Morgunblaðið - 31.10.1999, Síða 34
34 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1999
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Allir
saman nú!
Þess vegna skulum við öll trúa með ís-
lenskum ráðamönnum. (Ekki vera að
þrasa þetta!) Efvið trúum því öll nógu
staðfastlega þá hlýtur það að vera satt.
Hvað kemur til, að
íslenskir ráða-
menn - forsætis-
ráðherra og utan-
ríkisráðherra
fremstir í flokki - láta sem ekk-
ert sé þegar bandarískir fræði-
menn halda því fram að Banda-
ríkjastjórn hafi geymt kjarna-
vopn á Islandi á dögum kalda
stríðsins? íslenskir framámenn
vitna í bandaríska embættis-
menn því til svokallaðrar stað-
festingar að ekkert sé hæft í því
að kjarnavopn hafí verið á Is-
landi.
Og hafa Bandaríkjamenn þó
lýst því yfir að það sé stefna
þeirra að játa því hvorki né
neita að
VIÐHORF kjarnavopn
_ —— _ _ hafi verið
Eftir Kristján G. a-eymd víða
Arngrímsson \ .
um heim a
dögum stríðs-
ins. En þeir víkja að sjálfsögðu
frá þessari algildu reglu þegar
mister Asgrímsson hringir og
krefst svara.
Eða var kannski aldrei krafist
svara? Var bara ákveðið, að úr
því grein bandarísku fræðing-
anna í Fréttaskoti kjarnorku-
fræðinga sannaði ekki með af-
gerandi hætti að hér hefðu verið
kjamavopn, væri einfaldast að
gera eins og bandarískir sígar-
ettuframleiðendur gerðu hvað
lengst, segja að ekkert væri
sannað? Reyndar gengu ráða-
menn á Islandi lengra og fóru
nærri því að fullyrða að úr því
að ekki væri beinlínis sannað að
hér hefðu verið vopn þá væri
slíkt þar með afsannað. Ekki að
spyrja að rökvísinni á þeim
bænum.
Staðhæfíng bandarísku fræð-
inganna var byggð á fræðileg-
um forsendum, ekki pólitískum.
Svar íslenskra ráðamanna var
að öllu leyti á pólitískum for-
sendum, og þar af leiðandi í
rauninni ekkert svar.
I umfjöllun Morgunblaðsins
um málið kom hins vegar fram,
að fræðingarnir bandarísku
höfðu ályktað sem svo, að Is-
land væri á lista yfir lönd utan
NATO, þótt eðlilegra mætti
teljast að það myndi vera á lista
yfir NATO-ríki. Þetta ósam-
ræmi drægi úr áreiðanleika
meginályktunarinnar.
Þetta var málefnaleg og
fræðileg mótbái-a, enda tók einn
fræðinganna hana skilyrðislaust
til greina þegar hún var borin
undir hann. Að vísu sagði hann
ýmis önnur gögn renna frekari
stoðum undir ályktunina.
Alyktun fræðinganna er ekki
í sjálfu sér pólitísk, þótt hún
hafi tvímælalaust pólitísk áhrif.
Orðspor Islands sem kjarnorku-
vopnalauss lands er allt í einu í
hættu. Erlendir fjölmiðlar full-
yrða að á Islandi hafi verið
kjarnorkuvopn og íslensk
stjómvöld hafi ekki vitað af því.
Þetta gerir líka íslenska stjóm-
málamenn svolítið kjánalega.
Svo er miklu þægilegra fyrir
núverandi ríkisstjórn að neita
þessu bara. Annað væri tómt
vesen. Það þyrfti að fara að
vera með allskonar kröfur og
hávaða - og það við sjálfa
Bandaríkjamenn - um rann-
sóknir og afléttingu skjala-
leyndar og hver veit hvað.
Raunsætt fólk gerir sér grein
fyrir því, að maður gerir ekki
kröfur til Bandaríkjanna - mað-
ur bara lýtur þeim.
Sérstaklega þegar vitað er
fyrirfram að það kæmi ekkert
út úr þessum hávaða nema það
sem þegar er vitað: Að við mun-
um aldrei fá að vita fyrir víst
hvort Bandaríkjamenn geymdu
hér kjarnavopn eður ei. (Og
hvaða máli skiptir það svo sem
núorðið?) Þeir hafa búið svo um
hnútana, að um þetta mál verð-
ur ekki meira gert en velt vöng-
um.
Því verður vart neitað, að
ályktun bandarísku fræðimann-
anna er fullgild og er vísbend-
ing um að hér hafi verið geymd
kjarnorkuvopn. Hún er ekki
sönnun þess. Slíka sönnun er
ekki hægt að fá. En það er
rangt af íslenskum stjórnvöld-
um að neita því að vísbendingar
um þetta hafi komið fram. Is-
lenskir ráðamenn eiga að gera
eins og aðrir, sem velta þessu
máli fyrir sér: Viðurkenna að ef-
inn sé eina svarið. En efi virkar
ekki í stjórnmálum, þótt hann
sé yfirleitt það svar sem fræði-
menn verða að búa við.
Isienskir ráðamenn hafa valið
að trúa orðum bandarískra
ráðamanna eins og nýju neti,
þótt stutt sé um liðið síðan sjálf-
ur forseti Bandaríkjanna varð
uppvís að lygum, og bandarískir
fjölmiðlar séu yfirleitt fullir efa-
semda um heilindi þarlendra
stjómmálamanna.
En Islendingum er boðið upp
á það, að ekki sé nokkur ástæða
til að efast um að undirmenn
Bills Clintons segi satt. Ein-
hverntima var sagt að eftir
höfðinu dönsuðu limirnir, en ef
marka má íslenska ráðamenn er
það alls ekki endilega rétt.
Þetta er í rauninni svo fráleitt,
að það er ástæða til að efast
stórlega um að íslenskir ráða-
menn trúi í raun og veru orðum
bandarískra embættismanna,
þótt þeir segi íslensku þjóðinni
að trúa þeim.
Ástæða þess að íslenskir
ráðamenn, og sumir íslenskir
fjölmiðlar, hafa ákveðið að vera
ekki með uppsteyt heldur gera
eins og Bandaríkjamenn segja
þeim er ekki sú, að fræðingarnir
fari augljóslega með rangt mál.
Ástæðan er einfaldlega pólitísk.
Það er miklu hagkvæmara og
auðveldara að segja bara já og
amen. Og fyrst ekkert hefur
verið endanlega sannað gæti hið
gagnstæða alveg eins verið satt,
og því þá ekki að láta sem svo
sé, íyrst það er hentugra? Þess
vegna skulum við öll trúa með
íslenskum ráðamönnum. (Ekki
vera að þrasa þetta!) Ef við trú-
um því öll nógu staðfastlega þá
hlýtur það að vera satt.
Það er þó huggun harmi
gegn, að allar upplýsingar um
málið eru aðgengilegar í fjöl-
miðlum og á internetinu, og
þess vegna skiptir það á endan-
um engu máli hvað Davíð Odds-
son segir vera satt og rétt í mál-
inu.
INGÞÓR
HARALDSSON
+ Ingþór Haralds-
son kaupniaður
fæddist í Reykjavík
17. nóvember 1932.
Hann lést á heimili
sínu í Kópavogi 26.
október síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Halldóra Sigurjóns-
dóttir úr Hafnar-
firði og Haraldur
S veinbj arnarson,
kaupmaður í
Reykjavík. Þau
skildu. Seinni maður
Halldóru var Óli J.
Sigmundsson kaup-
maður og húsasmiður á Isafirði.
Sambýliskona Haraldar var
Petra Guðmundsdóttir.
Ingþór kvæntist Þorbjörgu
Daníelsdóttur árið 1957. Þeirra
böm era Haraldur Arnar, f.
1958, kvæntur Guðlaugu Sigurð-
ardóttur. Þeirra böra eru Araa
Sigrún og Ingþór; Daníel Örn, f.
1960, kvæntur Sólveigu Skúla-
dóttur, þeirra synir eru Skúli
Þór og Óli Halldór; Gréta, f.
1966, í sambúð með Gísla Hjart-
arsyni, þeirra börn eru Baldvin
Hugi og Emma Katrín; Halldóra,
f. 1967, gift Carlos Cabrera.
Ingþór ólst upp í Reykjavík
Það eru aðeins þrír mánuðh' síðan
ég hitti vin minn Ingþór Haraldsson
síðast í verslun hans. Var hann þá
ekki eins hress og hann átti vanda til,
en kvartaði þó ekki. Var þá ekki búið
að greina sjúkdóm þann, sem dregið
hefur hann til dauða á örfáum vikum.
Eg kynntist Ingþóri árið 1957 þeg-
ar hann og Þorbjörg hófu búskap á
Snorrabraut 22, en Þorbjörg hafði
verið vinnufélagi minn á Heiðarfjalli
árið áður. Mynduðust þegar góð
tengsl milli okkar, við áttum mörg
sameiginleg hugðarefni og áhuga-
mál. Þessi vinátta hefur haldist allar
götur síðan og höfum við saman átt
margar ánægjustundir hér í bænum
og ekki síður á ýmsum ferðum okkar.
Eg kynntist foreldrum hans Haraldi
og Halldóru, einnig stjúpföðurnum
Óla sem var fjölskyldu Ingþórs mjög
kær. Ég hef líka fylgst með börnun-
um þeirra fjórum vaxa úr grasi og
verða góðir þjóðfélagsþegnar sem
hafa stofnað fjölskyldur og eignast
yndisleg börn, augasteina afa og
ömmu.
Ógleymanlegar eru allar ferðimar
okkar austur í Vatnsholt, við veiði-
skap og útiveru og síðar þegar þau
byggðu fyrri bústaðinn sinn á vatns-
bakkanum. Einnig höfum við Ásta
átt góðar stundir með þeim og fjöl-
skyldu þeirra í nýja bústaðnum sem
var sérstakt áhugamál Ingþórs, en
þangað fór hann hvenær sem hann
hafði tækifæri til. Var hann stöðugt
að endurbæta bústaðinn og fegra og
rækta umhverfi hans.
Aldrei mun ég heldur gleyma
þeirri aðstoð sem Ingþór veitti mér
og Hafnarfirði þar
sem hann gekk í
Flensborgarskóla
og tók þaðan gagn-
fræðapróf. Hann
kom fram sem
munnhörpuleikari,
bæði sem einleikari
og með tríóum sín-
um, um árabil.
Hann vann í fyrir-
tæki föður síns,
Haraldi Sveinbjarn-
arsyni lif., 1949-53
og 1956-60, var
skrifstofustjóri hjá
vamarliðinu á
Keflavíkurflugvelli 1953-55, inn-
flutningsstjóri hjá Verslanasam-
bandi Islands 1960-66 og starf-
rækti fyrirtæki í eigin nafni upp
frá því. Ingþór var félagi í
Lionsklúbbnum Frey og gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
klúbbinn og alþjóðahreyfingu
Lions. Hann var m.a. unglinga-
skiptastjóri Lions-hreyfingar-
innar í tíu ár.
Utför Ingþórs fer fram frá
Digraneskirkju á morgun,
mánudaginn 1. nóvember, og
hefst athöfnin klukkan 15.30.
Hann verður jarðsettur í Garða-
kirkjugarði.
1967 þegar ég var að basla við að inn-
rétta mér íbúð, þá vann hann með
mér hvert kvöld og oft langt fram á
nótt í þrjár vikur meðan verið var að
gera íbúðina íbúðarhæfa. Ingþór var
mjög lagtækur og útsjónarsamur og
átti alltaf góð verkfæri.
Fyrstu starfsár sín vann hann við
verslun föður síns, en síðar varð
hann innkaupastjóri hjá Verslana-
sambandinu allt þar til hann stofnaði
eigið fyrirtæki, Ingþór Haraldsson
hf. Rak hann það fyrirtæki fyrst á
Snorrabraut 22 en síðustu árin í
Kópavogi. Þetta fyrirtæki var alltaf
vel þekkt meðal iðnaðarmanna í
Reykjavík og víðar fyrir góðar og
vandaðar vörur og sérstaklega fyrir
lipurð og sérþekkingu hans á öllu
sem varðaði verkfæri fyrir bifreiða-
viðgerðir. Einnig var verslunin lengi
aðalverslunin með toppgi’indur fyrir
bíla. Síðari árin lagði Ingþór aðalá-
herslu á verkfæri og efni til föndur-
vinnu og var stöðugur straumur við-
skiptavina til að kaupa tæki og efni
til útskurðar og slíkrar vinnu.
Sjálfur var hann mjög fjölhæfur,
hann var vel hagmæltur og átti gott
með að setja saman vísur. Einnig var
hann listaskrifari, skrautritari og
mjög góður ljósmyndari, átti góðar
myndavélar og vann sínar myndir
sjálfur af sinni alkunnu smekkvísi.
Naut hann þess að skipuleggja
myndasafn sitt og hafa reglu á því.
Árið 1972 gerðist hann félagi í
Lionsklúbbnum Frey og áttum við
þar sameiginleg hugðarefni. Var
hann í mörg ár virkur félagi klúbbs-
ins og tók mikinn þátt í starfi hans
við fjáröflun og merkingar á slóðum
á hálendinu og brúm víðsvegar um
landið. Á vegum klúbbsins tók hann
einnig að sér að vera unglingaskipta-
stjóri Lionshreyfingarinnar, ekki að-
eins í eitt ár eins og tíðkast hafði,
heldur sinnti hann því starfi um tíu
ára skeið ásamt fjölmörgum öðram
störfum fyi'ir hreyfinguna. Sat hann
mörg þing Lionshreyfingarinnar inn-
anlands og utan og hlaut ýmsar við-
urkenningar fyrir þessi störf sín,
m.a. æðstu viðurkenningu alþjóða-
forsetans. Hafði hann brennandi
áhuga á stai'finu og hjálpaði honum
mikið málakunnátta hans, en hann
var ótrúlega fljótur að tileinka sér
erlend tungumál og ýmis blæbrigði
þeirra. En Ingþór var ekki einn,
hann átti Þorbjörgu sína, sem stóð
sem klettur við hlið hans. Vora þau
hjón góðir og glæsilegir fulltrúai'
hreyfingarinnar, tóku vel á móti
gestum sínum og hýstu iðulega ung-
linga sem komu til landsins í ung-
lingaskiptum. Eignuðust þau þannig
mjög trygga vini víðsvegar um heim-
inn og heimsóttu þá gjarnan á ferð-
um sínum erlendis.
Á yngi’i árum var Ingþór þekktur
sem þesti munnhörpuleikari landsins
og kom iðulega fram á skemmtunum
með munnhörputríói sínu og einnig
sem einleikari. Brást það sjaldan að
Ingþór hefði hljóðfærið með sér á
ferðum sínum og var þá oft glatt á
hjalla.
Að leiðarlokum kveðjum við þig,
kæi'i vinur og félagi. Minningar um
þig og samverastundir okkar munum
við varðveita að eilífu.
Elsku Þorbjörg, börnin ykkar,
tengdabörn og barnabörn, við vitum
að Ingþórs verður sárt saknað, ekki
síst af barnabörnunum, en þau voru
gjarnan á ferð með afa sínum og
ömmu þegar þau fór austur í Vatns-
holt.
Hverju sem ár
og ókomnir dagar
aómérvíkja,
er ekkert betra
en eiga vini,
sem aldrei svíkja.
(Davíð Stef.)
Megi Guð gefa ykkur styrk og
hjálpa ykkur til að varðveita minn-
inguna um góðan dreng.
Ásta og Jón R. Sigurjónssori.
Mánudaginn 1. nóvember verður
borinn til grafar vinur okkar, Ingþór
Haraldsson, kaupmaður í Kópavogi.
Hann lést eftir stutt en hörð veik-
indi. Hann hafði svo mikla lífsorku,
áður en hann veiktist, og virtist eiga
svo miklu ólokið. En enginn veit sína
ævina, fyrr en hún er öll.
Ingþór rak verkfæraverslun um
áratuga skeið, fyrst í Reykjavík og
síðar í Kópavogi. Fyrir nokkrum ár-
um söðlaði hann um, hætti að selja
verkfæri en sneri sér að föndurvör-
um, bæði fyrir unga og gamla. Hafði
hann byggt upp mikil og góð við-
skipti á því sviði.
Fyrir um þremur vikum heimsótti
ég Ingþór í verslun hans í Kópavogi.
Hann átti erfitt með gang, en hann
gekk fram í búðina og tók í hönd mér
og sagði: „Nú hefi ég fengið minn
AUÐUR
AUÐUNS
+ Auður J. Auð-
uns fæddist á
ísafirði 18. febrúar
1911. Hún lést á
Droplaugarstöðum
19. október síðast-
liðinn og fór útför
hennar fram frá
Hallgrímskirkju 26.
október.
Við fráfall Auðar Auð-
uns er farin ein af merk-
ustu konum Islands á
þessari öld. Hún var
meðal fyrstu kvenna
sem luku langskólanámi og fyrst
kvenna á íslandi til að ljúka embætt>
isprófi í lögfræði. Hún var einn af
þeim einstaklingum sem ruddu braut-
ina fyrir konur á hinum ýmsu sviðum
þjóðlífsins. Hún fylgdi ætíð stefnu
Sjálfstæðisflokksins og
komst þar til æðstu
metorða. Hún var kjörin
á þing árið 1959 og átti
þar sæti til ársins 1974.
Þá var hún kjörin borg-
arstjóri Reykjavíkur um
tíma. Auður Auðuns
varð dóms- og kirku-
málaráðherra í ráðu-
neyti Jóhanns Hafstein.
Er ferill þessarai' ein-
stöku konu er skoðaður
er það hreint ótrúlegt
hverju hún áorkaði því
hafa ber í huga tíðar-
andann sem þá ríkti í ís-
lensku samfélagi og hversu erfitt
uppdráttar konur áttu á þessum tím-
um. Konur hafa náð langt í baráttu
sinni um jafnan rétt. Þökk sé Auði
Auðuns. Hið mikla brautryðjenda-
staiT er hún innti af hendi á sínum
lífsferli hefur hvatt konur áfram og
sýnt fram á að konur eiga greiða leið í
allar átth'. Auður var sjálfstæðismað-
ur í raun og kom það vel í ljós í störf-
um hennai' hjá hinum ýmsu félaga-
samtökum. Má þar nefna setu hennai'
í Kvenréttindafélagi íslands og
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur sem
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og Zonta-
klúbbinn sem henni var annt um.
Hún var kjörin í Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur árið 1939 fyrir hönd
Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í
Reykjavík og starfaði óslitið fyrir
nefndina í 50 ár. Að starfa fyrir
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur í
hálfa öld lýsir vel hversu annt henni
var um nefndina og skjólstæðinga
hennar. Hún var kosin í nefndina árið
1939 og árið eftir, það er 1940, byrjaði
hún að veita lögfræðiþjónustu á sviði
sifjarétttar hjá nefndinni endur-
gjaldslaust og gerði það allt til ársins
1960. Þetta óeigingjama starf hennar
í þágu þeirra er minna máttu sín í
þjóðfélaginu, sem aðallega vora ein-
stæðar mæður, ekkjur og öiyi'kjar er
ómetanlegt. Ef maður skoðar þá
þjóðfélagsgerð sem á Islandi var í