrúi á N.R.S þingi 1987.
Við félagar í Frey þökkum góðum
félaga samfylgdina og vottum eftir-
lifandi eiginkonu, Þorbjörgu Daní-
elsdóttur, og öðrum aðstandendum
okkar dýpstu samúð.
Fyrir hönd Lionsklúbbsins Freys,
Ottó V. Guðjónsson, formaður.
hátt sé því enn eru skjólstæðingar
nefndarinnar ekkjur, einstæðar
mæður og öryrkjar. Auður lét af
starfi sínu sem lögfræðingur fyrir
nefndina árið 1960 en vai’ kjörin
sama ár í stjórn Mæðrastyrksnefnd-
ar Reykjavíkur. Hún starfaði í stjórn
nefndarinnar allt til ársins 1990 er
hún lét af störfum að eigin ósk. I
starfi sínu fyrir nefndina í hálfa öld
öðlaðist hún mikilsverða þekkingu á
aðstæðum kvenna og barna þeirra.
Þar fór því saman trú hennar á ein-
staklingsfrelsi og jafnrétti auk þekk-
ingar hennar á aðstæðum þeirra er
minna máttu sín í samfélaginu. Nú-
verandi og fyrrverandi nefndarkonur
Mæðrastyi'ksnefndai' Reykjavíkur
þakka henni af alhug hennar mikla
og góða starf í þágu nefndarinnar í
fimm áratugi. Börnum hennar og
öðrum aðstandendum eru sendar ein-
lægar samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Auðar Auð-
uns.
Fyrir hönd Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur,
Ásgerður Jóna Flosadóttir,
formaður.
SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1999 35
Hmbl.is
-ALLTAf= £=l7~rH\/ALD A/ÝT7
Á næstunni verður frumsýnd kvikmyndin Bardagaklúbburinn (Fight Club),
þar sem Brad Pitt og Edward Norton fara með aðalhlutverkin. Kvikmyndin
fjallar um tvo félaga sem stofna með sér bardagaklúbb. Klúbburinn nær
miklum vinsældum en hlutirnir taka óvænta stefnu þegar stúlka að nafni
Marla, leikin af Helenu Bonham Carter, kemur til leiks.
Þá er slagurinn hafinn
Heppinn þátttakandi, , sem svarar léttum spurningum
á mbl.ÍS getur unnið:
► Þriggja mánaða kort frá World Class
>10.000 kr. fataúttekt frá Adidas
s Miða fyrir tvo á myndina
Bardagaklúbburinn (Fight Club)
• Fight Club tösku og bol frá Skífunni